Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 28
4 m______________________ Má reykja í viðurvist barna sinna DÓMSTÓLL í Þýskalandi hefur kveðið upp úr með að ekki sé unnt með lögum að banna móð- ur að reykja í návist barna sinna. Amma bamanna hafði áhyggjur af því að reykingar dóttur henn- ar væru skaðlegar börnunum, sem eru 14 ára og fjögurra og hálfs árs, og höfðaði því mál á hendur dóttur sinni. I dómsúr- skurðinum segir að reykingar hljóti að teljast vera viðurkennd félagsleg athöfn. „Engin lög kveða á um að fólki beri að hætta reykingum þegar það er í sama herbergi og fólk sem ekki reykir,“ segir í úrskurði dómstólsins. Bæjarstjóri rek- inn úr starfi 1 Scoresbysundi BÆJARSTJÓRINN í Scores- bysundi á Grænlandi, Emelie Madsen, var látin vi'kja fyrir flokkssystur sinni í Siumut- flokknum, Ane Sofie Hamme- ken. Madsen hefur ennfremur verið vísað úr flokknum. Ástæð- an fyrir brottvikningunni er sú, að bæjarstjórinn fyrrverandi . hafði fengið greiddar sem svarar tveim og hálfri milljón íslenskra króna til að standa straum af ferðakostnaði, en gat ekki, þeg- ar til kom, gert viðunandi grein fyrir því hvemig hún ráðstafaði fénu. Dönskum þing- manni stefnt LÖGREGLAN í Kaupmanna- höfn hefur stefnt íhaldsþingkon- unni Grethe Fenger-Möller og einkaritara hennar fyrir ljúgvitni í yfirheyrslum rannsóknardóm- ara vegna Tamílamálsins. Taki ríkislögmaður undir stefnuna verður að svipta Fenger-Möller þinghelgi. Stjóm flokksins í kjör- dæmi hennar hefur ákveðið að hún verði ekki í framboði á ný. Koss er bara koss LAGADEILU um frægan koss lauk í Frakklandi í gær þegar kveðinn var upp dómur þess efn- is að ljósmyndarinn Robert Do- isneau þyrfti ekki að greiða bætur til fólks sem sagði hann hafa rofíð friðhelgi einkalífs þeirra fyrir rúmum 40 ámm. Það var í París árið 1950 að Doisne- au tók fjósmynd af pari að kyss- ast af innlifun á götu úti, og myndin varð heimsfræg sem tákn um rómantík í Parísarborg. Tvö pör stefndu Doisneau fyrir skömmu og sagðist hvort um sig vera fólkið á myndinni og vildi fá greiddar háar skaðabætur. Dómurinn féll þeim í óhag. Breyta refsingu Winnie Mandela ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Suður Afríku breytti í gær refsingu sem Winnie Mandela var dæmd í 1991 fyrir mannrán og sam- særi. Sekt hennar í mannráns- málinu var staðfest en fímm ára fangelsisdómi breytt í 15.000 randa sekt, jafnvirði 320.000 króna, og eins árs fangelsi tii vara og tveggja ára skilorðs- bundið fangelsi. Dómstóllinn sýknaði hana hins vegar af aðild að árás á fjóra unga blökku- menn. Winnie Mandela fagnaði niðurstöðu dómsins á skrifstofu sinni í Jóhannesarborg með kampavíni og appelsínusafa. Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, sagðist vera af- skaplega ánægður með að Winnie þyrfti ekki að fara í fang- elsi. __________________ MORGUNBLAffjg/lF^M.^UDAGUJi 3., JÚNÍ.,1993_______________________________ Nýr áfangasigur ítölsku lögreglunnar í glímunni við mafíuna á Sikiley Alræmdur mafíósi góm- aður í neðanjarðarbyrgi Rómaborg. Reuter. ÍTALSKA lögreglan vann nýjan sigur í baráttunni við mafíuna er hún handtók í gær glæpafor- ingjann Giuseppe Pulvirenti. Hann var handtekinn í neðan- jarðarbyrgi nærri Kataníu á Sikiley en hann hefur verið á flótta undan réttvísinni í 11 ár. Pulvirenti er talinn hafa verið leiðtogi mafíunnar á austur- hluta Sikileyjar og er lýst sem einum illræmdasta mafíósanum en hann er 63 ára. Pulvirenti hefur verið eftirlýstur fyrir fjölda morða og hvers kyns glæpastarfsemi. Manna á milli hef- ur hann gengið undir nafninu „U Mappassotu“ sem dregið er af nafni heimabæjar hans Belpasso sem er skammt frá Kataníu. Ásamt Pulvirenti var Giuseppe Pappalardo, 37 ára háttsettur liðs- maður mafíunnar, handtekinn í neðanjarðarbyrginu. Þegar lög- reglan birtist í byrginu og bað Pulvirenti að segja til nafns svar- aði hann: „Efist þið um hver ég er.“ Síðan muldraði hann sömu setningu og mafíuforinginn Santapao tautaði er hann var kló- festur fyrir hálfum mánuði: „Þetta hlaut að enda fyrr en seinna.“ Pulvirenta var með svonefndan foringjahring á hendi, gullhring með 12 demöntum sem er tákn stöðu og áhrifa innan mafíunnar. Hann var einnig með skammbyssu sér við hlið en sýndi enga mót- spyrnu er lögreglan braust inn í fylgsni hans. Að sögn lögreglunnar notaði Pulvirenta þéttriðið net samverka- manna, vina og vandamanna sem sérhæfðu sig í íj'árkúgunum. Þá jók hann áhrif sín með því að gifta tvær dætur sínar jnn í kunnar mafíufjölskyldur. Önnur þeirra giftist Giuseppe Grazioso, sem handtekinn var í nóvember í fyrra, og hin Pietro Puglæisi sem er eftir- lýstur. Þriðji stórlaxinn Nicola Mancino innanríkisráð- herra lýsti handtöku Pulvirenti sem LÖGREGLUMENN rannsaka bifreiðina sem sprengja fannst í við forsætisráðuneytið í Róm. miklum sigri fyrir lögregluna. Gaf hann til kynna að frekari árangurs væri að vænta í glímunni við maf- íuna. Fréttaskýrendur sögðu í gær að árangur lögreglunnar mætti rekja annars vegar til vaxandi andúðar almennings í garð hinnar skipulegu glæpastarfsemi, sem gegnumsýrt hefur ítalskt þjóðlíf um aldur og ævi, og hins vegar til vaxandi fjölda mafíósa sem gæfu sig fram og ljóstruðu upp um fyrrum félaga sína. Fyrsti „stórlaxinn“ sem gekk í net lögreglunnar á þessu ári var Salvatore „Toto“ Riina, sem talinn er hafa verið æðsti maður maf- íunnar á Sikiley, en hann hafði farið huldu höfði í 23 ár. Fyrir hálfum mánuði var meintur stað- gengill hans, Benedetto Santapa- ola, gómaður og nú Pulverinti. Bílsprengja finnst í Róm Óttast hefur verið að mafían myndi svara fyrir sig og er talið að hún hafi staðið á bak við sprengjutilræði í Flórens sl. fimmtudag þar sem fimm manns biðu bana og skemmdir voru unnar á Uffizi-safninu. í gær fann lög- regla bílsprengju skammt frá for- sætisráðuneytinu í Róm og var hún útbúin þannig að hægt var að sprengja hana með fjarstýringu. Að sögn lögreglunnar er sprengjan sem sprakk í Flórens talin hafa verið eins úr garði gerð. „Nýr stórlax“ ítalski mafíuforinginn Gius- eppe Pulvirenti sem handtek- inn var í neðanjarðarbyrgi á Sikiley í gær. Hann er þriðji „stórlaxinn“ úr röðum maf- íunnar sem lögreglan hand- tekur á árinu. Kambódíustjórn vill ógilda kosningaúrslit Stefnir í signr konungssinna KOSNINGARNAR Bangkok. Reuter. SKÆRULIÐAR Rauðra khmera hótuðu á þriðjudag að hefja stríð í Kambódíu sætti stjórnin í Phnom Penh sig ekki við úrslit kosninganna í síðustu viku. Þótt talningu sé ekki lokið virðist stjórnarflokkurinn hafa farið halloka fyrir konungssinnum en fyrir þeim fer sonur Sihano- uks prins og fyrrverandi ráðamanns í Kambódíu. Gæslulið Sameinuðu þjóðanna asta héraðinu í landinu, en þar verða hefur aukið viðbúnað sinn í höfuð- borginni, Phnom Penh, eftir að stjórnarflokkurinn krafðist þess, að kosningarnar yrðu ógiltar vegna kosningasvika. Var þá ljóst, að kon- ungssinnar Sihanouks höfðu unnið sigra í ýmsum fjölmennum kjördæm- um. Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna, sem skipulögðu kosningarnar í Kambódíu, neitaði að verða við því en útvarpsstöð Rauðra khmera sagði, að stjórnarherinn væri þegar farinn að búa sig undir að taka öll völd í Iandinu. Sagði útvarpið, að yrðu kosningaúrslitin ekki virt, myndu skæruliðarnir taka upp vopn að nýju við hlið konungssinna. Konungssinnar höfðu mikla yfir- burði í Kompong Cham, fjölmenn- kosnir 18 menn í þjóðarráðið, sem síðar mun semja stjórnarskrá og mynda stjórn. í landinu í heild virð- ast konungssinnar hafa um fímm prósent umfram stjórnarflokkinn. Lýðræðisflokkur búddista í lykil aðstöðu í gær. höfðu 90% atkvæða verið talin og benti allt til þess að kon- ungssinnar fengju 57 ’þingsæti af 120, stjórnarflokkurinn 52, lýðræð- isflokkur búddista 10 og hægriflokk- ur 1. Þannig var líklegt talið að búddistar gætu ráðið úrslitum um stjórnarmyndun en þeir klufu sig á sínum tíma frá konunggsinrium og þykir víst að flokkurinn tæki afstöðu með þeim. 90% atkvæöa í kosningun- um i Kambódíu höföu veriö talinígær og stefndi i sigur konungs- sinna en þeir fá þó tæpast meirihluta á þlngi Þjóöarflokkur Kambódíu (CPP) Leiötogi er Hun Sen lorsætisráöherra 38,1% Einingarflokkur Kambódíu 45,7% (FUNCINPEC) Leiötogi Norodom Ranaríddh prins Aörir 16,2% Rauðu Khmerámir buðu ekki fram Leitað að eftírmanm Serranos Guatemalaborg. Reuter. ÞING Guatemala kom saman í gær til þess að huga að vali á eftirmanni Jorge Serrano sem herinn setti af sem forseta lands- ins á þriðjudaginn, eftir að hann hafði seilst til alræðisvalda. Talið er að Arturo Herbruger, 80 ára gamall lögfræðingur, sem verið hefur formaður yfirkjörstjórnar, sé líklegasta forsetaefnið. Serrano hugðist gerá róttækar breytingar á stjóm landsins í því augnamiði, að því er hann sagði sjálfur, að bregðast harkalega við spillingu og eituriyfjaviðskiptum. Það varð hins vegar úr að hann hrökklaðist frá völdum eftir að her- inn, atvinnurekendur og launþega- samtökin settu honum úrslitakosti. Að sögn þingmanna er talið mik- ilvægt að eftirmaður Serrano komi úr röðum þeirra sem ekki hafa ver- ið í tengslum við neinn stjórnmála- flokk. Herbruger sagðist reiðubúinn að taka við starfí forseta ef honum yrði boðið það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.