Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 46

Morgunblaðið - 16.06.1993, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 KORFUKNATTLEIKUR Valur verður ekki með í Vínarborg HANDKNATTLEIKUR / HM 21 ARS LANDSLIÐA „Ótrúleg heppni með okkur“ - segirÞorbergurAðalsteinsson, landsliðsþjálfari. Búið að draga í riðla í HM í Egyptalandi Islenska karlalandsliðið í körfu- knattleik fer til Vínarborgar á föstudaginn til þátttöku í Evrópu- móti landsliða. ísland er í riðli með Austurríki, Úkraníu, Hol- landi, Skotlandi, Litháen og Makedóníu. Tvö efstu liðin kom- ast áfram í milliriðla en þeir riðlar verða leiknir heima og heiman næstu tvö árin. Leikreyndasti landsliðsmaður okkar, Valur Ingimundarson, verður fjarri góðu gamni því hann er meiddur og kemst því ekki með. Torfi Magnússon landsliðs- þjálfari hefur valið Braga Magn- ússon úr Haukum í liðið í hans stað. Bragi er 19 ára gamall, 196 sm hár og hefur ekki verið í lands- liðinu áður. ÍSLENSKA 21 árs landsliðið lenti á „léttari vængnum" þeg- ar dregið var í gær í riðla í heimsmeistarakeppni 21 árs landsliða, sem fer fram í Egyptalandi í september. ís- lendingar leika í riðli með Egyptum, Rúmenum og Grikkj- um í D-riðli. í milliriðli verða keppinautar úr C-riðli, en þar - leika Svíar, Portúgalir, Hollend- ingar og Argentínumenn. orbergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari, var mjög ánægður eftir dráttinn. „Það er ótrúleg heppni með okkur hvernig raðaðist í riðlana. Við sleppum við sterkar þjóðir eins og Spánveija, Dani, Pól- veija, Surður-Kóreumenn, Rússa og Norðmenn." Landsliðin sem leika saman í A- og B-riðli, sem leika síðan saman í milliriðli, eru: ■ BRASILÍSKA landsliði í knatt- spymu stendur í ströngu þessa dag- ana. Liðið mun leika sjö leiki á 20 dögum. Liðið hefur þegar leikið tvo leiki af þremur í Bandaríkjamótinu og leikur gegn Englendingum á sunnudag í sömu keppni. Síðan held- ur liðið til Ekvador til að taka þátt í Ameríkubikamum. Leikur þar gegn Uruguay, Bolivíu, Ekvador og Venezuela. Tvö þessara liða öðlast þátttökurétt á HM í Bandaríkjunum á næsta ári. ■ UWE Bein, landsliðsmaður Þjó- veija, er á leið til Japan. Japanskir fjölmiðlar sögðu frá því i gær að Osaka Gamba hefði boðið Bein , sem er 32 ára, samning við félagið sem leikur í nýstofnaðari úrvalsdeild þar í landi. Liðinu hefur ekki vegnað vel það sem af er keppni, er í næst neðsta sæti. Búist er við að Bein fari til Japan 1. júlí til að skrifa undir samning. ■ FÆREYINGAR leika við Tékka í undankeppni HM á heimavelli sín- um, Tóftum, í kvöld. Færeyingar hafa ekki riðið feitum hesti frá keppninni til þessa. Hafa tapað öllum leikjunum og markatalan er 1:31. Þeir vonast til að skora á heimavelli sínum í fyrsta sinn síðan þeir gerðu l.T jafntefli við Israel í vináttulands- leik í ágúst í fyrra. ■ FRANK Rijkaard er að öllum líkindum á leið til síns gamla félags Ajax í Amsterdam, eftir því sem ítölsk blöð segja. Rijkard hefur leik- ið á miðjunni hjá ítölsku meisturun- um AC Milan en segist vilja hverfa frá stressinu á Ítalíu og leika í vörn- inni hjá Ajax líkt og hann hefur gert að undanförnu með hollenska landsliðinu með ágætum árangri. / 1 A-riðill: Spánn, Danmörk, S- Kórea, Pólland. B-riðill: Rússland, Noregur, Ungveijaland og Alsír. „Opnunarleikurinn verður að öll- um líkinum viðureign okkar gegn Egyptalandi fyrir framan tuttugu og fimm þúsund áhorfendur, en ég reikna með að Egyptar verði hættu- legustu mótheijar okkar í riðla- keppninni. Við komum með að sjá hvar við stöndum í sambandi við Egypta og Portúgala á mótinu sem BYRJUNARLIÐ íslands gegn Ungverjum í landsleiknum á Laugardalsvelli í kvöld verður hið sama og gegn Rússum í síðasta leik. Tvær breytingar hafa verið gerðar á hópnum síðan síðast, Friðrik Friðriks- son og Sigurður Jónsson koma inn í hann í stað Ólafs Gottskálkssonar og Baldurs Bragasonar. w Ibyijunarliðinu eru Birkir Kristinsson, Fram markvörð- ur, varnarmennimir Hlynur Birg- ÓLAFUR Þórðarson leikur sinn fimmtugasta A-landsleik í kvöld á móti Ungverjum. Hann lék sinn fyrsta leik í Þórshöfn í Færeyjum árið 1984, gegn landsliði Færeyja, en liðin skildu þá jöfn 0:0. Ólafur hefur skorað tvö mörk með íslenska landsliðinu, íleikjum gegn Lúx- emborg og A-Þýskalandi. Olafur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að eftirminni- legasti leikurinn væri líklega leikur- inn gegn Sovétmönnum í Moskvu 1989, þar sem íslenska landsliðið náði jafntefli gegn hinu geisisterka liði Sovétmanna. „Það eru úrslitin sem gera þetta auðvitað eftirminni- legt, en þetta var líka einn af skemmtilegri leikjunum sem ég hef leikið,“ sagði Ólafur. Aðspurður sagðist hann stefna á að leika fleiri leiki fyrir íslands hönd, eins lengi og hann hefði getu til. „Mér lýst ágætlega á leikinn gegn Ungveijum. Við reynum að gera okkar besta og ef allir gera það ættum við að geta unnið.“ Aðspurður hvort róðurinn yrði ekki léttari en hann var gegn Rússum í síðasta leik sagði Olafur að það væri sama hvaða lið þeir væru að leika við, þeir þyrftu alltaf að gerá sitt besta til að ná hagstæðum úr- slitum. við tökum þátt í Portúgal í byijun júlí, en þá leikum við gegn þeim,“ sagði Þorbergur. Tuttugu manna landsliðshópur hefur æft grimmt að undanfönu, en í dag fær liðið sex daga frí, en byijar síðan að æfa á ný fyrir Port- úgalsferðina. Liðið tekur síðan þátt í Norðurlandamóti í Noregi í ágúst, en áður jeikur liðið tvo leiki gegn Svíþjóð. íslenska liðið á því að vera vel undirbúið fyrir heimsmeistara- keppnina í Egyptalandi í september. isson Þór, Krislján Jónsson Fram, Guðni Bergsson Tottenham og Izudin Daði Dervic KR, miðju- mennirnir Hlynur Stefánsson Örebro, Ólafur Þórðarson ÍA og Rúnar Kristinsson KR. í fremstu víglínu verða líkt og síðast Arnar Gunnlaugsson Feyenoord og Am- ór Guðjohnsen Hácken á köntun- um og Eyjólfur Sverrisson Stuttg- art. Varamenn verða þeir Friðrik Friðriksson ÍBV, Andri Marteins- son FH, Sigurður Jónsson ÍA, Amar Grétarsson UBK og Har- aldur Ingólfsson ÍA. Morgunblaðið/Þorkell Ólafur Þórðarson A I R IÞR0TTM6M KVEMU 16.-27. JÚNÍ 1993 Umbótanelnd ÍSÍ í kvennaíbróttum Siglingar/róður Siglingaklúbbarnir Siglunes í Nauthólsvík og Kópa- nes v/Vesturvör í Kópavogi bjóða konum ókeypis afnot af bátakosti sínum þessa daga. Kópanes Mánud./föstud. kl. 14-17, fimmtud. kl. 14-22, laugard. kl. 13-16. Siglunes Mánud./miðvikud. kl. 17-19, fimmtud. kl. 17-22, laugard. kl. 13-16. Tennis 16. júní kl. 22.00 - Miðnæturskemmtimót fyrir konur á Þróttarvelli. Tenniskynning \ íþróttahúsi Fjölnis í Grafarvogi verð- ur 21. júní kl. 18-21 og hefst á 20 mín. „tennisleik- fimi“ undir stjórn Ásdísar Ólafsdóttur, leikfimikenn- ara. Leiðbeinendur á þremur völlum. Knattspyrna íslandsmót kvenna 19.-28. júní í 1 deild: 19. júní kl. 14.00 Valsvöllur: Valur - KR Akureyrarvöllur: ÍBA - Stjarnan Neskaupst.: Þróttur N - IBV Akranesvöllur: ÍA r UBK. 23. júní kl. 20.00 Vestmannaeyjar.: ÍBV - Valur KR-völlur: KR - ÍBA Stjörnuvöllur.: Stjarnan - ÍA Kópavogsvöllur: UBK - Þróttur N. 26. júní kl. 14.00 Valsvöllur: Valur - UBK Stjörnuvöllur: Stjarnan - KR Akranesvöllur: ÍA - Þróttur N Akyreyrarvöllur: ÍBA - ÍBV. Auk þess verða leiícir í 2. deild og yngri flokkum. Glíma Tvær glímusýningar kvenna verða 17. júní: Á Laugarvatni kl. 14.00. Á Lækjartorgi kl. 15.00. Golf Opin mót: 17. -20. júní: Stigamót, holukeppni 19. júní: Áfram stelpur 50 óra og eldri 20. júní: Clarins 20. júní: Lacoste, 50 óra og eldri 26. -27. júní: Búnaðarbankamót 27. júní: Valkyrjumót Klúbbamót: Hvaleyrarvelli. Svarfhólsvelli, Selfossi. Húsatóftavelli, Grindavík. Garðavelli, Akranesi. Blönduós/Skagaströnd. Svarfhólsvelli, Selfossi. Grafarholtsvelli. Garðavelli, Akranesi. Vestmannaeyjum. Hólmsvelli, Leiru. Grafarholtsvelli. Hólmsvelli, Leiru. Jaðarsvelli, Akureyri. 18. júní: Baróttumót kvenna 19. júní: Konur í gamni og alvöru 20. júní: Kvennamót 22. júní: Stigamót kvenna 23. júní: Hressar stelpur 26. júní: Annettumót 27. júní: Hatta- og pilsamót Einnig eru allir klúbbar landsins tilbúnir til að taka vel á móti þeim konum, sem vilja kynna sér golf- íþróttina. Kvennahlaup ÍSÍ Kvennahlaup ÍSÍ fer fram 19. júní. Hlaupið verður á yfir 50 stöðum á landinu, en aðalhlaupið verður í Garðabæ að venju og hefst kl. 14.00. Þolfiminefnd FSÍ sér um upphitun og teygjur fyrir og eftir hlaup í Garðabæ. Fimleikar Konur í Hressingarleikfimi Ástbjargar Gunnarsdóttur og tvær þolfimistúlkur úr Hress, Hafnarfirði, verða með stutt sýningaratriði í Garðabæ 19. júní kl. 13.30 áður en upphitun hefst fyrir Kvennahlaup ÍSÍ. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Sama byijunarlid og gegn Rússum KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Þurfum alltaf að gera okkar besta -segir Ólafur Þórðarson sem leikursinn 50. landsleik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.