Morgunblaðið - 16.06.1993, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993
„ stcxl hver iyftusicáoum faan&'.'
Með
morgrinkaffinu
Finnst þér ekki að ég ætti að
bíða aðeins með að flá höfuð-
leður í fyrsta sinn, pabbi
minn?
Ást er...
A-zo
...að traðka ekki hvor á
tilfinningum annars
TM Reg U.S P.l Ofl.-all rlghu rejerved
• 1993 Los Ange4«s Times Syndicate
Maðurinn minn skilur mig
ekki.
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Að taka svertingja í fóstur
Frá Kristófer Magnússyni:
í Bandaríkjunum eru framin
morð eða vopnum rán með skot-
vopnum á nokkurra mínútna fresti
og fyrir utan hundruð saklausra
manna sem drepin eru árlega hafa
megir af þeirra bestu sonum fallið
fyrir byssukúlum eins og t.d.
Abraham Lincon, Kennedy-bræð-
ur og Martin Luther King. Þrátt
fyrir það telst það til mannréttinda
í Bandaríkjunum að fá að eiga og
ganga með byssu sér til vamar.
Frá Kristínu Sævarsdóttur:
Einkavæðingarárátta sjálfstæð-
ismanna getur tekið á sig ýmsar
myndir. Nýjasta einkavæðingar-
áform þeirra á kostnað almenn-
ings er það hlutafélag sem þeir
ætla að nú að stofna utan um
rekstur Strætisvagna Reykjavík-
ur. Hlutafélagið verður þeirrar ein-
kennilegu náttúru gætt að vera
eingöngu í eigu SVR sem skipar
jafnframt alfarið stjórn fyrirtækis-
ins. Eins og einkavæðingarsinninn
Ellert B. Schram gat um í ágætum
leiðara sínum á dögunum er eina
viti borna ástæðan fýrir þessari
formbreytingu sú að nú eigi að
fara að hækka fargjöld og minnka
þjónustu, en jafnframt vilji meiri-
hlutinn í borgarstjóm geta fírrt
sig allri ábyrgð og kastað henni á
eins konar fyrirtæki úti í bæ.
Einkavæðingarsinnamir eru nú
mjög svo uggandi um orðspor
einkavæðingarstefnunnar. Óttast
þeir að ef drengirnir hans Markús-
ar komi vilja sínum fram muni það
verða svo illa gert að öllum al-
menningi verði ljóst að einkavæð-
ing er iðulega gegn hagsmunum
fólks. Það myndi spilla fyrir fram-
tíðaráformum einkavæðing-
arklúbbsins um einkavæðingu á
stærri og viðkvæmari sviðum, eins
og t.d. í heilsugæslu og mennta-
Ef það er í nafni lýðræðis að al-
menningur eigi byssur þá hlýtur
hið saklausa fólk er deyr fyrir
byssumorðingjum að deyja í nafni
lýðræðisins? Hver era önnur rök
fyrir dauða þeirra? Það er eins
gott að það vora ekki hvalir sem
morðingjarnir vora að drepa.
Hundrað þúsunda manna deyja
árlega vegna morða, pyndinga, í
fangelsum, af sulti og vegna kyn-
þátta- og trúarbragðadeilna. í
sumum ríkjum era meyböm borin
málum. Illa unnar tillögur um
breytt rekstrarform SVR munu
einnig afhjúpa raunveralegan til-
gang einkavæðingar sem er að
þjóna gróðasjónarmiðum á kostn-
að almennings en þó þannig að
allir haldi að um velferðarmálefni
sé að ræða. Ég get vel skilið
áhyggjur manna í einkavæðingar-
klúbbnum og ugglaust hafa þeir
sín áhrif á störf borgarstjómar,
en í þessu klúðurslega máli hafa
aðrir herrar togað í spottana. Telja
má líklegt að þeir sem hagnast á
einkabílismanum og vilja þannig
stuðla að minnkandi almennings-
samgöngum hafi orðið ofan á í
þessu máli. Það versta í þessu
erfíða máli er að fulltrúar þeir sem
almenningur hefur kosið til að
þjóna sínum hagsmunum starfa
ekki í samræmi við það umboð sem
þeim var gefíð og þjóna ekki hags-
munum hins almenna borgara
heldur þeim fjármálaöflum sem
ráða flokksmaskínunni. Fórn-
arlömb þessarar taflmennsku
verða síðan einnig starfsmenn
SVR sem ekki er veitt nein ákvörð-
unaraðild að þessu máli og mega
búa við óöryggi um sína framtíðar-
stöðu.
KRISTÍN SÆVARSDÓTTIR,
Sólvallagötu 48b,
Reykjavík.
út og konur brenndar á báli á
nokkurra klukkutíma fresti, vegna
þess að þær fullnægja ekki þeirri
„skyldu“ sinni að fæða feðranum
son. Ekki era þessum ríkjum hótað
efnahagslegri og stjórnmálalegri
einangran vegna brota sinna, sem
þó hafa skrifað undir mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna.
Af hinum ógeðfeldu hótunum
varaforseta Bandarílq'anna í garð
okkar íslendinga má ráða að hval-
ir era settir ofar mönnum. Ég
veit ekki til að inúítar á Græn-
landi, íslendingar eða Norður-
Norðmenn hafí nokkum tíma
gengið of nærri sela- eða hvala-
stofninum. Það hafa aðrar þjóðir
gert, þar á meðal Bandaríkja-
menn, en í dag teljast Bandaríkja-
menn mestu hvaldráparar heims
(túnfískmenn). Drepa þeir jafnvel
meira en mengunin nær að drepa.
Ef til vill væri skynsamlegt að
reka áróður gegn loftmengun og
mengun sjávar með því að skír-
skota í að slíkt væri óhollt hvölum.
Reynslan sýnir að ekki þýðir að
tala um að slíkt sé óhollt mönnum,
því það er nóg af fólki í heiminum.
Við höfum öll fengið að kynnast
þeim áróðri að fólk taki sér hvali
í fóstur gegn peningagreiðslu og
öll höfum við fengið að kynnast
örbirgðinni í sumum svertingjav-
herfum í Bandaríkjunum í gegnum
bandarískt sjónvarpsefni. Hvernig
væri að við íslendigar tækjum
höndum saman bæði sem einstakl-
ingar og þjóð og gerðumst fóstur-
foreldrar svertingjabama í Banda-
ríkjunum eins og víða er boðið
fram í þróunarríkjum gegn pen-
ingaframlögum, eða era Bandarík-
in orðin svo voldug og við efna-
hagslega bundin þeim að við þor-
um ekki að leggja út í slíka her-
ferð? Allt frá stofnun lýðveldis á
íslandi höfum við vilja líta á
Bandaríkjunum sem okkar helstu
vinaþjóð og við viljum fá að gera
það áfram.
KRISTÓFER MAGNÚSSON,
Breiðvangi 29,
Hafnarfirði.
Einkavæðing S VR
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar
Körfuboltaæði barna og ungl-
inga sem gripið hefur um sig
hér á landi, í tengslum við NBA
körfuboltann í Bandaríkjunum og
fjölmiðlafrásagnir af honum hér á
landi, getur vart hafa farið fram
hjá nokkra mannsbarni á íslandi.
Hver krakki er með derhúfu,
merkta einhverju bandaríska körfu-
boltaliðinu, margir eru í sérmerkt-
um körfuboltaskóm, sem kosta nán-
ast fasteignarverð, hver sem vill
vera krakki með krökkum safnar
körfuboltamyndum og aðaltóm-
stundaiðjan er að skiptast á mynd-
um, safna gullliðum, stórstjörnum
eins og Michael Jordan, Scottie
Pippen, Charles Barkley og Richard
Dumars, svo nefndar séu helstu
stjörnur þeirra tveggja liða sem nú
leika til úrslita í NBA, Chicago
Bulls og Phoenix.
xxx
Skemmtileg saga í þessu sam-
bandi barst Víkverja til eyrna
nú um daginn. Vinur Víkveija var
staddur á bensínsölustöð Skeljungs
og beið eftir því að röðin kæmi að
honum við að borga fyrir bensínið.
Á undan honum vora feðgar tveir
að versla og bað drengurinn föður
sinn um að kaupa nú handa sér
einn pakká af körfuboltamyndum.
Faðirinn lét til leiðast og rétti synin-
um einn pakka. Um leið og hann
hugðist greiða fyrir bensín og
körfuboltamyndir, seildist sá eldri
eftir einum pakka af smokkum,
sjálfsagt í þeirri trú að sonurinn
væri alveg upptekinn af því að
skoða happafeng sinn. Ó, ekki! Sá
ungi snéri sér að pabba og spurði:
„Pabbi, hvað er þetta, sem þú ert
að kaupa?“ Pabbinn hugsaði sig um
eitt andartak og afgreiðslumaður-
inn og vinur Víkverja biðu spenntir
eftir því hvert svar hans yrði: „Þetta
er ég að kaupa, sonur sæll, svo ég
þurfí ekki að kaupa körfubolta-
myndir!" Þetta svar er á við feg-
urstu þriggja stiga körfu, frá vall-
armiðju, ekki satt?
xxx
Raunar fer því fjarri að sá mikli
áhugi sem hér hefur kviknað
á bandaríska körfuboltanum ein-
skorðist við börn og unglinga. Þeir
sem eldri era hafa einnig lagt á sig
vökunætur til þess að fylgjast með
úrslitaleikjunum í beinni útsendingu
á Stöð 2. Reyndar fór fyrsta beina
útsendingin heldur brösulega af
stað, þar sem ekki tókst að miðla
henni til áhorfenda fyrr en um miðj-
an leik, og höfðu þá margir gefíst
upp á biðinni og gengið til sængur.
Þegar fyrsti leikurinn af þremur,
sem fram fara í Chicago, hófst kl.
23 á sunnudagskvöldið, höfðu
áhugamenn um boltann gert sér í
hugarlund, að þar sem leikurinn
hæfíst tveimur tímum fyrr, en
fyrstu tveir gerðu, sem fram fóru
á vesturströnd Bandaríkjanna, þá
lyki honum væntanlega um tveimur
tímum fyrr. Því var það að menn
hikuðu ekki við þá ákvörðun að
vaka yfir þriðja leiknum. En honum
lauk nú samt sem áður ekki fyrr
en klukkan var langt gengin í þrjú,
aðfaranótt mánudagsins, þar sem
hann var framlengdur í þrígang.