Morgunblaðið - 10.08.1993, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKim/aVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993
Tölvur
Þrjú fyrirtæki í samstarf
um Concorde-hugbúnað
FYRIRTÆKIN Hugur, HP á íslandi og Tæknival hafa hafið með sér
samstarf um markaðssetningu á Concorde XAL viðskiptahugbúnaði
frá danska fyrirtækinu Damgaard Data. Með þessum hugbúnaði er
unnt að bjóða fyrirtækjum af öllum stærðum heildarlausn í tölvuvæð-
ingu með ýmsum eiginleikum sem fram til þessa hefur verið að finna
í mun stærri og dýrari hugbúnaðarkerfum, að sögn Gunnars Ingi-
mundarsonar, framkvæmdastjóra Hugar. Hann segir að undanfarin
ár hafi fyrirtækið verið að vinna á ýmsum sérsviðum hugbúnaðar,
t.d. í framleiðslu- og birgðastýringu og tíma- og verkskráningum.
Með Concorde XAL hafi Hugur hins vegar komið til móts við óskir
fyrirtækja um að hafa allan hugbúnað undir sama hatti í stað margra
stakra eininga sem ekki séu samtengdar. Þegar hafa á fjórða tug
fyrirtækja keypt þennan hugbúnað frá því hann var fyrst í boði um
mitt sl. ár.
Concorde XAL er staðlaður við-
skiptahugbúnaður sem nær yfir öll
svið í rekstri fyrirtækja, bæði fjár-
málaleg verkefni og framleiðslu-
og verkbókhald. Hugbúnaðurinn er
þannig úr garði gerður að hann
má aðlaga að þörfum hvers fyrir-
tækis og auðvelt er að bæta við
verkefnum. Með honum er hægt
að vinna á nánast öllum stýrikerfum
og tölvum þ.m.t. einmenningstölv-
um og næmetum en einnig á tölvum
Verslun
m
Zimsen með Curver-
Rubbermaid umboðið
JES Zimsen hf. hefur tekið við einkaumboði fyrir Curver-Rubber-
maid hér á landi en það er eitt af þekktari vörumerkjum í plastvör-
um hér á landi. Þetta gerðist eftir gjaldþrot Miklagarðs sem hefur
flutt inn þess^r vörur um langt árabil ásamt Jes Zimsen. Var fyrir-
tækið valið úr hópi sjö innflutningsfyrirtækja sem sóttust eftir umboð-
inu.
Curver-Rubbermaid
framleiða
m.a. kælibox, vaskaföt, þvottabala
og verkfærakassa. Hér er um að
ræða tvö fyrirtæki, Curver í Hol-
landi og Rubbermaid í Bandaríkjun-
um, sem hafa sameinað sölukerfi
sitt. Hið fyrrnefna sér um söluna í
Evrópu en Rubbermaid annast söl-
una í Bandaríkjunum, Kanada og
Suður-Ameríku.
í frétt frá Jes Zimsen segir að
reynt verði bjóða upp á alla fram-
leiðslulínu fyrirtækjanna á hverjum
tíma. Jes Zimsen hf. verslanimar
eru á tveimur stöðum, Hafnar-
stræti 21 og Ármúla 42.
sem nota Unix stýrikerfið. Meðal
núverandi notenda em P. Samúels-
son, Prentsmiðjan Oddi, Nói-Síríus,
íslenska útvarpsfélagið og Tölvus-
amskipti.
Frosti Bergsson, framkvæmda-
stjóri HP á íslandi, segir að hér á
landi hafi vantað úrval nútímalegs
viðskiptahugbúnaðar sem nýti til
fullnustu þann vélbúnað sem Hew-
lett Packard hafi í boði og skapi
fyrirtækinu ákveðna sérstöðu. Þar
sé fyrst og fremst átt við hugbúnað
sem vinni í svokölluðu biðlara/miðl-
ara umhverfi með Unix stýrikerfi.
Fyrst nú bjóðist fyrirtækjum raun-
hæfur valkostur við hefðbundnar
millitölvur. Hann bendir á að for-
ráðamenn stærri íslenskra fyrir-
tækja hafi margir hveijir verið hik-
andi við að leggja allt sitt traust á
PC-hugbúnað, talið hann hvorki
nægilega öruggan né afkastamik-
inn og því haldið að sér höndum.
Concorde XAL sé hins vegar bæði
öflugur og sveigjanlegur og byggi
á mjög öflugum gagnagmnni þann-
ig mikils sé að vænta af þessu sam-
starfi.
Tæknival hefur sem kunnugt er
einkum sérhæft sig í sölu einmenn-
ingstölva og næmeta. Fram að
þessu hefur fyrirtækið einbeitt sér
að hugbúnaði fyrir fiskvinnslu og
útgerð og skipta notendur búnaðar-
ins hundmðum. Rúnar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Tæknivals, segir
að eins og víðar hafi vantað í sjávar-
útvegi hugbúnaðarkerfi sem taki til
allra þátta í rekstrinum. Með því
að samtvinna hugbúnað fyrirtækis-
ins við Concorde XAL sé unnt að
bjóða fyrirtækjum heildarlausn
þannig að þau fái á einum stað alla
Aðeins kr.
Uno..
arcac
Fiat Uno býðst nú á frábæru verði.
748.000
á götuna - ryðvarinn og skráður.
Ath. Gerið verðsamanburð við aðra bíla!
UNO 45 3D
er sérbúinn fyrir norðlægar slóðir:
Styrkt rafkerfi - Stærri rafall - Sterkari
rafgeymir - Öflugri startari - Bein innspýting
- Betri gangsetning - Hlifðarpanna undir vél
- Öflugri miðstöð - Aukin hljóðeinangrun -
Ný og betri 5 gíra skipting.
Komiö og reynsluakið
Frábær greiðslukjör
Urborgun kr. 187.000 eða gamli bíllinn uppí.
Mánaðargreiðsla kr. 20.094 í 36 mánuði
með vöxtum og kostnaði auk verðtryggingar.
ITALSKIR BILAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620
Morgunblaðið/Þorkell
SAMSTARF — HP á íslandi, Hugur og Tæknival hafa tek-
ið höndum saman um að markaðssetja Concorde viðskiptahugbúnað
hér á landi og geta boðið bæði smáum og stóram fyrirtækjum heildar-
lausn við tölvuvæðingu. Á myndinni em þeir Rúnar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Tæknivals, Gunnar Ingimundarson, framkvæmdastjóri
Hugar og Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri HP á íslandi.
þjónustu bæði fyrir hugbúnað og
vélbúnað. Hér sé því ekki um að
ræða hefðbundið bókhaldskerfí
heldur alhliða upplýsingakerfí.
Nýlega var gengið frá samningi
milli Tæknivals og eins af stærstu
Jlhoro
Steypa
- VIÐGERÐARSTEYPA
- ÞURRSTEYPA
- PERLUSTEYPA
- FLOTSTEYPA
- SÉRSTEYPA
Allar geröir af steypublöndum
I pokum og fötum.
■I steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
sjávarútvegsfyrirtækjum á lands-
byggðinni sem felur í sér að fyrir-
tækið mun nota sjávarútvegshug-
búnað Tæknivals tengt Concorde
XAL auk nýs vélbúnaðar.
Delta með
allt að
35% afslátt
BANDARÍSK flugfélög hafa
ákveðið að lækka fargjöld á tíma-
bilinu 15. sept. til 15. desember
um allt að 35% en afslátturinn
fer nokkuð eftir því hvenær
farmiðinn er keyptur. Það, sem
fyrir flugfélögunum vakir, er
auðvitað að auka viðskiptin eftir
að sumarönnunum lýkur.
Það var Delta Air Lines, sem
reið á vaðið, og Continental Air
Lines kom strax í kjölfarið. Gildir
tilboðið innan Bandaríkjanna og
Kanada, til Alaska, Hawaii, Puerto
Rico, bandarísku Jómfrúreyja,
Bermuda og Bahama, og er þannig,
að 35% afslátur er á farmiðum, sem
keyptir eru fyrir 17. ágúst, 30% til
31. ágúst og 25% til 15. septemb-
er. Búist er við, að þetta sé aðeins
byijunin á verðstríði milli flugfélag-
anna og önnur félög, til dæmis
American Airlines, era að búa sig
undir að svara þessari áskorun.
vrmrr
Rit um samkeppnis■
reglur EB og EES
FÉLAG íslenskra iðnrekenda
hefur gefið út rit eftir Stefán
Má Stefánsson prófessor um
samkeppnisreglur. Er þar gerð
grein fyrir þeim reglum, sem
gilda um þessi efni innan Evrópu-
bandalagsins og á Evrópsku
efnahagssvæði, auk þess sem ís-
lensku samkeppnislögunum eru
gerð skil.
í ritinu er gerð grein fyrir megin-
atriðum samkeppnisreglna Evrópu-
bandalagsins. Fjallað er um ákvæði
Rómarsáttmálans og gildissvið
þeirra, auk þess sem vikið er að
helstu sjónarmiðum varðandi túlk-
un reglna af þessu tagi. Nokkur
atriði eru tekin til sérstakrar um-
fjöllunar svo sem ólögmætt samráð
fyrirtækja, misnotkun á markaðs-
ráðandi stöðu, sammni og yfírtaka
fyrirtækja, hópundanþágur, ríkis-
styrkir og undirboð. Þá er sagt frá
reglum um eftirlit með því að regl-
um á þessu sviði sé fylgt og meðal
annars gerð grein fyrir hlutverki
framkvæmdastjórnar Evrópu-
bandalagsins í þeim efnum.
I ritinu em samkeppnisreglum
Evrópska efnahagssvæðisins einnig
gerð skil, en þær em nánast sam-
hljóða reglum Evrópubandalagsins.
Þá er sérstakur kafli um íslensku
samkeppnislögin, sem gildi tóku 1.
mars síðastliðinn, en þau tóku mið
af því, að aðild að EES hafði verið
samþykkt á Alþingi.
Bókin Samkeppnisreglur er 170
blaðsíður að stærð. Höfundur henn-
ar, Stefán Már Stefánsson, er pró-
fessor í lögum við Háskóla íslands.
Umsjón með útgáfu hafði Jón Stein-
dór Valdimarsson.
Flugfélög