Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 35 fallega baráttukonu, skarpgreinda, með fastmótaðar skoðanir, sterka réttlætiskennd og ríka kímnigáfu. Samtöl okkar Heiðar eru sjóður að sækja í, kynnin af henni hvatning til meiri og betri verka. Það er trú mín að kennarar hafi mist mann & úr fremstu röð. Ég kveð Heiði Baldursdótur með virðingu. | Elsku vinkona mín, Þórey Kol- " beins. Ég veit að orð eru lítils megn- ug á stundum sem þessum. Mig 4 langar að færa þér mínar dýpstu " samúðarkveðju en jafnframt þökk fyrir vináttu þína á liðnum árum. Megi Guð vera ykkur Baldri styrkur á raunastund. Kristín Lilliendahl. Mig langar að minnast Heiðar Baldursdóttur með nokkrum fátæk- legum orðum. Sérstaklega vil ég minnast samstarfs okkar við Þroskaþjálfaskóla íslands á síðast- liðnu hausti. Við höfðum unnið sam- an í Safamýrarskólanum í mörg ár og var það því fagnaðarefni að fá tækifæri til að starfa saman aftur . á öðrum vettvangi. Heiður tók að sér að kenna nem- endum Þroskaþjálfaskólans boð- . skipti fyrir fatlaða, en það efni var t henni afar hugleikið, sérstaklega þau boðskipti sem fara fram á . fyrstu stigum þroskans og um leið t þau boðskipti sem henta þeim nem- endum sem haldnir eru alvarlegri fötlun. Hún hafði í framhaldsnámi sínu í Bandaríkjunum kynnt sér þetta efni enn betur og helstu nýj- ungar á því sviði. Það var unun að fylgjast með því hvernig hún und- irbjó kennsluna. Hún gerði það með sama kraftinum, áhuganum og dugnaðinum og annað sem hún tók sér fyrir hendur. Allt varð að vera á hreinu því að hún vildi miðla af þekkingu sinni og reynslu til þeirra sem mennta sig til að vinna með þroskaheftum og gefa þeim sem mesta og besta innsýn inn í boð- skipti. Þannig sá hún að hægt væri ( að stuðla að því að þroskaheftir öðluðust betra og innihaldsríkara líf. I kennslunni kom hún þessu svo | sannarlega til skila. Hún sagði frá nýjum rannsóknum og kenningum, sýndi fram á hvernig hægt er að | nýta eldri þekkingu í ljós þeirrar nýju og gagnrýndi á jákvæðan hátt þær aðferðir sem áður höfðu tíðk- ast hér á landi við kennslu alvarlega fatlaðra nemenda. Hún gagnrýndi ekki síst sjálfa sig því til þess var hún alltaf tilbúin ef hún sá að til voru nýrri eða betri leiðir. Kennslustundirnar hennar voru innihaldsríkar, skemmtilegar og fræðandi. Sérstaklega minnist ég þess þegar hún kom með gítarinn og söng með nemendum einföld ís- lensk barnalög. Með því vildi hún sýna þeim mikilvægi þess að nota sönginn og að með rythmanum í laglínunni og textanum er svo gott i tækifæri til að kenna nemendum á fyrstu stigum þroskans að eiga boðskipti. á Einmitt þannig er sterkasta " minning mín um Heiði. Syngjandi með áhugablik í fallegum augunum, i svo ótrúlega sterk og kraftmikil. Einlægar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Heiðar. Guðrún Stefánsdóttir. < i i Mánudaginn 14. júní verður til moldar borin Heiður Baldursdóttir sérkennari og rithöfundur. Leiðir okkar Heiðar lágu víða saman enda áhugamál og starfsvettvangur af svipuðum toga. Við kynntumst fyrst fyrir um það bil tíu árum í starfi okkar að mál- efnum kennarastéttarinnar. Heiður hafði afar sterka stéttar- og félags- vitund og með rökfestu, þróttmikl- um og sannfærandi málflutningi átti hún auðvelt með að hrífa menn með sér. Slík málafylgja er óvenju- leg hjá svo ungri manneskju. Heiður sérhæfði sig í kennslu fatlaðra barna og þar lágu leiðir okkar aftur saman. í samstarfinu á þeim vettvangi leyndi sér ekki einlægur áhugi hennar á málefnum fatlaðra. í öllu starfi sínu lagði hún áherslu á að beina athyglinni að getu þeirra fremur en vanmætti. Henni var kappsmál að byggja upp sjálfstæði og persónulega reisn nemenda sinna. Enn lágu leiðir okkar saman þeg- ar Heiður tók að sér að semja náms- efni í sérkennslu fyrir Námsgagna- stofnun en árið 1991 kom út eftir hana ritið Að lesa í umhverfíð og tilbúið er í handriti annað rit sem kemur út í haust. í námsefnisgerðinni nutu hæfi- leikar Heiðar sín ekki síður en ann- ars staðar. Hún sameinaði það að vera rithöfundur og hafa staðgóða þekkingu á sérkennslufræðum. Heiður skilaði ótrúlega miklu starfi á stuttri ævi. Okkur sem þekktum hana og störfuðum með henni verður hún eftirminnileg fyrir einurð, eldmóð og ríka réttlætis- kennd. Hún verður einnig eftir- minnileg öllum þeim sem munu njóta verka hennar í framtíðinni. Sylvía Guðmundsdóttir. + Móðir okkar, HULDA SIGFÚSDÓTTIR BERGMAIMN, áðurtil heimilis í Grænuhlíð 19, ■ lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 14. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Hrefna Einarsdóttir, Sigfús Einarsson, Auður Einarsdóttir, Þórunn Einarsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON, Hjallaseli 55, Reykjavik, lést 15. júní sl. Steinunn Sigurðardóttir, Sigrún Sigurðardóttir Wilson, Örn Steinar Sigurðsson, Sigrfður S. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, LEIFUR BLUMENSTEIN, Brekkustíg 10, Reykjavík, er andaðist í Landspítalanum að morgni 11. júní sl., verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni þann 18. júní kl. 15.00. Bragi Blumenstein, Guðbjörg Hrafnsdóttir, Sigfús Tryggvi Blumenstein, Embla Dís Ásgeirsdóttir, Eirfkur Freyr Blumenstein, Ása Birna Ólafsdóttir og barnabörn. Pétur Jónsson Pétur Pétursson, Guðrún Pétursdóttir, Haraldur Óskar Haraldsson, Bjarghildur Siguröardóttir. + Hjartkær móðir okkar, tengadamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Hjalteyri, Hjallalundi 18, Akureyri, sem lést í Kristnesspítala 8. júní, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 18. júní kl. 13.30. Jarðsett verður að Möðruvöllum í Hörgárdal. Sigurður Baldvinsson, Magðalena Stefánsdóttir, Yngvi Baldvinsson, Þórunn Elíasdóttir, Margrét Baldvinsdóttir, Óli Baldvinsson, Halla Guðmundsdóttir, Ari Baldvinsson, Sonja Baldvinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FINNBORG ÖRNÓLFSDÓTTIR, Sólheimum 25, Reykjavík, lést í Landspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 13. júní. Arni Þ. Egilsson, Ornólfur Árnason, Helga E. Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Olga Guðrún Árnadóttir, Guðmundur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og dóttir, ERLA BJÖRG ARADÓTTIR, Kleifarseli 3, Reykjavfk, lést í Landspítalanum 14. júní. + Útför föðursystur minnar, BJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Lóni, Kelduhverfi, sem andaðist 9. júni sl., verður gerð frá Garðskirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Jón Guðmundsson, Lóni. + Útför mágkonu okkar, ÖNNU MAGNEU EIRÍKSDÓTTUR frá Reykjarhóli í Vestur Fljótum, fer fram frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, Reykjavík, föstudaginn 18. júní kl. 13.30. Lfney Guðmundsdóttir, Þórhildur Jóhannesdóttir. + Faðir minn, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR MAGNÚSSON skipasmiður, Krókatúni 4, Akranesi, sem lést 11. þ.m. í Sjúkrahúsi Akraness, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 18. júni kl. 14.00. Guðbjörg Sigríður Sigurðardóttir, Erik Jeppesen, Per Sigurður Jeppesen, Christian Runi Jeppesen. + Minningarathöfn um bróður okkar, RUNÓLF STEFNI STEFNISSON, fer fram frá Áskirkju föstudaginn júní kl. 15.00. 18 Regína Stefnisdóttir, Þóra Stefnisdóttir, Hrönn Stefnisdóttir, Anna Nfna Stefnisdóttir, Fanný Stefnisdóttir, Hugrún Stefnisdóttir, Auður Stefnisdóttir, Valur Jóhann Stefnisson, Elfas Ágústsson, Howard Thornton, Böðvar Björgvinsson, Hilmar Eggertsson, Þórður Njálsson, Marta Grettisdóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR SVERRISDÓTTUR, Breiðabliki, Neskaupstað. Sverrir Ásgeirsson, Kitty Óskarsdóttir, Bergþóra Asgeirsdóttir, Samúel Andrésson, Hjalti Asgeirsson, Sesselja Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÓLAFSDÓTTUR, Safamýri 42, Reykjavfk. Bryndís Jóna Jónsdóttir, Kalman Stefánsson, Ásta Jónsdóttir, Óli Ágústsson, Margrét Jónsdóttir, Torfi H. Ágústsson, Ólafur Oddur Jónsson, Edda Björk Bogadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, ÞURÍÐAR JÚLÍU VALTÝSDÓTTUR frá Seli í Austur-Landeyjum, Hverfisgötu 106. Sverrir Kristjánsson, Ásta Kristjánsdóttir, Margrét Þuríður Sverrisdóttir, Karel Geir Sverrisson, Elvar Þór Sverrisson, Kristján Valtýr Sverrisson, Ari Auðunn Sigurjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.