Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 29
29
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
Vatfið, fjðllin
og fuglinn 2
ÚRSLIT í samkeppni Ferðamála-
samtaka Vestfjarða og Fjórð-
ung-ssambands Vestfirðinga um
hönnun merkis og gerð slagorða
sem lýstu ímynd Vestfjarða
liggja nú fyrir og Garðar Péturs-
son hlaut 1. verðlaun fyrir „Vaff-
ið, fjöllin og fuglinn 2“. Dóm-
nefnd taldi það skila vel hrein-
leika fjórðungsins og væri tákn-
rænt fyrir fjallasýn og náttúru.
Þá voru verðlaunuð nokkur slag-
orð Komdu vestur frá Árna Mar-
geirssyni og Gretu Haakansson,
Vestfirðir, öðruvísi paradís og
Vestfirðir, örugglega öðruvísi
eftir Andrés Guðmundsson Gunnar
Borgarsson, Vestfirðir, nær en
þig grunar frá Hrönn Magnúsdótt-
ur og Vestfirðir, einstök náttúra
frá Jónasi E. Jónassyni.
Anna Margrét Guðjónsdóttir
ferðamálafulltrúi sagði að mikil
þátttaka í samkeppninni sýndi
áhuga á að vekja athygli á Vest-
fjörðum sem spennandi kosti fyrir
ferðamenn. ■
Mjög mikill verðmunur
á ferð um hringveginn
SJÁLFSAGT eru þeir ófáir sem hyggjast leggja land undir fót -
eða öllu heldur dekk - í sumar og fara hringveginn á eigin bif-
reið. Kostnaður við slíkt ferðalag getur verið misjafn og skiptir
ekki síst máli hvernig gistingu er háttað. Ódýrast er að sjálf-
sögðu að setjast upp á vini og vandamenn á landsbyggðinni, en
margir möguleikar og kannski
Hvað kostar að keyra hringinn? Áfólksbíl: „
Fvrsendur: Verðflokkur 'w' W'- 1.115.000m.
Þyngd 950 kg
Eyðsla 91/100 km
Akstur 1.400 km
Kostnadur vegna notkunar: Bensín (68 kr./l) B.568 kr.
Viðhald oq viðqerðir 6.650 kr.
Hjólbarðar 2.100 kr.
Kostnaður ó óri 16.310 kr.
Kostnaður ó km 11,68 kr.
Á jeppa: ( /h 000:00%: | |i
Forsendur: t Verðflokkur 2.50 0.000 ki.
Þyngd 1.700 kg
Eyðs a 131/100 km
Akstur 1.400 km
Kostnaður vegna notkunar: Bensín (68 kr./l) 12.376 kr.
Viðhald oq viðqerðir 7.600 kr.
Hjólbarðar 3.200 kr.
Kostnaður ó óri 23.176 kr.
Kostnaður ó km 16,55 kr.
raunhæfari eru í boði.
Tjaldstæði eru á yfir 100 stöð-
um og algengt gjald 200 kr. fyrir
tjald og 200 kr. að auki fyrir hvem
einstakling. Sé gist á einhveijum
þeirra mörgu staða sem eru í
Ferðaþjónustu bænda kostar það
kr. i.750, 1.950 eða 2.700 kr.
fyrir manninn í 2ja manna her-
bergi og fer eftir því í hvaða flokki
gistiaðstaðan er. Hjá Farfuglum
kostar gisting 1.250 kr. og 1.000
krónur fyrir félaga.
Eldsneyti er annar liður sem
vegur þungt í hringvegsakstri, en
fer að sjálfsögðu eftir því á hvern-
ig bifreið er ekið og sama gildir
um aðra útgjaldaliði sem falla til
vegna ferðalaga á eigin bifreið.
Skv. útreikningum frá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda, má gera
ráð fyrir að heildarkostnaður
vegna eldsneytis, viðhalds, við-
gerða og hjólbarða 1.400 kílómetr-
um hringvegarins er sé á um
16.000 kr. fyrir fólksbíl og um
23.000 kr. fyrir jeppabifreið, eins
og sést í töflunni. Þeir miðast við
ákveðnar forsendur, þ.e. verð-
flokk, þyngd, eyðslu og akstur.
Ekki tekið tillit til trygginga,
skatta, verðmætarj-rnar og fjár-
magnskostnaðar vegna notkunar
bifreiðarinnar. ■
„VIÐ HÖFUM þegar gert ágætan veg upp að jaðri Langjökuls og
erum að flytja þangað tvö hús sem verða sett þar niður. Þar verður
setustofa til að jöklafarar geti fengið sér kaffisopa, aðstaða fyrir
umsjónarmann svæðisins o.fl. Þarna verða 8 siyósleðar sem fólk
getur þeyst á um jökulinn í fylgd leiðsögumanns og snjóbíll okkar
keyrir ferðamenn upp. Þetta er að koniast í gagnið núna og ég sé
fyrir mér að á jökulsvellinu verði góður leikvöllur fyrir krakka á
snjóþotum, skiðaaðstaða með lyftu og snjótroðari gerir brautir,"
sagði Kristleifur Þorsteinsson á Húsafelli, einn forsvarsmanna félags-
ins „Langjökull“.
Ferðablaðið hefur áður sagt frá
áformum Kristleifs um að höggva
íshella inn í jökulinn og gera þar
skála. Sagðist Kristleifur vonast til
að það yrði að veruleika í sumar.
„Við ætlum að gera tvo skála, í
Þursaborg sem er 20 km inn á jökli
og svo við jaðarinn. Þetta verða
hálfgerðar kristalshvelfíngar eða
íshús _eða hvað menn vilja kalla
það. Ég held að þeir verði alveg
einstakir hérlendis því ekki hefur
fyrr verið farið inn í jökul til að
gera slíka vistarveru.“
Aðalfundur Langjökuls verður
nú síðla júní í Brúarási og svo verð-
ur farið upp á jökulinn með tilþrif-
um og þar verða hlutabréf afhent.
Kristleifur sagði að þessar hug-
myndir hefðu fyrst verið bara í
kollinum á sér en hann hefði fengið
mikinn stuðning við þær frá sínum
sveitungum og flest sveitarfélögin
í héraðinu hefðu lagt þessu lið með
þeim árangri að þetta yrði nú senn
að virkileika. ■
Morgunblaðið/Bemharð
Ein mynda Stefáns.
Myndlist í Reykholti
HÓTEL EDDA í Reykholtsskóla
opnaði í sl. viku með sumarþjón-
ustu sína.
Stefán Magnússon frá Birkihlíð
verður með málverkasýningu í hótel-
inu í sumar. Stefán máiaði allnokkuð
fyrir 20 árum og nam í vetur við
Myndlista- og handíðaskólann. Er
þetta fyrsta sýning eftir 20 ára hlé.
■
Bernharð Jóhannesson.
FERÐIR
Tjaldstæði NjaMur og Keflavíkur
UM HELGINA
Ferðafélag íslands
Fimmtud. 17. júní kl. 13 er
gengið frá Nesjavallavegi að
Borgarhólum, og komið niður
á Mosfellsheiði. Laugard. 19.
júní er árleg sumarsólstöðu-
ganga á Esju. Brottför kl. 20.
Sunnud. 20. júní kl. 10.30 er
ferðin Grænavatn-Kálfadalir-
Vatnshlíðarhorn. Sama dag er
fjölskylduferð á Selatanga kl.
13. Á Selatöngum var verstöð
en útræði lagðist af þar eftir
1880.
Dagsferðir í Þórsmörk eru
fimmtud. 17. júní og sunnud. 20.
júní. Frá 23. júní eru ferðir í
Þórsmörk hvern miðvikudag.
Brottför er kl. 8, verð 2.500 kr.
Þá er Næturganga yfir Fimm-
vörðuháls 18.-20.júní kl. 18. ■
KEFLVÍKINGAR og Njarðvíkingar hafa opnað nýtt tjaldstæði sem
þeir standa að í sameiningu og er á bæjarmörkunum við Reykjanes-
braut. Það var opnað við hátiðlega athöfn af bæjarstjóra Keflavík-
ur, Ellert Eirikssyni og Sólveigu Þórðard. forseta bæjarsljórnar
Njarðvíkur.
Valdimar Þorgeirsson,
form. Ferðamálasam-
taka Keflavíkur og
Njarðvíkur, sagði
þetta mikilvægt skref
í þjónustu við ferða-
menn á svæðinu. og
nýtingu nýrra hótela
þarna sýna að þau
hefðu átt fyllilega rétt
á sér. í fyrra hefði
verið opnuð svefn-
pokagisting í Grunn-
skóla Njarðvíkur og
væri tjaldstæðinu ætl-
að að auka enn þjón-
ustu.
Fram kom hjá Krist-
jáni Pálssyni, bæjar-
stjóra í Njarðvík, að tjaldstæðið Þjónustubygging er 100 fm og þar
tæki 300- 400 tjöld auk tjald- og er bað, mataraðstaða.
húsvagna á um 10 þús. fm svæði. Bjöm Blöndal, Keflavík ■
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sólveig Þórðardóttir og EUert Eiríksson festa
nafnið Stekkur á nýju þjónustubygginguna til
merkis um opnun hennar, en tjaldsvæðið stend-
ur fyrir ofan svokallaðan Stekkjarhamar.
ST.IVES
PÓ - HÁRNÆRING
! tf.G. - 591 ml
Ílangófb^brasiliu
perur
pr.kg
llLBOÐ
s
kg
Pr
ÁÐlIR
095
fron
PETTT BEIIRRE
M.SÚKKULAÐI
300 g
SUNLOELY
ÁVAXTAKLALAR
3TEG
pk
Pr
HAGKAUP
- allt i einni ferb