Morgunblaðið - 23.05.1993, Síða 15

Morgunblaðið - 23.05.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SjUNNUDAGUR .23. MAÍ 1993 15 dómum þrátt fyrir að þeir hafí lagt áherslu á heilbrigt líferni. Eitt af Jykilatriðunum í baráttunni við ellina 'er að einangra þá þætti sem valda hrörnun. Efst á lista vís- indamanna yfir þá eru svokölluð sindurefni, en það eru efnahópar sem hafa eina óparaða rafeind og eru því hvarfgjörn. Sindurtfni finnast til dæmis í mengun en aðallega þó í sjálfum líkamanum. Þau verða til við efnahvarfið þegar sykur og súrefni breytast í orku en það fer fram í hvatberum hverrar frumu. Við brun- ann losna sindurefnin úr læðingi, sem valda síðan oxunarskemmdum á mik- ilvægum eggjahvítuefnum og fitu- efnum um allan líkamann. Rétt er að taka fram að slíkar skemmdir geta einnig orðið með ýmsum öðrum hætti. Vísindamenn hafa nú uppgötvað efni sem draga að sér sindurefni og gætu reynst vel við að koma í veg fyrir frumu- og vefjaskemmdir. John Carney við Kentueky-háskólann seg- ir að efnasamband sem kallað hefur verið PBN (phenylbutylnitrone) dragi úr áhrifum sindurefna. í rannsóknum hans á öldruðum stökkmúsum kom í ljós að með daglegum skammti af PBN minnkuðu heilaskemmdir vegna oxaðra próteina. Gamlar stökkmýs sem hafði verið gefið PBN gerðu færri villur í einföldum þrautum en jafnaldrar þeirra sem ekkert fengu. Auk þess dró úr hættunni á heila- skemmdum af völdum heilablóðfalls en öldrun er hægfara útgáfa af þeirri oxun sem á sér stað við heilablóð- fall, segir nefndur Carey. Hann vinn- ur nú ásamt fleiri vísindamönnum að því að þróa efni svipuð PBN sem gætu nýst mönnum. Jón Snædal, sérfræðingur í öldr- unarlækningum, telur réttara að binda vonir við efnahvata sem eru eigin varnir líkamans gegn sindur- efnum. Athuganir nú beinist að því að fínna leiðir til að auka áhrif þess- ara hvata og sér virðist það eðlilegri leið en að gefa utanaðkomandi efni á borð við PBN. E- og C-vítamín gefa góða von Raunar er talið að nú þegar séu til efni sem dragi að einhveiju leyti úr áhrifum hrörnunarsjúkdóma, en það eru beta-karótín, E- og C-vítam- ín. í rannsókn sem gerð var við Harvard Sehool of Public Health á yfir 130.000 manns, miðaldra og eldri, kom í Ijós að' hjá þeim sem tóku að minnsta kosti 100 alþjóðleg- ar einingar af E-vítamíni á degi hverjum í tvö ár eða lengur, dró úr líkunum á hjarta- og æðasjúkdóm- um. Þetta kemur heim og saman við vísbendingar um það að kransæða- sjúkdómum valdi kólesterólríkt fitup- rótein sem oxist af völdum sindur- efna. Aðrar faraldsfræðilegar rann- sóknir benda til þess að beta-karótín, sem finnst í A-vítamíni, geti komið í veg fyrir krabbamein, sér í lagi í lungum, og að C- og E-vítamín virð- ast geta dregið úr myndun vagls á auga. Bætt næring lykilatriði Þá telja vísindamenn að burtséð frá þeim skaða sem sindurefni valda, sé léleg næring orsökin fyrir mörgum sjúkdómum sem hijá aldraða. í ný- legri rannsókn á 96 Kanadabúum yfir 65 aldri kom í ljós að þeir sem tóku ráðlagðan dagskammt af vítam- ínum og steinefnum, auk auka- skammts af E-vítamíni og beta- karótíni, voru helmingi sjaldnar veik- ir en þeir sem tóku lyfleysur. Þá styrktist ónæmiskerfí hinna fyrr- greindu einnig. í ljósi þessa vinna vísindamenn við Tufts-háskólann að því að setja saman ráðlagðan dag- skammt af vítamínum fyrir eldra fólk. Þó að nægilegt magn næringar- efna seinki hrörnun, taka vísinda- menn sérstaklega fram að þau komi ekki í veg fyrir hana. Fleiri efni eru undir smásjá vís- indamanna, meðal annars króm og glúkósi. Rannsóknir við Háskólann í Bemidji í Minnesota leiddu í ljós að þegar rottum var gefið króm jukust lífslíkur þeirra um þriðjung. Telja vísindamennirnir að ástæðan sé áhrif króms á insúlín-búskap líkamans, að krómið hafi lækkað blóðsykurinn um fjórðung. Þeir höfðu áður tekið eftir því hjá sykursjúkum að króm jafnar glúkósamagn í blóði og virðist draga úr einkennum öldrunarsjúkdóma á borð við æðakölkun og nýmasjúk- dóma. Vísindamenn telja að glúkósi, einn helsti orkugjafí líkamans, eigi sinn þátt í öldrunareinkennunum. Þegar glúkósinn seytlar um blóð og vefí, hvarfast hann við prótein og verður til þess að þau festast saman. Við það verða bein smám saman gul og stökk, liðamót stífna og æðar kalka. Niður með hitaeiningarnar Enn sem komið er hafa hitaeining- arnar þó mest að segja við það að halda aftur af öldrunareinkennum. Rottur lifa um þriðjungi lengur ef þær fá aðeins 60-70% af þeim hita- einingum sem þær myndu neyta eft- irlitslaust. Að fækka hitaeiningun- um,'án þess að draga úr næring- unni, hefur svipuð áhrif á öll spen- dýr, frá músum til apa. Þau lifa leng- ur, eru hressari, feldurinn gljáir meira og sjúkdómar vinna síður á þeim. I rottum hefur með þessu móti tekist að draga úr vexti æxla um 30% og nánast útrýma eistna-, btjósta- og öðrum hormónatengdum krabbameinum, samkvæmt niður- stöðu Ron Harts við Eiturefnafræði- stofnunina í Arkansas. Fækkun hitaeininga heldur ekki aðeins niðri glúkósamagninu og sind- urefnunum, heldur eflir hún einnig varnir líkamans. Svo áfram sé vísað til rannsókna á rottum í Arkansas, kom í ljós að í líkama þeirra, sem voru settar á hitaeiningasnautt fæði, voru efnahvatarnir 3-4 sinnum öflugri í að ráðast á sindurefni en í þeim rottum sem fengu að troða sig út af mat. Þessar rannsóknir hafa orðið til þess að Hart og samverka- menn hans hafa minnkað við sig hita- einingamar og gera ráð fyrir því að brátt líti dagsins ljós ný tafla yfír æskilegt magn hitaeininga sem eigi fátt skylt við það sem hingað til hefur verið talið gott og gilt. „Ég tel umræðuna um fækkun hitaeininga varhugaverða, í henni eru illleysanlegar þversagnir," segir Guðmundur Þorgeirsson og undir það tekur Jón Snædal. „Fækki menn hitaeiningum, verður að hægja á efnaskiptunum, sem leiðir væntan- lega til þess að menn lifa lengur. En hvers konar líf er það ef menn hafa ekki fulla starfsorku og næring- in er nær eingöngu í töfluformi? Kyrrstaða er ekki af hinu góða, því hún getur flýtt fyrir hrörnun. „Use it, or loose it“ var bandarískt slagorð til að fá eldra fólk til. að hreyfa sig meira og ég tek undir það,“ segir Guðmundur. Að ógleymdum hormónunum í baráttunni við Elli kerlingu hafa fleiri þættir líkamsstarfseminnar komist undir smásjána, þar á meðal hormónarnir. Hormónar stjórna því hvernig frumur vaxa og starfa og stjórna einnig viðhaldi þeirra. Vís- indamenn við Öldrunarstofnunina í Baltimore telja að ýmis sjúkdómsein- kenni sem við flokkum undir elli stafí í raun af skorti á hormónum. Þeir hafa komist að því að rétt eins og framleiðsla kynhormóna kvenna minnkar á breytingaskeiði, dregur einnig úr öðrum hormónum. Konum er gefíð kynhormónið estrógen eftir breytingaskeið til að koma í veg fyr- ir beinþynningu. En það hangir fleira á spýtunni, ýmislegt bendir til þess að efni sem eru okkur nauðsynleg á yngri árum, hafí þveröfug áhrif þeg- ar við eldumst. Þeirra á meðal eru kynhormónar. Steven Austad við Harvard-háskóla telur að aukna tíðni bijóstakrabbameins með aldrinum megi rekja til langtímaáhrifa af völd- um estrógens. En aftur að hormónaskorti. Rann- sóknir Fran Kaiser við Læknaháskól- ann í St. Louis sýna að hjá 40% karla yfir 65 ára aldri er magn karl- hormónsins testósteróns svo lágt að það gæti ógnað heilsu þeirra. Kaiser komst að því að með því að gefa þessum körlum testósterón í þijá mánuði, jókst vöðvastyrkur þeirra og kynhvöt. Vísindamenn eru nú vongóðir um að fínna tengslin milli hormóna og heilsu og þannig takist að yngja eldra fólk upp með því að gefa því hormóna í stað þeirra sem tapast með aldrinum. Vaxtarhormón ekki aðeins fyrir börn Margar rannsóknanna munu bein- ast að vaxtarhormónum, en þau stjórna ekki aðeins vexti barna og unglinga, heldur hafa þau einnig áhrif á líkamsbyggingu fullorðinna. Árið 1990 var gerð rannsókn á eldri mönnum með lágt vaxtarhormón við Læknaskólann í Wisconsin og hún leiddi í ljós að þegar körlunum var gefíð vaxtarhormón, minnkaði fítu- magn líkamans um 14%, vöðvar juk- ust um 9% auk þess sem húðin þykknaði um 7%. Rannsóknir sem hafa verið gerðar síðan þá, sýna að vaxtarhormón hressir upp á starf- semi lungna og hjartavöðva í eldra fólki. Nú er unnið að því reikna úr hæfilegan skammt og þar með draga úr aukaverkununum, m.a. bólgum í liðamótum, sykursýki og hjartabilun. Vonir hafa sérstaklega verið bundnar við hormón sem kallast DHEA því líkaminn breytir því í fjöld- ann allan af þeim hormónum sem eldra fólk vanhagar um. Rannsóknir á músum hafa sýnt að DHEA bætir minni, kemur í veg fyrir offítu, sykur- sýki og æðakölkun. DHEA-magn í blóði nær hámarki um 25 ára aldur- inn en minnkar mikið um sjötugt. Margt bendir til þess að gefa megi eldra fólki DHEA án þess að hafa áhyggjur af aukaverkunum þar sem líkaminn breytir því í þau hormón seni hörgull er á. Fyrst um sinn verður DHEA væntanlega notað til að blása USTRÆNIR HÆFILEIKAR ÁEFRIÁRUM SKÖPUNARGÁFAN er einn þeirra þátta sem talið hefur verið að glatist með aldrin- um. í grein í ítalska tímarit- inu Aging Clinical and Expe- rimental Reserarch segir að margt bendi til þess að litlar breytingar verði á sköpun- argáfunni þegar menn eldist og að margir listamenn séu á hátindi ferils síns á efri árum. Ein rannsóknin sem vitnað var í var gerð á 52 mönnum með 13 ára millibili. Leiddi hún í ljós að lítið dró úr sköpunarg- áfunni á árunum þrettán. An- tonini og Magnolfi við Öldrun- arfræði- og öldrunarlækninga- stofnunina í Flórens segja í téðri tímaritsgrein að þrátt fyr- ir að eitthvað dragi úr sköpun- argáfunni hjá listamönnum er þeir eldast, bæti reynsla og meiri hæfileikar til túlkunar það upp. Hjá listamönnum á gamals aldri nái ímyndundar- afl, fullkomnun og næmi á feg- urð gjarnan hámarki. Mögu- lega skýringu á þessu segja Antonini og Magnolfi meðal annars vera þá að listamaður sem finni að dauðinn nálgist hætti að hafa áhyggjur af ver- aldlegum hlutum en leiti í aukn- um mæli andlegra verðmæta. Ólíkt öðrum þekki listamaður- inn ekki það að fara á eftir- laun, ef heilsan leyfir geti hann haldið áfram að skapa þar til dauðinn setur honum stólinn fyrir dyrnar. Antonini og Magnolfi nefna fyrst og fremst myndlistar- menn til sögunnar. Þeir mynd- listarmenn sem á annað borð haldi heilsu fram á elliár, hafi jafnvel gert sín bestu verk á þessum árum. Nefna þeir sem dæmi þá Donatello, Michelang- elo, Titian, E1 Greco, Goya, Monet og Picasso. Greinilega megi sjá þessa stað í sjálfs- myndum, sem beri vott um aukinn þroska og sjálfsgagn- rýni en þær myndir sem sömu menn hafi gert á yngri árum. Mörg tónskáld hafa samið tónlist allt fram undir það síð- asta, til dæmis Haydn, Liszt, Verdi, Richard Strauss og Stra- vinskí. Tónlistarmenn á borð við Rubinstein, Arrau, Horow- itz, Backhaus, Segovia og Ca- sals yfirunnu það sem misfórst tæknilega með dýpri túlkun. En annað er uppi áteningnum hvað varðar rithöfunda, til dæmis Shaw, þó undantekning- arnar sanni regluna; Sófókles og Göthe. Niðurstaða fræðinganna er sú að í verkum aldraðra lista- manna kenni ekki ótta við dauðann, heldur ástar á list- inni. Ellin sé ekki tími hnignun- ar heldur leitar að fullkomnun. Þetta sé mikilsvert öllum, ekki aðeins listamönnum, heldur einnig þeim sem ekki búi yfir listrænum hæfileikum. Hinum síðarnefndu sé nauðsynlegt að finna sér eitthvert viðfangsefni til að þróa sköpunargáfu sína eins og mögulegt sé, svo þeir geti lifað innihaldsríku lífi. nýju lífí í ónæmiskerfi aldraðra, en tilraunir með DHEA á ónæmiskerfí músa hafa gefíð góða raun. „DHEA virðist vera of einfalt og gott til að vera satt. Ég skal ekkert um það segja hversu áhrifaríkt og gott efni það er fyrr en víðtækari rannsóknir hafa farið fram,“ segir Ástráður Hreiðarsson, sérfræðingur í hormóna- og efnaskiptasjúkdómum. Hvað varðar kynhormónin segir hann þau nú þegar hafa sannað gildi sitt. Minni líkur séu nú á beinþynningu hjá konum með bættri næringu og hormónagjöf. „Ég tel að notkun kvenhormóna til varnar beinþynn- ingu muni aukast á næstu árum. Það er umdeilt hvort kvenhormónar auki þættuna á bijóstakrabbameini. Ef það reynist rétt, þá er sú hætta hverf- andi og jákvæð áhrif estrógens hvað snertir verndun beina, hjarta- og æðakerfis hljóta að vega þyngra.“ Erfðafræðilegir rusladallar Eftir sem áður stendur uppi spurn- ingin, hvers vegna eldumst við? Hvers vegna hefur þróunin og nátt- úruvalið ekki útilokað þá erfðaþætti smám saman sem bera endalokin í sér? Á árum áður var talið að einn ákveðinn erfðaþáttur stýrði öldrun- inni en nú telja vísindamenn að hundruð eða þúsundir gena eigi þátt í því að við eldumst. Og það sem meira er, ellin virðist vera nokkurs konar aukaverkun fremur en aðalat- riðið í hinu mikla líffræðiiega kerfi, sem líkaminn er. Þróunin miðast við að mannskepnan fjölgi sér, hvað síð- ar gerist er aukaatriði. Þau gen sepi leiða til sjúkdóma og dauða síðar á lífsleiðinni halda því áfram að erfast frá manni til manns. Michael Rose við Kalifoníu-háskóla líkir manninum við erfðafræðilega rusladalla þar sem við berum í okkur gen sem valda sjúkdómum á gamals aldri. Rose og fleiri vísindamönnum hef- ur tekist að lengja líf nokkurra dýra- tegunda. Of snemmt er hins vegar að segja til um hvort samanburður á mönnum og dýrum er raunhæfur að þessu leyti. Rose gerði tilraunir á bananaflugum, seinkaði kynþroska og þar með fékk náttúruvalið lengri tíma til að velja úr bestu einstakling- ana. Þetta endurtók Rose hjá nokkr- um kynslóðum flugnanna. 77 kyn- slóðum síðar lifðu flugurnar að jafn- aði 80 prósent lengur og voru heil- brigðari. Ljóst var að náttúruvalið hafði séð til þess að lökustu einstakl- ingarnir fjölguðu sér ekki, aðeins þeir bestu og þar með var útrýmt mörgum þeim genum sem styttu líf flugnanna. Niðurstöðum Rose bar saman við rannsóknir á pokarottum og ormum. Ungt fólk á uppleið hefur í vax- andi mæli seinkað barneignum sínum og hver veit nema mannkynið muni lifa miklu lengur eftir nokkur hundr- uð ár, haldi svo fram sem horfír, þar sem erfðafræðilegi rusladallurinn sé þá aðeins hálffullur. Michal Jazw- inski við læknaskólann í New Orle- ans hefur látið hafa það eftir sér að takist að ráða elligátuna, gæti há- marksaldur mannkyns hækkað úr 120 árum upp í 400 ár. Líklegra sé þó að meðalaldur manna hækki um 30 til 50 ár. Þeim íslensku læknum sem rætt var við þóttu tilgátur um að líf manna myndi lengjast, hæpnar. Þeir voru sammála um að í heildina væri um athyglisverðar rannsóknir að ræða, sumar þeirra væru íslenskum lækn- um vel kunnar, aðrar nýjar af nál- inni. Hins vegar höfðu þeir ekki nokkra trú á því að spár vísinda- manna rættust um að lausnin á ell- inni verði fundin innan 15-20 ára. „Ég tel líklegra að fleiri nái háum aldri og verði hraustari lengur. Þvi valda ekki aðeins framfarir i lækna- vísindum heldur einnig það að fólk lifir að mörgu leyti heilsusamlegra lífi nú en áður,“ sagði Ástráður. Og Guðmundur minnir á það að nútíma heilsufræði snúist ekki um vanga- veltur um hvað sé tæknilega mögu- legt heldur sé markmið hennar að stuðla að því að fólk geti lifað inni- haldsríku lífi. Byggt á US News & World Re- port og Scientific American.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.