Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 3

Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 3 Átfta núll fyrir þig Með þjónustunúmerum Pósts og síma býðst símnotendum enn meiri þjónusta auk sjálfvirkrar síma- og farsímaþjónustu. Þú getur fengið aðstoð við langlínusímtöl (02 getur þú pantað símtöl innanlands og komið á símafundi á landsvísu þar sem allt að 12 manns geta verið með, hvar sem er á landinu. ( 02 er líka vakningarþjónusta fyrir þá sem eru ekki tengdir stafrænum símstöðvum. í 02 er opið allan sólarhringinn. Hvaða símanúmer viltu vita? Þú færð upplýsingar um síma-, farsíma- og faxnúmer í 03 og einnig nöfn og heimilisföng þeirra sem eru með skráðan síma. f 03 er opið frá kl. 08-22 alla daga. Hvað er rétt klukka? Þú getur fengið að vita hvað klukkan er, nákvæmalega, í 04. Það er opið allan sólarhringinn. . Er síminn bilaður? ( 05 ertekið á móti bilanatilkynningum allan sólarhringinn fyrir 91-svæðið. Upplýsingar um bilanaþjónustu annarra svæða finnur þú á upphafssíðu viðkomandi svæða í símaskránni. Viltu senda skeyti? f 06 er móttaka simskeyta og þar er hægt að senda almenn skeyti, hraðskeyti til þéttbýlissvæða innanlands, skeyti til skipa, heillaskeyti eða samúðarskeyti.. Opið allan sólarhringinn. Síminn sér um telexþjónustu fyrir þig f 07 er þjónusta fyrir þá símnotendur, einstaklinga eða fyrirtæki, sem þurfa að senda og taka á móti telexi. Til að þú getir nýtt þér þessa þjónustu þarftu að gerast áskrifandi að simatelexþjónustu Pósts og síma og þá færðu sérstakt telexnúmer og símnefni. Þú getur hringt allan sólarhringinn í 07 og lesið inn texta sem á að koma til viðtakanda. Upplýsingar um símskeyti, telex og telexnúmer færðu í síma 689011. Vantar þig upplýsingar um símanúmer í útlöndum? í 08 færðu upplýsingar um erlend síma- og faxnúmer allan sólarhringinn. Starfsfólk 08 veit meira en þig grunar um simanúmer erlendis. 09 Viltu panta símtal til útlanda? Þú getur hringt í 09 og pantað símtöl til útlanda allan sólarhringinn og einnig komið á símafundum við útlönd. PÓSTUR OG SÍMI GOTT FÓLK / SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.