Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1993
21
Bændaskólinn á Hvanneyri
13 búfræðistádent-
ar brautskráðir
Hvannatúni í Andakíl.
FRÁ búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri brautskráðust 13
landbúnaðarkandidatar síðustu helgi í maí. Sama dag var tekin fyrsta
skóflustunga að raðhúsi fyrir nemendagarða búsvísindadeildar.
Aukin erlend samskipti
rekstrarfræðinga
ÞRJÁTÍU rekstrarfræðingar voru útskrifaðir frá Samvinnuháskólan-
um í vor eftir tveggja ára nám. Það er í fjórða sinn frá því að kennsla
hófst á háskólastigi á Bifröst.
Bestum námsárangri náði að
þessu sinni Einar Guðbjartur Páls-
son og næstbestum og jöfnum
árangri náðu þær Áslaug B. Guð-
mundsdóttir og Guðbjörg Sigur-
bjömsdóttir.
Til vors stunduðu 89 nemendur
nám við skólann þar af 71 í Rekstr-
arfræðideild og 18 í Frumgreina-
deild. Meðalaldur nemenda var um
30 ár, svipaður og undanfarin ár.
Fastir kennarar voru 9, en auk
þess kenndu þrír stundakennarar
við_ skólann í vetur.
í ræðu rektors við skólaslitin kom
fram að skólastarfið hefði gengið
vel í vetur. Á skóbárinu voru bygg-
ingar skólans tengdar hitaveitu og
fyrstu íbúðir Nemendagarða Sam-
vinnuháskólans teknar í notkun. Þá
var skorið úr um að nám við Frum-
greinadeild skólans yrði áfram láns-
hæft hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Nám við báðar deildir skól-
ans er því lánshæft eins og verið
hefur.
Ein fjögurra stúlkna var með
hæstu einkunn að þessu sinni, Guð-
rún Lára Pálmadóttir með 8,0, og
Torfí Jóhannesson var næstur með
7,8. Guðrún hlaut verðlaun fyrir
hæstu einkunn fyrir aðalverkefni
frá Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins og frá Félagi íslenskra bú-
fræðikandidata fékk hún viður-
kenningu fyrir hæstu meðaleinkunn
og Ólöf Björg Einarsdóttir hlaut
verðlaun Búnaðarfélags íslands fyr-
ir hæstu einkunn í rekstrarhag-
fræði.
Rannsóknir eru
meginforsenda
Magnús B. Jónsson skólastjóri
sagði við þetta tækifæri, að rann-
sóknir við búvísindadeild væru meg-
inforsenda fyrir námi við deildina,
ekki miðaði hratt en í áttina. Stofn-
anir eins og Hagþjónusta landbún-
aðarins og bútæknideild RALA á
Hvanneyri eru styrkur fyrir skólann
enda er verkleg þjálfun nú meiri
en áður. 25 ára búfræðikandidatar
gáfu skólanum málverk eftir Balt-
asar. Fyrstu skóflustunguna að
nýju raðhúsi tók Lárus Birgisson,
nýbrautskráður búfræðikandidat,
einn stjómarmanna Nemenda-
garða, sem er sjálfseignarstofnun.
Húsið verður með þrem íbúðum,
tveimur tveggja og einni þriggja
herbergja, samtals 220 fermetrar.
Áður vom byggð 2 hús en þau
hafa bætt úr brýnni þörf nemenda
deildarinna.
- D.J.
Rekstrarfræðingar
NÝÚTSKRIFAÐIR rekstrarfræðingar frá Samvinnuháskólanum á
útskriftardag.
Samvinnuháskól-
inn útskrifar 30
Alls lögðu 209 nemendur stund
á nám við MHÍ í vetur, þar af 40
í fomámsdeild. Um 30 erlendir
nemendur stunduðu nám við skól-
ann og vom flestir þeirra innan
NORDPLUS og ERASMUS áætl-
ananna. Erlend samskipti hafa stór-
aukist á undanförnum ámm og em
nú umfangsmikill liður í starfsemi
skólans. í þessu sambandi má geta
þess að fjöldi erlendra gestakenn-
ara heimsótti skólann í vetur og
margir nemendur hans hafa dvalið
í erlendum listaháskólum um lengri
eða skemmri tíma.
0
Utskriftarhópur
ÚTSKRIFTARHÓPUR Myndlista- og handíðaskólans ásamt skólastjóranum, Bjarna Daníelssyni.
Brautskráning Mynd-
lista- og handíðaskólans
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Nýir búfræðistúdentar
NÝBRAUTSKRÁÐIR kandidatar. F.v.: Guðmundur Jóhannesson,
Ásdis Helga Bjarnadóttir, Björn H. Barkarson, Halla Eygló Sveins-
dóttir, Guðjón Egilsson, Jóhann B. Magnússon, Einar Gestsson, Torfi
Jóhannesson, Guðrún Lára Pálmadóttir, Rúnar Ingi Hjartarson, Ólöf
B. Einarsdóttir, Lárus G. Birgisson, Magnús B. Jónsson skólastjóri.
Á myndina vantar Guðlaug V. Antonsson.
MYNDLISTA- og handíðaskóla
Islands var slitið við hátíðlega
athöfn í Háskólabíói nýlega. Að
þessu sinni voru 45 nemendur
brautskráðir úr deildum skólans.
Frá myndlistadeild útskrifuðust
26 nemendur og skiptist fjöldi
þeirra nokkuð jafnt milli braut-
anna fjögurra, málun, skúlptúr,
grafík og fjöltækni. Frá liðst-
iðna- og hönnunardeild braut-
skráðust 19 nemendur, þar af 5
í leirlist, 8 í grafískri hönnun og
sex í textíl.
Ýmsar viðurkenningar voru
veittar fyrir ágætan námsárangur.
í málun hlaut Hansína M. Iversen
■viðurkenningu, Saari M. Cedergren
í skúlptúr, Margrét J. Guðmunds-
dóttir í grafík og Ásmundur Ás-
mundsson fékk verðlaun fyrir fjöl-
tækni. Eftirtaldir nemendur hlutu
viðurkenningu fyrir árangur sinn í
listiðna- og hönnunardeild: í leirlist
Olga S. Olgeirsdóttir, í grafískri
hönnun Þórarinn F. Gylfason, í
textíl Kristveig Halldórsdóttir og í
listasögu David Dominic Lynch.
[Miarion
Reykjavíkurvegi 64 - Hafnarfirði - SCmi 651147
Bómullarkjólar...............kr. 2.900
Síð og víð bómullarpils, 7 litir... kr. 2.700
Stórir og síðir bómullarbolir,
hnepptir og heilir, 18 litir.kr. 1.700
Lokað á laugardögum
Öndvegisbréfin
skara fram úr
Öndvegisbréfin hafa gefið bestu ávöxtun sambærilegra verðbréfa hvort sem miðað er við
6,12 eða 24 mánaða ávöxtun.
Öndvegisbréfin byggjast á ríkistryggðum verðbréfum, eru eignarskattsfrjáls og án bindingar.
Hugsaðu um langtímahag og skoðaðu kosti Öndvegisbréfa.
<P
Þú færð Öndvegisbréfin hjá Landsbréfum hf. og umboðsmönnum
í Landsbanka Islands um allt land.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkar
Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verdbréfafyrírtæki. Aðili að Verðbréfaþingi fslands.