Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 11
----------------------------------------------------------. . , ■ . .,-——r— ------r------——, ---------------------------------------------------------rrr-
mark- og staðalbundinna prófa.
En það sé þrautin þyngri.
Meiri þátttaka kennara
Við víkjum talinu að nýafstöðn-
um samræmdum prófum, sem Ein-
ar segir að hafi verið í nokkuð
hefðbundnu fari. Kennarar hafi
sem fyrr séð um prófgerðina. En
til viðbótar hafi nú verið búið að
forprófa verkefnin, svo að unnt
væri að velja verkefni sem væru
skýr, vandræðalaus og hæfilega
þung.
„Þessi viðbótarvinna gerir okk-
ur nú fært að skipta verkefninu
úr samræmda prófinu í einstaka
þætti. Hægt er að gefa sérstaka
einkunn fyrir stafsetningu, mál-
fræði, lesskilning o.s.frv., til við-
bótar við heildareinkunn í fs-
lensku. Það veitir auðvitað meiri
upplýsingar. Hingað til hefur talan
6 til dæmis aðeins sagt að nem-
andi hafí leyst 60% af viðfangsefn-
inu rétt. Nemendur fá nú sem fyrr
eina heildareinkunn á sínu prófi.
Hitt getum við gert ef um er beð-
ið. Við höfum líka möguleika á
að ljá einkunninni meiri merk-
ingUj" segir Einar Guðmundsson.
„Eg hefi lagt á það áherslu að
auka þátt grunnskólakennara í
prófgerðinni og breikka þann hóp
kennara sem kemur að prófun-
um,“ segir hann ennfremur. Hann
vill að meirihluti kennara sem
starfar að þessum samræmdu
prófum sé úr grunnskólanum og
að þeir verði fleiri en nú er. í vet-
ur var kennurum til dæmis sent
til umsagnar formúlublað sem
fylgdi samræmdu prófi í stærð-
fræði og ábendingar þeirra notað-
ar við gerð endanlegrar útgáfu.
Með öllum prófúnum nú fylgdu
líka spurningalistar til allra ís-
lenskukennara, stærðfræðikenn-
ara, dönskukennara og ensku-
kennara í 10. bekk. Þar voru þeir
í fyrsta lagi beðnir um mat á þessu
prófi, hvort það væri gott eða vont,
og að benda á það sem betur
mætti fara. Fékkst góð svörun,
næstum fullt hús. í öðrum hluta
spurningalistans voru kennararnir
beðnir um að segja hvernig þessi
samræmdu próf skyldu byggð upp
vorið 1994, og er ætlunin að nýta
þessar upplýsingar við næstu
prófagerð. I þriðja lagi voru kenn-
aramir beðnir um að segja til um
hver tilgangur prófa við lok 10.
bekkjar ætti að vera. Segir Einar
að þetta tengist því að auka áhrif
kennaranna á prófin. Svo mikil-
vægt sé að tengsl séu milli inni-
halds prófanna og áherslna í
kennslu úti í skólunum. Þegar
spurt er hvert framhaldið verði,
svarar hann: „Við erum aðeins
rétt byijuð, en nokkur fleiri skref
þarf að taka. Við verðum ekki
ánægð fyrr en samræmi er tryggt
á milli innihalds prófanna og
námsefnis og kennslu í skólum
landsins, en þetta getur tekið
nokkurn tíma.“
Einkunnir sundurgreindar
Eins og sjá má á meðfylgjandi
súluriti kom fram í svörum stærð-
fræðikennaranna að 79% töldu
prófið betra en í fyrra. Ekki er
búið að vinna úr mati kennara úr
prófum í ensku, dönsku og ís-
lensku. _
í öðrum tiltækum tölum úr próf-
inu, sem líka eru sýndar hér á
súluriti, má sjá aðgreint hvernig
nemendum gekk að leysa af hendi
fjögur dæmi, að leggja saman,
draga frá, deila og margfalda.
Þótt Einar segi ekkert um það,
vekja tölurnar eflaust ýmsar
spurningar lesenda. Er það t.d.
viðunandi að aðeins ríflega helm-
ingur 10. bekkjar nemenda geti
leyst af hendi þetta verkefni í
stærðfræði? Og til dæmis að 71%
nemenda geti deilt 9 í 4527? Sams-
konar spurninga má spyija um
dæmin um brotin og tugabrotin.
Þetta áttu börnin að hafa lært í
7. og 8. bekk. Vekja má athygli
á því að væri búið að setja mark-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
100l
97%
%
50--
tr^
s
Heilar Tölur
85% 79%
oo
co
O
m
71%
o-
Samlagning Frádráttur Margföldun Deiling
© Rannsóknarstofhun uppeldis og menntamála 1993
56%
957 - 26fi =
3053 - 67R a
4527 : 9»
Hlutfall nemenda sem
leysa öll 4 dæmin rétt
Myndin sýnir hlutfall
nemenda í 10. bekk á
landinu öllu, sem leysa
rétt dæmi í samlagn-
ingu, frádrætti, marg-
földun og deilingu heilla
talna á samræmdu prófi
í stærðf ræði vorið 1993.
Dæmin eru sýnd inni í
súlum. Spurning vaknar
hvort viðunandi sé að
aðeins ríflega helmingur
geti leyst þessi verkefni
í stærðfræði að loknum
grunnskóla.
K1RKJUUSTAHÁTIÐ93
s IMBHIIIIIHI I li
6 ,2(). /Tial tll 6J///Z/
** LaUGAKDAGUR 29. MAÍ
14:00 Hallgrímskirkja.
Setuing Kirkjulistahátíðar.
14:00 Hallgrímskirkja.
Boðun Maríu. Myndlistar-
sýning. Jón Reykdal. Myndir
með hliðsjón af íslensku
teiknibókinni í Amasafni.
15:00 Hallgrímskirkja.
Opnun sýningar á íslenskum
höklum að fornu og nýju.
^ SuNNUDAGUR 30. MAÍ
17:00 Hallgrímskirkja.
Orgeltónleikar. Hans Fagius
leikur orgelverk eftír Johaim
Sebastian Bach.
20:30 Laugameskirkja.
Bærmn Bach-kór syngur
norræna kirkjutónlist frá
ýmsum tímurn.
^ MÁNUDAGUR 31. MAÍ
17:00 Seltjamameskirkja.
Safnaðarkór Seltjarnarnes-
kirkju, einsöngvarar og
hljómsveit flytja Missa Papae
Marcelli og Gloríu Vivaldis.
20:30 Hallgrímskirkja.
Orgeltónleikar. Hanz Dieter
Möller. Spænsk orgeltónHst
og spunar.
Þriðjudagur I. JÚNÍ
20:30 HaUgrímskirkja.
Orgeltónleikar. Daniel RotJr
leikur franska orgeltónlist,
eftir César Franck og
Charles Marie Widor.
^ MlÐVIKliDAGlJR 2. JtJNÍ
20:30 Hallgrímskirkja.
Mótettukór HaJlgrímski rk ju,
Raimveig Fríða Bragadóttir,
Michael Jolm Clarke og
Daniel Roth ílytja
sálumessu Maurice Duruflé.
^ FlMMTUDAGUR 3. .TÚNÍ
20:30 Langlioltskirkja.
Kór Langholtskirkju og
Kórskóla Langholtskirkju
syngja íslenska og erlenda
kirkjutónlist.
20:30 Hallgrímskirkja.
Fyrirlestur „Hver crt þú,
Jesús frá Nazaret?“
Dagskrá í umsjá Þóru
Kristjánsdóttur listfræðings
og dr. Hjalta 1 lugasonar.
Föstudagur 4. JÚNÍ
20:30 Hallgrímskirkja.
Orgeltónleikar. Alniut Rössler
flytur síðasta stórvirki
Olivier Messiaen: „Bók um
heilagt sakramenti“
Laugardagur 5. JÚNÍ
10:00-14:00 Hallgrímskirkja.
Opin vinnustofa á hökla-
sýningu. Meðal f\TÍrlesara er
sr. Kristján Valur Ingólfsson.
15:00 Langholtskirkja.
Tónleikar bamakóra í
prófastsdæmimrmi.
17:00 Fella- og I lólakirkja.
Kór Akureyrai'kirkju og
Björn Stemar Sólbergsson
flytja íslenska og erlenda kór-
og orgeltónlist.
^ SuNNUDAGUR 6. JÚNÍ
17:00 Dómkirkjan.
Vortónleikar Dómkórsins.
20:30 Hallgrímskirkja.
Orgeltónleikar.
I Jörður Áskelsson leikur
orgelverk eftir Pál Isólfsson
og Jón Nordal.
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA FER FRAM
í HALLGRÍMSKlRKjU MILLI KLÖ3 TIL18 ALLA DAGA OG
VIÐ INNGANGINN Á UNDAN HVERjU HÁTÍÐARATRIÐI.
SÍMANÚMERIÐ ER 625563.