Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
Nýr vegur í Oxna-
dal tekinn í notkun
í DAG verður tekinn í notkun nýr vegkafli með bundnu slitlagi frá
Engimýri að Bakkaseli í Öxnadal. Áætlað er að nýr vegur um Bakka-
selsbrekku verði tilbúinn til notkunar um miðjan október. Vegagerð
milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar gengur afar hægt. Framkvæmdir eru
að hefjast i vegabótum í Mývatnssveit og austan Námaskarðs.
-------------------- Halldór Blöndal samgönguráð-
Orgel á Sum-
artónleikum
FIMMTA og síðasta tónleikaröð
Sumartónleika á Norðurlandi á
þessu sumri verður nú um helg-
ina á Húsavík, í Ólafsfirði og á
Akureyri. Um er að ræða orgel-
tónleika norður-norska organ-
istans Björn Andor Drage.
Bjöm Andor Drage nam org-
anleik við Tónlistarháskólann í
Osló og varð að námi loknu 1984
lektor í organleik og kirkjutónlist
við Tónlistarháskólann í Þránd-
heimi. Árið 1989 varð hann dó-
morganisti í Bodö og kennir auk
þess við Tónlistarháskólann í
Tromsö.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Grieg, Buxtehude, Baeh,
Vieme og Widor.
Fyrstu tónleikamir verða í
Húsavíkurkirkju föstudag 30. júlí
kl. 20.30. Aðrir tónleikamir verða
í Ólafsfiarðarkirkju kl. 16 laugar-
daginn 31. júlí. Síðustu tónleik-
amir á Sumartónleikum á þessu
sumri verða svo í Akureyrarkirkju
klukkan 17 á sunnudag. Þetta eru
jafnframt hundmðustu sumartón-
leikamir síðan þeir hófust 1987.
herra mun vígja hinn nýja vegkafla
í Öxnadal með því að aka um 'hann
fyrstur manna klukkan 16 í dag.
Um er að ræða 11,5 kílómetra kafla
með tvöfaldri klæðningu og bik-
festu, aðferðum sem verið er að
reyna hér í fyrsta sinn.
Sigurður Oddsson hjá Vegagerð
ríkisins á Akureyri sagði að í fram-
haldi af þessum nýja kafla væri
Hagvirki-Klettur að vinna að 3,4
km kafla þar sem nýr og betri veg-
ur kæmi í stað Bakkaselsbrekkunn-
ar. Þegar því yrði lokið um miðjan
október stæðu eftir 1,7 kílómetrar
að sýslumörkunum við Gijótá og
vonandi yrði því verki lokið á næsta
sumri. Handan sýslumarka er svo
unnið að því að ljúka vegagerð af
heiðinni niður í Norðurárdal.
Hægagangur við
ÓlafsQarðarveg
Sigurður sagði að ætlunin hefði
verið í haust að ljúka við að leggja
slitlag og ganga frá vegi norðan
Dalvíkur en verktaki þar hefði skil-
að afar litlum afköstum, væri að
minnsta kosti einum ef ekki tveimur
mánuðum á eftir áætlun. Fyrir-
sjáanlegt væri að ekki yrði unnt
að leggja slitlag á nema þriðjung
vegarins fyrir haustið.
Skátarnir í Kjarnaskógi bjóða veðrinu byrginn
Morgunblaðið/Golli
Skátar í Kjarnaskógi
REGNGALLAR eru rétti klæðnaðurinn við vætusamt
starf eins og uppvaskið vill oft verða.
Með bros á vör
í suddanum
VEÐRIÐ hefur ekki leikið við skátana á lands-
móti þeirra í Kjarnaskógi. Svolítið hefur þurft
að hagræða dagskrá vegna kuldans og rign-
ingarinnar en skátarnir eru vel búnir til að
takast á við verk sín í veðri eins og þessu.
Að sögn Ásgeirs Hreiðarssonar, upplýsinga-
fulltrúa mótsins, varð að breyta Akureyrardag-
skrá skátanna svolítið. í stað þess að skátamir
glóðarsteiktu sér mat á torginu fengu þeir að-
stöðu til að matast í anddyri fþróttahallarinnar.
Vatnaveröldin við Leirutjöm hefur verið ein-
földuð til þess að skátarnir lendi ekki í of mik-
illi bleytu og kulda.
Mótsstjórn hefur gripið til ýmissa ráða til að
gera lífið í Kjamaskógi léttara í norðlenska sumr-
inu. Meðal annars hefur verið komið upp hitablás-
urum í hlöðu þar sem skátar geta þurrkað föt
sín og annað. Annars sagði Ásgeir að það vefð-
ist ekki fyrir skátum að bregðast við kulda og
bleytu. Á svæðinu væri ríkjandi gleði og gaman.
Gengið væri til dagskrár og þess notið sem njóta
mætti. Hins vegar væri því ekki að leyna að það
yrði afskaplega skemmtilegt að fá fallegan sól-
skinsdag í skóginum svona fyrir mótslokin.
Benedikt Davíðsson á fundi með stéttarfélögum
Alþýðusambandíð ráð-
stafaði ekki ríkisfénu
GÓÐIR LEÐURJAKKAR
BENEDIKT Davíðsson forseti
Alþýðusambands íslands kom til
fundar við fulltrúa stéttarfélaga
á Akureyri í fyrrakvöld. Þar var
rætt um fjárveitingu ríkissljórn-
arinnar til atvinnuskapandi verk-
efna og þátt Alþýðusambandsins
í því máli. Fram kom á fundinum
að áherslu bæri að leggja á að
drjúgum hluta þess sem óráðstaf-
að er af fénu verði varið til að
bæta atvinnuástandið á Akureyri
og þörf væri á miklu meira fé til
þessara mála en þeim milljarði
sem um ræðir. Næstu skref stétt-
arfélaganna eru að koma af stað
starfi í samráðshópi þeirra, þing-
manna kjördæmisins og bæjaryf-
irvalda til að knýja á um úrbætur
í atvinnumálum.
Að sögn Guðmundar Óla Guð-
mundssonar hjá Félagi byggingar-
manna kom fram í máli Benedikts
á fundinum að þáttur Alþýðusam-
bandsins í þessum málum hefði fyrst
og fremst verið að knýja á um að
ríkisstjórnin verði einum milljarði til
atvinnuskapandi verkefna til viðbót-
ar því sem kveðið hefði verið á um
í fjárlögum. Alþýðusambandið ætti
á hinn bóginn ekki þátt í því hvern-
ig eða til hvaða einstakra verkefna
fé hefði verið veitt. Ljóst væri á
þeim lista sem þegar hefði verið birt-
ur að miklum hluta upphæðarinnar
væri varið til verkefna, aðallega á
Reykjavikursvæðinu, en auk þess
nokkru til ákveðinna verkefna úti á
landi. Eftir stæði að um 42% upp-
hæðarinnar væri enn ekki endanlega
ráðstafað, en ættu að renna að
mestu til framkvæmda á vegum
menntamála- og heilbrigðisráðu--
neyta og ef til vill væri í valdi þeirra
eða ráðherra þeirra að útdeila þessu
fé til tiltekinna verkefna.
Vafasöm röksemdafærsla
Guðmundur Óli sagði að ein rök-
semda sem heyrst hefði fyrir því að
meginhluti fyár á lista ríkisstjóm-
arinnar var eyrnamerktur fram-
kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu
væri sú að landsbyggðin væri búin
að fá sitt, á síðasta ári hefði verið
ákveðið sérstakt framkvæmdaátak í
vegagerð, einn milljarður og 550
þúsund, og því ráðstafað til vegagerð-
ar víða úti um land. Það segði hins
vegar ekkert um það hvert pening-
amir á endanum rynnu. Ljóst væri
að verktakar á höfuðborgarsvæðinu
mannaðir starfsmönnum þaðan ynnu
að mörgum stærstu verkefnum í
vegagerð á landsbyggðinni, til dæmis
Hagvirki-Klettur í Hafnarfirði á
Öxnadalsheiði. Þannig fæm fjárveit-
ingar af þessu tagi í mörgum tilfellum
ekki nema að hluta til landsbyggðar-
innar heldur aðallega suður.
Næg verkefni og brýn hér um
slóðir
Guðmundur Óli sagði að mjög
mikil verkefni og bfyn væru hér á
Akureyri, sem vonast væri til að fé
yrði veitt til, bæði á vegum mennta-
málaráðuneytis og heilbrigðismála-
ráðuneytis. Næsta skref í baráttunni
fyrir að knýja á lagfæringar í at-
vinnumálum væri að koma af stað
starfi samstarfshóps stéttarfélaga,
þingmanna og bæjaryfirvalda, sem
ákveðið var að stofna til um síðustu
helgi.
AK.uré,yri
■Fimmtudagur 29. júlí
íslenskur dagur í Blómahús-
inu. Kvölddagskrá klukkan 21
með dansi, harmonikuleik og
upplestri.
■Verslunarmannahelgin
Fjölþætt dagskrá fjölskyldu-
hátíðarinnar Halló Akureyri
frá föstudegi til mánudags.
Nánar tilgreind í auglýsingum,
kynningarbæklingi og útvarpi
Halló Akureyri á FM 98.7.
■ Á SÍLDARÆVINTÝRINU á
Siglufirði um verslunarmanna-
helgina verður ms. Fjörunes í
skemmtisiglingum, en þær voru á
hátíðinni í fyrra og þóttu takast
vel. Um borð verður boðið upp á
ýmislegt til skemmtunar og þar
verða boðnar léttar veitingar.