Morgunblaðið - 16.06.1993, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
+
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1993
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Vaxtalækkun — alls
staðar nema hér?
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfa-
markaðar íslandsbanka, ritaði
grein í viðskiptablað Morgun-
blaðsins fyrr í þessum mánuði,
þar sem meðal annars var fj'allað
um vaxtamál. Umfjöllun Sigurð-
ar um þau efni hlýtur að vekja
athygli.
I grein sinni segir Sigurður
að flestir hafi verið sammála um
þá niðurstöðu sem varð af kjara-
samningunum í síðasta mánuði,
nema um þann þátt sem sneri
að ríkisfjármálunum og telji sum-
ir að halli ríkissjóðs hafi aukizt
um of, en hann nemi nú 4% af
landsframleiðslu. Sigurður telur
hins vegar að ekki sé hægt að
tengja hallareksturinn beint og
blint við háa raunvexti á íslandi.
„Ekkert bendir til annars en
unnt sé að fullnægja lánsþörf
ríkissjóðs að langmestu leyti á
innlendum markaði," segir Sig-
urður. „Ýmislegt bendir til að
skýringar á háum raunvöxtum
hér sé að leita í fyrirkomulagi á
fjármálamarkaði fremur en því
að framboð á innlendu fé sé ekki
nægjanlegt."
Framkvæmdastjóri VÍB segir
öll efnahagsleg rök hníga í þá
átt að vextir geti farið lækk-
andi. Framleiðsla hafi dregizt
saman, ijárfesting minnkað,
skuldir heimilanna séu háar og
gert sé ráð fyrir 7-8% kaupmátt-
arminnkun á yfírstandandi ári.
Innlend eftirspum sé því að drag-
ast hratt saman og þenslutíma-
bilið, sem staðið hafí nánast sam-
fellt síðastliðinn aldaifyórðung
og kallað á hækkandi vexti til
að hamla á móti eftirspum, sé á
enda. Með nýgerðum kjarasamn-
ingum hafi stöðugleiki í launum,
verðlagi og gengi verið tryggður
næstu mánuði. „Hvarvetna í
nærliggjandi löndum hafa vextir
farið lækkandi síðustu ár vegna
minnkandi eftirspumar. Hvar-
vetna í heiminum færu vextir
lækkandi við þær aðstæður sem
nú hafa myndazt á íslandi," seg-
ir Sigurður.
Hver er skýringin á __ þessu
ónæmi vaxtastigsins á íslandi
fyrir ytri aðstæðum að mati Sig-
urðar B. Stefánssonar? „Ef til
vill er skýringarinnar á því að
vextir fara ekki eftir sömu leiðum
á íslandi og annars staðar að
leita í því að vaxtakerfí okkar
er byggt upp með allt öðram
hætti en í nokkra öðra landi.
Hér eru langtímavextir (t.d.
vextir af spariskírteinum og hús-
bréfum) verðtryggðir og fjárfest-
ir þarf ekki að taka neina verð-
bólguáhættu. Þessir vextir hafa
verið hærri en í öðrum Evrópu-
löndum að jafnaði a.m.k. síðustu
fímm árin en raunvextir af spari-
skírteinum hafa í reynd haldizt
um 7% yfir verðbólgu að meðal-
tali allt frá upphafí útgáfu þeirra
fyrir nærri þijátíu árum.
Vextir af óverðtryggðum
skuldabréfum og víxlum á
skammtímamarkaði ráðast síðan
af — og era beinlínis reiknaðir
út frá — verðtryggðum vöxtum
á langtímamarkaði. Þetta kerfí
er hvergi til í heiminum nema
hér. Ef til vill er það þess vegna
að óverðtryggðir vextir hafa ekki
getað lækkað meira hér síðustu
mánuði. Vextir á íslandi nú virð-
ast vera algerlega úr samhengi
við það sem gerzt hefur í nálæg-
um löndum.
Skýringarinnar er ef til vill að
leita í hinu víðtæka verðtrygg-
ingarkerfi okkar sem komið var
á fót eftir óðaverðbólgu áttunda
áratugarins en hefur nú lokið
hlutverki sínu að fullu. Einangr-
un markaðarins og sérstakur
gjaldmiðill 260 þús. manna þjóð-
arinnar á einnig þátt í því að
ekki er hægt að bera saman vexti
hér og annars staðar beint. Það
hlýtur því að verða eitt helzta
viðfangsefni peningayfírvalda á
næstu mánuðum að endurskoða
vaxtamyndun á innlendum
markaði og sníða af þá ann-
marka kerfísins sem leiða til þess
að vextir á íslandi era ekki sam-
bærilegir og ekki einu sinni sam-
anburðarhæfír við vexti í öðram
löndum.“
Þessar ábendingar fram-
kvæmdastjóra Verðbréfamark-
aðar íslandsbanka eru afar at-
hyglisverðar. Að undanfömu
hafa umræður um vexti einkum
beinzt að þeim vandamálum, sem
lánsfíárþörf ríkissjóðs skapar, og
hagkvæmni í rekstri bankanna.
Full ástæða er til að taka á þeim
orsökum hárra vaxta, sem þar
liggja, en grein Sigurðar B. Stef-
ánssonar ætti að vera bæði
bankamönnum og stjórnvöldum
hvatning að skoða betur vaxta-
myndunarkerfið og þá sérstak-
lega áhrif verðtryggingar.
Ástæða hlýtur að vera til slíks,
ef staðreyndin er sú að aðstæð-
ur, sem alls staðar annars staðar
hefðu kallað fram vaxtalækkun,
valda engum breytingum hér. Á
undanfömum áram hefur skáld-
skapurinn um sérstöðu íslenzka
hagkerfisins á öllum sviðum, sem
oft var notaður sem réttlæting
ýmiss konar hafta og fyrirkomu-
lags sém hvergi þekkist annars
staðar, verið á undanhaldi. Hér
skal tekið undir orð Sigurðar B.
Stefánssonar: „Stjórnvöld ættu
ekki að hika við að taka fyrir-
komulag markaðarins til gagn-
gerrar endurskoðunar ef það
telst eiga þátt í að hindra eðli-
lega myndun vaxta. Bæði verð-
trygging og einangrun markað-
arins eru leifar frá liðinni tíð.
Endurskoðun á þessu fyrirkomu-
lagi nú er mikilvægt skref í átt
til „aukinnar hagsældar á seinni
hluta þessa áratugar“.“
59| 55 hvertis- Hvert þessara
mál
IÍSLAND
sjö sviða
norræns samstarfs ^ noregur
telur þú allra mikilvægast?
Utanríkis- og
öryggismál
25 24 Fnals
2Q n aðgangur
DANMORK
Frjáls búsetu-
aft ckólnm _ , . Fnals busetu-
Fnverslun og atvinnuréttur Málanám og
12 13 13 13 -skilningur, og
að ná sjónvarps-
7 0 og útvarpsefni
4 3 3 3 2 2
___________________ _________________ ________.__„____________■■□□□_____________________
SDNÍSF NFDSÍS ÍSFNSD NFDSÍS FÍSSDN DFNÍSS ÍSFNDS
Hefur þú heyrt minnst
á Norðurlandaráð eða
Norrænu ráðherranefndina?
92% 92% 91%
Skoðanakönnun um viðhorf almennings til norræns samstarfs
Þekking og áhugi Islend-
inga minni en annarra
Leggja þó mesta áherzlu á frjálsan búsetu- og atvinnurétt og aðgang að skólum
ÍSLENDINGAR vita minnst Norðurlanda-
þjóða um norrænt samstarf og telja síður en
aðrir að Norðurlandasamstarfið hafi skilað
jákvæðum árangri. Hins vegar leggja íslend-
ingar meiri áherzlu á sum svið norræns sam-
starfs en frændþjóðirnar, sérstaklega frjálsan
búsetu- og atvinnurétt og frjálsan aðgang að.
skólum á hinum Norðurlöndunum. Þetta er
meðal niðurstaðna skoðanakönnunar um nor-
rænt samstarf, sem gerð var á ölhim Norður-
löndunum fimm fyrir Norðurlandaráð og
Norræhu ráðherranefndina.
Könnunin var framkvæmd á vegum skoðana-
könnunarfyrirtækisins TEMO í Svíþjóð, en fram-
kvæmdaraðili hér á landi var ÍM-Gallup. Úrtakið
var tæplega 5.000 manns á kosningaaldri og
voru 900 þeirra íslendingar.
47% gátu ekki nefnt dæmi um norrænt
samstarf
Er spurt var hvort menn gætu nefnt dæmi
um eitthvert svið, þar sem öll Norðurlöndin fimm
ættu sér samstarf, nefndu flestir Norðurlandabú-
ar umhverfismál, eða 13%. Næstflestir, 10-11%,
nefndu Norðurlandaráð eða ráðherranefndina,
viðskiptasamstarf og menningarsamstarf. Flestir
íslendingar nefndu menningarmál, 21% að-
spurðra. Athyglisvert er að af öllum aðspurðum
á Norðurlöndunum gátu 47% ekki nefnt neitt
dæmi um norrænt samstarf án umhugsunar.
TEMO telur að þetta geti verið vegna þess að
menn taki ýmsum viðfangsefnum norræns sam-
starfs sem sjálfsögðum hlut og líti ekki á þau
sem árangur umfangsmikils samstarfs. í ljós kom
að stuðningsmenn íhaldsflokka annars vegar og
flokka yzt á vinstrivængnum og græningja hins
vegar, gátu fremur en aðrir nefnt dæmi um nor-
rænt samstarf.
28% íslendinga vilja samstarf við
Bandaríkin
Spurt var við hvaða lönd menn teldu að heima-
land þeirra ætti helzt að eiga samstarf. Um 36%
íslendinga nefndu hin Norðurlöndin, flestir Dán-
mörku eða 19%. Hins vegar töldu 28% að ísiend-
ingar ættu helzt að líta til Bandaríkjanna um
samstarf. Danir og Norðmenn leggja mesta
áherzlu á samstarf við hin Norðurlöndin, en þar
vilja um 45% vinna með frændum sínum. Úm
20% Svía vilja samstarf við Bandaríkin, en í Finn-
landi vilja 33% leggja mesta áherzlu á samstarf
við Rússa.
Svarendur voru spurðir hvernig þeir teldu að
heimaland þeirra ætti að snúa sér e£ Svíþjóð,
Noregur og Finnland fengju inngöngu í EB. ís-
lendingar voru þannig spurðir hvort íslendingar
ættu að koma fram gagnvart EB á eigin vegum,
í samstarfi við hin Norðurlöndin eða í félagi við
þjóðir, sem hefðu lík sjónarmið og Íslendingar.
Um 17% íslendinga töldu að bezt væri að standa
einir, 28% vildu samstarf við Norðurlöndin og
41% við þau lönd, sem styddu sjónarmið okkar.
Þetta er svipuð afstaða og hjá Svíum, en þeir
leggja, líkt og íslendingar, minni áherzlu en hin-
ar þjóðimar á samstarf með Norðurlöndunum í
samskiptum við EB.
Færri íslendingar teljajákvætt að
samstarfið aukist
Spurt var hvort menn teldu að norrænt sam-
starf myndi aukast eða minnka á næstu tíu árum.
Um 70% Norðurlandabúa í heild töldu að svo
myndi fara, en íslendingar og Danir eru undir
meðaltalinu og telja tæplega 60% hvorrar þjóðar
að Norðurlöndin muni auka samstarf sitt. Þegar
spurt var hvort menn teldu æskilegt að samstarf-
ið ykist, voru íslendingar neikvæðastir. Að meðal-
tali töldu 74% jákvætt að auka norrænt sam-
starf, en á íslandi voru aðeins 65% þeirrar skoðun-
ar.
Sjónvarpssamstarf fær lítinn stuðning
Spurt var hvaða svið norræn's samstarfs svar-
endur teldu mikilvægust. Flestir töldu umhverfís-
mál mjög mikilvæg, en einnig fékk fijáls aðgang-
ur að skólum og gagnkvæm viðurkenning prófa
mikinn stuðning, ásamt fríverzlun og samstarfi
í utanríkis- og öryggismálum. Minnstur stuðning-
ur var hins vegar við samstarf um kennslu í
Norðurlandamálum og aukinn málskilning og
samstarf á sviði sjónvarps- og útvarpssendinga.
Þetta er umhugsunarvert, þar sem norræna ráð-
herranefndin hyggst nú að nýju leggja áherzlu
á að koma á fót samnorrænni sjónvarpsfréttarás
og hefur gert það að einu helzta stefnumáli sínu.
Athygli vekur að íslendingar skera sig úr hvað
varðar stuðning við fijálsan búsetu- og atvinnu-
rétt og fijálsan aðgang að skólum. Þeir telja einn-
ig mikilvægara en aðrir að vinna að auknum
málskilningi á Norðurlöndum.
Aðeins 66% íslendinga heyrt minnzt á
N or ður landaráð
Þegar spurt var hvort menn hefðu heyrt minnzt
á Norðurlandaráð eða Norrænu ráðherranefnd-
ina, svöruðu um eða yfir 90% játandi á öllum
Norðurlöndunum nema íslandi, þar sem aðeins
66% höfðu heyrt minnzt á þessar stofnanir. Einn-
ig var spurt hvort menn teldu ákvarðanir og
umræður þessara stofnana hafa haft jákvæð
áhrif fyrir þjóðir Norðurlanda. Á Norðurlöndun-
um telja 53% að meðaltali að Norðurlandasam-
starfið hafi gert gagn, en aðeins 32% íslendinga.
Mikligarður hf. lýstur gjaldþrota í gær - ISI gjaldþrota í síðustu viku
Gjaldþrotin ganga nærri
eiginfjárstöðu Sambandsins
BÚ Miklagarðs hf. var tekið til gjaldþrotaskipta í gær með úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur. Aætlað bókfært verð eigna þann 10. júní eru
876 milljónir króna og heildarskuldir 1.469 milljónir. Skuldir umfram
eignir eru því 593 milljónir króna. Skiptastjórar voru í gær skipaðir
þeir Jóhann Níelsson hrl. og Ástráður Haraldsson hdl. Með gjaldþrotum
Miklagarðs og Islensks skinnaiðnaðar, sem varð gjaldþrota í síðustu viku,
hefur staða Sambands íslenskra 'samvinnufélaga versnað frá síðustu ára-
mótum þegar eiginfjárstaðan var metin jákvæð upp á 159 milljónir króna.
Aðspurður um hvort eiginfjárstaða
Sambandsins væri þar með orðin nei-
kvæð sagði Sigurður Markússon
stjómarformaður Sambandsins og
Miklagarðs að ekki væri hægt að segja
til um það þar sem nokkum tíma
tæki að meta áhrif gjaldþrotanna á
stöðu Sambandsins.
í frétt sem Morgunblaðinu barst í
gær frá stjórn Miklagarðs segir að
ákvörðunin um gjaldþrotaskipti sé
tekin í ljósi afleitrar rekstrarafkomu
og mjög bágrar efnahagsstöðu félags-
ins. Á fundi stjómar Miklagarðs í
fyrrakvöld var lagður fyrir endurskoð-
aður ársreikningur fyrir árið 1992.
Samkvæmt honum er tap ársins 559
milljónir króna. Eignir í árslok vom
1.624 milljónir, skuldir 1.859 milljónir
og eigið fé því neikvætt um 235 millj-
ónir í árslok.
Samkvæmt þessu hefur eiginfjár-
staða Miklagarðs versnað verulega frá
áramótum og aðspurður um ástæðuna
fyrir því kvað Sigurður Markússon
stjómarformaður Miklagarðs tap-
reksturinn hafa haldið áfram á þessu
ári af sömu stærðargráðu og í fyrra,
en þá var um 47 milljón króna tap á
mánuði. Á þessu ári bættist síðan við
rekstrarlegt óhagræði af því að fyrir-
tækið hefði verið í sölumeðferð.
Eignir aðallega veltufjármunir
Aðspurður um hversu miklar hann
teldi að kröfur í búið yrðu sagðist
Sigurður telja að upplistun skuldanna
væri nærri lagi og bókhaldsleg staða
gæfi því vísbendingu um hveijar kröf-
urnar yrðu. Stærsti hluti eigna Mikla-
garðs em veltufjármunir en ekki fast-
eignir. „Eignimar upp á 876 milljónir
króna eru vörubirgðir, viðskiptakröfur
og svolítið af innréttingum, tækjum
og áhöldum. Þvi tel ég að þessar eign-
ir eigi að skila sér sæmilega vel í
þrotabúið. Málið væri erfiðara og
flóknara- og líklegra að það drægist á
langinn ef þetta væru fasteignir sem
erfitt væri að selja.“
190 starfsmenn í óvissu
Öllum starfsmönnum í Miklagarði
var sagt upp um mánaðamótin
mars/apríl. „Flestir em þannig settir
NÁLÆGT 4% vinnufærra manna voru atvinnulaus að meðaltali I maí-
mánuði síðastliðnum. Það svarar til þess að um 5.200 manns hafi verið
atvinnulaus, 2.600 konur og jafnmargir karlar. Heldur hefur dregið
úr atvinnuleysi frá síðasta mánuði, en þá var atvinnuleysið 4,6%. f maí
í fyrra voru hins vegar um 2,5% vinnufærra íslendinga án atvinnu.
Að mati vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins er samdrátt-
urinn í atvinnuleysinu frá síðasta
mánuði að hluta til vegna reglubund-
innar sveiflu. Undanfarin 10 ár hefur
atvinna að jafnaði aukizt frá apríl til
maí. Hins vegar telur skrifstofan að
sérstök átaksverkefni sveitarfélaga í
gegnum atvinnuleysistryggingasjóð
eigi -mikinn þátt í að viðhalda þessari
sveiflu í ár, þar sem um 1.500 manns
hafi fengið vinnu í gegnum sjóðinn
undanfarna mánuði.
Atvinnulausum fjölgar mest á
Sauðárkróki
Atvinnulausum fækkar í öllum
landshlutum nema á Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra. Á Vestfjörðum
er þó enn minnsta atvinnuleysið á
landinu, eða 2,9%. Mest er atvinnu-
leysið hins vegar á Suðumesjum, eða
6,4%. Atvinnulausum fjölgaði mest
milli mánaða á Sauðárkróki, eða um
27. Á Akureyri fækkaði atvinnulaus-
um hins vegar um 119 frá apríl til
maí. Þess ber að jgeta. að uppsagnir
vegna gjaldþrots Islenzks skinnaiðn-
aðar hafa síðan komið til og mun
þurfa að fækka um 50 stöðugildi hjá
fyrirtækinu.
Fleiri karlar en konur fá vinnu
Atvinnuleysi er meira meðal
kvenna en karla í öllum landshlutum
og hafa færri konur fengið vinnu frá
apríl til maí en karlar. Atvinnuleysi
kvenna er mest 9,5% á Suðurnesjum
en minnst á Austfjörðum, 3,7%. Mest
atvinnuleysi karla er hins vegar á
Suðurnesjum og Austfjörðum, 4,4%,
og minnst á Vestfjörðum, 2,1%. I
heild eru 4,8% kvenna í landinu at-
vinnulausar en 3,4% karla.
Atvinnuleysi í mars, apríl og maí 1993
Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli.
Á höfuðborgarsvæöinu standa
2.858 atvinnulausir á bak við
töluna 3,7% í mai og fækk-
aði um 157 frá þvi í april.
Alls voru 5.200 atvinnu-
lausir á landinu öllu í
maí og hefur
fækkað um 602
frá því í apríl
5,7%
5,3%
M A M
M A M
að þeir eru á uppsagnarfresti sem
rennur út um mánaðamótin júní/júlí.
Hitt er svo annað mál að þegar við
sölu verslananna reyndum við að
tryggja hag starfsfólks. Um 480
manns var sagt upp störfum hjá Mik-
lagarði og ég áætla að störf 290
manns hafí varðveist, en 190 starfs-
menn eru í óvissu á þessu augnabliki.
Eg vil ekki endilega segja að störf
þeirra komi til með að glatast, ég
vona að það verði ekki, en það veltur
nú á því hvernig til tekst með með-
ferð búsins,“ sagði Sigurður.
Staða Sambandsins endurmetin
Aðspurður um hvort Sambandið
sjálft væri nú í nauðásamningum kvað
Sigurður svo ekki vera. „Ég kann
ekki að svara því hvort Sambandið sé
á leiðinni í nauðasamninga. Auðvitað
kemur gjaldþrot Miklagarðs við okkur
og stjórn Sambandsins þarf að meta
stöðuna upp á nýtt og gera sér grein
fyrir hvað hún þýðir.“
Samkvæmt ársreikningi Sam-
bandsins fyrir árið 1992 var áætlað
að eiginfjárstaða Miklagarðs væri
neikvæð upp á 140 milljónir króna og
var sú upphæð færð til skuldar í efna-
hagsreikningi. „Ég tel sennilegt að
þessar 140 milljónir nægi fyrir þessu
áfalli nú þar sem við vorum búnir að-
afskrifa hlutabréf okkar í Miklagarði
að fullu,“ sagði Sigurður. Hann sagði
að samt sem áður væri staða Sam-
bandsins verri en gert hefði verið ráð
fyrir um síðustu áramót þegar eiginfj-
árstaðan var metin jákvæð upp á 159
milljónir króna, sérstaklega vegna
gjaldþrots íslenska skinnaiðnaðar.
Atvinniileysi minnkar og var 4% í maí
Morgunblaðið/Þorkell
Fjölskyldugarður
HORFT yfir Fjölskyldugarðinn úr útsýnisturninum, þaðan sem sést vítt til allra átta.
Fj ölskyldugarðurinn
opnaður í næstu viku
SENN liður að opnun Pjölskyldu-
garðsins í Laugardal því hann
verður formlega tekinn í notkun
24. júní, aðeins 22 mánuðum eftir
að framkvæmdir hófust. Garð-
urinn nær yfir 100.000 fermetra
svæði ef með er talinn Húsdýra-
garðurinn og er honum ætlað að
vera til skemmtunar og fræðslu
fyrir alla fjölskylduna. Áætlað
hafði verið að veita 300 milljónum
í garðinn fram að opnun og virð-
ist sú áætlun ætla að standast að
sögn Magnúsar Sædals verkefnis-
stjóra. Stefnt er að því hafa garð-
inn opinn frá kl. 10 á morgnana
til kl. 21 á kvöldin frá lokum
maímánuðar til loka ágústmánað-
ar.
Magnús sagði að eins og heiti
garðsins gæfi til kynna ættu fjöl-
skyldur að geta unað sér þar við
leiki og fræðslu í fallegu umhverfi.
„Fjölskyldugarðurinn er ekki tívolí
heldur staður þar sem bryddað er
upp á ansi mörgu og mætti þar
nefna ieiktæki, uppákomur, o.fl.
Fræðslu er svo fléttað saman við
eins og hægt er. Svo ég nefni dæmi
má geta þess að efnt er til umferð-
arfræðslu á svæðinu. Þarna verða
litlir rafknúnir bílar sem krakkamir
aka og á götunum verða umferðar-
ljós og umferðarmerki. Eftir að hafa
farið einn hring í brautinni fá krakk-
arnir svo sérstakt ökuskírteini. Ann-
að dæmi eru tvær 6 metra háar
rekaviðarsúlur sem mynda skjaldar-
Bílabraut
ALVÖRU umferðarljós verða á gatnamótum bílabrautanna, þar
sem hægt verður að aka á rafbílum.
merki Reykjavíkurborgar. Fræðslu-
gildi þeirra felst í því að sýna fólki
hvemig rekinn hefur verið hér í
gengum aldirnar og verið talinn til
hiunninda," sagði Magnús.
Aftur til fortíðar
Af öðru skyidu nefndi Magnús
líkan af víkingaskipi, naust, þing-
stað þar sem efna má til samkomu-
halds og fost leiktæki. Eitt af því
eru eins konar hljóðvarpsskálar sem
tala má í.
Magnús sagði að ekki mætti held-
ur gleyma öllum gróðrinum og vatn-
sleikjasvæðinu þar sem unga kyn-
slóðin fengi að sulla að vild en fyrir
fullorðna er t.a.m. minigolf. Ef fólk
kýs er svo hægt að taka með sér
grillmat að heiman og laga hann á
einu af útigrillunum í garðinum.
Skipulag garðsins hafa annast
Þórólfur Jónsson, landslagsarkitekt
og starfsmaður garðyrkjustjóra, og
starfsmenn arkitektastofunnar Ark-
þings.