Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
25
Doktorsritgerð
um Sólarljóð
NJORÐUR P. Njarðvík varði doktorsritgerð sína um Sólarljóð
við heimspekideild Háskóians í Gautaborg föstudaginn 28. maí
síðastliðinn.
Umsjón með ritgerðinni hafði dr.
Bo Ralph prófessor í norrænum
málum go stýrði hann jafnframt at-
höfninni. Andmælandi var dr. Lars
Huldén prófessor emeritus við Há-
skólann í Helsingfors, en dómnefnd
skipuðu dr. Sture Allén prófessor við
Háskólann í Gautaborg og ritari
sænsku akademíunnar, dr. Barbro
Söderberg prófessor við Háskólánn
í Stokkhólmi og dr. Gunnar D. Hans-
son forskarassistent við bókmennta-
fræðideild Háskólans í Gautaborg,
en hann hefur þýtt Sólarljóð á
sænsku.
Doktorsritgerð Njarðar ber heitið
Solsángen og er 280 bls. Hún skipt-
ist í fimm kafla. Fyrsti kafiinn er
Bifhjóla-
prófíð verð-
ur þyngra
KRÖFUR til þeirra sem vilja fá
réttindi til aksturs bifhjóla yfir
50 rúmsentimetrum voru þyngdar
nokkuð nú um mánaðarmótin.
Nemendur verða að taka fleiri
kennslutíma og meiri kröfur eru
gerðar á prófinu.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs þörf vera á að auka
öryggi þeirra ungu manna og kvenna
sem helst notuðu stærri bifhjólin,
yfír 50 rúmsentimetra. Óli sagði að
undanfarið hefði dregið nokkuð úr
slysum þessara ökumanna og vildi
hann þakka það öflugra fræðslu-
starfi og auknum áróðri. Hins vegar
væri 52 slasaðir bifhjólaökumenn á
síðasta ári alltof margir. Því væri
nú um þessar mundir verið að auka
kröfur um hæfni og kunnáttu um-
talsvert.
Meiri festa
Að sögn Hauks Helgasonar próf-
dómara hjá Umferðarráði hafa bif-
hjólaprófin ekki verið tiltakanlega
formföst en nú yrði breyting þar á.
Héðan í frá yrði það skilyrði að nem-
endur sæktu fræðilegt námskeið sem
lyki með prófi. Og samkvæmt náms-
skrá væri ráð fyrir því gert að hver
nemandi hefði fýrir próftöku lokið
níu verklegum kennslutímum. Verk-
legi hlutinn myndi framvegis hefjast
með munnlegu prófí svo að ökumenn
kæmust ekki hjá því að vita aðeins
um þau tæki sem þeir settust á bak.
Haukur dró ekki heldur dul á það
að verklegar æfingar til að reyna á
jafnvægisskyn o.fl. myndu verða ívið
erfíðari heldur en hingað til. Einnig
væri ráð fyrir því gert að eftirleiðis
yrðu prófdómarnir tveir en ekki einn
eins og áður hefði tíðkast.
Aðspurður vildi Haukur ekki synja
fyrir það að þessar hertu kröfur
hefðu valdið einhveijum óróa eða
spennu hjá væntanlegum bifhjóla-
ökumönnum. í síðustu viku hefðu
um 80 nemendur tekið gamla prófið
en hins vegar virtist minni ásókn
vera eftir því að sækja um próftöku
eftir breytingarnar. Á síðasta ári
tóku 423 manns ökuréttindapróf á
þyngri bifhjól.
Haukur sagpu að enn væru ekki
allar prófraunir komnar til fram-
kvæmda og ekki væri sanngjarnt að
gera ýtrustu kröfur fyrr en ökukenn-
arar og nemendur hefðu fengið tíma
til að kynnast þessum nýju úrlausn-
arefnum. Haukur sagði að sú nýung
sem hvað mesta eftirtekt vekti væri
„plankaþrautin" sem yrði lögð fyrir
nemendur. Ökumönnum yrði ætlað
að aka 10 metra eftir 6 tommu breið-
um planka. Verður það þraut og
vandi próftakanda að keyra nógu
hægt eftir plankanum. Má sú ferð
ekki taka skemmri tíma en 13 sek-
úndur. „Það geta allir ekið hratt en
kúnstin er að aka rólega,“ sagði
Haukur Helgason.
stafrétt útgáfa aðalhandrits ásamt
orðamun allra handrita, en þau eru
44 talsins. Síðan fylgja ýtarlegar
orðaskýringar, umfjöllun og bygg-
ingin kvæðisins og efnistúlkun, hug-
mynda- og rittengsl við skráðar
heimildir frá miðöldum og loks er
sett fram kenning um aldursgrein-
ingu og dregið fram það sem hugs-
anlega má vita um hinn óþekkta
höfund Sólarljóða. Ritgerðinni fylgir
útdráttur á ensku.
Málverkauppboð haldið
í Gallerí Borg í kvöld
Dr. Njörður P. Njarðvík.
GALLERÍ Borg heldur mál-
verkauppboð í samvinnu við
Listmunauppboð Sigurðar
Benediktssonar hf. á Hótel
Sögu, fimmtudaginn 3. júní
klukkan 20.30.
Boðin verða upp verk gömlu
meistaranna, t.d. verk eftir Ás-
grím Jónsson, Jón Stefánsson,
Gunnlaug Blöndal, Þorvald Skúla-
son, Kjarval, Kristján Davíðsson
og Karl Kvaran.
Þá verður boðin bijóstmynd af
Jóni Sigurðssyni frá 1871. Einnig
verða boðin antik-húsgögn og
gamalt danskt og enskt silfur.
Uppboðsverkin verða sýnd í
dag, fimmtudag, frá klukkan
10-18 í Gallerí Borg við Austur-
völl.
♦ ♦ ♦
Rokkveisla
á Plúsnum
Rokkveisla verður á Plúsnum
dagana 3.-5. júní. Þar koma fram
sjö ungar og efnilegar hljómsveit-
ir. í kvöld, fimmtudag, koma fram
hljómsveitirnar Lipstick Lovers,
Brain Child og Svívirðing.