Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 13
S««I t/.fjl- .8 H'JOAöUW.Ml'4 <HQAJa/'J;>HOIÍ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 f ~8 Margrét Guðmundsdóttir Ríkey Ingimundardóttir Sýningin samanstendur af postul- ínslágmyndum, olíumálverkum, litó- grafíu og fleiri formum listarinnar. Þetta er önnur einkasýning Ríkeyjar í Vestmannaeyjum. Sýningarsalur- inn verður opnaður föstudaginn 4. júní klukkan 15 og við það tækifæri mun Reynir Jónsson harmonikku- leikari spila og verður opið til klukk- an 19 þann dag. Laugardag og sunnudag verður sýningin opin frá klukkan 14-22 og eru allir velkomnir. Eggert E. Laxdal í Galleríi 11 Á morgun, 4. júní, opnar Eggert E. Laxdal málverkasýningu í Gall- eríi 11. Á sýningunni verða um 20 nýlegar myndir. Eggert hefur haldið fjölmargar sýningar bæði hér heima og erlendis, til dæmis í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Hollandi og Belg- íu. Áuk þess sem Eggert er kunnur listmálari er hann kunnur sem rit- höfundur, einkum fyrir ljóða- og barnabækur. Ný ljóðabók er væntan- leg frá honum í haust. Allir eru vel- komnir að líta á sýninguna, það kostar ekkert. Atli Heimir Sveinsson amalegt að hitta kollega sína yfir kvöldverði í Fersen höllinni svona einu sinni á ári. „Svíar eru nefnilega ekki eins leiðinlegir og sumir halda fram,“ segir hann. „Þeir hafa reynst mér fjarska- lega vel, fyrir þá samdi ég til dæmis fyrsta verkið sem pantað var hjá mér að utan. Það var „Ferð í gegnum miðnættið" sem flutt var í Gautaborg alveg í upphafi ferils míns.“ Kirkjulistahátíð í Reykjavík Kórar í Langholtskirkju „HVER ert þú, Jesús frá Nasaret" er yfirskrift fyrirlesturs sem fluttur verður í fundasal Hallgrímskirkju í kvöld í tilefni kirkju- listahátíðar. Hann er samantekt Þóru Kristjánsdóttur listfræðings og dr. Hjalta Hugasynar um Kristsmyndir í íslenskum kirkjum. Á kirkjulistahátíð í kvöld verða einnig kórtónleikar í Langholts- kirkju. Þar syngur kór kirkjunnar og barnakór íslenska og er- lenda tónlist ásamt einsöngvurum undir stjórn Jóns Stefánsson- ar. Hvort tveggja hefst þetta klukkan 20.30 Flest verkin á tónleikunum í Langholtskirkju eru eftir höfunda sem sátu í dómnefnd keppni þeirr- ar um orgelverk er vettvang fékk á kirkjulistahátíð. Þetta eru tón- skáldin Þorkell Sigurbjörnsson, Trond Kverno og Oskar Gottlieb Blarr. Að auki verða flutt tvö verk Páls ísólfssonar, Lofsöngur og Maríuvers, við texta Davíðs Stef- ánssonar. Hundrað ár verða liðin frá faéðingu Páls í haust og er hans sérstaklega minnst á hátíð- inni. Þá syngja kórarnir sem kenndir eru við Langholtskirkju saman verk Jóns Ásgeirssonar, Leyfið börnunum að koma til mín, við texta Valdemars Briem. Jón Stefánsson segir að Kór Langholtskirkju hafi sungið tvö verkanna sem flutt verða eftir Þorkel Sigurbjörnsson í Svíþjóð fyrir tæpum tuttugu árum. „Lof- söngvarnir voru fyrstu nútíma- verkin sem kórinn glímdi við,“ seg- ir hann. „Þá var stórmál að æfa þau og óvenjulegt að heyra svona tónlist. Nú hefur þetta alveg breyst og verk sem þessi hljóma þægilega í eyrum okkar.“ Eiríkur Hreinn Helgason og Harpa Harðardóttir syngja einsöng með kórfélögum sínum í kvöld og í nokkrum lögum leikur Guðríður St. Sigurðardóttir undir. í yngri kórnum, kór kórskóla Langholts- kirkju, eru rúmlega þijátíu söngv- arar á aldrinum 10 til 16 ára, en kór kirkjunnar skipa um 70 manns. Hann hefur haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis, en barnakór- inn tók hins vegar fyrst til starfa fyrir alvöru síðasta haust að sögn Jóns Stefánssonar. Myndir af Kristi Fyrirlesturinn í Hallgrímskirkju um Kristsmyndir í kirkjum hér á landi er öllum opinn. Á honum ætlar Þóra Kristjánsdóttir að sýna litskyggnur af Kristsmyndum og skýra menningarsögulegt sam- hengi þeirra, en Hjalti Hugason talar út frá trúar- og trúartáknleg- um sjónarmiðum. Dagskráin er eini atburður kirkjulistahátíðar af þessu tagi, annars er tónlist þar að mestu ríkjandi. Fyrirlesturinn hefst sem fyrr segir klukkan 20.30. vaskurinn er bestur Hið virta bílatímarit Auto EXPRESS valdi Ford Escort besta bílinn í Elokki minni sendibíla í Evrópu í gæðakönnun sinni í apríl. í Auto EXPRESS segir að keppni milli sendibíla hafi aldrei verið harðari en Ford Escort hafi þá yfirburði sem til þurfti til að hljóta fyrsta sætið. Niðurstaða Auto EXPRESS er á þann veg að það er fjölmargt sem gerir Escortinn betri en aðra sendibíla. Hann skarar fram úr vegna fjölhæfni, frábærrar hönnunar að innan sem utan og mikils hleðslurýmis sem auðvelt er að vinna í. Þú færð ekki betri sendibíl en Ford Escort. Verð 875.000 án vsk. Hefur pú eklO Ford... nýlega? Lágmúia 5, simi 91- 6815 55 Vauxhall Astravan l 3vauxna 1 6i LS Volkswagen Golf CL I Þ.Þ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.