Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 34
34
-i
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
SKAMMTIMABREF
Raunávöxtun
sl. 3. mánuði
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Krtnglunni 5, sími 689080
í eigu Búnaðarbanka íslands og sparisjóðantta
m toripM#!'
Metsölublað á hverjum degi!
Erlent
Sameinaða flug-
félagið með 3
skiptistöðvar
FLUGFÉLÖGIN fjögiir, SAS,
Seissari, Austrian Airlines og
KLM, sem hafa rætt um samein-
ingu félaganna fyrir árið 1997
hafa ákveðið að vera með 3 skipti-
stöðvar sem áformað er að aðal-
umferð þeirra fari um.
Ákveðið hefur verið að Kaup-
mannahafnarflugvöllur sinni fluti til
Norðaustur-Asíu, aðallega Japan og
Kína. Flug til Norður- og Suður-
Ameríkur færi í gegn um Amster-
dam og flug til Afríku, Suðaustur-
Asíu og hluta að Suður-Ameríku
færi í gegn um Ziirich.
í gegn um Stokkhólm, Ósló og
Vín er áformað að flug verði til hinna
þriggja megin skiptistöðva og einnig
er gert ráð fyrir að í gegn um Vín
yrði að einhveiju leyti flug til Mið-
austurlanda.
Virgin í tölvu-
bransann
BRESKI frumkvöðullinn Richard
Branson, sem m.a. hefur rekið
flugfélagið Virgin, segir að fyrir-
tækið sitt Virgin Group hafi
áform um að hefja sölu á ein-
menningstölvum. Áformað er
selja tölvurnar, sem hannaðar eru
af Virgin, í eigin verslunum fyrir-
tækisins.
Áformað er að verð á tölvunum
verði í meðallagi samanborið við
verð einmenningstölvum í Bretlandi.
Markaðs- og sölustjóri hjá Virgin
sagðist telja að „hæfilega hörð“
samkeppni væri á tölvumarkaðnum
en hann hefði trú á því að „styrkur
Virgin-vörumerkisins myndi styrkja
markaðshlutdeildina".
\>\j '/y'- -ó; , “ i y?' ; „ G
f ^ ^ ís c
^ét'rié'-y, ‘j \ Z&P/ j"'' „
Nýherji er umboðsaðili fyrir hið virta
bandarísKa fyrirtæki CALCOMP, dóttur-
fyrirtæki flugvélaframleiðandans Lockheed.
CALCOMP hefur í 35 ár sérhæft sig í
hágæða grafík og býður Nýherji úrval
jaðartækja frá CALCOMP sem byggð eru
á nýjustu tækni. Þeirra á meðal má nefna
geislateiknara, hnita- og teikniborð,
litaprentara og tölvuteiknara.
Á CRAFÍSKUM VORDÖCUM í verslun
Nýherja gefst tækifæri til að kynnast því
framsæknasta í tækjabúnaði til
tölvustuddrar hönnununar
sem völ er á í dag. Líttu því við í
verslun okkar í Skaftahlíð 24
við erum ALLTAF SKREFI Á UNDAN!
TEIKNIBORÐ
HNITABORD
PLOTTERA
LITAPRENTARA
A3 LASER PRENTARA
AUTOCAD FYRIR WINDOWS
OC FLEIRAOC FLEIRA
NÝHERJI
SKAFTAHLlO 24 - SÍMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
A Lockheed Company
American Ex-
press inn á sænsk-
an ferðamarkað
VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir um
að American Express kaupi Ny-
man & Schultz, sem er leiðandi
fyrirtæki á sviði ferðamála í Sví-
þjóð.
Gert er ráð fyrir að verðmætið
sé um 865 milljónir sænskra króna.
Samkvæmt heimildum Financial
Times hefur American Express sam-
þykkt að kaupa um 70% af hluta-
bréfum fyrirtækisins en viðræður
standa yfir um 30% bréfanna. Með
kaupunum er áformað að styrkja
Nyman & Schultz á Evrópumarkaði
en fyrirtækið er með sterka stöðu í
Svíþjóð, Noregi og Bretlandi.
Nissan kaupir af
Toyota birgja
NISSAN, annar stærsti bílafram-
leiðandi í Japan, tók í sl. viku þá
ákvörðun að kaupa hluti af birgja,
sem hefur selt til Toyota. Fram
að þessu hafa birgjar í Japan ein-
ungis tengst einum bílaframleið-
anda.
Þessi samningur er sagður vera
vísbending Nissan og Toyota til ann-
arra bílaframleiðanda og birgja um
að fyrirtækin tvö séu tilbúnir til að
lækka kostnað þó það feli í sér sam-
starf aðskildra fyrirtækjahópa.
Samningurinn kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en árið 1995 en talið
er að hann brotið ísinn á milli birgja
og annarra framleiðenda en þeir
hafa hingað til sinnt.
Lánstraust 2 dótt-
urfélaga Skandia
minnkar
FYRIRTÆKIÐ Moody’s sem legg-
ur mat á lánstraust fyrirtækja og
þjóðríkja hefur lækkað lánshæfi-
einkunn tveggja fyrirtækja innan
Skandia tryggingasamsteypunn-
ar í Svíþjóð. Þetta skýrist af vax-
andi áhyggjum af eignastöðu og
fjárhagslegum sveigjanleika sam-
steypunnar.
Moody’s lækkaði lánshæfieinkunn
Skandia Capital AB og Skandia Int-
ernational Capital vegna skulda-
bréfaútgáfu fyrirtækjanna að fjár-
hæð 800 milljónir dollara. Skandia
er talið þurfa að styrkja fjárhags-
stöðu sína vegna fjárfestinga í dótt-
urfélögum og fasteignum. Það er
hins vegar dregið í efa að samsteyp-
an muni ná að afla nægilegs fjár-
magns með hagnaði sínum sérstak-
lega í ijósi þess að líkur benda til
að fasteignir hennar í Stokkhólmi,
London og Madríd muni lækka frek-
ar í verði. Tillögur um endurskipu-
lagningu Skandia eru hins vegar
taldar samsteypunni til tekna og
staða samsteypunnar er sögð hafa I
styrkst vegna verðhækkana á hluta-
bréfamarkaði í Svíþjóð.
FT4418
Ijósritunarvél
- Þessi netta
Áreiðanleg Ijósritunarvél
með mjög mikla möguleika, svo sem
að Ijósrita beggja vegna á pappírinn.
• Þessi vél er „umhverfisvæn"
SÍMI: 91-627333 ■ FAX: 91-628622