Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 13
'fóÖRftuföBÍikÐÍÐ 'MfoVÍkttMG'öÉ: ié:lífu,Nf ÍÖé3 Yfirlitssýning á verkum Braga Ásgeirssonar í Listasafni íslands Leitað að óskráðum verkum listamaxmsins LISTASAFN íslands vinnur nú að því að setja saman yfirlits- sýning-u á grafíkverkum Braga Asgeirssonar á hausti kom- anda. Verður þetta fyrsta sýn- ingin í nýjum flokki sérsýninga sem Listasafnið hyggst standa fyrir á næstu árum, þar sem tekið verður saman úrval verka eftir íslenska listamenn af eldri kynslóð sem enn eru á lífi og starfandi, eða dregnar upp heildarmyndir af afmðrkuðum þáttum í sköpunarstarfi þeirra. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð- ingur hefur umsjón með þessari sýningu fyrir hönd Listasafnsins og segir hann að sýningin í haust muni sæta tíðindum fyrir það að vera fyrsta tilraun til að meta framlag íslensks myndlistar- manns til grafíklistarinnar. „Bragi Ásgeirsson á að baki sér- lega glæsilegan feril innan grafík- lista, bæði sem listamaður og kennari," segir Aðalsteinn. „Á lið- lega fjörutíu ára tímabili hefur hann gert á annað hundrað gra- físk þrykk, tréristur, steinþrykk, málmætingar, akvatintur, sáld- þrykk og einþrykk, sem mörg hver teljast til öndvegisverka ís- Morgunblaðið/Þorkell Bragi Ásgeirsson lenskrar grafíklistar. Undir hand- leiðslu Braga við Handíða- og myndlistarskólann komust margir helstu grafíklistamenn yngri kyn- slóðar einnig til þroska og eiga honum margt að þakka.“ Auk þess að sinna listsköpun sinni hefur Bragi verið ötull greinahöfundur og gagnrýnandi á þriðja áratug. í tengslum við sýn- inguna, sem hefst 11. september næstkomandi, verður gefín út bók með greinum um listamanninn og eftir hann, auk fjölda mynda og heildarskrá yfir grafíkmyndir frá upphafi. Meðan á sýningunni stendur verðyr væntanlega fjallað um grafíkverkin, bæði í erindum og sýnikennslu. Enn vantar þó margar þær myndir á sýninguna sem eru í einkaeign eða er ekki vitað um af öðrum sökum og bið- ur Aðalsteinn þá sem hafa í fórum sínum eldri grafíkverk Braga, einkum frá tímabilinu 1952-1964, að hafa samband við sig á Lista- safni íslands. „Við erum með á annað hundrað myndir á skrá, en varla tveir þriðju hlutar þeirra eru komnir fram í dagsljósið. Afgang- urinn hangir einhvers staðar í heimahúsum. Þarna eru ýmis sjaldgæf verk, t.d. þrykk í tveimur eða þremur eintökum, margvís- legar tilraunir o.fl. Við munum reyna fram á síðustu stundu að birta heildarskrá í bókinni með ljósmyndum af verkunum fyrir komandi kynslóðir, og vonum því að eigendur ófundinna verka láti í sér heyra sem fyrst.“ Asmundarsalur Sýmng á verkum ítalska arkitekts- ins Carlo Scarpa Fyrirlestur próf. Livio G. Dimitriu í ÁSMUNDARSAL hefst sýning á verkum arkitektsins og lista- mannsins Carlo Scarpa, nk. föstu- dag 18. júni kl. 17. Flutningur sýningarinnar hingað til lands auk komu fyrirlesara er samvinnu- verkefni Menningarstofnunar Bandarikjanna og Arkitektafélags íslands. í fréttatilkynningu segir: „Carlo Alberto Scarpa var fæddur í Feneyj- um árið 1906 og lést í Japan árið 1978. Árið 1926 hóf hann að kenna arkitektíska teikningu við háskólann í Feneyjum meðal annars til að skjóta sér undan herþjónustu og gegndi þar prófessorstöðu síðan allt sitt llíf. Carlo var fjölhæfur arkitekt og afburða teiknari. Hann hannaði fjöl- mörg hús, þ. á m. Brion-grafhýsið í San Vito d’Altivole, sem telst með merkustu mannvirkjum samtímans auk þess að vinna að gerð ýmissa nytja- og listhluta og þykja glerverk hans með afbrigðum óvenjuleg. Einnig var hann . fagurfræðilegur ráðgjafi við uppsetningu ýmissa al- þjóðlegra listsýninga og í arkitektúr hans og málverki glætir í áhrif frá Braque, Picasso, Leger og Matisse. Scarpa hlaut Olivetti-verðlaunin 1956 og Forsetaverðlaun Ítalíu 1967 fyrir verk sín. Á leið sinni til hönnunar þessara verka sinna kynntist Scarpa mörgum öðrum samtímameisturum arkitekt- úrsins, s.s. Louis Kahn, Alvar Aalto og Frank Loyd Wright, sem hafði mikil áhrif á seinni tíma verk hans þrátt fyrir ólíkar hugmyndir um mik- ilvægi og nauðsyn formfestu. Öll verk Scarpa voru ávallt ein- stæð og ókerfísbundin og lögðu mikla áherslu á brotakenndar samsetning- ar forma og afmörkun skynjunar við smáatriði ólíkt inntaki og algerlega á skjön við tröllríðandi skynsemis- hyggju nútímaarkitektúrs sem hann áleit í rökum sínum og pólitískri rétt- lætingu andvana fæddan. Rúmeninn Livio G. Dimitriu, sem er m.a. prófessor við Pratt-háskóla, New York Institute of Technology og Kanto Gakuin-háskólann í Japan, flytur fyrirlestur um þjóðleg áhrif og bernskubrek á mótun framúr- stefnu Carlo Scarpa. Fyrirlesturinn hefst kl. 20 á laug- ardagskvöld og eru allir velkomnir. 4WD skutbíll Umsagnir MAZDA eigenda eru í takt við þau próf sem gerð hafa verið á MAZDA bílum m.a. hjá þýska bflablaðinu "Auto Motor und Sport". í nýjasta 100.000 km bilanaprófinu eru 3 MAZDA fólksbílar í fimm efstu sætunum, af 85 bílum sem prófaðir voru. MAZDA 323 4WD er ekki aðeiris bfll, sem þú getur treyst, hann er ódýr í rekstri, rúmgóður fjórhjóladrifinn skutbfll með sídrifi og læsanlegum millikassa, 5 gírum, álfelgum o.fl. Við eigum fáeina bfla á lager á mjög hagstæðu verði frá kr. 1.295.000,- MISSTU EKKIAF ÞESSU TÆKIFÆRI. Hafðu strax samband við sölumenn okkar. f reynsluakstrinum upplifir þú seigluna í þessum ágæta bíl. SÖLUAÐILAR: Akranes: Bflás sf., Þjóðbraut 1, simi 93-12622. ísafjörður: Bílatangi hf., Suðurgötu 9, simi 94-3800. Akureyri: BSA'hf. Laufásgötu 9, sími 96-26300. Egilsstaðir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c, sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bílasala Keflavíkur, Hafnargötu 90, sfmi 92-14444. Notaðlr bílar: Bílahöllin hf., Bíldshöföa 5, sími 91-674949. ferð Á MAZDA 323 4WD skutM í þangað sem þig langar, með

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.