Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
NOKKRAR ár voru opnaðar í gærmorgun og
það sama var upp á teningnum og áður, laxinn
er seint á ferð. I öllum ánum var byrjunin ró-
leg, helst að Víðidalsá skæri sig úr með sex
laxa fyrsta morguninn við slæmar aðstæður.
Enginn lax kom á land úr Vatnsdalsá og aðeins
einn úr Langá.
Kerstapinn sterkur
Sex laxar veiddust fyrstu
vaktina í Víðidalsá og sagði
Magnús Jón Sigurðsson leið-
sögumaður við ána, að menn
væru nokkuð ánægðir miðað við
að skilyrði væru slæm og færu
versnandi. „Ain er hálfum metra
yfir meðalvatni og nú dembist í
hana sólarleysing. Hún er orðin
skoluð og erfið,“ sagði Magnús.
Af sex löxum, veiddust fimm í
Kerstapa í Fitjá. Voru þeir 12
til 16 pund. Einn 7 punda veidd-
ist í Galtanesfljóti. Þrír laxar
komu á maðk, tveir á spón og
einn á flugu. Auk þess sagði
Magnús að menn hefðu orðið
laxa varir í Dalsárósi.
í næsta dal, Vatnsdal, var
annað hljóð í strokknum. Enginn
lax veiddist fyrsta morguninn og
menn urðu ekki varir. I veiðihús-
inu fengust þær skýringar að áin
væri skoluð, köld og væri að
ryðja sig.
„Byrjar of snemma“
„Þetta sýnir einfaldlega það
sem ég hef lengi haft á tilfinning-
unni, að veiðin byijar of snemma.
Það veiðist vel í opnun kannski
tíunda hvert ár og svo dettur
veiðin niður eftir það, er róleg
þangað til farið er að líða vel á
júní, þá tekur veiðin aftur við
sér. Eins og vorið hefur verið,
er ekki við meiru að búast. En
nú eru skilyrði orðin góð og lax-
inn hlýtur að koma með vaxandi
straum," sagði Ingvi Hrafn Jóns-
son, einn landeigenda við Langá
í gærmorgun, en þá hófst veiði
á neðstu svæðunum. Aðeins einn
lax náðist, Þorsteinn Húnboga-
son fékk 7 punda hrygnu á
Breiðunni á maðk. Stefán Ólafs-
son í veiðihúsinu á Langárfossi
sagði að menn sæu dálítið af
fiski, sérstaklega á Breiðunni,
en hann „stæði djúpt og tæki
illa“. Þó eru öll skilyrði góð.
Veiði hefst á mið- og efstu svæð-
um Langár á sunnudaginn. Ingvi
sagðist hafa séð ijóra laxa á
Tannastaðabreiðu í gærmorgun,
en sá staður er neðstur veiði-
staða á miðsvæðum Langár. Þá
hafa sést laxar í stiganum hjá
SKuggafossi af og til að undan-
förnu.
Mætti vera meiri lax...
„Ég segi allt bærilegt, að öðru
leyti en því að það mættu vera
komnir fleiri laxar á land,“ sagði
Böðvar Sigvaldason á Barði við
Miðfjarðará í gærdag, en veiði
hófst á vatnasvæðinu síðdegis á
sunnudag. Þá fékkst einn lax og
menn misstu nokkra. í gærmorg-
un veiddust síðan fjórir laxar og
enn sluppu nokkrir. „Skilyrði eru
ekki slæm, þó er vatnið aðeins
litað, en vel veiðandi," sagði
Böðvar. Laxarnir fimm, sem allir
vógu um 10 pund, veiddust flest-
ir neðarlega í Vesturá, í Hlíðar-
Morgunblaðið/Kristinn
Sá fyrsti úr Elliðaám
MAGNÚS L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar, dró fyrsta lax-
inn úr Elliðaánum í gær.
fossi, Kistunum og Langhyl.
Einn veiddist í Ármótum Austur-
ár og Núpsár. Böðvar hélt að
allir hefðu fengist á maðk.
Áin hrapar...
Aðeins tveir laxar veiddust
fyrstu vaktina í Elliðaánum,
Magnús L. Sveinsson fékk þann
fyrri, 4 punda á maðk á Breið-
unni og aðeins örfáum andartök-
um seinna setti Aðalsteinn Guð-
johnsen í og landaði öðrum laxi,
4 punda, einnig á maðk. Magnús
missti annan til, mun vænni, sá
náði að slíta er hann rásaði með
línuna í stórgrýti. Aðeins 7 laxar
voru komnir á skrá teljarans við
rafstöð sem er með alminnsta
móti. Veiðiverðimir, þeir Skúli
og Magnús, sögðu þrátt fyrir það
töluvert vera af laxi á Breiðunni
og eitthvað í Fossinum. „Það er
kjörvatn núna og hitastig gott.
En hve lengi það varir ef það fer
ekki að rigna bráðum veit ég
ekki, við horfum upp á ána hrapa
niður í gijót þessa dagana,“
sögðu þeir félagar.
Arleg ökuleikni
um landið allt
HIN árlega Ökuleikni Bindindisfélags ökumanna og Umferðarráðs
hófst að þessu sinni með Pressukeppni í síðustu viku. Markmið keppn-
innar er að gefa ökumönnum um allt land tækifæri til að rifja upp
kunnáttu sína í umferðarreglum og reyna sig við hinar ýmsu þrautir
a ökutæki sinu.
Ökuleikni 1993, sem í samvinnu
við Umferðarráð, DV, Rás 2 og
Heklu, mun heimsækja 33 staði á
landinu í sumar þar sem fólki verður
gefinn kostur á að spreyta sig í
ökuleikni og eins í reiðhjólakeppni.
Ökuleikninni er skipt í tvennt. Ann-
ars vegar eru lagðar umferðarspurn-
ingar fyrir þátttakendur og hins
vegar á að aka í gegnum 12 þraut-
ir, sem allar reyna á kunnáttuna.
Til að skapa þá spennu sem er í
umferðinni, er tími tekinn í þrauta-
brautinni.
Keppt er í þremur riðlum, karla-
og kvennariðli og í riðli fyrir öku-
menn með bráðabirgðaskírteini.
Veitt eru verðlaun fyrir þijú efstu
sætin í hveijum riðli og sigurvegarar
á hvetjum stað öðlast rétt til þátt-
töku í sérstakri úrslitakeppni um
íslandsmeistaratitilinn sem haldin
verður í lok ágúst. Þar gefst kostur
á að vinna utanlandsferðir og jafn-
vel nýjan Mitsubishi Colt sem Hekla
mun gefa þeim keppanda sem tekst
að aka villulaust í gegnum þrauta-
planið í úrslitunum samkvæmt
ákveðnum reglum.
. Brynjar Valdimarsson, starfsmað-
Borgey vill
fá greiðslu-
stöðvunina
framlengda
FORSVARSMENN Borgeyjar hf
á Höfn í Hornafirði óskuðu í gær
eftir því við Héraðsdóm Austur-
lands að greiðslustöðvun sem fyr-
irtækið hefur haft undanfarnar
þrjár vikur verði framlengd til
ailt að þriggja mánaða.
Að sögn Olafs Börks Þorvaldsson-
ar héraðsdómara á Austurlandi verð-
ur úrskurður, þar sem afstaða er
tekin til beiðninnar, kveðinn upp
klukkan 11 í dag.
ur hjá Ökuleikni, sagðist reikna með
að um 1.200 manns tækju þátt í
keppninni í sumar. „Það er mikill
áhugi fyrir þessu og á mörgum stöð-
um er það mikill bæjarviðburður er
við mætum á svæðið. Ég er sann-
færður um að við eignumst betri
bílstjóra með þessu átaki. Við höfum
oft séð ökumenn koma inn á planið
með töffarastæla en síðan ekkert
ráðið við bílinn í þrautinni. Þeir hafa
því þurft að hugsa sinn gang,“ sagði
Brynjar.
Ókuleiknin verður við Heklu í
Reykjavík í kvöld kl. 20. Öllum er
heimil þátttaka. Hér á eftir fer
keppnisáætlunin í Ökuleikni 1993:
Keppnisstaðir í júní
Hella 18. júní kl. 20
Klaustur 19.júní kl. 16
Höfn 20. júní kl. 20
Stöðvarfjörður 21. júní kl. 20
Eskifjörður 22. júní kl. 20
Neskaupstaður 23. júní kl. 20
Reyðarfjörður 24. júní kl. 20
Egilsstaðir 25. júní kl. 20
Þórshöfn 27. júní kl. 16
Vopnafjörður 28.júní kl. 20
Húsavík 29. júní kl. 20
Dalvík 30. júní kl. 20
Keppnisstaðir í júlí
Akureyri l.júlí kl. 20
Sauðárkrókur 2. júlí kl. 20
Skagaströnd 3. júlí kl. 16
Hvammstangi 4. júlí kl. 17
Ólafsvík 6. júlí kl. 20
Stykkishólmur 7-júlí kl. 20
Tálknafjörður 8. júlí kl. 20
Þingeyri 9. júlí kl. 20
Bolungarvík lO.júlí kl. 16
Isafjörður ll.júlí kl. 16
Súðavík 13. júlí kl. 20
Búðardalur 14. júlí kl. 20
Borgarnes 15. júlí kl. 20
Kópavogur 16. júlí kl. 20
Akranes 17. júlf kl. 16
Keflavík 18. júlí kl. 14
Þorlákshöfn 18. júlí kl. 20
Galtalækur Sl.júlí kl. 16
Úrslitakeppni í ágúst
Úrslit 28. ágústkl. 11
Úrslit 29. ágúst kl. 10
'r
V\ y
\\/ -N-
xw.
\\ / W /
i W t
\\/
W' ■*
u
'W
SLATTUVELAR OG ORF
SLÁTTUVÉLAR: R A F -, BENSÍN-, HJÓLA- EÐA LOFTPÚÐAVÉLAR
ÞÚ FINNUR VÉL VIÐ ÞITT HÆFI í GARÐINN ÞINN HJÁ OKKUR.
MTD 478 R
Stór og öflug sláttuvél
með 5 hp B&S mótor
með drifi, auðstillanlegum
hjólalyftum og stórum
grassafnara.
Verö 64.250,- kr.
Vélar m/grassafnara
verö frá 34.750,- kr.
MTD 072 R
Ódýr lúxusvél með
3,75 hestafla vél.
50 cm sláttubreidd, stór og
breið hjól, útbúin auðstillan-
legum hjólalyftum.
Meðfærileg í flutningi og geymslu.
Verö 24.900,- kr.
Flymo E 300
Rafknúni svifnökkvinn.
Þú hefur hann í hendi þ
léttan og meðfærilegan
Bestur fyrir litlar lóðir.
Verö 15.900,- kr.
MTD 042 R
Verö 19.900,-kr
Storar ioötr
.... .....
Md)4Jz©[k1
Flymo raforf MT 300
Rafknúið orf sem hentar vel til þess
að slá grasbrúska og illgresi á litlum
og meðalstórum lóðum.
350 W 7.550,- kr.
450 W 8.925,- kr.
RAÐGREIÐSLUR
' V"
Opið á laugardögum
frákl. 10:00 til 16:00.
Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Hressir sölumenn!
G. Á. Pétursson hf.
Sláttuvélamarkaðurinn
Faxafeni 14 • Sfmi: 68 55 80