Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
43
Morgunblaðið/Kristinn
Bozidar Skaramuca, iandsliðsþjálfari í tennis, og Elena Pogorelova, aðstoð-
arkona hans. Fyrsta verkefni þeirra verður á Smáþjóðaleikunum á Möltu.
Bozidar Skara-
muca frá Króatíu
ráðinn landsliðs-
þjálfari í tvö ár
Tennissamband ísland réð fyr-
ir skömmu Króatann Bozidar
Skaramuca sem iandsliðsþjálf-
ara til tveggja ára. Hann hefur
undirbúið landsliðið fyrir
keppni á Smáþjóðaleikunum á
Möltu og næsta verkefni að því
loknu er ólympíumót æskunnar
í Hollandi síðar í sumar.
Bozidar hefur 20 ára reynslu sem
tennisþjálfari og hefur starfað
sem slíkur á Ítalíu, Spáni og Þýska-
landi auk heimalands síns. Hann
er fyrrverandi þjálfari Monicu Se-
les, fremsta tennisleikara kvenna í
heiminum. Einnig hefur hann verið
aðstoðarþjálfari Davis Cup lið fyrr-
verandi Júgóslavíu.
Tennisdeild Þróttar fékk Bozidar
til starfa í febrúar s.l. og sagði
Steindór I. Ólafsson, formaður
Tennissambandsins, að framfarir
krakkanna undir hans stjóm væru
augljósar og miklar vonir væru
bundnar við starf hans á næstunni.
Elena Pogorelova frá Rússlandi
verður aðstoðarmaður Bozidars.
Stúka KR
vígð í dag
með stólum og þaki
Eina stúka landsins
KR-ingar vígja formlega áhorf-
endastúkuna við KR-völlinn á
morgun, sunnudag, þegar þeir taka
á móti Þórsurum í 1. umferð ís-
landsmótsins í knattspymu. Að
undanförnu hefur verið unnið við
þriðja áfanga mannvirkisins og er
þakið tilbúið, en verið er að vinna
í aðstöðu fyrir fréttamenn og lok-
afrágangi.
KR-ingar voru fyrstir til að koma
upp stúku með stólum við íslenskan
knattspyrnuvöll, en fyrir þremur
ámm settu þeir um 550 stóla í 40
metra löng áhorfendastæði, sem
lokið var við að gera 1987. Gert
er ráð fyrir að fjölga stólunum um
helming fyrir næsta tímabil, en
ákveðið var að ganga fyrst frá síð-
asta áfanga.
Stúkan er 72 m löng og rúmar
um 2.000 áhorfendur. Heildar-
kostnaður nemur nú um 50 millj-
ónum og hefur Reykjavíkurborg
styrkt verkið um 80%, en mörg
hundruð KR-ingar hafa brúað bilið
með fijálsum framlögum.
Teikningar vom unnar af Gísla
Halldórssyni og Leifi Gíslasyni á
Teiknistofunni Ármúla 6, en verk-
fræðiteikningar vom í höndum Pét-
urs I. Guðmundssonar o. fl. á Verk-
fræðistofunni Bergstaðastræti 13.
Pétur sá einnig um eftirlit með
fyrsta áfanga, en Ágúst Þór Jóns-
son annaðist eftirlit með seinni
tveimur áföngunum.
Bygginganefnd af hálfu aðal-
stjómar KR skipuðu Guðmundur
Pétursson, Kristinn Jónsson, Gunn-
ar Guðmundsson og Stefán Har-
aldsson. Undanfarin tvö ár hefur
stúkubyggingin verið eitt stærsta
verkefni hússtjórnar KR, en hana
hafa skipað Reynir Jónsson, for-
maður, Ágúst Þór Jónsson, Finnur
Björgvinsson, Geirlaug Karlsdóttir,
Haukur Gunnarsson, Leifur Gísla-
son og Sófus Guðjónsson.
ISLAN DSMOTIÐ
2 . D E I L D
••
KOPAVOGSVOLLUR
- AÐALLEIKVANGUR
Breiðablik - KA
í dag kl. 17.00
Sjáið Arnar Grétarsson og félaga
í Breiíabliki mæta Ormari Órlygssyni
^' spennandi leik
Allt að verða uppselt - fullt í 4 brottfarir
25 sæti - 28. iúlí
frá kr. 39.800,-
verð pr. mann m.v. hjón með 2 börn, 28. júlí í 2 vikur.
Kr. 54.600,-
verð m.v. 2 í íbúð með I svefnherbergi, Evamar.
I4. júlí uppselt/biðlisti
2I. júli I8 sæti laus
28. júlí 25 sæti laus
4. ágúst I7 sæti laus
11. ágúst 2I sæti'laust
18. ágúst uppselt/biðlisti
25. ágúst laus sæti
I. sept. laus sæti
8. sept. laus sæti
Við þökkum frábærar undirtektir við Benidorm ferðum okkar í sumar. Heimsferðir og Turavia hafa nú fengið viðbótar-
gistingu á frábæru verði þann 28. júlí á Evamar, glæsilegu, nýju íbúðarhóteli, og bjóðum við viðskiptavinum okkar
25 sæti á þessu frábæra verði. Tryggðu þér sæti strax, því nú þegar er uppselt í margar brottfarir í sumar.
Flugvallarskattur:
Fyrir fullorðna kr.3.570,-
Fyrir börn kr.2.315,-
i TURAUIA
air europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 624600