Morgunblaðið - 16.06.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
31
Viðurkerniingar veittar í lok
evrópsks vinnuvemdarárs
HÉR á landi voru lok evrópska
vinnuvemdarársins mörkuð
með hátíðlegri athöfn sem hald-
in var í Borgartúni 6 í Reykja-
vík, föstudaginn 30. april. Þar
afhenti forseti íslands, frú Vig-
dís Finnbogadóttir, 16 fyrir-
tækjum og stofnunum viður-
kenningu verkefnisstjórnar
vinnuvemdarráðsins. Þessir
aðilar tóku allir áskorun sl.
haust um að efna til átaks til
að efla eigið vinnuverndar-
starf. Fjögur skilyrði vom sett
fyrir þátttöku í þessu átaki,
þ.e. að hafa stéfnu í vinnu-
verndarmálum, hafa öryggis-
nefnd, vinna markvisst að úr-
bótum og halda skrá yfir vinnu-
slys.
Af þeim sem hófu þátttöku
reyndust 16 fyrirtæki og stofnan-
ir skara fram úr í ýmsu sem ber
vitni um gott vinnuverndarstarf.
Hjá sumum þeirra er slysaskrán-
ing nákvæmari en hjá öðrum og
hún notuð í fyrirbyggjandi til-
gangi. Hjá nær helmingi aðilanna
höfðu verið gefnar út starfs-
mannahandbækur eða ítarlegar
öryggisreglur sem fylgt er eftir.
Nokkrir hafa gert vinnustaði sína
reyklausa og víða má finna snjall-
ar úrlausnir á vandamálum sem
tengjast aðbúnaði og öryggi á
vinnustöðum og dæmi um að
verulegar úrbætur hafi verið gerð-
ar.
Sérstaka viðurkenningu verk-
efnisstjórnar vinnuverndarársins
hlaut Iðnskólinn í Reykjavík. Þar
var að ljúka framkvæmd á víð-
tækri áætlun í 24 liðum um úr-
bætur í öryggis- og heilbrigðis-
málum. Öryggisnefnd og stjórn-
endur skólans hafa sýnt í verki
sterkan vilja til að ná því mark-
miði að skapa verðandi iðnaðar-
mönnum starfsumhverfi sem telja
má til fyrirmyndar og getur orðið
þeim fordæmi í framtíðnni. FYú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands og verndari vinnuverndar-
ársins, afhenti Ingvari Ásmunds-
syni skólameistara listaverk eftir
Fulltrúar þeirra fyrirtækja og stofnana sem hlutu viðurkenningu.
Ingvar Ásmundsson, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík tekur
við sérstakri viðurkenningu úr hendi forseta íslands.
Jón Snorra Sigurðsson, gullsmið,
sem vott hinnar sérstöku viður-
kenningar.
Viðurkenningu, sem veitt var
fyrir skipulegt starf sem miðar
að því að tryggja öryggi og góðan
aðbúnað innan fyrirtækisins eða
stofnunarinnar, hlutu eftirtaldir
aðilar: Brauðgerð Kr. Jónssonar
og Co. á Akureyri, Fönn hf. í
Reykjavík, Hraðfrystihúsið hf.,
Hnífsdal, Iðntæknistofnun ís-
lands, íslenskur skinnaiðnaður hf.
á Akureyri, ístex hf. í Mosfellsbæ,
Kaupfélag Fáskrúðsfírðinga,
Keflavíkurverktakar sf. á Kefla-
víkurflugvelli, Kennaraháskóli Is-
lands, Mjólkursalan í Reykjavík,
Póstur og sími, Rafmagnsveitur
ríkisins, Sementsverksmiðja ríkis-
ins, Akranesi, Vinnslustöðin hf. í
Vestmannaeyjum og Vífílfell hf.
í Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Nýr matsölustaður í Garðinum
Garði.
NÝR matsölustaður, Veitinga-
stofan Ásinn, var opnaður hér
i bænum fyrir nokkrum dögum.
Veitingastofan stendur við
Heiðarbraut og rúmar 60 manns
í sæti.
Eigendur nýja staðarins eru
hjónin Loftveig Sigurgeirsdóttir
og Sveinn Bjömsson. Fyrst um
sinn verður staðurinn opinn frá
morgni til kvölds alla daga vikunn-
ar. Boðið er upp á góðan heimilis-
mat og skyndirétti s.s. hamborg-
ara og samlokur auk þess sem
hægt er að fá kaffi og með því.
Veitingastofan Ásinn er fyrsti
staður sinnar tegundar í Garðin-
um.
Arnór
Fyrsti matsölustaðurinn
SYSTURNAR Rósa og Guðlaug Sveinsdætur í dyrum Veitingastof-
unnar Ássins.
Iðnskólanum í Reykjavík slitið
Útskrifað
FRÁ útskriftarhátíðinni í Hallgrímskirkju. Á fremsta bekk sitja 60
ára útskriftanemendur Iðnskólans.
367 nemendur braut-
skráðust á skólaárinu
IÐNSKÓLANUM í Reylqavík var slitið fimmtudaginn 27. maí.
Athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju- og hófst með forspili Harðar
Áskelssonar orgelleikara.
í ávarpi Ingvars Ásmundssonar,
skólameistara, kom fram að á
haustönn stunduðu 1.590 nemend-
ur nám í dagskóla og 294 kvöld-
skólaeða tæplega 1.900 nemendur
alls. Á vorönn voru 1.694 nemend-
ur í dagskóla og 237 í kvöldskóla.
Á haustönn brautskráðust 119
nemendur og nú á vorönn 248
nemendur eða samtals 367 á
skólaárinu.'
Skólinn fékk sérstaka viður-
kenningu fyrir markvisst vinnu-
vemdarstarf á vinnuverndarári.
Fyrstu skrefín í að innleiða altæka
gæðastjórnun voru stigin á þess-
um vetri og skólinn fékk tilnefn-
ingu til hvatningarverðlauna
Gæðastjórnunarfélags íslands.
Á skólaárinu var nýr hugbúnað-
ur tekinn í notkun við nemenda-
skráningu og stundaskrárgerð.
í sumar munu Iðnskólinn og
Reykjavíkurborg starfrækja sum-
arnám fyrir atvinnulaust fólk á
aldrinum 16-20 ára. Skólameist-
ari minnti á hið alvarlega atvinnu-
leysi og að aðgerða væri þörf í
atvinnumálum.
Bára Hafliðadóttir nemandi í
kjötiðn hlaut verðlaun fyrir bestan
árangur á burtfararprófi. Hún
hlaut einnig verðlaun Landssam-
bands iðnaðarmanna fyrir bestan
námsárangur í löggiltri iðngrein.
Hilmar Viðarsson hlaut verðlaun
fyrir næst bestan árangur á burt-
fararprófí og verðlaun Iðnaðar-
mannafélags Reykjavíkur fyrir
hæstu einkunn samanlagt í teikn-
ingu og ástundun. Verðlaun
Landssambands iðnaðarmanna
fyrir bestan árangur á stúdents-
prófi hlaut Ásgeir Hauksson
tæknistúdent. Verðlaun Meistara-
og verktakasambands byggingar-
manna fyrir bestan árangur á
meistaraprófí hlaut Árni Geir
Snæþórsson. Verðlaun Helga Her-
manns Eiríksson fyrir hæstu ein-
kunn í iðnteikningu vélvirkja á
burtfararprófi hlaut Hafliði Reyn-
isson._ Verðlaun Skýrslutæknifé-
lags íslands fyrir bestan náms-
árangur í tölvugreinum á burtfar-
arprófí hlaut Magnús Kristinsson.
Verðlaun Finns O. Thorlacíussr
fyrir hæstu einkunn í iðnteikningu
húsasmiða á burtfararprófi hlaut
Jónas Þórðarson. Verðlaun fyrir
bestan námsárangur í dönsku á
burtfararprófi hlaut Ingveldur
Elsa Breiðfjörð. Verðlaun fyrir
bestan námsárangur í íslensku á
burtfararprófí hlaut Marta Emelía
Valgeirsdóttir. Verðlaun fyrir
bestan námsárangur í ensku á
burtfararprófí hlaut Haukur Þór
Lúðvíksson. Styrk úr Liðveislu
Sparisjóðanna fyrir góðan náms-
árangur og gott starf að félags-
málum hlaut Arndri Jóhannesson.
í lokaorðum sínum brýndi skóla-
meistari fyrir burtfararnemendum
að vinna öll sín verk vel, temja sér
stundvísi, stuðla að góðu sam-
starfi á vinnustað og góðum
starfsanda. Hann hvatti nemendur
til að huga að frekara námi innan-
lands sem utan. Verðlaunhöfum,
aðstandendum þeirra, gestum og
starfsfólki var boðið í kaffí í Iðn-
skólahúsinu að athöfn lokinni.
(Fréttatilkynning)
★ HSM
Pappírstætarar og pressur
Ýmsar stæröir og gerðir
► Nýtisku hönnun ► Öryggishlíf
► Litaval ►Þýsk tækni og gæöi
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699
|
Farðu í Græöandi
heilsubaö heima
Lækningamáttur saltsins úr Dauðahafinu á gigtar- og húðsjúkdóma hefur veriö þekktur
í hundruð ára og fjölmargir gigtar- og psoriasissjúklingar um allan heim hafa fengið
bót meina sinna með notkun baðsaltsins. Kláði minnkar, húðin styrkist, sársauki í
liðamótum minnkar og sjúklingar eiga auðveldara með svefn. Fyrir aðra er almenn
notkun baðsaltsins hressandi, eykur vellíðan og mýkir húð.
Græöandi fæst hjá Hafnarbakka, í Heilsuhúsinu á Skólavörðustig,
í Kringlunni og í Heilsuhominu á Akureyri.
HAFNARBAKKI
Sérfrteöingar í salti.
Höföabakka 1, 112 Reykjavík
sími 676855Jax 673240
2