Morgunblaðið - 29.06.1993, Page 40
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ um skerðingu á veiðiheimildum
Fokker í leign
EIN af nýju Fokkervélum Flug-
leiða skemmdist í skoðun hjá
austurrísku félagi sem hefur
hana á leigu.
Fokker
skemmdist
við skoð-
uní Vín
VALDÍS, nýjasta Fokkervél
Flugleiða, skemmdist við skoðun
í einu flugskýla Austrian Airlines
í Vin í Austurríki. Austurriska
flugfélagið hefur Valdísi á leigu
til 19. september og að sögn
Leifs Magnússonar fram-
kvæmdastjóra flugrekstrarsviðs
Flugleiða munu Flugleiðir ekki
bera skaða af þessu Ijóni þar sem
hið austurríska félag tók yfir
tryggingar á vélinni meðan á
leigu stendur.
Ohapp þetta átti sér stað í gær-
morgun en í dag fer maður frá Flug-
leiðum til Vínar til að fylgjast með
framgangi málsins þar og fulltrúar
frá Fokkerverksmiðjunum í Hol-
landi eru einnig á leið á staðinn.
Lagðist á hliðina
Að sögn Kristins Hallgrímssonar,
forstöðumanns viðhalds-og verk-
fræðideildar Flugleiða, höfðu þeim
ekki borist ítarlegar upplýsingar um
óhappið en það sem þeir vissu var
áð verið var að skipta um bremsur
á öðru hjóli vélarinnar þegar tjakk-
ur virðist hafa gefið sig með þeim
afleiðingum að hún lagðist á hliðina
og annar vængur hennar lagðist
ofan á vinnupall.
Aðspurður hvort um mikið tjón
væri að ræða sagði Kristinn að
hann gæti ekki tjáð sig um það að
svo stöddu þar sem þeir hefðu enn
svo litlar upplýsingar fengið um
óhappið.
Mörg skip óútgerðarhæf,
nauðsyn á betri nýtingn
SKERÐING aflaheimilda á næsta ári kallar á að útgerðarmenn reyni
að sameina veiðiheimildir og nýti skipin betur, segir Kristján Ragpi-
arsson formaður Landssambands ísl. útvegsmanna m.a. í samtali við
Morgunblaðið. Hann segist telja að mörg skip verði óútgerðarhæf
eftir þetta og harmar að ekki skuli hafa verið hækkuð heimild til
úreldingarstyrkja úr Hagræðingarsjóði þar sem útgerðin hefur sjálf
lagt til 500 milljónir á undanförnum árum en það gæfi mönnum nú
nýtt tækifæri til að hverfa frá útgerð ef þeir kysu að gera það.
Morgunblaoio/Svemr
Bjargað af hafsbotni
SKEMMTIBÁTNUM Tjaldi II var bjargað í gær af hafsbotni. Hann
sökk 24. apríl undan Geldinganesi og björguðu bátsveijar sér með því
að synda í land. Einn þeirra, Sófus Auðun Sigþórsson, fylgist með er
Tj aldi var lyft á vörubílspall við Gufunes í gær.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, segir að menn hafi staðið
frammi fyrir ákveðnum staðreynd-
um; annars vegar hafi verið talið
nauðsynlegt að draga afla mjög
mikið saman og á sama tíma hafi
verð á erlendum mörkuðum lækkað
og sé sögulega séð mjög lágt. Hann
sagði að þurft hefði að gera þrennt
til að bregðast við þessu: „Það þurfti
að stuðla að því að sjávarútvegurinn
gæti mætt þessari stöðu, laga efna-
hagslífið í landinu að breyttum sam-
eiginlegum tekjum og að fleyta sér
fram um nokkur ár, í þeirri von að
þessar miklu verndaraðgerðir í sjáv-
arafla beri árangur, eins og vísindin
segja okkur að gæti gerzt.“
Þrátt fýrir umtalsverðan nið-
urskurð á þorskafla telur Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, að ekki
sé nóg að gert til vemdunar físki-
stofnanna og að í framhaldi af
þessu þyrfti að taka ákvörðun um
að loka ákveðnum uppeldissvæðum
þorsks til að koma í veg fyrir smá-
fískadráp. Hafrannsóknastofnun
lagði til að stefnt verði að uppbygg-
ingu þorskstofnsins og að aflinn
færi ekki fram úr 150 þúsund tonn-
um fískveiðiárið 1993-1994. Að
sögn Jakobs Jakobssonar, forstjóra
Hafrannsóknastofnunar, var við
það miðað að þorskveiðistofn fjög-
urra ára físks og eldri myndi ekki
minnka næstu tvö ár. „Allt sem er
fram yfír okkar tillögur verður þá
væntanlega til þess að veiðistofninn
muni minnka sem því nemur á
næstu tveimur árum,“ segir Jakob.
Helstu atriði efnahagsaðgerða
ríkisstjómarinnar eru eftirfarandi:
• Samkvæmt ákvörðun sjávarút-
vegsráðherra má gera ráð fyrir að
þorskafli á næsta fískveiðiári verði
165 þúsund lestir samanborið við
um 230 þúsund lestir á yfirstand-
andi fískveiðiári.
•Gengi krónunnar lækkað um
7,5%.
• Frumvarp til laga um stofnun
Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verð-
ur lagt fyrir strax í upphafi þings.
•Til að jafna mismunandi áhrif
aflaskerðingar á útgerðarfyrirtæki
verður aflaheimildum Hagræðing-
arsjóðs ráðstafað með sama hætti
og í vor.
• Skipuð verður nefnd sérfræðinga
til að kanna vaxtamyndun á láns-
fjármarkaði.
•Afborganir af lánum Atvinnu-
tryggingadeildar Byggðastofnunar
verða færðar aftur fyrir aðrar af-
borganir og lánstími lánanna lengd-
ur um 4 ár. Einnig er athugað með
skuldbreytingar hjá Fiskveiðasjóði,
Byggðastofnun. og Ríkisábyrgða-
sjóði.
Greiðslubyrði minnkar
Ríkisstjómin áætlar að frestun
afborgana af lánum muni minnka
greiðslubyrði fyrirtækja í sjávarút-
vegi um 1.800 til 2.000 milljónir
hvort ár, 1994 og 1995. Áætlað er
að frestun afborgana í Atvinnu-
tryggingadeild nemi um 800 millj.
kr. á hvoru ári. Þá er rætt um að
heimilt verði að breyta helmingi
afborgana af lánum hjá Fiskveiða-
sjóði með þessum hætti en það er
talið kosta sjóðinn 1.200 til 1.400
milljónir kr. á hvoru ári um sig.
Þá verða skuldbreytingar lána hjá
Byggðastofnun og í Ríkisábyrgða-
sjóði einnig athugaðar í þessu sam-
hengi.
Sjá einnig bls. 2, 14, 15, 16,
miðopnu og 39.
Gert er ráð fyrir að framfærsluvísitalan hækki um 4 prósent
Flugfarseðlar, bensín og
bílar hækka á næstunni
SAMKVÆMT forsendum Þjóðhagsstofnunar
er reiknað með að kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á mann verði um 4% minni árið 1994
en á þessu ári. Nokkuð skiptar skoðanir eru
"•pó á því hvaða áhrif gengislækkunin kemur
til með að hafa á verðlag og telur hagfræð-
ingur Verslunarráðs íslands, Jóhann Þor-
varðarson, að vegna samdráttar í hagkerfinu
sé ekki víst að gengisfelling krónunnar velti
af fullum þunga út í verðlagið. Nokkrar
vörutegundir munu hækka strax á næstu
dögum og þar má nefna bíla, bensín og flug-
_ farseðla.
Að sögn forsvarsmanna bílaumboða mun verð
á bílum óhjákvæmilega hækka í kjölfar gengis-
lækkunarinnar. Heimildarmenn Morgunblaðsins
nefndu hækkun á bilinu 6-9%.
Forsvarsmenn olíufélaganna eru nú að kanna
áhrif gengislækkunarinnar á eldsneytisverð og
að sögn þeirra er ljóst að einhver hækkun verð-
ur á eldsneyti á næstunni. Forstjóri Skeljungs,
Kristinn Björnsson, sagði að sér þætti ekki
ósennilegt að áhrif gengislækkunarinnar á elds-
neytisverð yrðu svipuð og almenn áhrif hennar,
eða um 8%.
4% hækkun á millilandaflugi
Flugleiðir hafa sótt um 4% fargjaldahækkun
í millilandaflugi sínu frá og með 1. júlí nk. Ein-
hver hækkun verður einnig á innanlandsflugi.
Einar Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða,
sagði í gær ekki ljóst hversu mikil hækkunin á
innanlandsfluginu yrði en það myndi væntanlega
skýrast í dag, þriðjudag.
Visa miðar við eldra gengi
Visa Island mun væntanlega reikna erlendar
úttektir korthafa það sem af er þessu kortatíma-
bili, þ.e. frá 18.-28. júní, miðað við gengið eins
og það var fyrir gengislækkunina. Kreditkort
hf. miða sína útreikninga hins vegar alltaf við
gengi 17. hvers mánaðar og verður öll erlend
úttekt á þessu kortatímabili því miðuð við gengi
17. júlí nk.
Guðni Bergs
áfram hjá
Tottenham
GUÐNI Bergsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spymu, hefur skrifað undir
þriggja mánaða samning við
enska félagið Tottenham sem
hann hefur leikið með undan-
farin ár. Hann mun því ekki
leika með Val í l. deildinni í
sumar eins og hann hafði
stefnt að.
Guðni ræddi við Ossie Ardi-
les, nýráðinn framkvæmda-
stjóra Tottenham fyrir helg-
ina, og lýsti Ardiles yfír áhuga
á að hafa hann áfram hjá fé-
laginu.
Sjá Cl: „Guðni áfram...“