Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
45
INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR - FÆDD 1972 - UNGLINGUR
Ósköp
venjuleg
S JÓR il ijFI
STÖÍSFIS:'
á teip. Ég meikaði
ekki að syngja fyrir
framan hann og
sendi hann út í
sjoppu meðan ég
söng inn á bandið.
Ég hefði örugglega farið að
Eg ólst upp hjá ömmu
minni á þessum
tíma og það hafði
mikil áhrif á það
hvemig unglingur ég var. Ég
var mjög sjálfstæð, opin og
jákvæð og afskaplega sjaldan
geðvond eða erfíð. Annars var
ég ósköp venjuleg, ófeimin
en hafði þessa komplexa sem
margar stelpur hafa. Ég gekk
til dæmis í síðum peysum
langt fram eftir unglingsaldri
af því mér fannst ég vera
með svo stór mjaðmabein.
Og svo fannst mér ég vera
svo feit, sem var náttúrulega
algjör vitleysa. Ég var orðin
18 þegar ég fattaði allt í einu
að ég var bara mjó.
Ég man líka eftir því hvað
það fór í taugarnar á mér að
komast ekki inn á neina
skemmtistaði. Það var alltaf
stressandi á gamlárskvöld að
komast hvergi inn.
Neyðarlegt atvik
Ég er ekki viss um að ég
vilji segja frá því og það er
kannski einum of. Það var
þegar ég byrjaði á blæðing-
um, það er náttúrulega al-
gjört unglingadæmi. Ég Iiélt
að ég hefði sest á súkkulaði
og fór að sýna öllum og gerði
mig að fífli.
Upphafið
Júlli og Máni (í Pís of keik)
ætluðu að stofna band og
Júlli hafði einhvern tímann
heyrt mig gaula eitthvað.
Hann kom til mín, sagðist
vera að leita að stelpu í band-
ið og bað mig að syngja inn
hlæja eða eitthvað hefði hann
verið á staðnum. En þeir
ákváðu sem sagt að taka mig
með, við fórum í stúdíó og
ég bara brilleraði þar. Síðan
hef ég ekki fundið fyrir neinni
sérstakri feimni. Það kemur
reyndar alltaf viss titringur í
mig áður en ég fer inn á svið,
en síðan fer hann alveg. Þetta
fer líka eftir stemmningunni.
Mér fínnst mjög skemmtilegt
að spila fyrir unglinga. Þau
sleppa sér alveg.
Eurovision
Ég hugsaði eiginlega ekki
neitt um alla þessa áhorfend-
ur, en þegar ég fór inn á svið-
ið hugsaði ég um allar vin-
konur mínar sem voru að
horfa á sjónvarpið og hló
smá. En svo bara kýldi ég á
það. Við vorum líka búin að
renna þessu í gegn svo oft
að þetta var næstum eins og
hver önnur æfíng. Þetta var
geðveik vinna og það var
mjög gott þegar þetta var
búið.
Skilaboð
Ef maður á sér einhvern
draum á maður endilega að
láta hann rætast. Unglingar
hafa oft ekki nógu mikla trú
á sér, en það er allt hægt ef
maður reynir bara að vera
ófeiminn og duglegur. Ef
maður vill t.d. vera módel,
þá er bara að fara á módel-
skrifstofu og segja: „Hæ, hér
er ég og ég vil vera módel.“
Veriði bara nógu opin og ekki
hugsa ykkur tvisvar um. Bein
í baki með bijóstkassann út.
Módelkeppni
Ahugi unglinga á fyrirsætustörfum virðist hafa auk-
ist mjög á síðustu árum. Módel 79 stóð fyrir fyrir-
sætukeppni unglinga í Tónabæ fyrir skömmu.
Mikill áhugi var fyrir keppninni og sóttu 130 ungl-
ingar um að taka þátt en einungis 34 komu fram á aðal
keppniskvöldinu.
Mikil stemmning ríkti í Tónabæ þegar Páll Óskar Hjálmtýs-
son, kynnir kvöldsins, tilkynnti hverjir væru sigurvegarar.
Júlía Björgvinsdóttir, 15 ára, sigraði í stúlknaflokki og Ragn-
ar Öm Arnarson, 16 ára, úr hópi drengja.
Júlía er ekki óvön fyrirsætustörfum því hún hefur setið
fyrir á myndum síðan hún var tveggja ára. Henni fannst
mjög gaman að taka þátt í keppninni og fannst hún í alla
staði fara vel fram en henni fínnst þó að lágmarksaldur
keppenda ætti ekki að vera lægri en 14 ár. Júlía hefur mik-
inn áhuga á fyrirsætu-
störfum og getur vel
hugsað sér að starfa
við þau í framtíðinni.
Ragnar tók þátt í
keppninni vegna þess
að vinur hans hvatti
hann til þess, en ekki
vegna þess að hann
hefði sérstakan áhuga
á því sjálfur. Honum
fannst ágætt að taka
þátt í keppninni og
getur alveg eins hugs-
að sér að starfa sem
fyrirsæta í framtíð-
inni.
Helga hefur borðað peningaseðla síðan hún var fjög-
urra ára.
Peningaæta
Hin 15 ára Helga
Strauss er að éta
fjölskyldu sína út
á gaddinn. Helga
býr í Kalifomíu og sam-
kvæmt vikuritinu The Sun
hefur hún borðað peninga-
seðla síðan hún var fjögurra
ára gömul. Helga hefur á
þessum tíma borðað nokkur
þúsund dollara, henni þykja
fimm dollara seðlar bestir,
en borðar eins dollara seðla
ef ekkert annað er í boði.
Læknar telja að Helga
hafi sjúklega þörf fyrir ein-
hver ákveðin efni í annað-
hvort bleki eða pappír pen-
ingaseðlanna. Læknamir
geta þó ekki sannreynt þá
tilgátu sína, vegna þess að
upplýsingar um efni í pen-
ingaseðlum em ríkis-
leyndarmál, og fást ekki
undir neinum kringumstæð-
um gefnar upp.
Foreldrar Helgu era ráða-
lausir og geta ekkert gert
nema passað að hún borði
ekki yfir sig. Helga reynir
að létta undir með foreldrum
sínum með því að borða
barnapíukaupið sitt, en það
dugar skammt og fjölskyld-
an óttast gjaldþrot.
Hvað dettur þér í hug
þegar þú heyrir orðið „gelgja
Orðið sjálft er >
ekki fallegt og
ég skii ekki alveg
xnerkinguna“ >
„Rauður'
og
ryðgaður
sænskur
k bíll“ A
Sigga Hafstað
Jóhann
Maríus
„Þetta er ógeðs-
legt orð - eitthvað
heimskt, æst, -4
skvettulegt JÍ/tk
kvikindi“
Magga Stína