Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
Bonn
Reykjavíkurhátíð opnuð
STÆRSTA íslenska menningarhátíð sem haldin hefur verið í Þýska-
landi, Sumarhátíðin í Bonn, var formlega opnuð sl. sunnudag að
viðstöddu fjölmenni, þ.á.m. sendiherra íslands í Þýskalandi, Hjálm-
ari W. Hannessyni, yfirborgarstjóra Bonn, Dr. Hans Daniels,
borgarsljóranum í Reykjavík, Markúsi Erni Antonssyni, íslensku
listafólki og íslenskum og þýskum skipuleggjendum sýninganna.
I opnunarræðu sinni sagði borg- Markús Örn Antonsson,
arstjórinn í Bonn Dr. Daniels m.a. borgarstjóri, benti á að þróun
að í Bonn væru taldar vera sex
árstíðir: Þessar fjórar venjulegu,
karnevalið og sumarhátíðin,
Höfuðborg Þýskalands í Bonn, hef-
ur í mörg ár kynnt menningarlíf
helstu menningarborga Vestur-
Evrópu á þessari árlegu hátíð og
ætlar nú að beina athyglinni að
Norður- og AustUr-Evrópu. í fyrra-
sumar snérist hátíðin þannig um
menningarlífið í Helsingfors.
Borgarstjórinn lagði áherslu
á að sá mikli áhugi sem Þjóðveij-
ar sýni menningu annarra þjóða
sanni að allur almenningur hafni
ijandskap og voðaverkum öfga-
manna gegn útlendingum. Hann
fagnaði því sérstaklega að hátíð-
in skyldi heíjast á stærstu sýn-
mgu sem haldin hefur verið utan
íslands á verkum fremsta list-
málara þjóðarinnar, Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals.
Kjarvals sem listamanns tengist
sögu Reykjavíkur sem á sama
tíma breyttist úr þorpi í nútím-
anlega borg og að með aukinni
hagsæld hafi þörfin fyrir fjöl-
breytt lista- og menningarlíf
aukist að sama skapi.
Á sýningunni eru verk Kjarv-
als frá Ijórða til sjötta áratugar
þessarar aldar, þ.e.a.s. verk hins
fullþroskaða listamanns sem sýna
í mjög persónulegri túlkun duiúð
íslensks landslags. Borgarstjórinn
lagði áherslu á að íslensk menning
væri hluti evrópskrar menningar
og að framlag íslands væri ekki
tektir. Sérstaka hrifningu vakti
dansatriði sem Nanna Ólafsdóttir
hefur samið við tónverk Þorkels
Sigurbjörnssonar Euridike og
dansatriði samin af William
Soleau við „Sketches" Stra-
vinskis.
íslenska menningarhátíðin í
Bonn stendur frá 12.-27. júní og
verður þar hægt að kynnast ís-
lenskum bókmenntum, kvikmynd-
um og tónlist með þátttöku fjölda
íslenskra listamanna.
Erlendur Einarsson afhendir Tómasi Tómassyni bassasöngvara,
styrkinn úr Minningarsjóði Lindar hf., um Jean Pierre Jacquillat.
Minningarsjóður Lindar hf. um Jean Pierre Jacquillat
Tómasi Tómassyni veitt
500 þúsund króna styrkur
emgöngu forn bókmenntahefð
heldur allar greinar nútímamenn-
ingar.
Ballettsýningarnar tvær, nú-
tímadans Svalanna „Ert þú svona
kona“ og sýning Danshóps Þjóð-
leikhússins hlaut ágætar undir-
TÓMASI Tómassyni bassasöngv-
ara hefur verið veittur 500 þús-
und króna styrkur úr Minningar-
sjóði Lindar hf., um Jean Pierre
Jacquillat hljómsveitarstjóra,
fyrrum aðalhljómsveitarsljóra
Sinfóníuhljómsveitar Islands, en
Þýskaland og Frakkland
íslensk samtíma-
tónverk frumflutt
SEX íslenskir tónlistarmenn
leika ný og nýleg verk eftir jafn
mörg tónskáld í Frakklandi og
Þýsklandi í næstu viku ásamt
frönsku hljómsveitinni „En-
semble Instrumental de
Grenoble“ í tengslum við reyk-
víska menningarhátíð í Bonn,
tuttugu ára afmæli hljómsveitar-
innar og tíu ára afmæli menn-
ingarsamnings Islands og
Frakklands. Leikið verður á tón-
leikum í Grenoble í Frakklandi,
og Köln og Bonn í Þýskalandi.
Aðalviðfangsefni hljómleikanna
tengjast íslandi og konum í tón-
list. Gestasljórnandi „Ensemble
Instrumental de Grenoble" á
tónleikunum verður Guðmundur
Emilsson.
Maria de
Alevar
Alicia Terzian
Þorkell Mist
Sigurbjörnsson Þorkelsdóttir
Jón Nordal
Atli Heimir
Sveinsson
Guðmundur
Emilsson
Sigrún
Eðvaldsdóttir
Efnisskráin er samsett úr sex
hljómsveitarverkum eftir sex tón-
skáld, og eru flestöll verkin ný af
nálinni, samin annaðhvort í ár eða
í fyrra. Auk verka íslensku tón-
skáldanna, sem eru Þorkell Sigur-
bjömsson, Mist Þorkelsdóttir, Jón
Nordal og Atli Heimir Sveinsson,
verða flutt verk eftir spænska tón-
skáldið Mariu de Alvear og argen-
tíska tónskáldið Alicia Terzian, sem
samin voru undir áhrifum frá
menningu íslands og náttúru í kjöl-
far heimsóknar þeirra hingað til
lands. Verk Mistar heitir Til heið-
urs þeim er leita á vit hins ókunn-
uga og var frumflutt á Listahátíð
í Reykjavík árið 1992, verk Mariu
de Alvear heitir „Luces“ og var
frumflutt í /ebrúar síðastliðnum í
Listasafni íslands, verk Þorkels
Sigurbjörnssonar heitir „Filigree"
og er um frumflutning að ræða.
Eftir Jón Nordal verður leikið
Adagio fyrir flautu, hörpu, píanó
og strengjasveit, verk Aliciu Terz-
ian nefnist „Off the Edge“ og er
um frumflutning að ræða og svo
er einnig með verk Atla Heimis
Sveinssonar, er kailast Pilsaþytur.
íslensku einkeikaramir fimm eru
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari,
Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleik-
ari, Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanóleikari, Elísabet Waage,
hörpuleikari, Martial Nardeau,
flautuleikari, auk Sigurðar Braga-
sonar, barítónsöngvara.
„Ensemble Instrumental de
Grenoble" ferðast
víða ár hvert og
hefur m.a. haldið
tónleika í Ástral-
íu, Austurlöndum,
Bandaríkjunum,
Frakklandi,
Þýskalandi, Sviss,
Austurríki og It- Bryndís Halla
alíu. Fyrir utan Gylfadóttir
það að hafa sígild
verk á efnisskrá sinni, kannar
hljómsveitin ósjaldan ný verk og
menningarstrauma sem liggja í
útjaðri Evrópu eða utan hennar.
Þetta er í annað skiptið sem Guð-
mundur Emilsson stýrir hljómsveit-
inni. „Það kom einfaldlega þannig
til að bandarískur starfsbróðir
minn, Marc Tardeau, bauð mér
óvænt að stjórna hljómsveitinni síð-
asta sumar á tónleikum í Grenoble
og á tónleikaferð um Frakkland.
Samstarfið gekk vel og mér var
aftur böðið að stjórna hljómsveit-
inni nú í sumar. I millitíðinni kom
boð frá borgaryfirvöldum í Bonn í
gegnum íslenska sendiráðið þar um
tónleikahald, og ég stakk upp á
því við hljómsveitina að hún hefði
þar viðkomu, sem var samþykkt.
Síðan falaðist ég eftir þessum
glæstu meðleikurum og pantaði
fjögur þessara verka, ef frá eru
talin verk Mistar og verk Jóns
Nordals sem er eldra og raunar
eitt víðförlasta íslensk tónverk á
20. öld, enda óskaplega fagurt að
allri gerð. Verkin verða síðan frum-
Anna Guðný Elísabet Waage
Guðmundsdóttir
Martial
Nardeau
Sigurður
Bragason
flutt með þessum skemmtilega að-
draganda, nema þau verk sem ég
gat ekki stillt mig um að taka for-
skot á og voru frumflutt í ár og í
fyrra.“
Efnisskrá íslendinganna og „En-
semble Instrumentai de Grenoble"
verður frumflutt 24. júní í „La
Salle Oliver Messiaen" í Grenoble,
26. júní í hátíðarsal tónlistarhá-
skóla Kölnar og útvarpað um
Þýskaland af þýska ríkisútvarpinu.
Næsta dag er leikiðí „Beethoven-
haus Kammermusiksaal" í Bonn,
sem stendur við fæðingarstað tón-
skáldsins.
hann lést af slysförum í Frakk-
landi sumarið 1986.
Tómas Tómasson lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð jólin 1987 og var hann
meðlimur í kór Menntaskólans við
Hamrahlíð 1984. Haustið 1988 hóf
hann nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og hefur Elísabet Erl-
ingsdóttir söngkona verið hans að-
alkennari við skólann. Í námi sínu
hefur Tómas lagt jafna áherslu á
óperu- og ljóðasöng, en hann út-
skrifaðist frá Tónlistarskólanum nú
í vor með 8. stigs prófi í söng.
Frá 1990 hefur Tómas Tómasson
sungið með kór íslensku óperunnar
og m.a. tekið þátt í eftirtöldum
sýningum: Carmina Burana, I.
Pagliacci, Rigoletto, Töfraflaut-
unni, Otello og Luciu di Lammer-
moor. Hann hefur auk þess sungið
einsöng í nokkrum kirkjulegum
verkum með ýmsum kórum og
hljómsveitum.
Tómas heldur utan til framhalds-
náms við „The Royal College of
Music“ í Lundúnum nú í haust.
Jean Pierre Jacquillat fæddist í
Versölum árið 1935. Að loknu námi
í Conservatorie í National Superieur
de Musique í París var hann ráðinn
aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá hin-
um þekkta stjórnanda Charles
Munch við Sinfóníuhljómsveit Par-
ísar. J. P. Jacquillat var ráðinn aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Anger í Frakklandi
og ári seinna aðalhljómsveitarstjóri
óperunnar í Lyon og Rhone-Alpes
hljómsveitarinnar. Jean Pierre kom
fyrst til starfa með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands árið 1972 en var síðan
ráðinn aðalhljómsveitarstjóri hljóm-
sveitarinnar árið 1980 og gegndi
því starfi til loka starfsársins
1985-86.
Vestfirðir
Samkeppni um
merki og slagorð
í FRAMHALDI af vinnu við
stefnumótun í ferðamálum á
Vestfjörðum ákváðu Ferða-
málasamtök Vestfjarða og
Fjórðungssamband Vestfirð-
inga á sl. vetri að efna til sam-
keppni um hönnun merkis og
gerð slagorða sem mundu lýsa
ímynd Vestfjarða.
Markmið samkeppninnar var að
leita eftir merki og slagorðum sem
geta verið samnefnari ferðaþjón-
ustunnar í fjórðungnum og eru
ætluð til að prýða minjagripi, um-
búðir, auglýsingar og annað sem
tengist ferðaþjónustu.
Mikil þátttaka var í samkeppn-
inni og sendu 58 aðilar inn 216 til-
lögur að merki. Tillögur að slagorð-
um voru enn fleiri. Tillögur bárust
alls staðar að, úr öllum landshlutum
og frá ýmsum löndum.
Verðlaun fyrir merki eru 100.000
kr. auk tveggja aukaverðlauna, sem
eru kvöldverður og gisting fyrir tvo
í eina nótt í Hótel Flókalundi og
Hornstrandaferð fyrir tvo með ms.
Fagranesi.
Dómnefnd valdi merkið Vaffið,
fjöllin og fuglinn 2, sem er eftir
Garðar Pétursson. Merkið þótti
koma vel til skila hreinleika fjórð-
ungsins, það er einfalt en þó tákn-
rænt fyrir Vestfirði s.s. fjallasýn
og náttúru fjórðungsins.
Aukaverðlaun hlutu: Anna Þor-
kelsdóttir, fyrir. tvær myndir og
hlýtur hún gistingu og kvöldverð í
Flókalundi, og Halldór E. Eyjólfs-
son, sem hlýtur í verðlaun Horn-
strandaferð fyrir tvo með Fagranes-
inu fyrir margar og fjölbreytilegar
tillögur.
I
I
>
Verðlaunamerkið: Vaffið, fjöllin
og fuglinn 2, eftir Garðar Péturs-
son.
>
>
í
Dómnefnd ákvað að verðlauna
eftirtalin 5 slagorð: — Komdu vest-
ur; sem tveir höfundar áttu, þau
Árni Margeirsson og Greta Hákans-
son, — Vestfirðir, öðruvísi paradís,
og — Vestfirðir, örugglega öðru-
vísi; sem Andrés Guðmundsson og
Gunnar Borgarsson áttu sameigin-
lega. — Vestfirðir, nær en þig grun-
ar; sem Hrönn Magnúsdóttir átti
og — Vestfirðir, einstök náttúra;
sem Jónas Eyjólfur Jónasson átti.
Það er mat dómnefndar að mjög
margar tillögur hafi verið fram-
bærilegar og þessi mikla þátttaka
sýnir að margir hafi haft áhuga á
Vestfjörðum. Náttúran er það sem
oftast kemur upp í hugann, þegar
hugsað er um Vestfirði, þá aðallega
fjöll, firðir, fuglar, sól og kyrrðin.
Dómnefndin þakkar þeim fjöl-
mörgu sem tóku þátt í keppninni
og vonar að afrakstur hennar eigi
eftir að skila sér í framtíðinni.
(Fréttatilkynning)
\~