Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
5
Athugim á
framleiðslu
hundabeina
Markaðskannanir
virðast lofa góðu
VERKEFNISSTJÓRN á vegum
Hveragerðisbæjar mun á næst-
unni kanna markað erlendis
fyrir framleiðslu á gervibeinum
fyrir hunda. Hugvitsmenn í
Reykjavík kynntu þessa hug-
mynd fyrir bæjaryfirvöldum
fyrir nokkru og virðist vera
grundvöllur fyrir þessum út-
flutningi. í athugun er að 10
manns fái vinnu við fyrirtækið
í fyrsta áfanga en stofnkostnað-
ur er áætlaður á bilinu 6 til 10
milljónir. Frá þessu var greint
í Sunnlenska fréttablaðinu fyrir
skömmu.
Að sögn Hallgríms Guðmunds-
sonar, bæjarstjóra í Hveragerði,
mun verkefnisstjórn á vegum bæj-
arins yfirfara verkefnið og er
áætlað að það taki 8 til 12 vikur.
Ef framleiðsla reynist vænleg
verða gerðar fumgerðir að gervi-
beinunum og þær sendar dreif-
ingaraðilum erlendis. Verði undir-
tektir góðar er ekkert að vanbún-
aði að hefja framleiðslu á beinun-
um í nokkuð stórum stíl.
Endingarbetri og þrifalegri
Gervibeinin eru gerð úr kaðli
með plasthnúðum á endunum og
eru bragðbætt með kjötkrafti. Eru
þessi gervibéin talin endingarbetri
og þrifalegri en þau sem fyrir eru
á markaðinum. Beinin eru einnig
ætluð fyrir ketti, framleidd hafa
verið nokkur prufueintök sem hafa
líkað vel. Ætlunin er að selja bein-
in úr landi og lofa markaðsathug-
anir, sem gerðar hafa verið, góðu.
Atvinnuleysistryggingasjóður
hefur samþykkt að greiða laun 10
starfsmanna í sex mánuði með því
skilyrði að fyrirtækið hefji starf-
semi á þessu ári. Hveragerðisbær
mun ekki verða hluthafi í fyrirtæk-
inu til lengri tíma en mun styðja
það í upphafi ef af stofnun verð-
ur. Áætlað er að stofnkostnaður
verði 6 til 10 milljónir króna.
Katla í ró
LÍTIL skjálftavirkni hefur
mælst í Kötlu frá því að
nokkur hrina mældist að-
faranótt mánudags. Að sögn
Ragnars Stefánssonar, jarð-
eðlisfræðings, mældust smá-
skjálftar um hádegi á þriðju-
dag, en líkur minnka eftir
þar sem frá líður, á að gos
sé í uppsiglingu.
Ragnar sagði engar álykt-
anir hægt að draga nema þær,
að sú skjálftavirkni væri í
hjöðnun sem byrjaði hefði afar-
arnótt mánudags. „Hins vegar
er ekkert hægt að segja hvort
þetta tekur sig upp aftur —
það getur gerst eftir stuttan
tíma, en eftir því sem líða tek-
ur frá skjálftunum á mánu-
dagsmorgnuninn minnka lík-
urnar að þetta sé byijun á ein-
hverju.“
i.Titad,Aiw Acúr ws vwota
íHAH^SAICIJÍFIIll ;
NIEYOAROIJ'
Íí EiYÐ'lMÖRK
TV«.R%riVlllhlC®5Sl
MYRTI M^SaN I
G'KlsCi:. PRINSESSU? j f
WEMS»SUV R*6Í5ÍNÍH!
vm HllfflESl
»srw hssik mmk
nj :4Eís:4i-3l! J-íÆ
.
ÓTRÚLEGAR
SÖGUR AF
HELGA BJÖRNS
ISLENSKY SAKAP/iÁl
A ClúMSMIiSKfcTiHDHJSIMI
C.REIRSlUK0iRT2*!-ZiF*C/lúKi
TIMARIT SEM
VEKJA ATHYGLI
CMÍGELSl
SKOPPADI
EINS OG
BOLTI AF
KVIDNUM
IW6ÍWKJS m wimcsm íí
VfifiCAN í JAÍULNÖ
MfifmiQNUIIUÍJIHUI
á ŒisíiPsmBwm.
OOMIfJIQUFWDYNET:
UNG, GREIND
OG „GRÆ.N"
L -u'íímM1':
iF