Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 28
4
m______________________
Má reykja
í viðurvist
barna sinna
DÓMSTÓLL í Þýskalandi hefur
kveðið upp úr með að ekki sé
unnt með lögum að banna móð-
ur að reykja í návist barna sinna.
Amma bamanna hafði áhyggjur
af því að reykingar dóttur henn-
ar væru skaðlegar börnunum,
sem eru 14 ára og fjögurra og
hálfs árs, og höfðaði því mál á
hendur dóttur sinni. I dómsúr-
skurðinum segir að reykingar
hljóti að teljast vera viðurkennd
félagsleg athöfn. „Engin lög
kveða á um að fólki beri að
hætta reykingum þegar það er
í sama herbergi og fólk sem
ekki reykir,“ segir í úrskurði
dómstólsins.
Bæjarstjóri rek-
inn úr starfi 1
Scoresbysundi
BÆJARSTJÓRINN í Scores-
bysundi á Grænlandi, Emelie
Madsen, var látin vi'kja fyrir
flokkssystur sinni í Siumut-
flokknum, Ane Sofie Hamme-
ken. Madsen hefur ennfremur
verið vísað úr flokknum. Ástæð-
an fyrir brottvikningunni er sú,
að bæjarstjórinn fyrrverandi
. hafði fengið greiddar sem svarar
tveim og hálfri milljón íslenskra
króna til að standa straum af
ferðakostnaði, en gat ekki, þeg-
ar til kom, gert viðunandi grein
fyrir því hvemig hún ráðstafaði
fénu.
Dönskum þing-
manni stefnt
LÖGREGLAN í Kaupmanna-
höfn hefur stefnt íhaldsþingkon-
unni Grethe Fenger-Möller og
einkaritara hennar fyrir ljúgvitni
í yfirheyrslum rannsóknardóm-
ara vegna Tamílamálsins. Taki
ríkislögmaður undir stefnuna
verður að svipta Fenger-Möller
þinghelgi. Stjóm flokksins í kjör-
dæmi hennar hefur ákveðið að
hún verði ekki í framboði á ný.
Koss er bara
koss
LAGADEILU um frægan koss
lauk í Frakklandi í gær þegar
kveðinn var upp dómur þess efn-
is að ljósmyndarinn Robert Do-
isneau þyrfti ekki að greiða
bætur til fólks sem sagði hann
hafa rofíð friðhelgi einkalífs
þeirra fyrir rúmum 40 ámm. Það
var í París árið 1950 að Doisne-
au tók fjósmynd af pari að kyss-
ast af innlifun á götu úti, og
myndin varð heimsfræg sem
tákn um rómantík í Parísarborg.
Tvö pör stefndu Doisneau fyrir
skömmu og sagðist hvort um sig
vera fólkið á myndinni og vildi
fá greiddar háar skaðabætur.
Dómurinn féll þeim í óhag.
Breyta refsingu
Winnie Mandela
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Suður
Afríku breytti í gær refsingu
sem Winnie Mandela var dæmd
í 1991 fyrir mannrán og sam-
særi. Sekt hennar í mannráns-
málinu var staðfest en fímm ára
fangelsisdómi breytt í 15.000
randa sekt, jafnvirði 320.000
króna, og eins árs fangelsi tii
vara og tveggja ára skilorðs-
bundið fangelsi. Dómstóllinn
sýknaði hana hins vegar af aðild
að árás á fjóra unga blökku-
menn. Winnie Mandela fagnaði
niðurstöðu dómsins á skrifstofu
sinni í Jóhannesarborg með
kampavíni og appelsínusafa.
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins, sagðist vera af-
skaplega ánægður með að
Winnie þyrfti ekki að fara í fang-
elsi.
__________________ MORGUNBLAffjg/lF^M.^UDAGUJi 3., JÚNÍ.,1993_______________________________
Nýr áfangasigur ítölsku lögreglunnar í glímunni við mafíuna á Sikiley
Alræmdur mafíósi góm-
aður í neðanjarðarbyrgi
Rómaborg. Reuter.
ÍTALSKA lögreglan vann nýjan
sigur í baráttunni við mafíuna
er hún handtók í gær glæpafor-
ingjann Giuseppe Pulvirenti.
Hann var handtekinn í neðan-
jarðarbyrgi nærri Kataníu á
Sikiley en hann hefur verið á
flótta undan réttvísinni í 11 ár.
Pulvirenti er talinn hafa verið
leiðtogi mafíunnar á austur-
hluta Sikileyjar og er lýst sem
einum illræmdasta mafíósanum
en hann er 63 ára.
Pulvirenti hefur verið eftirlýstur
fyrir fjölda morða og hvers kyns
glæpastarfsemi. Manna á milli hef-
ur hann gengið undir nafninu „U
Mappassotu“ sem dregið er af
nafni heimabæjar hans Belpasso
sem er skammt frá Kataníu.
Ásamt Pulvirenti var Giuseppe
Pappalardo, 37 ára háttsettur liðs-
maður mafíunnar, handtekinn í
neðanjarðarbyrginu. Þegar lög-
reglan birtist í byrginu og bað
Pulvirenti að segja til nafns svar-
aði hann: „Efist þið um hver ég
er.“ Síðan muldraði hann sömu
setningu og mafíuforinginn
Santapao tautaði er hann var kló-
festur fyrir hálfum mánuði: „Þetta
hlaut að enda fyrr en seinna.“
Pulvirenta var með svonefndan
foringjahring á hendi, gullhring
með 12 demöntum sem er tákn
stöðu og áhrifa innan mafíunnar.
Hann var einnig með skammbyssu
sér við hlið en sýndi enga mót-
spyrnu er lögreglan braust inn í
fylgsni hans.
Að sögn lögreglunnar notaði
Pulvirenta þéttriðið net samverka-
manna, vina og vandamanna sem
sérhæfðu sig í íj'árkúgunum. Þá jók
hann áhrif sín með því að gifta
tvær dætur sínar jnn í kunnar
mafíufjölskyldur. Önnur þeirra
giftist Giuseppe Grazioso, sem
handtekinn var í nóvember í fyrra,
og hin Pietro Puglæisi sem er eftir-
lýstur.
Þriðji stórlaxinn
Nicola Mancino innanríkisráð-
herra lýsti handtöku Pulvirenti sem
LÖGREGLUMENN rannsaka bifreiðina sem sprengja fannst í við
forsætisráðuneytið í Róm.
miklum sigri fyrir lögregluna. Gaf
hann til kynna að frekari árangurs
væri að vænta í glímunni við maf-
íuna. Fréttaskýrendur sögðu í gær
að árangur lögreglunnar mætti
rekja annars vegar til vaxandi
andúðar almennings í garð hinnar
skipulegu glæpastarfsemi, sem
gegnumsýrt hefur ítalskt þjóðlíf
um aldur og ævi, og hins vegar
til vaxandi fjölda mafíósa sem
gæfu sig fram og ljóstruðu upp
um fyrrum félaga sína.
Fyrsti „stórlaxinn“ sem gekk í
net lögreglunnar á þessu ári var
Salvatore „Toto“ Riina, sem talinn
er hafa verið æðsti maður maf-
íunnar á Sikiley, en hann hafði
farið huldu höfði í 23 ár. Fyrir
hálfum mánuði var meintur stað-
gengill hans, Benedetto Santapa-
ola, gómaður og nú Pulverinti.
Bílsprengja finnst í Róm
Óttast hefur verið að mafían
myndi svara fyrir sig og er talið
að hún hafi staðið á bak við
sprengjutilræði í Flórens sl.
fimmtudag þar sem fimm manns
biðu bana og skemmdir voru unnar
á Uffizi-safninu. í gær fann lög-
regla bílsprengju skammt frá for-
sætisráðuneytinu í Róm og var hún
útbúin þannig að hægt var að
sprengja hana með fjarstýringu.
Að sögn lögreglunnar er sprengjan
sem sprakk í Flórens talin hafa
verið eins úr garði gerð.
„Nýr stórlax“
ítalski mafíuforinginn Gius-
eppe Pulvirenti sem handtek-
inn var í neðanjarðarbyrgi á
Sikiley í gær. Hann er þriðji
„stórlaxinn“ úr röðum maf-
íunnar sem lögreglan hand-
tekur á árinu.
Kambódíustjórn vill ógilda kosningaúrslit
Stefnir í signr
konungssinna
KOSNINGARNAR
Bangkok. Reuter.
SKÆRULIÐAR Rauðra khmera hótuðu á þriðjudag að hefja stríð í
Kambódíu sætti stjórnin í Phnom Penh sig ekki við úrslit kosninganna
í síðustu viku. Þótt talningu sé ekki lokið virðist stjórnarflokkurinn
hafa farið halloka fyrir konungssinnum en fyrir þeim fer sonur Sihano-
uks prins og fyrrverandi ráðamanns í Kambódíu.
Gæslulið Sameinuðu þjóðanna asta héraðinu í landinu, en þar verða
hefur aukið viðbúnað sinn í höfuð-
borginni, Phnom Penh, eftir að
stjórnarflokkurinn krafðist þess, að
kosningarnar yrðu ógiltar vegna
kosningasvika. Var þá ljóst, að kon-
ungssinnar Sihanouks höfðu unnið
sigra í ýmsum fjölmennum kjördæm-
um. Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna,
sem skipulögðu kosningarnar í
Kambódíu, neitaði að verða við því
en útvarpsstöð Rauðra khmera
sagði, að stjórnarherinn væri þegar
farinn að búa sig undir að taka öll
völd í Iandinu. Sagði útvarpið, að
yrðu kosningaúrslitin ekki virt,
myndu skæruliðarnir taka upp vopn
að nýju við hlið konungssinna.
Konungssinnar höfðu mikla yfir-
burði í Kompong Cham, fjölmenn-
kosnir 18 menn í þjóðarráðið, sem
síðar mun semja stjórnarskrá og
mynda stjórn. í landinu í heild virð-
ast konungssinnar hafa um fímm
prósent umfram stjórnarflokkinn.
Lýðræðisflokkur búddista í
lykil aðstöðu
í gær. höfðu 90% atkvæða verið
talin og benti allt til þess að kon-
ungssinnar fengju 57 ’þingsæti af
120, stjórnarflokkurinn 52, lýðræð-
isflokkur búddista 10 og hægriflokk-
ur 1. Þannig var líklegt talið að
búddistar gætu ráðið úrslitum um
stjórnarmyndun en þeir klufu sig á
sínum tíma frá konunggsinrium og
þykir víst að flokkurinn tæki afstöðu
með þeim.
90% atkvæöa í kosningun-
um i Kambódíu höföu
veriö talinígær og
stefndi i sigur konungs-
sinna en þeir fá þó
tæpast meirihluta á
þlngi
Þjóöarflokkur Kambódíu (CPP) Leiötogi er Hun Sen lorsætisráöherra 38,1%
Einingarflokkur Kambódíu 45,7%
(FUNCINPEC) Leiötogi Norodom Ranaríddh prins
Aörir 16,2%
Rauðu Khmerámir buðu ekki fram
Leitað að
eftírmanm
Serranos
Guatemalaborg. Reuter.
ÞING Guatemala kom saman í
gær til þess að huga að vali á
eftirmanni Jorge Serrano sem
herinn setti af sem forseta lands-
ins á þriðjudaginn, eftir að hann
hafði seilst til alræðisvalda. Talið
er að Arturo Herbruger, 80 ára
gamall lögfræðingur, sem verið
hefur formaður yfirkjörstjórnar,
sé líklegasta forsetaefnið.
Serrano hugðist gerá róttækar
breytingar á stjóm landsins í því
augnamiði, að því er hann sagði
sjálfur, að bregðast harkalega við
spillingu og eituriyfjaviðskiptum.
Það varð hins vegar úr að hann
hrökklaðist frá völdum eftir að her-
inn, atvinnurekendur og launþega-
samtökin settu honum úrslitakosti.
Að sögn þingmanna er talið mik-
ilvægt að eftirmaður Serrano komi
úr röðum þeirra sem ekki hafa ver-
ið í tengslum við neinn stjórnmála-
flokk. Herbruger sagðist reiðubúinn
að taka við starfí forseta ef honum
yrði boðið það.