Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1993
Hundasýning 1
íþróttahöllinni
Um 120
hundar af
24 tegnnd-
"um sýndir
HIN árlega hundasýning Hunda-
ræktarfélags Islands verður
haldin í Iþróttahöllinni á Akur-
eyri sunnudaginn 20. júní næst-
komandi. Sýningin hefst kl. 9 að
morgni og er áætlað að úrslit
liggi fyrir um kl. 17.45. Keppnis-
flokkurinn Ungir sýnendur verð-
ur í dómhring á undan aðalúrsiit-
um sýningarinnar.
Þetta er stærsta sýning sem hald-
in hefur verið til þessa á Akureyri,
en sýndir verða 120 hundar af 24
tegundum. Dómari verður Öivind
' ' Asp frá Noregi. Á sýningunni verð-
ur bryddað upp á þeirri nýjung að
ungmenni á aldrinum 10 til 16 ára
sýna hunda í sérstökum keppnis-
flokki sem nefnist Ungir sýnendur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SÓLARLAG VIÐ HÖFNINA
Ráðstefna heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri
Sjálfsvígshugsanir HIV-
Tvö gisti-
heimili í
Grímsey
Grímsey
TVÖ gistiheimili verða rekin í
Grímsey í sumar líkt og -verið
hefur undanfarin ár, annað að
Básum og hitt í Múla.
Sigrún Birna Óladóttir rekur
gistiheimilið að Básum þriðja sum-
arið í röð, en þar eru 16 uppbúin
rúm auk þess sem hægt er að fá
þar svefnpokapláss. Einnig gefst
gestum kostur á að kaupa morgun-
mat, hádegis- og kvöldverð eftir
óskum og verður áhersla lögð á að
bjóða upp á nýjan fisk og ýmsar
tegundir fugla, m.a. svartfugl.
Þegar liggja fyrir töluvert marg-
ar pantanir um gistingu, sem lofar
góðu fyrir sumarið.
Heimskautsbaugurinn
Kvenfélagið Baugur verður með
ferðaþjónustu í félagsheimilinu
Múla eins og undanfarin ár, en þar
er fyrst og fremst tekið móti ferða-
hópnum og ætlast til að fólk panti
fyrirfram. í Múla eru svefnpoka-
pláss en kvenfélagskonur sjá einnig
um tjaldstæðið í Grímsey.
Marta María sýnir glerlist á flugrelli
sýktra sjaldgæfari en ytra
FJÖLMÖRG erindi voru flutt á tveggja daga ráðstefnu heilbrigðis-
deildar Háskólans á Akureyri, sem bar yfirskriftina Hjúkrun:
Afram veginn, en henni lauk í gær, þriðjudag. Efnisflokkar voru
íjórir, fluttir voru fyrirlestrar um vísindi og siðfræði og völd og
samfélag í tengslum við hjúkrun, þá voru erindi um heilbrigði,
konur og forvamir og loks um alnæmi, hjúkrun og líkn. Kynntar
voru nokkrar nýjar rannsóknir m.a. er varða alnæmi á íslandi.
fyrir að standa sig sem umönnuna-
raðilar. Þeim fannst alnæmi svip-
aður og aðrir sjúkdómar, nema
hvað hann væri átakanlegri, sjúkl-
ingur hefði enga von um bata og
leynd hvíldi yfir sjúkdómnum.
Fram kom í rannsókn nokkurra
nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga
frá Háskólanum á Akureyri sem
fjallaði um HlV-smitaða, að hér á
landi virðast sjálfsvígshugsanir
ekki vera eins algengar og erlend-
Eldur í Kaldbak
ELDUR kom upp í togaranum
Kaldbak EA301 í gærmorgun,
en verið var að vinna við togar-
ann hjá Slippstöðinni-Odda.
Slökkvilið Akureyrar var kallað
út skömmu fyrir kl. 10 í gærmorg-
un, en þá höfðu starfsmenn Slipp-
stöðvarinnar-Odda þegar slökkt
eldinn, sem reyndar varð aldrei
mikill, en töluverður reykur mynd-
aðist. Skemmdir urðu óverulegar,
samkvæmt upplýsingum varðstjóra
slökkviliðsins á Akureyri.
ar rannsóknir gefa til kynna. Þá
hafa sjálfsstyrktarhópar veitt
smituðum mikinn stuðning og eins
kom fram í niðurstöðum rannsókn-
arinnar, að fjölskyldur smitaðra
hafa ekki snúið við þeim baki og
sektarkennd og reiði út í aðra virt-
ist ekki áberandi.
Áfall og álag
í annarri rannsókn nýútskrif-
aðra hjúkrunarfræðinga var upp-
lifun náins aðstandanda alnæmis-
sjúklings könnuð og fram kom að
allir sem þátt tóku í könnuninni
urðu fyrir áfalli er þeir fréttu að.
ástvinur þeirra gengi með sjúk-
dóminn. Þá kom fram að mikið
álag fylgdi því að annast sjúkling-
inn og tilfinningar eins og yfir-
þyrmandi þreyta og hjálparleysi
komu í ljós, en þrátt fyrir það létu
aðstandendur í ljós sterka þörf
HSH
------» ♦ «-------
■ VEITINGAHÚSIÐ Brekka í
Hrísey var opnað nýlega og sér
Elís Árnason matreiðslu- og kjöt-
iðnaðarmeistari um matseldina
fjórða árið í röð. Opnunartími
Brekku í sumar verður frá kl. 9.30
að morgni til 11 að kvöldi, en eld-
húsið er opið frá kl. 11.30 til 21.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Glerlist
MARTA María Hálfdánardóttir við verk sín sem verða til sýnis
í sumar á Akureyrarflugvelli.
Góðir gluggar og
spennandi staður
MARTA María Hálfdánardótt-
ir, listamaður í Garðabæ sýnir
glerlistaverk í sumar í flug-
stöðvarbyggingunni á Akur-
eyri.
„Það eru góðir .gluggar þarna
og spennandi að sýna verk sín á
stað sem er svo fjölfarin,“ sagði
Marta María. „Ég hef starfað hjá
Flugleiðum, bæði sem flugfreyja
og í gestamóttöku á Loftleiðum
þannig að ég tengist vinnustaðn-
um og það var strax auðsótt mál
að fá að sýna á Akureyrarflug-
velli.“
Ævaforn aðferð
Glerlist er listgrein sem rekja
má aftur til 12. aldar, en fram á
þessa öld takmarkaðist hún við
kirkjuglugga og trúarmyndir. Á
seinni tímum hafa listamenn í æ
ríkari mæli gert sér grein fyrir
möguleikum glersins. Marta María
hefur fengist við glerlist í allmörg
ár, hún héfur haldið einkasýningu
á verkum sínum og tekið þátt í
samsýningum heima og erlendis,
en verk sín vinnur hún eingöngu
út munnblásnum glerjum. Aðferð-
in er ævafom og hefur haldist svo
til óbreytt fram á þennan dag.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
KIRKJUTURNINN
Á SVALBARÐS-
EYRI MÁLAÐUR
Handverk 99S
Sölusýning handverksfólks á
Hrafnagili íEyjafirði 18. og 19.júnínk.
Fjölbreyttar framleiðsluvörur,
gamlar handverksaðferðir.
Barnagœsla og skemmtileg ajþreyingfyrir
gesti sýningarinnar, s.s. hestaleiga, skoðun-
arferðir, varöeldur, svifflug, siglingaro.rn.fi.
Sýningin verÖur opin föstudag kl. 13-17
og laugardag kl. 10-17.
Sœtaferðir frá Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir
Elín Antonsdóttir ísíma 96-26200.
- svefnpokapláss
íu,|lll>a^a