Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 47
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 47 Tveir á förum frá Króknum ■■■ Motgunblaðið/Einar Falur Helgi SlgurAsson í baráttu við einn ungverskan varnarmann. BJARKI Pétursson og Tryggvi Tryggvason, leikmenn hjá Tindastóli á Sauðárkróki, hafa óskað eftir því að fara frá félag- inu og hafa farið fram á það við stjórn félagsins að hún leyfi þeim að skipta um félag. Ekki liggur Ijóst fyrir hvert þeir fé- lagar hyggjast fara, en Bjarki hefur verið orðaður við KR. Pétur Pétursson þjálfari fé- lagsins og bróðir Bjarka, er þó ekki á förum frá félaginu sam- kvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hélt fund um málið í gærkvöldi en tók ekki ákvörðun í máiinu. Ómar Bragi Stefánsson for- maður knattspymudeildarinnar sagði, er blaðamaður Morgunblaðs- ins hafði samband við hann í gær- kvöldi og spurðist fyrir um málið, að honum kæmi þetta ekkert við, 1a #\Ágúst Gylfason lék ■ ^#upp vinstri kantinn, gaf fyrir markið þar sem Helgi Sigurðsson kom á fullri ferð og skallaði af öryggi í markið á 71. mín. 2-A1 ■ WS iFinnur Kolbeinsson skaut að ungverska markinu á 72. mín. af um 36 metra færi, boltinn snerti jörðina og skoppaði undir markvörðinn sem var of seinn að átta sig. Eftir snarpa sókn Ungvetjanna barst boltinn út til Szanyo sem átti fast skot á 89. mín. af stuttu færi í markið án þess að Ólafur markvörður kæmi við nokkrum vömum. Góður sigur íslands „ÞETTA voru sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins. Það var mikil og góð barátta hjá liðinu, mörkin voru falleg og ég er ákaf- lega ánægður með hvernig til tókst,“ sagði Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari eftir að landslið leikamanna 21 árs og yngri hafði sigrað Ungverja 2:1 í skemmtilegum baráttuleik í Keflavík í gærkvöldi. Islensku strákamir voru harðir í homi að taka og gáfu þeim ung- versku ekki þumlung eftir. Fyrri ■■^■1 hálfleikur var frekar Bjöm tíðindalítill og ein- kenndist af baráttu um miðjuna, þar til á 40. mínútu að ís- lenska liðið fékk dæmda vítaspymu þegar brotið var á Helga Sigurðs- Blöndal skrifar frá Keflavík syni. Það kom í hlut Þórðar Guð- jónssonar að taka spymuna, en skot hans var nánast beint á mark- ið og markmanninum tókst að verja. Leikurinn var mun opnari í síð- ari hálfleik og litlu munaði að Þórði tækist að setja mark á fyrstu mínút- unum en ungverska markmannin- um tókst að veija. En hann átti ekki möguleika á 71. mínútu þegar Mætum Ung- veijum framaviega - segirÁsgeirElíasson landsliðsþjálfari ISLENDINGAR leika næst síð- asta leik sinn í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar á Laugardalsvelli í kvöld kl. 20. Mótherjar okkar verða Ung- verjar en þegar liðin mættust í Ungverjalandi í fyrra sigruðu okkar strákar 2:1. Asgeir Elíasson hefur valið byrj- unarliðið eins og sjá má ann- ars staðar á íþróttasfðunni og sagð- ist hann í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi ekki sjá ástæðu til að breyta liðinu frá því í leiknum gegn Rússum fyrir skömmu. „Það gekk bærilega þá framan af og ég sé ekki ástæðu til að breyta til. Eg hef séð talsvert til Ungveij- anna en ekki nema einn hálfleik síðan Puskas tók við liðinu og það er sjálfsagt lítið að marka þann leik því oft þegar menn eru að taka við liði koma breytingamar ekki fram í fyrsta leik,“ sagði Ásgeir. „Það má því eiginlega segja að við vitum ósköp lítið um Ungveij- anna en við munum leika svipað og á móti Rússum. Reynum að stöðva þá framarlega á vellinum og sækja. Ég vona að við fáum að sjá sóknarknattspyrnu," sagði Ás- geir. Helgi Sigurðsson afgreiddi laglega sendingu frá Ágústi Gylfasyni í netið - og mínútu síðar mátti sá ungveski aftur hirða boltann úr netinu eftir langskot frá Finni Kol- beinssyni. Undir lok leiksins kom Helgi Kolviðsson úr HK inná og var þar með fyrsti landsliðsmaður HK í knattspymu og var stuttu síðar hársbreidd frá því að setja þriðja mark íslands eftir laglegan samleik íslenska liðsins. Ungveijum sem áttu af og til hættulegar skyndisóknir tókst svo að minnka muninn á síðustu mínút- unni eftir snarpa sókn en skömmu áður höfðu þeir átt hörkuskalla í þverslá íslenska marksins. Allir í íslenska liðinu léku vel í gærkvöldi þó að mest hafi mætt á vörninni. Þar var Láms Orri Sig urðsson afar sterkur og einnig var útsjónarsemi Gunnars Péturssonar eftirtektarverð. Ágúst Gylfason vann vel á miðjunni og Helgi Sig- urðsson var ávalt hættulegur frammi. Lítið reyndi á Ólaf Péturs- son í markinu en hann stóð samt fyrir sínu. FRJALSIÞROTTIR stjómin ætti eftir að ræða þetta nánar. Hann vildi ekkert gefa upp hvers vegna þeir fæm fram á þetta. Ljóst er að brotthvarf Tryggva og ekki síst Bjarka er mikil blóð- taka fyrir félagið. Bjarki hefur ver- ið iðinn við kolann fýrir framan mark andstæðinga Tindastóls, og varð markahæstur í þriðju deild með félaginu sl. sumar, gerði þá 17 mörk. Tindastóll sigraði í 3. deild í fyrra með miklum yfírburð- um, og er nú um miðja aðra deild. Vilhjálmur lékk fjögurra bann Vilhjálmur Einarsson, leikmaður með Víði í Garði sem leikur í 3. deild, var úrskurðaður í fjögurra leikja bann á fundi Aganefndar KSl í gær. Vilhjálmur veittist að dómara í bikarleik gegn Þrótti Reykjavík { síðustu viku, eftir að dómarinn dæmdi á hann hendi. Zoran Cikic, Þrótti Neskaupstað var úrskurðað- ur í tveggja leikja bann. Óskar Arelíusson Ömum, Rúnar Helgason Magna og Sveinn Jónsson Selfossi, voru ásamt tveimur leik- mönnum HSÞ b, þeim Friðriki Þór Jónssyni og Magnúsi Aðalsteinssyni úrskurðaðir í eins leiks bann. FOLX ■ SHEFFIELD Wednesday hef- ur fest kaup á vamarmanninum Andy Pearce frá Coventry City. Kaupverðið var 500 þúsund pund og er samningurinn til fjögurra ára. ■ ARSENAL hefur gert fjögurra ára samning við miðvallarleikmann- inn Eddie McGoldrick, sem hefur leikið með Crystal Palace frá 1988. Kaupverðið er ein milljón punda. McGoldrick er 27 ára. ■ ERIK Thorstvedt, markvörður Tottenham, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem renn- ur út 1996. ■ ALAN Sugar, stjómarformað- ur Tottenham, hefur formlega tek- ið við framkvæmdastjórastöðu fé- lagsins, en eins og kom fram í blað- inu í gær var Terry Venables lát- inn víkja. Talið er líklegt að hann fái Ossie Ardiles til að taka við liðinu. ■ OSSIE Ardiles er þj álfari WB A og er samningsbundinn félaginu. Tottenham þarf því að kaupa upp samning hans. Ardiles lék í 8 ár með Tottenham og var mjög vin- sæll hjá áhangendum félagsins,- ■ WEST Ham hefur keypt Dale Gordon frá Glasgow Rangers fyr- ir 500 þúsund pund. Gordon lék áður með Norwich. ■ KEVIN Keegan, fram- kvæmdastjóri Newcastle, hefur boðið 3,6 milljónir punda í enska landsliðsmanninn Les Ferdinand hjá QPR. Vésteinn vann í Noregi Vésteinn Hafsteinsson kringlu- kastari sigraði í kringlukasti á sterku frjálsíþróttamóti í Noregi í gær. Vésteinn kastaði kringlunni 60,22 metra en Nick Sweeney frá írlandi varð annar með 59,38 metra kast. í þriðja sæti varð Ramonde Jimens frá Paragvæ, en hann kast- aði kringlunni 58,38 metra. Þessir þrír kringlukastarar verða allir meðal keppenda á Reykjavíkurleik- unum þann 17. júní. Dag Solhage frá Svíþjóð varð í fjórða sæti með 58,08 metra eins og Norðmaðurinn Sven Valvig sem varð fímmti. ísland - Ungverjal. 2:1 Keflavíkurvöllur, Evrópukeppni landsliða leikmanna 21 árs og yngri, 5. riðill, þriðju- daginn 15. júní 1993. Aðstæður: Norðan gola, bjart og þurrt. Mörk íslands: Helgi Sigurðsson (71.), Finn- ur Kolbeinsson (72.). Mark Ungveijalands: Szanyo (89.). Gul spjöld: Ágúst Gylfason (30.) fyrir brot, Sturlaugur Haraldsson (33.) fyrir brot, Lor- inez (56.) fyrir brot, Salaez (68.) fyrir brot, Juhar (85.) fyrir brot. Rautt spjald: Enginn. Áhorfendur: Um 100. Dómari: Patrick Kelly frá írlandi. ísland: Ólafur Pétursson - Sturlaugur Har- aldsson, Lárus Sigurðsson, Gunnar Péturs- son - Ásmundur Amarsson, Ágúst Gylfa- son, Finnur Kolbeinsson, Þérhallur Dan Jóhannsson, Ásgeir Ásgeirsson - Þórður Guðjónsson (Helgi Kolviðsson 79.), Helgi Sigurðsson (Omar Bendtsen 85.). Ungveijaland: Vezer, Salaez, Juhar, I »r- inez, Szekeres, Keko, (Szanyo 65.), Hor- vath, Kenesei, Herezeg, Kasik, Tiefenbach (Schwarez 79.). 4. deild D-riðill: Austri - KBS.........................2:0 Viðar Siguijónsson 2. Höttur - Einheiji....................2:2 Haraldur Klausen, Grétar Eggertsson (vsp.) - Örvar Karlsson, Hallgrímur Guðmundsson (vsp.). FJ. leikja U J T Mörk Stig KBS 4 3 0 1 17: 4 9 HÖTTUR 4 2 1 1 11:6 7 einherji 3 1 2 0 10: 5 5 SINDRI 3 1 1 1 5: 6 4 AUSTRI 3 1 0 2 2: 5 3 VALURRF 3 1 0 2 4: 8 3 HUGINN 2 0 0 2 2: 17 0 Leiðrétting Nafn stúlkunnar, sem var útnefnd besta stúlkan í 4. flokki A á Pæju- mótinu í Eyjum, misritaðist. Stúlk- an heitir Irma Dögg Sigurðardóttir, ÍA, en ekki Inna. í þriðjudagsblaðinu sagði að Páll Guðmundsson hefði gert fyrsta mark Leifturs gegn ÍR í 4:0 sigri liðsins. Gunnar Már Másson mun hafa rennt knettinum yfír línuna eftir skot Páls og skrifast markið því á hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.