Morgunblaðið - 16.06.1993, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.06.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 11 Ragna Ingimundardóttir Myndlist Eiríkur Þorláksson Leirinn er sennilega eitt fyrsta jarðefnið, sem maðurinn lærði að meðhöndla og móta, þannig að skapa mætti ný form, sem gætu þjónað manninum á margvíslegan hátt. Gripir úr leir, hvort sem eru diskar, skálar, könnur eða önnur form, eru mikilvægur hluti forn- minja allra helstu menningarþjóða sögunnar. Þessi sterka hefð í leir- munagerð hefur átt sinn þátt í að halda leirlistinni hátt á lofti innan myndlistargeirans, og það er í þennan brunn sögunnar, sem leirlistafólk samtímans sækir næringu sína. Um þessar mundir stendur yfir í miðrými Kjarvalsstaða sýning á leirmunum listakonunnar Rögnu Ingimundardóttur. Ragna stund- aði nám í Myndlista- og handíða- skóla íslands 1977-82, og sótti síðan framhaldsnám um tveggja ára skeið í Gerrit Rietveld Aca- demi í Hollandi. Hún er félagi í Leirlistafélaginu og hélt sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Langbrók 1984; síðan hefur hún m.a. sýnt tvisvar á Kjarvalsstöð- um og átt verk á samsýningum hér heima, í Hollandi og í Noregi. Hið fyrsta sem áhorfandinn tekur eftir varðandi verk listakon- unnar hér er hversu kunnugleg þau eru. Þetta eru rúmlega fjöru- tíu umfangsmiklir gripir úr stein- leir, og Ragna notar aðeins fáar, hefðbundnar formgerðir við sköp- un þeirra; fjölbreytnin í þessum stórgerðu vösum, keijum, skálum og lömpum liggur að nokkru í áferðinni, en þó fyrst og fremst í litunum og skreytingunni. Við skoðun sýningarinnar verð- ur ljóst að það er langt og strangt vinnsluferli á bak við þessa gripi. Vinnsla litanna, hin margvíslegu mynstur og jafnvel sprungumar sem setja sinn svip á mörg verk- anna, öll eiga þessi atriði sinn þátt i að skila til áhorfandans þeirri vinnu, sem liggur á bak við. Listaverk geta þó aldrei stað- ið aðeins sem vottur um vinnusemi skapandans, heldur verða að hafa til að bera einhver eigin innri gildi, sem lýsa út á við, og þar er kom- ið að inntakinu. Listakonan hefur sagt að verk hennar tengist oft ákveðnum manneskjum sem hún hefur hitt, og endurspegli fólkið í mýkt sinni eða hörku, Iitavali og línuspili. Þannig leitist hún við að gefa hverjum grip viss persónuein- kenni, sem greina hann frá fjöld- anum. Þessi viðleitni kemur fyrst og fremst fram í skreytingum verkanna og frágangi þeirra og tekst oft ljómandi vel. Sumir birt- ast sem litríkir einstaklingar, reisulegir og allt að því sjálfum: glaðir, eins og t.d. vasi -nr. 30. í öðrum tilvikum eru verkin í pör- um, og hafa til að bera vissan hjónasvip, þó formin séu ólík, og nægir þar að nefna gripi nr. 8, 13 eða 24. Áhorfendur geta líka leikið sér við að greina kynferði persónanna t.d. eftir mýkt línu og lita, og þannig má fínna ótrú- lega ríkulegan blæbrigðamun í verkunum, sem eru eins í laginu að ytra byrði, en reynast gjörólík að flestu öðru leyti. Það virðist liggja í eðli mynd- listarinnar, að hinir yngri eigi að standa fyrir umbyltingum á því sem fyrir er, og ryðja nýjar braut- ir. Oft kemur þó í ljós að þær brautir ná engum áfangastað og hið nýja reynist tálsýnin ein. Það þarf samt nokkra dirfsku hjá ungu listafólki til að hafna þessu bylt- ingarferli og ákveða í þess stað Ragna Ingimundardóttir: Vasi. Steinleir, 1993. að leitast við að þróa persónulega sköpun og túlkun í myndlistinni út frá þeim römmum, sem hefðin og sagan hefur þegar lagt til. Þetta hefur Ragna verið að gera í sinni listsköpun, og sýningin að Kjarvalsstöðum ber þess vott að hún er að ná ágætum árangri í þeirri vinnu sinni. Sýning Rögnu Ingimundardótt- ur í miðrými Kjarvalsstaða stend- ur drjúga stund enn, eða til sunnu- dagsins 18. júlí. í KVÖLD kl. 20.30 í Bæjar- bíói. Pé-leikhópurinn: Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen. Leikstjóri Andrés Sigurvinsson. Frumsýning. Klúbbur listahátíðar: Leik- hússöngvar undir stjórn Mar- grétar Pálmadóttur. í KVÖLD kl. 20.-3. Tónleikar í Faxaskála. Hljómsveitirnar Mug, Blimp, Bölmóður, Fal- lega gulrótin, Þór (trúbador), Óskýrt, (Pandemorium), Synir Raspútins, Síðan skein sól. Dansleikur til kl. 3. Nýjar bækur ■ Lestrar-og Litabókin um Lunda litla er komin út. „Bókin er ætluð börnum á aldrinum 5-9 ára til að lesa og lita og hefur hlotið lofsamlegar undirtektir sér- fræðinga um bamabókmenntir. Sagan býður upp á margskonar skemmtilega úrvinnslu í samstarfi kennara (eða foreldra) og barna. Tónn verksins er jákvæður og þroskandi og bókin hefur ótvírætt nota- og skemmtanagildi." Bókin kemur út á íslensku og ensku og er hugsuð sem innleg í lestrarátak það sem i gangi hefur verið. Útgefandi er Bókaútgáfa Reyk- holts. Texti og myndir eru eftir þá Jónas Þór kennara og Böðvar Leós teiknara. Hótel ísafj örður Pétur og Dýr- finnasýna Nú stendur yfir á Hótel ísafirði sýning á myndlist eftir Pétur Guðmundsson. Pétur er ísfirðingur, en á rætur í Breiðafirði. Hann hefur atvinnu af sjómennsku en stundar myndlist í frístundum. Pétur lauk námi í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1976 og hefur auk þess farið í stutt- ar námsferðir til Austurríkis. Pétur sýnir milli 20 og 30 myndir, sem unnar eru með blandaðri tækni aðallega á ámnum 1992 og 1993 og eins og hann segir sjálfur snú- ast myndimar um baráttuna við að vera til. Pétur hefur sýnt á ýmsum stöðum innanlands og utan meðal annars í Slunkaríki á ísafirði, í Noregi og á nokkmm stöðum í Austurríki. í anddyri Hótels ísafjarðar er sýning á verkum Dýrfínnu Torfa- dóttur gullsmiðs og sjóntækjafræð- ings. Dýrfínna er ísfirðingur eins og Pétur og rekur gullsmíðaverk- stæði og sjóntækjaverslun á ísafírði. Hún lærði gullsmíði hjá Pétri Breiðfjörð á Akureyri og hef- ur sótt ýmis námskeið í grein sinni. Dýrfinna hefur tekið þátt í samsýn- ingu FÍG á Kjarvalsstöðum og í Perlunni, í kvennasýningu í Seðla- bankanum, auk einkasýningar í Slunkaríki. Ghena Dimitrova og Sinfóníuhljómsveit íslands. Gena Dimitrova er heimsfraeg söngkona, ættuð frá Búlgaríu. Tónleikar hennar nú, eru einstæður listviðburður hér á landi, sem tónlistarunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. ALÞJÓÐLEC LISTAHÁTÍÐ I HAFNARflRÐI 4.-30. JUNI LISTIN ERFYRIRALLA! Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86. Aðgöngumiðasala: Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50. NÝUA BÍLAHÖLL.IN FUNAHÖFBA 1 Subaru Legasy 1.8 árg. '90, ek. 49 þ. km., grár, 5 g. Verð 1.290.000,- stgr., ath. skipti. km., blár. Verð 790.000,- stgr., ath. sk svart/rautt, algalli fylgir. V. 650.000,- stgr. Vantar hljól á skrá. Toyota Corolla Sl árg. ’93, ek. 1 þ. km., rauður, 5 g. Verð 1.220.000,- stgr., ath. skipti. AMC Cherokee Laredo 4.0 ek. 63 þ. km., grár, sjálfsk., 4D. Verð 1.550.000,- stgr., ath. skipti. Suzuki Sldekick JLX Canada árg. 1991, svartur, sjálfskiptur, rafdrifanar rúður, íæst $ drif, bein innspýting, ek. 52 þ. km. VerftS 1.550.000,- s Range Rover Vouge árg. 1989, sjálfskiptur, sóllúga, ek. 60 þ. km. Verö 3.200.000,- skipti, skuldabréf. Renault 19 RT Chamade árg. 1993, silfur- grár, sóllúga, rafdrifnar rúður, ek. 7 þ. km. Verft t.350.000,-. Volvo 245 GL árg. 1988, gullsans, sjálfskipt- ur, ek. 88 þ. km. Verð 880.000,-. Toyota Landcruiser VX '91 sjálfsk., sóllúga, ek, 40 þ, km. Verð 3.800.000,-. gullsans,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.