Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 15
fi('MDSGtJKÉLAÐIÐ JBRIÐJUIM6UHCLfi.] ÍÁJSÖSS 01093 H5 þó skal minnt á að öllum ungum sjálfstæðismönnum er fijálst að sækja þingið og taka þátt í öðrum störfum þess en kosningum þrátt fyrir að þeir hafi ekki verið valdir þingfulltrúar að þessu sinni. Stjórnin harmar að reynt hafi ver- ið að gera fullkomlega löglegt full- trúaval stjórnar Heimdallar tor- tryggilegt með vafasömum stað- hæfingum og árásum á borð við þær sem hafa komið fram í fjöl- miðlum um helgina. Slík umfjöllun er afar óheppileg fyrir Samband ungra sjálfstæðismanna og flokk- inn í heild. Stjórnin á erfitt með að trúa því að aðförin gegn henni sé þaulskipulögð af stuðnings- mönnum Guðlaugs Þ. enda taka aðeins fáir þeirra þátt í henni. Líklegra er að hinar hörðu ásakan- ir í fjölmiðlum séu vanhugsað frumhlaup nokkurra einstaklinga sem örvænting hefur náð tökum á og verður því ekki trúað að slík vinnubrögð séu líkleg til árangurs í kosningabaráttunni fyrir SUS- þingið um næstu helgi. Stöndum saman Stjórn Heimdallar hvetur unga sjálfstæðismenn til að forðast að ráðast hveijir á aðra á opinberum vettvangi enda hafa slíkar deilur ávallt verið óvinafögnuður hinn mesti. Vilji almennir félagsmenn ræða málefni félagsins eru stjórnarmenn í Heimdalli reiðu- búnir nú sem endranær að hitta þá yfir kaffísopa á skrifstofu fé- lagsins í Valhöll við Háaleitis- braut. Að lokum hvetur Heimdall- arstjórnin Heimdellinga og aðra unga sjálfstæðismenn um land allt að taka virkan þátt í störfum SUS-þingsins á Selfossi og í Hveragerði um næstu helgi og láta málefnin ráða hvort sem um er að ræða málefnastarf eða kosn- ingar í trúnaðarstöður. Mikilvæg- ast er þó að góð sátt náist um niðurstöðu kosninganna og ungir sjálfstæðismenn gangi sameinaðir af þingi hver sem úrslitin verða. Blað Kvenna- athvarfsins komið út ÚT ER komið fréttablað Sam- taka um kvennaathvarf. í blað- inu eru greinar, viðtöl og margs konar fróðleikur um kvennaat- hvarfið og starfsemi þess. Meðal greinahöfunda eru séra Solveig Lára Guðmundsdóttir sem er prestur kvennaathvarfsins, Ragnheiður Indriðadóttir, sálfræð- ingur, Guðrún Ágústsdóttir, upp- lýsinga- og kynningarfulltrúi kvennaathvarfsins og Jenný Anna Baldursdóttir, vaktkona. í blaðinu eru viðtöl um kvennaat- hvarfíð og starfsemi þess. Birt er viðtal við eina dvalarkvennanna um aðdragandann að dvöl hennar, við Áslaugu Friðriksdóttur fyrrv. skólastjóra um skóla athvarfsins þar sem Áslaug kennir og sagt er sérstaklega frá barnastarfinu með grein eftir barnastarfsmanninn Dí- önu Sigurðardóttur og heitir grein- in Mánudagur á miðjum vetri. Birtar eru teikningar eftir börn sem dvalist hafa í athvarfinu með mæðrum sínum. Á árinu 1993 hafa fleiri konur og börn komið í athvarfið en nokkru sinni fyrr á þeim tæplega 11 árum sem athvarfið hefur starfað. HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SfMI 671010 GARÐAPANILL Ný falleg viðhaldsfrí húsWæðning! Héðinn Garðastál hefur hafið framleiðslu á nýrri viðhaldsfrírri panilklæðningu úr stáli með PVC-húð, klæðningin nefnist GARÐAPANILL. Garðapanillinn er auðveldur í uppsetningu, samsetningar eru þéttar og festingar faldar. Hann er framleiddur í þrem stöðluðum breiddum en lengdir eru eftir óskum kaupenda, allir íylgihlutir fást í söludeild. Hvort sem þú ert með íbúðar- eða iðnaðarhúsnæði, nýtt eða gamalt þá er GARÐAPANILL ódýr og hagkvæm lausn á klæðningu bæði úti og inni. Kynntu þér þessa íslensku hönnun og framleiöslu á syningarstandi í verksmiöju okkar. = HÉÐINN = GARÐASTÁL STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000 m m M m m m m m m m m m m k m m m RÐEINS DRFfllR FRRBERU VERÐI HYUNDAI bílarnir hafa sannarlega tekið fram úr á íslandi og eru nú meðal fjórðu mest seldu bílunum á markaðinum. Næstu daga bjóðum við til sölu þá örfáu HYUNDAI PONY sem við eigum eftir af '93 árgerðinni, á frábæru verði. Nýtið ykkur tækifærið núna! HYUNDAI - LÁGT VERÐ - HÁn ENDURSÖLUVERÐ HYunoni Opið á laugardögum frá kl. 10:00 til 16:00 ...tilframtíðar BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. • ármúla 13 • SÍML 68 12 00 • beinn síml 3 12 36 ARGUS / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.