Morgunblaðið - 03.06.1993, Page 25

Morgunblaðið - 03.06.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 25 Doktorsritgerð um Sólarljóð NJORÐUR P. Njarðvík varði doktorsritgerð sína um Sólarljóð við heimspekideild Háskóians í Gautaborg föstudaginn 28. maí síðastliðinn. Umsjón með ritgerðinni hafði dr. Bo Ralph prófessor í norrænum málum go stýrði hann jafnframt at- höfninni. Andmælandi var dr. Lars Huldén prófessor emeritus við Há- skólann í Helsingfors, en dómnefnd skipuðu dr. Sture Allén prófessor við Háskólann í Gautaborg og ritari sænsku akademíunnar, dr. Barbro Söderberg prófessor við Háskólánn í Stokkhólmi og dr. Gunnar D. Hans- son forskarassistent við bókmennta- fræðideild Háskólans í Gautaborg, en hann hefur þýtt Sólarljóð á sænsku. Doktorsritgerð Njarðar ber heitið Solsángen og er 280 bls. Hún skipt- ist í fimm kafla. Fyrsti kafiinn er Bifhjóla- prófíð verð- ur þyngra KRÖFUR til þeirra sem vilja fá réttindi til aksturs bifhjóla yfir 50 rúmsentimetrum voru þyngdar nokkuð nú um mánaðarmótin. Nemendur verða að taka fleiri kennslutíma og meiri kröfur eru gerðar á prófinu. I samtali við Morgunblaðið sagði Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs þörf vera á að auka öryggi þeirra ungu manna og kvenna sem helst notuðu stærri bifhjólin, yfír 50 rúmsentimetra. Óli sagði að undanfarið hefði dregið nokkuð úr slysum þessara ökumanna og vildi hann þakka það öflugra fræðslu- starfi og auknum áróðri. Hins vegar væri 52 slasaðir bifhjólaökumenn á síðasta ári alltof margir. Því væri nú um þessar mundir verið að auka kröfur um hæfni og kunnáttu um- talsvert. Meiri festa Að sögn Hauks Helgasonar próf- dómara hjá Umferðarráði hafa bif- hjólaprófin ekki verið tiltakanlega formföst en nú yrði breyting þar á. Héðan í frá yrði það skilyrði að nem- endur sæktu fræðilegt námskeið sem lyki með prófi. Og samkvæmt náms- skrá væri ráð fyrir því gert að hver nemandi hefði fýrir próftöku lokið níu verklegum kennslutímum. Verk- legi hlutinn myndi framvegis hefjast með munnlegu prófí svo að ökumenn kæmust ekki hjá því að vita aðeins um þau tæki sem þeir settust á bak. Haukur dró ekki heldur dul á það að verklegar æfingar til að reyna á jafnvægisskyn o.fl. myndu verða ívið erfíðari heldur en hingað til. Einnig væri ráð fyrir því gert að eftirleiðis yrðu prófdómarnir tveir en ekki einn eins og áður hefði tíðkast. Aðspurður vildi Haukur ekki synja fyrir það að þessar hertu kröfur hefðu valdið einhveijum óróa eða spennu hjá væntanlegum bifhjóla- ökumönnum. í síðustu viku hefðu um 80 nemendur tekið gamla prófið en hins vegar virtist minni ásókn vera eftir því að sækja um próftöku eftir breytingarnar. Á síðasta ári tóku 423 manns ökuréttindapróf á þyngri bifhjól. Haukur sagpu að enn væru ekki allar prófraunir komnar til fram- kvæmda og ekki væri sanngjarnt að gera ýtrustu kröfur fyrr en ökukenn- arar og nemendur hefðu fengið tíma til að kynnast þessum nýju úrlausn- arefnum. Haukur sagði að sú nýung sem hvað mesta eftirtekt vekti væri „plankaþrautin" sem yrði lögð fyrir nemendur. Ökumönnum yrði ætlað að aka 10 metra eftir 6 tommu breið- um planka. Verður það þraut og vandi próftakanda að keyra nógu hægt eftir plankanum. Má sú ferð ekki taka skemmri tíma en 13 sek- úndur. „Það geta allir ekið hratt en kúnstin er að aka rólega,“ sagði Haukur Helgason. stafrétt útgáfa aðalhandrits ásamt orðamun allra handrita, en þau eru 44 talsins. Síðan fylgja ýtarlegar orðaskýringar, umfjöllun og bygg- ingin kvæðisins og efnistúlkun, hug- mynda- og rittengsl við skráðar heimildir frá miðöldum og loks er sett fram kenning um aldursgrein- ingu og dregið fram það sem hugs- anlega má vita um hinn óþekkta höfund Sólarljóða. Ritgerðinni fylgir útdráttur á ensku. Málverkauppboð haldið í Gallerí Borg í kvöld Dr. Njörður P. Njarðvík. GALLERÍ Borg heldur mál- verkauppboð í samvinnu við Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar hf. á Hótel Sögu, fimmtudaginn 3. júní klukkan 20.30. Boðin verða upp verk gömlu meistaranna, t.d. verk eftir Ás- grím Jónsson, Jón Stefánsson, Gunnlaug Blöndal, Þorvald Skúla- son, Kjarval, Kristján Davíðsson og Karl Kvaran. Þá verður boðin bijóstmynd af Jóni Sigurðssyni frá 1871. Einnig verða boðin antik-húsgögn og gamalt danskt og enskt silfur. Uppboðsverkin verða sýnd í dag, fimmtudag, frá klukkan 10-18 í Gallerí Borg við Austur- völl. ♦ ♦ ♦ Rokkveisla á Plúsnum Rokkveisla verður á Plúsnum dagana 3.-5. júní. Þar koma fram sjö ungar og efnilegar hljómsveit- ir. í kvöld, fimmtudag, koma fram hljómsveitirnar Lipstick Lovers, Brain Child og Svívirðing.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.