Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
9
Ég þakka af alhug öllum þeim fjölmörgu, sem
glöddu mig með skeytum, gjöfum og heimsókn-
um í tilefni sjötugsafmœlis míns.
Guð blessi ykkur öll.
Haraldur Kr. Jensson.
Kœru börn, œttingjar mínir og vinir!
Mínar bestu þakkir til þeirra, sem gerðu mér
afmœlisdaginn svo ánœgjulegan með gjöfum
og heillaskeytum.
Guðni Guðjónsson frá Brekkum.
Láttu áskrift ab
spariskírteinum
koma í stab
skyldusparnabar
Áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs
er einhver besti kosturinn sem ungu
fólki býðst í stað skyldusparnaðar
sem nú hefur verið lagður niður.
Skyldusparnaðurinn hefur oft komið
fólki vel sem er að stofna fjölskyldu,
kaupa sér húsnæði,
fara í dýrt nám eða þarf að mæta
öðrum útgjöldum. Þess vegna er
mikilvægt að halda reglulegum
sparnaði áfram og þá er áskrift að
spariskírteinum einhver auðveldasti
og öruggasti sparnaðarmátinn.
Með áskrift byggir þú upp þinn
eigin sparnað sem þú getur notað
þegar á þarf að halda.
Hringdu í Þjónustumibstöb
ríkisverbbréfa í síma 91-62 60 40
og kynntu þér kosti þess
ab vera áskrifandi ab
spariskírteinum ríkissjóbs.
PJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Þungavigtar-
maður á ferð
Alþýðublaðið segir:
„Þótt pólitískur ferill
Jóns Sigurðssonar hafi
ekki verið ýkja langur,
raarkar hann djúp spor í
stjómmálasögu landsins.
Eftir að Jón hóf afskipti
af stjórnmálum sýndi það
sig að þar var þungavigt-
armaður á ferð. Sem
dómsmálaráðherra stóð
hann að umfangsmiklum
breytingum á dómkerf-
inu. Hann kom fram lög-
um sem leiddu til aðskiln-
aðar dómsvalds og fram--
kvæmdavalds sem mörk-
uðu tímamót í sögu ís-
lenzks réttarfars.
Sem viðskiptaráð-
herra hefur Jón Sigurðs-
son staðið fyrir margvís-
legum breytingum til
aukins frelsins í verzlun
og viðskiptum, jafnt inn-
anlands sem milli landa.
Jafnframt hefur hann
sett aðilum viðskipta og
verzlunar skýrari al-
menn skilyrði til að
starfa eftir og tryggt
betur rétt neytenda...
Jón Sigurðsson hefur
unnið mörg góð verk sem
iðnaðarráðherra þótt
sumir vilji einblína á, að
ekki hefur risið hér nýtt
álver eins og til stóð. Það
verður hins vegar ekki
skrifað á hans reikning
eins og alþjóð veit. Þá
hættir mönnum til að líta
meira til þess sem illa
gengur en þess sem vel
er gert og á það jafnt við
um iðnað sem og aðrar
starfsgreinar.“
Eiður Guðnason
Hróður Is-
lands í um-
hverfísmálum
Alþýðublaðið segir og:
„Eiður Guðnason hef-
ur haft forgöngu um að
ísland samþykki ýmsa
alþjóðlega samninga sem
lúta að umhverfismálum
og náttúruvemd. Hann
hefur látið dýravemd,
friðun og veiðar á villtum
dýmm mjög til sín taka.
Þá hefur hann unnið að
úrbótum í bygginga- og
skipulagsmálum, m.a. því
sem lítur að skipulagi á
hálendi Islands.
Eitt merkilegasta verk
Eiðs Guðnasonar sem
umhverfisráðheiTa er
vafalaust þáttm' hans í
Jón Sigurðsson
Alþjóða umhverfisráð-
stefnunni í Ríó. Þar tókst
honum með harðfylgi að
koma því inn i stofnsátt-
málann að nýta mætti
sjávarspendýr eins og
aðrar auðlindir jarðar að
þvi gefnu að það væri
gert innan skynsamlegra
marka. Það ákvæði getur
átt eftir að skipta miklu
máli í framtiðinni hvað
varðar rétt þjóða til hval-
veiða og selveiða. Þá
hlotnaðist Islendingum
sá heiður að verða kosnir
til að eiga sæti í aðal-
nefnd Sameinuðu þjóð-
aima sem á eftir að fylgja
eftir Ríó-samþykkthmi
en hart var barizt um
sæti í nefndinni.
Hróður Islands í um-
hverfismálum á alþjóða-
vettvangi hefur því
greinilega aukizt meðan
Eiður gegndi embætti
umhverfisráðherra."
14% atvinnu-
leysi
í Fijálsri verzlun seg-
ir:
„Það var ekki björt
framtíðarsýn sem kom
fram á aðalfundi Vinnu-
veitendasambands Is-
lands snemma í maímán-
uði sl. Þar kom m.a. fram
að ætla mætti að frá ár-
inu 1993 til ársins 2000
myndi störfum sem í boði
eru á vinnumarkaðinum
fækka um tæplega 3.000
sem aftur þýddi að hér
gæti verið um 14% at-
vinnuleysi um aldamótin.
Samkvæmt þeirri spá
fækkaði störfum i nær
öllum framleiðslu- og
þjónustugreinum nema
hjá hinu opinbera og er
ijóst að menn eru búnir
að viðurkenna það sem
lögmál að ríkisgeirinn
stækki sífellt. Þetta þýðir
í raun það að færri verða
að standa undir sífellt
meiri álögum. Svíar náðu
um það þjóðarsátt i fyrra
að fara að vinda ofan af
þeirri útþenslustefnu
hins opinbera sem þar
hefur verið um langt
skeið og Danir telja sig
nú komna á það stig að
þeir eigi ekki aðra úr-
kosti til þess að örva hag-
kerfi sitt en lækka skatta.
Á meðan stefnum við ís-
lendingar í þveröfuga átt
og fetum markvisst þá
braut sem frændur okk-
ar, Færeyingar, hafa
nauðugir viljugir gengið
til enda.“
Uppskeran á
ráðherraakrinum
Staksteinar staldra í dag við uppskeru Al-
þýðublaðsins á ráðherraakri Eiðs Guðna-
sonar og Jóns Sigurssonar í ríkisstjórn Dav-
íðs Oddssonar. Sem og við grein í Frjálsri
verzlun um ríkis- og þjóðarbúskapinn.
Opið hús í Kramhúsinu
OPIÐ hús verður í Kramhúsinu
í dag, miðvikudaginn 16. júní, þar
sem fólki gefst kostur á ókeypis
kynningartímum í svokallaðri
smiðju (workshop) Kramhússins
sem hefst svo 21. júní og stendur
til 30. júní.
Á opna húsinu verður kynnt Afró-
Jamaica í umsjón Orwille frá Jama-
ica, Afró-Brasil í umsjón Mauricio,
modern, argentískur tangó í umsjón
Hany Hadaya, dansara hjá íslenska
dansflokknum, músíkleikfimi, kenn-
ari Hafdís Árnadóttir, morguntímar
í Tai-chi sem Guðný Helgadóttir
leikkona sér um, leiklistarnámskeið
sem þeir Guðmundur Haraldsson og
Þorsteinn Bachmann eru leiðbein-
endur á, Capoeira, brasilísk bar-
dagalist sem Mauricio leiðir og
Raca.
Um helgina, laugardaginn 19. og
sunnudaginn 20. júní, kl. 21 verður
endurtekin afró-brasilískt danssýn-
ing, Raca, sem fram fór um síðustu
helgi í Kramhúsinu. Á sýningunni
veitir brasilíski géstakennarinn
Mauricio Marques, ásamt dönsurum
og trumbuslögurum sem hann hefur
kennt og þjálfað á vorönn, innsýn
í afró-brasilíska dansinn, sem bygg-
ist á arfi forfeðranna frá Afríku.
(Fréttatilkynning)
METVIKAÁ
HLUTABRÉFAMARKAÐI
í síðustu viku voru metviðskipti á
hlutabréfamarkaði, bæði hvað varðar
veltu og fjölda viðskipta. Skráð viðskipti
á Verðbréfaþingi Islands og Opna
Tilboðsmarkaðnum námu alls 40,5
milljónum króna.
Allt frá rniðju ári 1991 hafa hlutabréf
lækkað í verði og er það nú orðið mjög
lágt í ýmsum fyrirtækjum. Þó vissulega
ríki óvissa ttm framhaldið má benda á að
á síðasta ári hækkaði gengi hlutabréfa
um rúmlega 8% frá miðju ári til loka árs.
I ljósi þeirrar reynslu virðist heppilegt
fyrir þá, sem ætla að nýta sér
hlutabréfakaup til lækkunar á tekjuskatti
fyrir árið 1993, að huga að kaupum nú,
á meðan verðið er hagstætt.
Ráðgjafar VÍB veita frekari
upplýsingar um hlutabréf og einnig er
hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VÍB!
Ísíma 91 - 681530 er hœgt að fá upplýsingar um
hlutabréf.
I Nafn:
Heimili:
| Póstfang:
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. j
----- Ármúla 13a, 155 Reykjavík. -1