Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 20
20 -------— MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993 Almenningi boðið að skoða sali Buckingham-hallar í fyrsta skipti í 230 ár Minni aðsókn en vonast var eftir London. Reuter. The Daily Telegraph. FYRSTI dagurinn sem Buckingham-höll í London var opin al- menningi einkenndist af vonbrigðum. Yfirmenn hallarinnar höfðu búist að þegar dyr hennar yrðu opnaðar myndu þúsundir manna streyma inn hina glæstu sali hennar. Raunin varð hins vegar önnur. Einungis 900 manns stóðu í biðröðinni, sem hafði mynd- ast fyrir utan, klukkan níu síðastliðinn laugardagsmorgun. Emb- ættismenn höfðu vonast til að 7.500 gestir kæmu daglega. Þegar hliðum Buckingham-hallar var lokað á ný síðdegis á laugardag höfðu 4.314 borgað þær tæplega átta hundruð krónur (ódýrara fyrir börn og ellilífeyrisþega), sem inna verður af hendi í aðgangs- eyri, og renna til viðgerða á Windsor-kastala, sem brann í fyrra. Var hinn mikli kostnaður við uppbyggingu Windsor ástæða þess að Bretadrottning ákvað að opna höllina. Aðeins fleiri gestir komu á sunnudaginn, eða 5.202, ekki síst vegna frétta af stuttum biðröðum daginn áður, og var heildarfjöldi helgarinnar því rétt rúmlega 9.500. Þrátt fyrir að talsmenn Bucking- ham-hallar vísi því á bug að þetta hafi valdið vonbrigðum og segja að talan 7.500 hafi verið hámarks- fjöldi gesta, sem hægt væri að taka á móti en ekki markmið, get- ur konungsfjölskyldan vart talist ánægð. Má þess geta til saman- burðar að fjöidi gesta í Madame Tussaud-vaxmyndasafninu um helgina var 20 þúsund. Gestirnir eyddu líka mun meiri tíma í höllinni, en gert hafði verið ráð fyrir, og hefur verið ákveðið að selja ekki fleiri 4.500 miða héð- an í frá til að forðast þrengsli í hinum konunglegu vistarverum. Sala á gjafavörum fór hins veg- ar fram úr björtustu vonum og eyddu flestir hallargestir miklum tíma í minjagripabúðinni, þar sem m.a. er boðið upp á tebolla, silki- bindi og kristalsglös með myndum af konungsfjölskyldunni og „krýn- ingarsúkkulaði". Nemur sala slíkra muna nú um 3,5 milljónum króna á dag sem er nokkuð hærra en tekjur af aðgangseyri. Er einn jap- anskur gestur sagður hafa eytt rúmlega hundrað þúsund krónum í alls konar minjagripi um helgina. „Herfileg höll“ íburður er gífurlegur í Bucking- ham-höll en skiptar skoðanir eru á því hversu smekklegar séu. Hafa blaðamenn margra virtustu blaða Bretlands, sem fengu að skoða höllina áður en hún var opnuð al- menningi, verið óragir við að láta slíkar skoðanir í ljós. Kallaði einn innviði hallarinnar „sjónræna mar- tröð“. Núverandi útlit Bucking- ham-hallar má rekja til þriðja ára- tugs síðustu aldar er hún var gerð upp undir stjórn arkitektsins Johns Nash. Richard Dorment, listagagnrýn- andi The Daily Telegraph, segir þannig að hallir gerist varla til- komumeiri en Buckingham-höll, þar sem er að finna risastóra salj, þykka gullramma utan um lista- verk, silkiveggteppi, kristallkrón- ur, útskorin húsgögn og kílómetra eftir kílómetra af rauðum teppum. Buckingham-höll sé hins vegar einnig „herfilegri en orð fá lýst“. Skærum litum ægi saman og hús- gögnin séu samblanda frá ólíkleg- ustu tímabilum. Þrátt fyrir allan íburðinn kemst að mati Dorments ekkert herbergi í Buckingham-höII í hálfkvisti við t.d. Windsor-kastala hvað glæsileika varðar. Listaverkin, sem hanga á veggj- unum, séu hins vegar stórfengleg og sé það ekki síst að þakka Ge- org IV, sem þótti mjög örlátur á fé er listin var annars vegar. Gefur listagagnrýnandinn gestum því það ráð að einbeita sér að myndun- um í stað umhverfísins þegar þeir ganga um sali. Er í höllinni meðal annars að finna myndir eftir hol- lensku meistarana Rembrandt, Rubens og Van Dyck. „Grey drottningin að þurfa að búa í svona höll,“ segir Dorment. „En hún hefur þó að minnsta kosti myndirnar til að hugga sig við þar til hún hefur efni á að skipta um innréttingar." Engin drottning sjáanleg Þeir gestir, sem blaðamenn ræddu við, virtust hins vegar flest- ir vera yfir sig hrifnir af höllinni. Einungis nokkrir lét sér fátt um finnast. Það sem helst sætti gagn- rýni var að Elísabet Bretadrottning var hvergi sjáanleg. Drottningin verður í fríi allan þann tíma sem ferðamönnum er leyft að ráfa um höllina og þegar höllin var opnuð á laugardag var hún við útför Baldvins Belgíukonungs. „Við erum mjög svekkt yfir því að drottningin hafi ekki verið í höll- inni,“ sagði Ed Laird frá Kalifor- níu. „Þegar við förum í Disneyland er Mikki mús alltaf á staðnum." Aðaltr öppurnar , , GESTIR í Buckinghamhöll fá að skoða vesturálmu hallarinnar og koma fyrst að hinum glæsilegu aðaltröppum, þöktum purpurarauðu teppi, þar sem myndir af konungsfjölskyldunni í gegnum tiðina prýða veggi. BUCKINGHAM-HOLL OPNUÐ ALMENNINGI Buckingham-höll var opnuð almenningi í fyrsta skipti sl. laugardag og er búist við að hún verði einhver vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í Bretlandi. Elísabet Bretadrottning tók þá ákvörðun að opna höllina, til að fjármagna enduruppbyggingu Windsor-kastala, sem brann á síöasta ári. Er áætlaö aö viögerðin kosti 40 milljónir punda. Út til Buckingham Palace Road JARÐ- HÆÐ Bogasalur Áætlaður fjöldi gesta á dag 8.000 Gjald: 8 pund (um 800 krónur) Áætlaðar tekjur: 1,75 millj. punda Ljósmyndun bönnuð REUTER Stóri inngangurinn Silki- Bláa við- téppa- Mat- hafnarstolan salur salur _ Buckingham-höll varkeypt atGeorg III áriö 1762 og varö aö heimili konungs- Ijölskyldunnar I London er Viktoria drottning tiutti i höiiina áriö 1837. Heimild: Buckingham-höll Reuter. Hásætissalurinn MEÐAL íburðarmestu og glæsilegustu sala Buckingham-hallar er Hásætissalurinn á fyrstu hæð. Fjölskylda Viktoríu MEÐAL þeirra listaverka sem prýða veggi í Buckingham-höll er þessi mynd Frans Xaviers Winterhalters af Viktoríu drottningu og fjölskyldu hennar. „Það er auðvelt að skynja þá hamingju sem ein- kenndi fjölskyldulíf hinnar ungu Viktoríu á þessari fyrirgangssömu fjölskyldumynd Winterhalters. Þegar maður sér hana í sama her- bergi og mynd Van Dycks af Karli I verður manni hins vegar Ijós hin langa hefð konunglegra portretta, sem Winterhalter starfaði samkvæmt," segir listagagnrýnandi Daily Telegraph um myndina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.