Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 23 Kynt undir gyðingahatri London. Reuter. GYÐINGAHATUR er nýtt í póli- tískum tilgangi í sumum löndum Austur-Evrópu, segir í nýútkom- inni skýrslu frá stofnun sem ann- ast málefni gyðinga og hefur aðsetur í Lundúnum. Skýrslan verður lögð fram á mannrétt- indaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Vínarborg í vikunni. í skýrslunni segir að gyðingahat- ur hafi ekki verið útbreiddara frá lokum seinni heimsstyijaldarinnar og að stjórnmálamenn í austur-evr- ópskum löndum nýti sér neikvætt viðhorf til gyðinga jafnvel þótt þeir séu fámennir í viðkomandi landi. „Gyðingahatur er notað við at- kvæðaöflun í löndum Austur-Evr- ópu og er að finna meðal félags- manna stórra flokka í Ungveija- landi, Rúmeníu, Rússlandi og Pól- landi,“ segir í skýrslunni. Samkvæmt skoðanakönnun telja 10% Pólveija að fjöldi gyðinga í landinu sé fjórar til sjö milljónir. Alls eru 10.000 gyðingar búsettir í landinu. Einnig segir í skýrslunni að þeir sem hafi andúð á gyðingum séu reiðubúnari til að beita ofbeldi nú en áður. Síðustu dagar „svarta hanans“ LÝÐRÆÐISSINNAR fóru með sigur af hólmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Malavi á mánudag. Tals- menn stjórnarflokksins fengust ekki til að viðurkenna ósigur sinn opinberlega, sögðu hann ólíklegan, en þó gæti allt gerst I stjórnmálum. Ekki var minnst einu orði á atkvæðagreiðsluna í morgunfréttum ríkisútvarps Malaví í gærmorgun. Þrjátíu ára einræðisstjórn Hastings Banda í Malaví liðin undir lok „01íuluktin“ bar signr- orð af „svarta hananum“ Blantyre. Reuter. The Daily Telegraph. FLOKKAR lýðræðissinna hafa sett endapunkt við þrjátíu ára einræði Hastings Banda í Malaví samkvæmt bráðabirgða- úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem tilkynnt voru í gær. Nótt Bandas er þó ekki úti enn því hann er lífstíðarfor- seti samkvæmt ákvæði í stjórnarskrá og breytingar á henni munu taka sinn tíma. Leiðtogar lýðræðissinna lýstu því þó yfir í gær að „svarti haninn væri allur“. Talningu var ekki lokið fyllilega í gær. Harðar deilur um breytingar á starf- semi Evrópubanka London. Reuter. UPP eru risnar hatrammar deilur um breytingar á rekstri Endurreisnar og þróunarbanka Evrópu (EBRD), Evrópubank- ans, og sér ekki fyrir endann á þeim. Um tíma leit út fyrir að yfirmaður bankaviðskipta, virtur Bandaríkjamaður að nafni Ron Freeman, myndi segja af sér vegna ágreinings um skipu- Iagsbreytingar sem ætlað er í raun að leysa Jacques Attali, umdeildan bankasljóra, undan daglegri sljórn bankans en hlífa honum við uppsögn. Þegar í dögun hafði múgur og margmenni safnast saman við kjörstaði. Sumir sváfu úti undir beru lofti til þess að vera fyrstir í röðinni þegar opnað var klukkan sex. Áhuginn leyndi sér ekki og margir gáfu sigurmerki með fingr- unum. Einn kjósenda sagði: „Eg er 42 ára og þetta eru fyrstu kosn- ingarnar sem ég tek þátt í. íbúar Malaví vilja láta virða mannrétt- indi sín og búa við frelsi. Við vilj- um tjáningarfrelsi og upplýsingar um það sem fram fer, heima og erlendis,“ sagði hann. Haninn eða olíuluktin Valið fór þannig fram að kjós- endur völdu milli tveggja blaða með myndum af svörtum hana og olíulukt. Haninn er merki Bandas en olíuluktin í nafni lýðræðis. Meirihluti íbúa landsins býr í leir- kofum án rafmagns og er gantast með það milli manna að fyrir daga olíuluktarinnar hafi Malaví-búar lýst híbýli sín með rafmagni. Lýðræðið sigrar að lokum Útlit er fyrir að lýðræðissinnar hafi hlotið stuðning milli 70 og 80% skráðra kjósenda, sem eru 4,5 milljónir, og allt að 90% at- kvæða í þéttbýli. „Stjórnarflokkur- inn er flokkur gærdagsins,“ sagði lýðræðissinninn Chakufwa Chi- hana sem sleppt var úr haldi rétt fyrir kosningar. Hastings Banda hlaut 70% atkvæða á strjálbýlli svæðum. Stjórnmálaskýrendur segja orsökina þá að auðveldara sé að hrella íbúa til sveita og hef- ur forsetinn verið sakaður um að hafa haft í hótunum við kjósendur þar. Því er talið að lokatölur muni ekki lýsa jafn yfirgnæfandi sigri lýðræðisaflanna og útlit var fyrir í gær. Vill þýska hermenn til Georgíu EDÚARD Shevardnadze vill fá þýskar hersveitir til friðar- gæslu í Georgíu til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthell- ingar í Abkhazíu við Svarta- haf. Fram kom í viðtali í Hand- elsblatt að Georgíumenn treysti Þjóðveijum best til þess að hafa eftirlit með hugsan- legu vopnahléi því rússneski herinn styðji uppreisnarmenn í héraðinu. Ekki hefur verið sótt um aðstoðina formlega og stjórnvöld í Bonn hafa ekki viljað tjá sig um málið. Nýr forseti í Nígeríu MÚSLIMINN og milljóna- mæringurinn Mashood Abiola, bar sigur úr býtum í forseta- kosningum sem fram fóru í Nígeríu á laugardag, sam- kvæmt fyrstu tölum í gær. Abiola bauð sig fram fyrir Jafnaðarmannaflokkinn og bar sigurorð af Bashir Tofa, öðrum múslima og milljóna- mæringi. Sigurvegarinn í kosningunum tekur við emb- ættinu 27. ágúst þegar herinn afsalar sér völdunum. Bretaprins bakveikur KARL Breta- prins varð að hætta í miðj- um pólóleik síðastliðinn sunnudag, þegar gömul bakmeiðsl tóku sig upp. Hann er nú heima hjá sér og hvílist, að ráði læknis. Prinsinn, sem þjáist af bijósk- losi í baki, verður fyrir vikið af Ascot-kappreiðunum nú í vikunni. Talsmaður konungs- fjölskyldunnar sagði prinsinn vera nokkuð kvalinn, en hann myndi hafa það af. Ef prinsinn ætlar að komast hjá skurðað- gerð verður hann, að sögn lækna, að vera duglegur að hvíla sig og ekki spila póló í mánuð Karl Bretaprins Freeman er næst æðsti stjórn- andi Evrópubank- ans sem yfirmað- ur bankavið- skipta. Hugðist hann mótmæla til- raunum sjö helstu iðnríkja heims til að knýja fram breytingar á skipulagi bankans með uppsögn, enda hefðu breyt- ingarnar jafngilt því að hann hefði lækkað í tign og einungis orðið í . . fjórða sæti í valdapýramídanum. Ákvað hann þó á mánudag að halda að sér höndum og sjá hvernig átökum ríkja um framtíð bankans vindur fram. Iðnríkin sjö hafa sín á milli náð samkomulagi um breytingar en í þeim felst að þróunardeild bankans og viðskiptadeild yrði steypt saman og Ernest Stern, einn af fram- kvæmdastjórum Alþjóðabankans, fengin stjórn þeirra. Var ráðning hans og skipulagsbreytingar meðai skilyrða sem Bandaríkjamenn hafa sett fyrir því að inna af hendi 70 milljóna dollara árstillag sitt til bankans. Evrópuríki utan samtaka iðnríkjan'na sjö hafa brugðist harka- lega gegn þessum áformum og þyk- ir stefna í harðvítuga rimmu milli hluthafa á næstunni. Meðal þeirra sem telja sig gróflega misboðið er Anne Wibble fjármálaráðherra Sví- þjóðar en hún er formaður banka- ráðs Evrópubankans. Iðnríkin sjö höfðu knúið Attali til hlýðni og látið hann bera upp tillögur um breytingar á starfsemi bankans. Nái þær fram að ganga verður hann yfírmaður án stjórnun- arlegs umboðs, nokkurs konar sendiherra bankans út á við. Heimsnýiun .< iÆr SKINMAGIC er stórfengleg nýjung fyrir umhirðu húðarinnar. Gegnsæ „MAGIC PIGMENTS“ mynda ósýnilega himnu á húðinni, draga úr fínum hrukkum og jafna litarhátt. Náttúrulegur húðlit- ur þinn frískast og yfirbragð húðarinnar verður töfrandi og heilbrigt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.