Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 43

Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 43' Þið eruð ekki ónytjungar! Opið bréf til bænda Frá Jóhanni M. Haukssyni: Til eru þeir sem segja bændur á íslandi ónytjunga og ómaga á þjóðinni. Þeir benda á að bændur vinni til einskis, að þeir framleiði vöru sem við verðum að kaupa á miklu hærra verði en þörf væri á, ef hún væri keypt annars stað- ar frá. Þannig er lífsafkoma venju- legs fólks mun verri en hún þyrfti að vera, því allir þurfa jú að kaupa í soðið. Ekki nóg með það, heldur þarf að borga með bændastéttinni — fimm og hálfan milljarð á ári — og þá væri betra að vera laus við atvinnugreinina, segja þessir menn. Loks étur búfénaður gróður þess lands sem má síst við slíku, og skilur eftir sig auðn þar sem líf gæti dafnað. Þó allar forsendurnar séu rétt- ar, þ.e. að landbúnaður hér á landi kosti meira en hann gefur af sér, og að gróður landsins hverfi í maga sauðkinda og hrossa, að þannig sé landbúnaður fremur til óþurftar, að þá eru niðurstöðurnar rangar: Það eru ekki þið, bændur, sem eruð ómagar, heldur er það landbúnaðarkerfið sem þið eruð fastir í og komist vart úr, sem er til óþurftar. Það þarf að losna við það, en ekki við ykkur. Það eru engin lögmál til sem segja að landbúnað sé ekki hægt að hafa hagkvæman á íslandi. Það er ekkert lögmál að á honum skuli tapa. Það er hægt að múlbinda allt og alla í reglugerðir þannig að enginn fá sig hrært, þannig að dugmiklir menn fái ei notið sín, þannig að hagkvæmni verði engin. Það er hægt að tapa á fram- leiðslu. Það er hægt að beija alla niður í meðalmennsku. En það er líka hægt að framleiða hér land- búnaðarafurðir á þann hátt að sómi sé að, þannig að framleiðslan gefi af sér og þannig að bændur geti borið höfuðið hátt og sagt: „Ég er bóndi!“ í stað þess að lúta niður og hvísla: „Styrki, styrki!“ Það eru ekki bara þeir sem ég minntist á áðan, sem segja ykkur ómaga, heldur eru það líka stjóm- málamenn og kerfískarlar sem halda því fram að ekki megi breyta landbúnaðarkerfínu, því þá fari bændastéttin á hausinn. Þeir halda að þið séuð ónytjungar og að þið getið ekki staðið á eigin fótum. Það versta er að þið virðist trúa því, þið virðist halda sjálfir að ykkur farnist best í faðmi kerfís- ins, og með styrkjunum, en það er ekki svo. Sannleikurinn er sá að aðeins þeir ríku hafa efni á að sóa og við íslendingar erum ekki lengur ríkir. Við verðum að hætta að sóa, hætta að kasta peningum í þá hít sem landbúnaðarkerfíð er, en nota féð til að létta undir með nýsköpun í atvinnurekstri. En til þess þarf að bylta kerfinu, leyfa fijálsa framleiðslu og gefa stjórnmála- mönnum og kerfiskörlum, og -kerlingum, langt nef. Það eru þeir sem era ónytjungar, ekki þið. Þetta vitum við öll, og þetta þurfum við að horfast í augu við fyrr en seinna. Með hveiju árinu sem líður án þess að við bregð- umst við, verðum við fátækari. Og loks munum við aðeins hafa tvo kosti. Annars vegar þann að skera niður velferðarkerfíð, en það finnst flestum okkar slæmt. Hinn kosturinn er sá að taka erlend lán, sem okkur unga fólkinu fínnst illt því að við munum þurfa að borga, þó gömlum stjórnmálamönnum fínnist kannski ágætt að varpa ábyrgðinni á annarra herðar. Við verðum að bregðast við og breyta kerfínu og það gildir ekki síst um kerfið sem hefur verið byggt upp í kringum ykkur. Það gengur ekki lengur að reka þjóðfé- lagið eins og gert hefur verið hing- að til — við höfum ekki lengur efni á því. Við verðum að hætta að sóa, því annars verður aumt að búa hér. JÓHANN M. HAUKSSON nemi í stjórnmálafræði og heim- speki. Pennavinir Frá Ástralíu skrifar 23 ára karl- maður sem dvaldist á íslandi í fyrra. Skrifar bréf sitt á tiltölulega góðri íslensku og vill skrifast á við íslend- inga annað hvort á ensku eða ís- lensku. Hefur áhuga á tónlist, körfuknattleik, ferðalögum, sögu, tungumálum o.fl.: Steven Bagshaw, 206 Park St., Fitzroy North, 3068, Australia. Sautján ára Tanzaníupiltur með áhuga á bréfaskriftum, kvikmynd- um, dansi og knattspymu: Stephen Ezrah, S.L.P. 676, Moshi, Kilimanjaro, Tanzania. Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka með margvísleg áhugamál og safn- ar póstkortum: Vida Mends, P.O. Box 1183, Cape Coast, Ghana. Fjórtán ára sænsk stúlka með áhuga á sundi, bókalestri og mörgu fleira. Hefur lært svolitla íslensku í skólanum sínum. Á heimilinu eru fímm hundar, þrír kettir og stórt fískabúr: Anna Carlsson, Edskevagen 6, S-813 30 Hofors, Sweden. LEIÐRÉTTIN G AR Nafnið Júníana Lesandi hringdi og benti á að ekki væri rétt að einungis ein kona á íslandi bæri nafnið Júníana, eins og haldið var fram í þættinum Ég heiti... sl. sunnudag. Nefndi les- andinn máli sínu til staðfestingar Þórunni Júníönu Hafstein lögfræð- ing, sem ber nafnið að millinafni. Því er til að svara að viðmælandi þáttarins, Júníana Óttarsdóttir, er sú eina sem ber nafnið sem ein- nefni, eða fyrra nafn, og af því staf- ar fullyrðingin. Eru nöfnur Júníönu og aðrir hlutaðeigandi beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. VELVAKANDI GÓÐ ÞJÓNUSTA í VERSLUNINNIEVU MIG langaði að geta góðrar þjón- ustu í versluninni Evu, Kringl- unni. Ég mátaði og keypti skó nr. 38 en bað afgreiðslustúlkuna að láta mig hafa nýtt par sem ég skoðaði og prófaði án þess að líta á númerið. Eftir að hafa gengið í þeim einn dag, m.a. á malbiki, fannst mér skórnir þröngir og við athugun sá ég að þeir voru númer 37. Ég ræddi málin við ungan, mjög elskulegan mann í versluninni sem strax leysti úr vandanum með því að taka skóna og láta mig hafa annað par nr. 38. Þetta fínnst mér góð þjónusta. Ekki gat ég sannað mistökin en aldrei var dregið í efa að ég færi með rétt mál. Með kveðju og þökk. _ Ásdís GÆLUDÝR Tommi er týndur HANN Tommi er ljósgrábrúnn síamsblendingur með rakaðan blett á bakinu. Hann er ómerkt- ur, býr í Melgerði 9, Reýkjavík, sími 31709. Ef einhver veit af Tomma eða hefur séð hann er hann vinsamlega beðinn að hafa samband. Kettlingur Ég er einkabarnið hennar Tinnu, kallaður „Ruddi“ og er þriggja mánaða fresskettlingur sem leit- ar eftir framtíðarheimili. Með- mæli: Ljúfur, skynsamur og afar hreinlegur. Sími 91-27393. Kettlingnr í óskilum LÍTILL svartur kettlingur, u.þ.b. átta vikna, fannst á bílastæði Útvarpsins við Efstaleiti fimmtu- daginn 10. júní. Upplýsingar í síma 12282 eftir kl. 17. Kettlingar í heimilisleit TVEIR níu vikna svartir og hvít- ir kettlingar, fress og læða, fást gefíns. Mjög skemmtilegir. Upp- lýsingar í síma 681568. TAPAÐ/FUNDIÐ Giant Escaper-hjól fannst BLÁGRÆNT/fjólublátt fjalla- hjól, Giant Escaper, með gulum og bleikum röndum fannst fyrir nokkru. Á hnakkinn var límt ein- angranarlímband, líklega til skrauts. Hjólið er nokkuð laskað. Upplýsingar gefur Guðlaug í síma 46162 eftir kl. 19 á kvöldin. Fótbolti í óskilum FÓTBOLTI er í óskilum í Nóat- úni 29. Á boltann er letrað nafn- ið Logi. Upplýsingar í síma 28702. Gullúr tapaðist í Kringlunni SEIKO-gullúr tapaðist í Kringl- unni sl. föstudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 684766. Hildur. Fjallahjól tapaðist MONGOOSE fjallahjól, hvítt með ýmsum aukahlutum, hvarf úr hjólageymslu á Kleppsvegi í síð- ustu viku. Hafí einhver orðið hjólsins var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 36850 eftir kl. 18 eða láta lögregluna vita. Tveir jakkar töpuðust í RÓSENBERGKJALLARAN- UM töpuðust tveir jakkar þann 4. júní sl. Annar er notaður svart- ur leðuijakki en hinn er nýr brúnn rúskinnsjakki. Upplýs- ingar í síma 24081. f hinni sögufrægu Viðeyjarstofu, „Sfotintl", er rekinn vandaður veitingastaður. Þar svigna borðin undan krásunum, rétt eins og þau gerðu fyrir 20D árum. Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var. Má freista þín með fjögurra rétta sælkeramáltíð fyrir 2.980,- krnónur? Opið fimmtudaga - sunnudaga frákl. 19:00 til 24:00. e)(s> Við bjóðum einnig upp á rjúkandi heitt kaffi og meðlæti í Viðeyjarstofu: fimmtudaga - sunnudaga og í Viðeyjarnausti: mánudaga - miðvikudaga. Opið frá klukkan 14:00 til 16:30. Upplýsingar og borðapantanir í símum 62 19 34 og 6810 45 Nigel Kennedy og hljómsveit. Heimsfrægi og óútreiknanlegi fiðlusnillingurinn, sem sameinar á svo listilegan hátt jass, rokk og klassíska tónlist heldur hér einstæða tónleika. ALÞJÓÐLEC . LISTAHÁTIÐ I HAFNARFIRÐI 4.-50.1UNI LISTIN ERFYRIRALLA! Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86. Aðgöngumiðasala: Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg, « Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.