Morgunblaðið - 10.08.1993, Page 39

Morgunblaðið - 10.08.1993, Page 39
MORGUN'BLAÐÍÐ ÞKlÐJL’DAGUtt 10. ÁGúS’í1199 m EFTIRLAUNAALDUR Barbara og George Bush njóta lífsins Nágrannar Barböru og George Bush í bænum Kennebunkport bjuggu til miða sem á stóð: „Varið ykkur, nýr ökumaður í bænum!“ þegar Barbara hafði endurnýjað ökuskirteini sitt. Fyrrverandi forsetahjón Banda- ríkjanna Barbara og George Bush virðast blómstra eftir að þau yfirgáfu Hvíta húsið, enda kominn tími til að taka lífinu með ró, hann 69 ára og hún 68 ára. Bush hefur nú nægan tíma til að leika golf og Barbara hefur ýmist dvalist í Houst- on eða í sumarhúsi þeirra í Kenne- bunkport. Einkum hún virðist njóta þess að eiga svolítið einkalíf og hefur sagt að haldi fólk að það sé erfitt að aðlagast venjulegu lífi eft- ir að hafa verið 30 ár í sviðsljósinu sé það rangt. Það sé dásamlegt. Tók bílpróf að nýju Ýmsu þarf þó að venjast eins og að keyra bíl. Það er af sem áður var og enginn einkabílstjóri. Bar- bara lét það ekki á sig fá, dreif sig í ökutíma og endurnýjaði ökuskír- teinið. Nú ekur hún um eins og herforingi á nýja Mercury Sable bíl þeirra hjóna. Sonur Bush-hjónanna, Marvin, segir að það sem foreldrar hans kalli að setjast í helgan stein þýði til dæmis fyrir föður hans, að fara í þriggja klukkustunda veiðiferð, skokka í hálftíma, spila síðan tenn- is eða golf og enda daginn annað hvort með því að lesa í bók eða horfa á kvikmynd. Fyrir utan tómstundirnar hafa þau hjónin eytt tíma sínum í vor og sumar við að lagfæra húsið sitt í Kennebunkport, sem fór illa vegna veðurs. Þá eru þau að byggja nýtt hús í West Oaks í Houston og verð- ur það tilbúið í haust. Nágrannar þeirra í Houston eru flestir ánægðir með Bush-hjónin, en sumir hafa þó haft á orði að aukin umferð sé óþolandi. Þar eru á ferðinni ferðalangar sem vilja sjá hvernig fyrrverandi forseti landsins býr. Skrifa bækur Þá herma sögur að forsetahjónin fyrrverandi séu bæði í útgáfuhug- leiðingum, þ.e.a.s. George Bush ætli að skrifa bók um utanríkismál í samvinnu við Brent Scowcroft fyrrverandi öryggisráðgjafa, en Barbara hafi skrifað undir 2,2 millj- óna dollara samning fyrir að skrá- setja minningar sínar. HIBYLI Svona býr Whitney Söngkonan Whitney Houston ólst ekki upp við neitt bruðl né íburð. Hún er dóttir leigubílstjóra og var heimilið því afar venjulegt. Sjálf hefur hún unnið sér inn óheyri- lega háar upphæðir með söng sínum og nú síðast kvikmyndaleik. Hluta þessarar upphæðar, eða 1,5 millj- arða króna, hefur hún sett í einbýl- ishús sitt. Eða ætti kannski heldur að segja höll? Fimm ár hefur tekið að byggja húsið sem nú er að verða fullbúið. Flytja Bobby Brown og Whitney að öllum líkindum fljótlega úr húsi sínu í Los Angeles og inn í höllina. Heyrst hefur að þau hjón hafí ráðið sér 12 manns til að gegna hinum ýmsu störfum á heimilinu. Iðnaðarmenn og sérfræðingar hafa séð um byggingu og innrétt- ingu hússins, nema herbergið sem dóttirin Bobbi fær. Það hefur Whitney alfarið séð um sjálf. HöIIin sem Whitney og Bobby hafa látið byggja er sérkennileg með öllum sinum bogadregnu línum. ÍBÚÐ OG SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU Höfum húsnæði til leigu á eftirtöldum stöðum: Við Austurstræti: U.þ.b. 200 m2 skrifstofuhúsnæði. A sama stað eru einnig til leigu þrjú 25-45 m2 skrifstofuherbergi sem leigjast út saman eða sitt í hvoru lagi. Við Klapparstíg: U.þ.b. 140 m2 íbúð á efstu hæð. í sama húsi er einnig 35 mr skrifstofuherbergi. Nánari upplýsingar: Gjaldskil sf. Lágmúla 7, Reykjavík sími 681915 milli kl. 08 og 16 virka daga UTSALA 20-60% AFSLATTUR »hummel”S SPORTBÚÐIN Ármúla 40 ■ Símar 813555 og 813655 íbróttaskór, íbróttagallar, bolir, sundfatnaður, dúnúlpur, regnfatnaður o.fl,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.