Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 Tucker lögreglustjóri 1 Tallahassee í viðtali við blað í Flórída Betra og réttlát- ara kerfí á Islandi MELVIN L. Tucker, lögreglusljóri í Tallahassee í Flórída, sem nýlega var staddur hér á landi í átta daga í boði dómsmálaráðuneytisins, fer viðurkenningarorðum um íslenska réttarkerfið í viðtali sem birtist í dagblaðinu Tallahassee Democrat síðastliðinn fimmtudag undir fyrir- sögninnni: Augu Tuckers opnast á íslandi. „Að flestu leyti eru starfs- hættir í íslenska réttarkerfinu mun nútímalegri en okkar,“ segir Tuc- ker. „Kerfið er markvissara og réttlát niðurstaða líklegri. í fréttinni er rakið að á íslandi sitji aðeins 118 manns í fangelsi, dómarar séu ekki skipaðir tíma- bundið eins og í Bandaríkjunum og ekki sé notast við kviðdóma. Saksóknurum á íslandi beri að leit- ast við að draga fram sannleikann í málum fremur en að einblína á sakfellingu. Tucker vitnar til þess að ríkissaksóknari hafi áfrýjað máli til Hæstaréttar til að fá refs- ingu mildaða þegar honum þótti maður of hart dæmdur. „Hjá okkur geta lögfræðingar náð árangri með ~því að halda hlutum leyndum," segir Tucker og telur hið íslenska kerfi taka hinu bandaríska fram að öllu öðru leyti en því að honum finnst óeðlilegt að unnt sé að áfrýja sýknudómi til Hæstaréttar. Hagstæður samanburður í fréttinni er einnig gerður sam- anburður á fangelsiskerfum á ís- landi og í Flórída. „Við tölum um að taka harðar og harðar á málum en þeir búa við mjög fijálslegt kerfi og samt er sama hlutfall fanga dæmt oftar en einu sinni til fangelsisvistar." í framhaldi af þessum orðum segir hann tíma til kominn fyrir Bandaríkjamenn að endurskoða og endurmeta réttar- og fangelsiskerfi sitt með ný við- horf að leiðarljósi. „Við erum að tapa baráttunni. Glæpum er að fjölga og þeir verða sífellt ofbeldis- fyllri,“ segir Melvin Tucker. Ætlunin er að framhald verði á samskiptum lögregluyfirvalda í Tallahassee,_ höfuðborg Flórída, og hér á landi. íslenskir lögreglumenn heimsækja Tallahassee væntan- lega síðar»á árinu. Atvinnuástandið í aprílmánuði Atvinnuleysi minnkar nema á Suðumesjum SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar í aprílmánuði samsvara því að um 5.800 manns hafi að meðtaltali verið atvinnulausir í mánuðinum. Er það 900 færra en i marsmánuði en 2.100 fleiri en í apríl á síðasta ári. í mánuðinum dró úr atvinnuleysi alls staðar á landinu nema á Suður- nesjum, og bendir flest til þess að árstíðabundnar sveiflur eins og störf í byggingariðnaði, við vegagerð, við samgöngur og sumarstörf sveitarfélaga skýri þessar breytingar. Þá hafa átaksverkefni sveitar- félaga einnig talsverð áhrif. Alls voru skráðir um 126 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu í apríl, 67 þúsund hjá körlum og um 59 þúsund hjá konum. Samsvarar þetta því að 3.100 karlar og 2.700 konur hafi verið án vinnu í mánuð- inum. Samkvæmt þessu hefur skráðum atvinnuleysisdögum fækk- að um 19 þúsund frá mánuðinum á undan, en fjölgað um 46 þúsund frá aprílmánuði í fyrra. Þessar tölur jafngilda 4,6% af áætluðum mann- afla á vinnumarkaði og skiptist þannig að atvinnuleysi meðal kvenna er 5,2% og 4,1% hjá körlum. Minna í apríl í upplýsingum frá vinnumála- skrifstofu félagsmálaráðuneytisins kemur fram að atvinnuleysi mælist yfirleitt nokkuð minna í apríl hér á íandi en í marsmánuði á undan. Atvinnuleysið fyrir landið í heild minnkar um 13% milli þessara mán- uða nú og er það í góðu samræmi við þær reglulegu breytingar sem búast má við frá mars til apríl, en atvinnuleysi minnkaði aðeins milli 3 og 4% bæði árin 1991 og 1992. Atvinnulausum fjölgaði hins vegar um 57% frá apríl 1992. ^Peysudagar í Glugganum v Peysur, jakkapeysur, vesti, peysusett, silkibolirog silkitoppar. Verslunin Glugginn, Laugavegi 40. Fyrsta rallmót ársins var haldið um helgina Titilvörn íslands- meistaramia hafín Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Yfirburðaökumenn ÁSGEIR Sigurðsson og Bragi Guðmundsson á Metro unnu fyrsta rallmót ársins og var það fjórða árið í röð, sem þeir vinna fyrstu keppnina í Islandsmótinu. Akstursíþréttir Gunnlaugur Rögnvaldsson íslandsmeistararnir Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guð- mundsson á sérsmíðuðum Metro 6R4 rallbíll unnu á laug- ardag Þoturallið, sem var fyrsta rallmót ársins. Mótið fór fram á Suðurnesjum og var skipulagt af Akstursíþróttafé- lagi Suðurnesja. Ásgeir og Bragi náðu forystu strax í byrj- un, en Steingrímur Ingason og Páll Kári Pálsson á Nissan veittu þeim harða keppnim þótt þeir yrðu að sætta sig við ann- að sæti eftir akstur á 12 sérleið- um. Þriðju urðu Birgir Vagns- son og Halldór Gíslason á Niss- an 240RS, en flokk óbreyttra bíla unnu Keflvíkingarnir Ólaf- ur Siguijónsson og Garðar Gunnarsson á Renault Clio. Tveir bílar sem búist var við að létu að sér kveða í toppbarátt- unni, urðu fljótlega úr leik. Feðg- arnir Rúnar Jónsson og Jón Ragn- arsson á Mazda 323 lentu strax í ógöngum í byijun keppni vegna gangtruflana, þegar tengi á kveikju laskaðist. Síðan féllu þeir úr keppni þegar afturdrifið gaf' sig. Nýr Lancia rallbíll Ævars Sigdórssonar og Ægis Ármanns- sonar vakti athygli, en fór ekki langt að þessu sinni. Þeir félagar tóku sér of langan viðgerðartíma í byijun keppni og urðu að draga sig í hlé eftir stuttan sprett. Skemmtileg keppni „Keppnin var mjög skemmtileg og það er leitun að annari eins gestrisni og hjá mótshöldurum í Keflavík, öll umgjörð rallsins er vegleg og vel skipulögð, þó skipu- lagning sé á fárra hendi“, sagði Ásgeir Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið, „Hvað aksturinn varðar, þá er maður alítaf ryðgað- ur undir stýri eftir vetrarhlé og þarf tíma til að komast í betri æfíngu. Okkur Braga hefur tekist að vinna fyrsta rallið síðustu fjög- ur ár og einnig unnum við fjórða rallið í röð, sem við tökum þátt í, þannig að við erum ánægðir með árangurinn. Þá er hugmyndin að skjótast með bílinn til keppni í Bretlandi. Fyrst er þó að slást við andstæðingana í Islandsmót- inu og það var leitt að missa Rúnar og Jón svona fljótt úr slagnum, við áttum von á mestri keppni frá þeim.“ sagði Ásgeir. I flokki óbreyttra bíla er útlit fyrir jafna keppni í sumar. Sigur- vegari þess flokks í íslandsmótinu í fyrra, Baldur Jónsson á Mazda mun ekki keppa með í sumar vegna bakmeiðsla. En á Mazda er kominn einn hraðskreiðasti ökumaður landsins, Óskar Ólafs- son ásamt Jóhannesi Jóhanessyni. Þeir byijuðu Þoturalliið í fluggír, en urðu að láta undan þegar fram- drifið bilaði, sigldu þó af öryggi í endamark. Það gaf Suðurnesja- mönnunum Ólafi og Garðari færi á sigri sem þeir nýttu sér til fulln- ustu, náðu fimmta sæti og sigri í flokki óbreyttra bíla, en á undan þeim yfir heildina urðu Stefán Ásgeirsson og Ágúst Guðmunds- son á Ford Escort með léttma: landi átta cylindra Rover vél. í óbreytta flokknum voru einnig þeir Björn Pétursson og Ásgeir Öm Ásgeirsson á nýsmíðuðum Peugeot 205GTÍ, sem hefur verið hlaðinn aukabúnaði til rallaksturs. Aðeins einn veikur hlekkur var í bílnum, öxull hægra megin sem gaf sig efir 207 metra akstur á sérleið. Það hlýtur að vera einn stysta þátttaka keppenda í rall- móti. Skeljungnr kostar raUkeppnisbíl Olíufélagið Skeljungur hefur gert samning við Braga Guð- mundsson og Ásgeir Sigurðs- son íslandsmeistara í rallakstri um að sjá alfarið um kostnað við rekstur á keppnisbíl þeirra í íslandsmótinu í rallakstri á þessu ári. „Við teljum þetta mikla viður- kenningu fyrir akstursíþróttir í heild um leið fyrir þann árangur sem við höfum náð síðustu ár. Ég tel að þetta frumkvæði Skelj- ungs eigi eftir að sýna öðrum fyrirtækjum að akstursíþróttir séu góður vettvangur til að auglýsa vörur sínar og markaðssetja", sagði Bragi Guðmundsson við Morgunblaðið. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem eitt fyrirtæki sér alveg um rekstrarkostnað á keppnisbíl í toppbaráttunni, en reikna má með að nærri tvær milljónir kosti að reka bíl sem berst til sigurs í ís- landsmótinu í rallakstri. Til þessa hafa keppendur eingöngu fengið styrki frá fyrirtækjum. Metro fjór- hjóladrifsbíll Ásgeirs og Braga hefur unnið tíu rallmót síðustu ár og hefur tryggt þeim Islands- meistaratitil tvö síðustu ár. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Fegurð og hraði FEGURÐARDROTTNING íslands, Svala Björk Arnardóttir, kynnti sér farkost Islandsmeistaranna í rallakstri, þeirra Ásgeirs Sigurðssonar og Braga Guðmundssonar í tilefni af samningi þeirra við Olíufélagið Skeljung. Bíllinn er sérsmíðaður til rallaksturs af Rover-bílaverksmiðjunum og var keyptur frá Dubai við Persa- flóa fyrir nokkrum árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.