Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
114. tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Króatar búa sig undir að endurheimta landsvæði af Serbum
Líkur á harðari bardög-
um með öfhigri vígvélum
Lundúnum.TheDailyTelegraph.
YFIRVOFANDI eru enn harðari bardagar
milli Serba og Króata, þar sem beitt yrði
flugvélum, skriðdrekum og eldflaugum,
að sögn embættismanna frá Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Sameinuðu þjóðunum.
Þeir segja að Serbar í Bosníu telji sig
hafa náð fram markmiðum sinum og bíði
nú þess að athygli umheimsins beinist að
næsta kafla í stríðinu þegar Króatar reyni
að endurheimta landsvæði sem þeir hafa
misst.
Breskur embættismaður sagði að bardagar
gætu blossað upp hvar sem er á svokölluðum
vemdarsvæðum Sameinuðu þjóðanna, þar
sem margir Serbar búa. Alvarlegustu átökin
gætu orðið fyrir 30. júní, þegar endumýja
þarf umboð friðargæsluliða Sameinuðu þjóð-
anna í júgóslavnesku lýðveldunum fyrrver-
andi.
Króatar vígbúast
í Króatíu er nú fast lagt að Franjo Tudj-
man, forseta landsins, að endurheimta land-
svæði, sem Króatar hafa misst, áður en efna-
hagur landsins hrynur eins og búist er við.
Talið er að forsetinn krefjist þess að Samein-
uðu þjóðimar tryggi Króötum landsvæðin en
takist það ekki reyni hann að endurheimta
þau með hervaldi. Tudjman hefur reynt að
semja við Slobodan Milosevic, forseta Serbíu,
og embættismennimir telja að Serbar geti
fallist á að afsala sér vesturhluta þeirra land-
svæða sem þeir náðu á sitt vald í Króatíu,
en þar eru varnir þeirra veikar. Þeir segja
hins vegar afar ólíklegt að Serbar afsali sér
borginni Knin í suðurhlutanum og svæðum í
austurhlutanum í grennd við borgirnar Osijek
og Vukovar. Króatar hafa verið að efla her-
sveitir sínar í grennd við þessi svæði og þær
eru taldar mun öflugri en fyrir tveimur ámm
þegar Serbar náðu landsvæðunum á sitt vald.
Sænskirjafnaö-
armenn í sókn
Stokkhóimi. Reuter.
SÆNSKIR jafnaðarmenn myndu ná hrein-
um meirihluta á þingi ef kosið yrði nú,
ef marka má nýja skoðanakönnun.
Þetta er í fyrsta sinn frá kosningaósigri
jafnaðarmanna í september 1991 sem þeir fá
meira en 50% fylgi í skoðanakönnun. Jafnað-
armenn fengu 50,5% fylgi í könnuninni og
næstur kom Hægriflokkur Carls Bildts for-
sætisráðherra með 19,5%.
DVERGHAGUR SKUGGI Á GLUGGA
Morgunblaðið/RAX
Ishótel vekur
mikla athygli
í Lapplandi
SÆNSKUR kaupsýslumaður, Nils
Yngve Bergqvist, er afar hreykinn af
nýja hótelinu sínu - þótt það eigi reynd-
ar eftir að þiðna. Hótelið er í bænum
Jukkasjarvi í Lapplandi og eina bygg-
ingarefnið er ís. Þar er stór ísbar (því
eigandinn ráðleggur gestunum að fá
sér brjóstbirtu áður en þeir leggjast í
svefnpokana), jazz-klúbbur og kapella
með bekkjum, fóðruðum með hrein-
dýraskinni. Næturgisting og morgun-
verður kostar um 2.500 krónur, sem
virðist sanngjamt verð þótt í hótelinu
séu hvorki dyr né skápar og auðvitað
engin kynding. Um 800 ferðamenn
hafa gist í hótelinu í ár en viðbúið er
að það bráðni á næstunni. Bergqvist
hyggst reisa stærra og glæsilegra ís-
hótel næsta vetur.
Barist gegn „ilm-
vatnsmengun"
NÚ ÞEGAR baráttan gegn reykingum
er farin að bera árangur hafa ofnæm-
issjúklingar og fleiri í Bandaríkjunum
hafið baráttu gegn óhóflegri notkun
ilmvatna á abnannafæri. Dagblaðið
Wall Street Journal, sem er selt í millj-
ónum eintaka, vakti athygli á þessu
vandamáli og síðan hafa ýmsar stofn-
anir og fyrirtæki tekið við sér. Veit-
ingahús, hótel og kirkjur hafa reynt
að aðskilja þá sem anga af ilmvatni og
þá sem vi\ja vera lausir við mengunina.
A nokkrum vinnustöðum hafa verið
mörkuð „ilmlaus svæði“ og nokkur fyr-
irtæki hafa gert umsækjendum um
störf grein fyrir því að notkun ilmvatna
líðist þar ekki.
Skriffinnar ergja
breska bændur
BRESKIR bændo.r eru æfir út af leið-
beiningum sem eitt af útibúum breska
landbúnaðarráðuneytisins hefur dreift
til þeirra starfsmanna sem eiga dagleg
samskipti við bændur í starfinu. Þar
segir meðal annars að bændur séu oft
ruddalegir, skapvondir, óáreiðanlegir
og veigri sér ekki við að þykjast ólæsir
og óskrifandi til að losna við að fylia
út eyðublöð þegar þeir sækja um styrki
frá Evrópu bandalagi nu. Bændurnir eru
einnig argir út af skriffínnskunni í
tengslum við styrkina; í vikunni sem
leið þurftu þeir til að mynda að skila
inn 12 síðna styrkumsókn ásamt ná-
kvæmum kortum af jörðum sínum.
Þessu fylgdi 79 síðna rit með leiðbein-
ingum og skýringum.
SAMR/EMD PROF
AUKIN 06 DJETT
SKORTSINS
VEGNA
ELDUMST /f j
VIÐ? /iH'
DYRMÆFAR
DRAUMUR
USTAMANNS
- VERULEIKIMÓDUR