Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
t
Nemendur brautskráðir frá Kennaraháskóla íslands
Hálft ann-
aðhundrað
kandídata
útskrifað
KENNARAHÁSKÓLI íslands
brautskráði 12. júní síðastliðinn
148 kandídata og alls hafa því
230 kandídatar verið útskrifað-
ir af fjórum námsbrautum í
vetur. I útskriftarræðu Þóris
Ólafssonar rektors kom enn
fremur fram að 82 nemendur
víðs vegar að af landinu hefðu
hafið kennaranám sem skipu-
lagt væri að mestu sem
fjarnám. Að mati hans er með
því brotið blað í kennaramennt-
un á íslandi.
Að þessu sinni voru 112 kenn-
araefni útskrifuð úr almennu
kennaranámi til B.Ed. gráðu en
af þeim fjölda voru eitt hundrað
konur. Þá luku 11 starfandi kenn-
arar sérstöku viðbótamámi kenn-
ara. Kennsluréttindi fyrir fram-
haldsskólakennara öðluðust 15
kandídatar og einn kandídat öðlað-
ist aftur á móti kennsluréttindi á
grunnskólastigi.
Þórir Ólafsson rpktor minntist
í ræðu sinni sérstaklega á braut-
skráningu 9 fyrstu kandídatanna
frá skólanum með B.A. gráðu í
hússtjómarfræðum. Hann sagði
húsmæðraskóla eins og menn
þekktu þá hafa lokið hlutverki sínu
en hússtjórnarfræði aftur á móti
Morgunblaðið/Þorkell
Við útskrift
HALLGRÍMSKIRKJA var þétt setin á laugardaginn var þegar 148
kandídatar voru útskrifaðir frá Kennaraháskólanum.
hafa öðlast aukið vægi á öllum
venjulegum skólastigum.
Fjarnám í fyrsta skipti
Nám í Kennaraháskóla íslands
tók miklum stakkaskiptum að
mati rektors skólans þegar
fjarnám var tekið upp á síðastliðn-
um vetri. Hann segir þetta mikils-
vert átak í byggðamálum þar sem
fólki gefist nú kostur á heildstæðu
háskólanámi án tillits til búsetu.
Þórir benti á margar fleiri nýj-
ungar í starfí skólans. Drög hafa
verið lögð að sérstöku framhalds-
námi til meistaragráðu á tilteknum
sviðum uppeldis- og kennslufræða
og er ráðgert að það nám geti
hafist haustið 1994.
Einnig var greint frá samningi
skólans og umferðarráðs um
menntun ökukennara en Kennara-
háskólinn mun taka að sér öku-
kennaranám næsta haust. Enn-
fremur var opnun sérstakar lestr-
armiðstöðvar Kennaraháskólans
kynnt en hlutverk hennar er með-
al annars að aðstoða alla þá sem
eiga við lestrarörðugleika að
stríða.
/
A grillih
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 27. júní nk., fylgir blaðauki sem heitir A grillib. í
þessu blaði verður fjallað um það að grilla góðan mat úr margvíslegu hráefni, með
mismunandi matreiðsluaðferðum og á ólíkum tegundum grilla. Þá verða gefnar
ábendingar frá fagfólki, birtar uppskriftir að meðlæti og greint frá helstu áhöldum en
fyrst og fremst verður að finna í blaðinu fjölmargar góðar uppskriftir fyrir þá sem ætla
að grilla heima við, í sumarbústaðnum eða á ferðalaginu.
Þeim sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka er beut á ab tckib er vib
auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 21. júní.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir og Petrína Ólafsdóttir,
starfsmenn auglýsingadeildar í síma 69 1111 eba símbréf 69 1110.
• kjarni málsins!
Þrír útskrifaðir með
1. stigs réttindi frá
Vélskóla íslands
FRÁ Vélskólanum hafa á þessum vetri útskrifast 3 nemendur með
1. stigs réttindi 10 með 2. stig og 21 með 4. stig. Innritaðir nemendur
á haustönn voru 195 en á vorönn
síðasta skólaári.
Eftirfarandi nemendur hlutu
verðlaun fyrir góðan námsárangur:
Pálmi Indriðason hlaut sérstök
verðlaun frá LÍÚ fyrir góðan árang-
ur í vélfræði- og rafmagnsfræði-
greinum. Ennfremur hlaut Pálmi
verðlaun fyrir rafmagnsfræði,
raungreinar og íslensku. Hilmar
Sigurðsson hlaut verðlaun fyrir vél-
fræðigreinar. Jón Hilmar Indriða-
son hlaut verðlaun fyrir góðan
námsárangur í erlendum tungumál-
um. Verðlaun sem Vélstjórafélag
íslands veitir þeim 4. stigs nemanda
sem starfað hefur mest að félags-
málum hlaut Bjarni Karvel Ragn-
arsson. Á haustönninni fékk Svavar
Sigurkarlsson verðlaun fyrir góðan
námsárangur í vél- og rafmagns-
fræði.
Í ræðu skólameistara kom meðal
annars fram að verið er að end-
urnýja tölvukost skólans fyrir tölvu-
kennsluna og einnig er verið að
setja upp nýtt kælikerfi sem nota
á við kennslu í kælitækni.
Endurskipulagning stendur fyrir
dyrum í smíða- og vélstjórnar-
kennslu með það í huga að auka
vélvirkjaþátt kennslunnar og auka
þjálfun á vélarúmsherminn. Þetta
er gert m.a. til að uppfylla reglur
Alþjóða siglingamálastofnunar um
185 og er það dálítil aukning frá
kennslu og þjálfun. Síðastliðið haust
var tekinn í notkun mikið endur-
bættur hermibúnaður og reyndist
hann í alla staði vel í kennslunni nú
í vetur.
Námskeiðahald áformað
Á komandi vetri er hugmyndin
að koma á öflugu námskeiðahaldi
í tengslum við Vélstjórafélag ís-
lands og verður áhersla lögð á
kælitækni, stýrt viðhald ásamt bila-
nagreiningu og hermisnámskeið þar
sem áhersla verður lögð á störf í
stjórnstöð, bilanagreiningu og stilli-
tækni.
Við skólaslitaathöfnina gáfu 10
ára útskriftarnemar skólanum
vandaðan sýningarskáp á borði.
Tilgangur hans er að sýna úrval
smíðisgripa frá hverjum árgangi og
á þann hátt að auka faglegan metn-
að fyrir handverki.
Skápurinn er gefinn í minningu
Hauks Ólafssonar sem lést af slys-
förum á? Gunnjóni GK 506 20. júní
1983.
Ennfremur færðu 20 ára út-
skriftanemar skólanum veglega
peningagjöf sem nota á til kaupa á
tæknibókum sem komið verður fyr-
ir á bókasafni Sjómannaskólans.
Nýir vélfræðingar
ÚTSKRIFTARNEMENDUR á vorönn ásamt skólameistara.
Parmesanskál
VARIST EFTIRLÍKINGAR
AliSSI
KRINGLUNNI S: 680633
P
f
»
r "
»
»
i
■
§
i
-r * -f>
KAFFI OG VOFFLUR
>FN.*Á\
/ÚN\ ^
á 17. júní í sal Þjóðdansafélagsins
kl. 17-19.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
20% afsláttur
af öllum vörum til 17. júní
Póstsendum.
\&Zi
barnafataverslun,
Laugavegi 12, sími 62 16 82.
ft
i
I