Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1993
HJUKRUN:
AAKUREYBI AFRAM VEGINIM
Ráðstefna heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri
14.-15. júní 1993
í safnaðarheimili Akureyrarkirkju
DAGSKRÁ:
Mánudaginn 14. júní
Kl. 11.30 Afhending ráðstefnugagna hefst.
Kl. 13.00 Setning ráðstefnunnar.
Sigríður Halldórsdóttir, forstöðumaður
heilbrigðisdeildar.
HJÚKRUN - SIÐFRÆÐI - GUÐFRÆÐI.
Kl. 13.05 Umhyggja eða hjúkrunarguðfræði (Caring or
Nursing Theology) .
Dr. Katie Eriksson, prófessor við Ábo Akademi,
Finnlandi.
Kl. 14.15 Hver á að ráða? - Forræðishyggja í umönnun
og lækningu.
Dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, heimspek-
ingur, sérfræðingur við Háskólann á Akureyri.
Kl. 15.00 Heilsuhlé.
HJÚKRUN - VÖLD - SAMFÉLAG
Kl. 15.30 Mótun hjúkrunarstarfsins:
Orðræða, völd og athafnir.
Dr. Kristín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
lektor við Háskóla íslands.
Kl. 16.00 Völd, forræði og áhrif hjúkrunar innan heilbrigði-
skerfisins.
Magna Birnir, hjúkrunarfræðingur, hjúkrunarfor-
stjóri FSA.
Kynning á lokaverkefni.
Kl. 16.30 Breytt samfélag - fjölskyldulíf
og félagstengsl.
Hermann Óskarsson, félagsfræðingur,
lektor við Háskólann á Akureyri.
Þriðjudaginn 15. júní
KONUR - HEILBRIGÐI - FORVARNIR
Kl. 9.00 Upplifun kvenna á umhyggju og umhyggjuleysi í
fæðingu.
Sigfríður Inga Karlsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
Ijósmóðir, lektor við Háskólann á Akureyri. Rann-
sóknarkynning.
Kl. 9.30 Heilbrigði kvenna.
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor
við Háskóla íslands.
Kl. 10.00 Heilsuhlé.
Kl. 10.30 Upplifun kvenna á því að verða mæður á ungl-
ingsaldri og á stuðningi á þeim tíma.
Elín Hanna Jónsdóttir, Harpa Hrönn Zophanías-
dóttir, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Sigrún L.
Sigurðardóttir og Þóra Ester Bragadóttir, hjúkrun-
arfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Rann-
sóknarkynning.
Kl. 11.00 Upplifun ungra kvenna á líkama sínum.
Margrét Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur, lektorvið
Háskólann á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 11.30 Matarhlé.
ALNÆMI - HJÚKRUN - LÍKN
Kl. 13.30 Að vera HlV-jákvæður á íslandi.
Edda Baldursdóttir, Emelía Bára Jónsdóttir, Emilía
Petra Jóhannsdóttir, Hallveig Friðþjófsdóttir, Sig-
ríður Eínarsdóttir og Sigrún Tryggvadóttir, hjúkr-
unarfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Rann-
sóknarkynning.
Kl. 14.00 Upplifun aðstandenda alnæmissjúkra á alnæmi.
Gróa M. Þórðardóttir, Hugrún Ásta Halldórsdótt-
ir, Hulda Gestsdóttir, Inga Ingólfsdóttir og Sólveig
Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingar frá Háskól-
anum á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 14.30 Heilsuhlé.
Kl. 15.00 Alnæmi og líknarmeðferð.
Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur.
Kl. 15.30 Að vera HlV-jákvæður.
NN.
Kl. 16. Ráðstefnuslit.
Skráning á ráðstefnuna er á skrifstofu heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, sími 96-11770 alla virka daga fram til
4. júní. Ráðstefnugjald er kr. 4.000 fyrir báða daga en kr.
2.500 fyrir annan daginn og greiðist það við afhendingu ráð-
stefnugagna. í tengslum við ráðstefnuna verður sýning á
bókum og hjúkrunargögnum í salakynnum safnaðarheimilis-
ins. Þar verður einnig listsýning á verkum hjúkrunarfræðinga.
Verndari ráðstefnunnar er frú María Pétursdóttir.
pturgmn Wm-ar
Meira en þú geturímyndað þér!
Fuglar leituðu skjóls í híbýlum í norðanáhlaupinu
Maríuerla
innumbúr-
gluggann
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
FARFUGLAR sem hingað voru
komnir til sumardvalar báru
sig allaumlega í norðanáhlaupi
sem gerði um helgina og leit-
uðu þeir inn í hibýli manna og
dýra.
Þúfutittlingur, steindepill og
þröstur heilsuðu upp á kýr í fjósi
og hross í hesthúsi og maríuerla
flaug inn um búrgluggann hér á
bæ til að forða sér undan norðan-
áhlaupinu.
Skrautrunnar, svo sem blátopp-
ur, sem voru orðnir allaufgaðir í
blíðunni nú fyrir viku, en þá komst
hiti upp í 17 stig, hafa mikið lát-
ið á sjá og verða eflaust nokkrar
vikur að ná sér aftur.
Vorverkin stöðvast
Vorverk bænda, til að mynda
áburðardreifing, niðursetning á
kartöflum og sáning, stöðvast
með öllu í bili og verða menn að
bíða og vona að aftur komi vor í
dal.
Benjamín
Morgunblaðið/Benjamín
I kartöflugarðinum
EINAR Grétar Jóhannsson, bóndi á Eyrarlandi í Kaupvangs-
sveit, ásamt sonum sínum, Ingvari og Arnari, í kartöflugarðinum
sem nýbúið var að selja niður í. í garðinum er allt að tveggja
metra háar snjóhengjur, eftir vonskuveður helgarinnar, en kartö-
flugarðurinn á Eyrarlandi er í gilskorningi og skóf mikinn snjó
yfir hann. Kartöflubændur eru uggandi yfir veðurfarinu, sérstak-
Íega yrði slæmt ef asahláku gerði því þá er hætt við að hryggirn-
ir renni út og útsæðið liggi berskjaldað eftir.
Norðmenn kynna sér sjávar-
útvegsfræðslu í grunnskólum
Kynnast sjávarútvegi
FÓLK sem tengist sjávarútvegi í Vadsö í Noregi var á ferð á Dalvík
nýlega, en tilgangur ferðarinnar var að leita leiða til að vekja áhuga
ungs fólks á sjávarútvegsgreinum svo koma megi í veg fyrir atgerfis-
flótta úr nyrstu byggðum Noregs.
Forstöðumaður kennaradeildar Háskólans
Mælt með Guðmundi H.
Frímannssyni í starfíð
Á FUNDI háskólanefndar Háskólans á Akureyri í gær var sam-
þykkt að mæla með því að dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson yrði
ráðinn forstöðumaður kennaradeildar við Háskólann á Akureyri, en
þessi nýja deild við skólann tekur til starfa næsta haust.
Dalvík
GRUNN SKÓL AKENN AR AR og
fólk tengt sjávarútvegi frá Vadsö
í Noregi hafa verið í heimsókn á
Dalvík til að kynna sér á hvern
hátt staðið er að sjávarútvegs-
fræðslu við grunnskóla hér á
landi. För Norðmannanna var
skipulögð af fræðsluyfirvöldum í
Finnmörku, en tilgangur ferðar
þeirra er að leita leiða til að vekja
áhuga ungs fólks á sjávarútvegs-
greinum og öðru tengdu sjávar-
útveginum þannig að koma megi
í veg fyrir atgerfisflótta úr nyrstu
byggðum Noregs.
Á Dalvík gafst Norðmönnunum
tækifæri til að kynna sér fyrirkomu-
lag skipstjómarfræðslu við 10. bekk
grunnskólans þar sem nemendum
gefst kostur á að ljúka svokölluðu
„pungaprófi" sem veitir þeim 30
tonna skipstjórnarréttindi.
Auk þessa kynntu þeir sér sjávar-
útvegsdeild Verkmenntaskólans á
Akureyri sem starfrækt er á Dalvík,
en þar er boðið upp á fullgilt skip-
stjómarnám auk fiskiðnaðarnáms.
Heimsóttu gestirnir fyrirtæki á Dal-
vík sem tengjast sjávarútvegi.
Ánægðir
Norðmennimir lýstu mikilli
ánægju með dvölina hér og töldu sig
hafa mikið á henni að græða því
margt væri áhugavert í atvinnu- og
skólamálum hér á iandi sem nýst
gæti þeim til að skipuleggja sjávarút-
vegsfræðslu í grunnskólum i Finn-
mörku en heimabæir þeirra eru sjáv-
arútvegsbæir á sama hátt og Dalvík.
Fréttaritari
Sjö sóttu um stöðuna og sam-
þykkti nefndin á fundi sínum að
mæla með því við háskólarektor að
ráða Guðmund úr hópi umsækj-
enda.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
er fæddur á ísafirði árið 1952, en
hann ólst upp á Akureyri og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri árið 1972. Hann lauk
BA-prófi í heimspeki og sálarfræði
frá Háskóla íslands árið 1976 og
M.Phil-prófi haustið 1987. Hann
stundaði síðan doktorsnám við St.
Andrews í Skotlandi og lauk dokt-
orsprófi þaðan haustið 1991.
30-umsóknir
Guðmundur hefur frá því síðast-
liðið haust unnið við Háskólann á
Akureyri að undirbúningi vegna
stofnunar kennaradeildar, sem tek-
ur til starfa við skólann næsta
haust. Þegar hafa um 30 manns
sent inn umsókn til deildarinnar en
áætlað er að á fyrsta ári verði allt
að 50 nemendur.
Hef opnað tannlæknastofu
í Kaupangi v/Mýrarveg, efri álmu.
Tímapantanir í síma 22226.
Erling Ingvason,
tannlæknir.