Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 2

Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 2
2 FRÉTTIR/INNUENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 EFNI Brandugla gist- ir lögreglustöð eftir árekstur Borgarnesi. BRANDUGLA flögraði í veg fyrir bifreið hjá Langá á Mýrum á miðvikudagskvöld. Lenti uglan á framrúðu bílsins og kastaðist í götuna. Uglan reyndist lifandi en lemstruð eftir áreksturinn og flutti ökumaðurinn hana á lögreglustöðina í Borgarnesi þar sem hún fékk gistingu. Ökumaðurinn, Eiríkur Kristó- fersson, segir að hann hafi verið á leið frá Akranesi til Snæfells- ness er atburðurinn átti sér stað skammt vestan við Borgames. „Uglan horfði á mig með þessum stóru augum og mér datt í hug hvort hún gætti dáleitt mann með þessu augnaráði," segir Eiríkur. „Það eins og small og hvæsti öðm hverju í henni en að öðru leyti var hún mjög róleg.“ Eftir að Eiríkur kom með ugl- una á lö^reglustöðina í Borgar- nesi fékk hún vatn að drekka og síðan gistingu í bílskúr stöðvar- innar. Morguninn eftir var uglan sýnu brattari og var þá haft sam- band við Ævar Petersen fugla- fræðing hjá Náttúrufræðistofnun og vildi hann fá að líta á gripinn. Var uglan þá sett í kassa og send með rútu til Reykjavíkur. Svæfð eftir slysið Við rannsókn á uglunni kom í Morgunblaðið/Theódór Uglan og löggan ÞÓRÐUR Sigurðsson yfirlögregluþjónn í Borgarnesi ásamt ugl- unni sem ekið var á við Langá á Mýrum. ljós að hún hafði skaddast meir en svo að hún gæti náð sér og var hún því svæfð. Ævar Petersen segir að um fullorðna branduglu hafi verið að ræða. Þetta er sjald- gæfur fugl hérlendis, nokkur hundruð pör dreifð víða um land- ið. Uglan verður stoppuð upp og henni síðan komið fyrir á Náttúru- gripasafninu. T.K.Þ. Sýslumannsembættin í Hafnarfirði og Kópavogi ódýrust Náum enn meira hag- ræði með sameiningu - segir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra EMBÆTTI sýslumannanna í Hafnarfirði og Kópavogi hafa lægst- an rekstrarkostnað á hvern íbúa umdæmisins af öllum sýslumanns- embættum á landinu, eða í kringum 8.000 krónur. Embættin á ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík, í Vík, Bolungarvík, á Ólafsfirði, í Búðardal og á Siglufirði eru nálega helmingi dýrari miðað við íbúafjölda. Þorleifur Pálsson, sýslumaður í Kópavogi, segir að hæpið sé að sparnaður náist með því að sameina embættin í Kópavogi og Hafnarfirði fimm embættum í Reykjavík, sem hafi hærri samanlagðan rekstrarkostnað á íbúa. Ari Edwald, aðstoðar- maður dómsmálaráðherra, segir hins vegcir að enn meira hag- ræði muni nást á höfuðborgarsvæðinu með sameiningu embætta. IFPL framleiðir fyrir McDonald’s í Bretlandi Fiskborgaragerð hér ekki hagkvæm ICELANDIC Freezing Plants Ltd., IFPL, dótturfyrirtæki Sölmiðstöðvar hraðfrystihús- anna í Bretlandi, framleiðir fisk- borgara fyrir alla matsölustaði McDonald’s-keðjunnar þar í landi. Þess vegna flytur McDon- ald’s á íslandi inn íslenzka fisk- borgara frá Bretlandi, en fram kemur í Morgunblaðinu í gær að yfírvöld heimta 20% toll af vör- unni. SH hefur hins vegar tekið tollinn á sig, Að sögn Gylfa Þórs Magnússon- ar, framkvæmdastjóra markaðs- mála hjá SH, hefur IFPL um ára- bil framleitt fiskborgara fyrir McDonald’s í Bretlandi og á tíma- bili einnig fyrir veitingastaði fyrir- tækisins í Frakklandi. Hann segir að McDonald’s geri miklar gæða- kröfur og sé brauðmylsnublandan, sem sett sé á fiskborgarana, til dæmis viðskiptaleyndarmál fyrir- tækisins. Það sé því tiltölulega sér- hæfð starfsemi að framleiða fisk- borgara fyrir McDonald’s. Framleiðslulína fyrir einn stað ekki hagkvæm „Það hefði ekki verið hagkvæmt að setja upp sérstaka framleiðslu- línu hér á landi fyrir einn veitinga- stað,“ sagði Gylfi. „Vegna fram- leiðslu okkar fyrir McDonald’s í Bretlandi töldum við okkur málið svo skylt, að við ákváðum að taka tollinn á okkur, en auðvitað vonum við að hann verði felldur niður. Þarna er um íslenzka vöru að ræða, sem mjög lítill virðisauki bætist á í framleiðslunni í Bretlandi." Fimm embætti í Reykjavík sinna þeim verkefnum, sem sýslumanns- embættin í nágrannabæjunum tveimur hafa með höndum. Það eru lögreglustjóri, tollstjóri, sýslumaður, Gjaldheimta og Tryggingastofnun. Samanlagður kostnaður þessara embætta á hvern íbúa Reykjavíkur er um 13.600 krónur, samkvæmt útreikningi Þorleifs Pálssonar. „Utreikningar okkar benda til að kostnaður gæti enn lækkað, með því að sameina og færa saman embætti á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Það er hins vegar alveg rétt að Hafnarfjörð- ur og Kópavogur eru ekki óhagstæð- ar einingar eins og er. Það yrði ef til vill ekki síður hagræðing að sam- einingunni Reykjavíkurmegin," sagði Ari Edwald. „Embættin þar þyrftu litlu að bæta við sig í kostnaði þótt þau tækju við verkefnum. Þegar við leggjum saman hversu mikinn mann- afla við þyrftum til að sinna þessum verkefnum, teljum við að með sam- einingu muni nást enn meira hag- ræði.“ Sjá bls. 44: „Ódýrasta embætti landsins." Rekstrar- kostnaður embætta sýslumanna og embætta í Reykjavík Krónur á hvem íbúa Skv. fjárlögum 1993 Siglufjörður Buðardalur Olafsfjörður Vík Hólmavík Patreksfjörður Ísafjörður Stykkishólmur Vestmannaeyjar Neskaupstaður Borgarnes Husavik Seyðisfjörður Höfn Keílavjk __ Sauðárkrókur Hvolsvöllur Selfoss Akureyri Hafnarfjörður Kopavogur Meðaltal 115.359 115.052 115.025 15.019 114.348 113.848 _ 13.692 12.317 11.885 11.843 11.828 11.552 11.538 11.421 11.058 10.913 _ 10.328 _ 9.737 8.514 8.484 7.975 110.658 IREYKJAVIK 7.929 HH 2.284 Tollstjóri S 1.217 Sýslumaður 1.116 Gjaldhelmtan ■ 1.078 Tryggingastofnun iriTiiiíiiTi 111111— Formaður Svínaræktarfélagsins um kjötinnflutning Framleiðsluaðstæður mun verri en í Danmörku KRISTINN Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, segir að íslenzkir svinabændur búi við mun verri framleiðsluaðstæður en danskir starfsbræður þeirra og standi því höllum fæti í samkeppni við innflutt kjöt. Kristinn Gylfi segir að bændum komi það mjög á óvart, verði Hagkaupi hf. leyft að flytja inn danskt svínakjöt, sem er mun ódýrara en það íslenzka. Kristinn Gylfí benti á það í sam- tali við Morgunblaðið að búvörulög gerðu ráð fyrir að væri nóg framboð af tiltekinni landbúnaðarvöru í land- inu, bæri ekki að leyfa innflutning. í GATT-viðræðunum hefði verið rætt um að lögð yrðu jöfnunargjöld á land- búnaðarvörur, sem flyttar yrðu inn, þannig að ekki kæmi til greina að flytja kjötið inn án jöfnunargjalda. Kristinn Gylfí sagði að lítið væri vitað um uppruna þess verðs, sem Hagkaup hefði keypt danska svína- kjötið á. „Þeir segja að þetta sé heimsmarkaðsverð, en heimsmark- aðsverð er oft svo furðulegt að menn skilja ekki kostnaðarforsendurnar á bak við það. í einhverjum tilfellum er um það að ræða að umframvara, sem ekki er þörf fyrir á innanlands- markaði, er seld á heimsmarkaði á lágu verði,“ sagði Kristinn Gylfi. Hann benti einnig á að í fljótu bragði virtist sem Hagkaup ætlaði að leggja mun minna á danska svínakjötið, í krónum talið, en íslenzkt svínakjöt. Helmingi hærra fóðurverð Kristinn sagði að íslenzkir svína- bændur hefðu mun lakari fram- leiðsluaðstæður en þeir dönsku. Fyr- ir kílóið af svínafóðri þyrftu íslenzkir bændur til dæmis að greiða yfír 30 krónur, en dönsku bændumir ekki nema fímmtán krónur. „Munurinn liggur annars vegar í flutningskostn- aði, en einnig er lagt hátt kjarnfóður- gjald á fóður til okkar. Auk þess greiðum við há sjóðagjöld til Stofn- lánadeildar og gjöld til ýmissa stofn- ana landbúnaðarins. Fyrst núna um áramótin erum við að fá leyfi til að flytja inn erfðaefni til að kynbæta íslenzka svínastofninn,“ sagði hann. Kristinn sagði að atvinnugreinin hefði verið -í uppbyggingu, unnið hefði verið að hagræðingu og þar ríkti nú frjáls samkeppni. „Á síðast- liðnum fímm árum hefur verð á svínakjöti lækkað um 20% að raun- gildi. Við erum að færa okkur í átt til þess að geta tekizt á við sam- keppni, en hún verður að vera á jafn- réttisgrundvelli," sagði hann. Frelsi eöa helsi ►Laun sauðfjárbænda lækka um helming í vítahring landbúnaðar- kerfísins./lO Friðurinn og fjölskyld- urnar þrjár ►Norðmenn eru stoltir af milli- göngu svilanna Johans Jörgens Holst og Thorvalds Stoltenbergs í leyniviðræðum PLO og ísraela í Osló./14 Svo er margt sinnið sem skinnið ►Áður var hreindýraskinnum hent á íslandi en nú er framleidd úr þeim gæðavara eins og hver VÍ11./16 Knáir knapar ►Á reiðnámskeiði fyrir fatlaða að Botni í Eyjafirði./18 í Arnarbæli ► Amarstofninn virðist nú standa í stað, en lítið má út af bregða og sérfræðingar fylgjast grannt með honum./20 B ► 1 -36 NÝGUULÖLDl B Ný gullöld á Skaganum ►Skagamenn hafa enn einu sinni skákað mótheijunum á knatt- spyrnuvellinum. Árangurinn hefur haft mjög jákvæð áhrif á bæjarfé- lagið og styrkt knattspymufélagið félagslega og ekki síst fjárhags- lega, en uppskera síðustu daga er tveggja stafa tala í milijónum tal- ið./l Við erum engar teprur ►Maria Reyndal leikstjóri og Jó- hanna Jónas fylla hóp ungs og efnilegs leikhúsfólks, ekki síst eft- ir sýningu þeirra á einleik eftir Dario Fo fyrr í sumar./12 Niflungahringurinn í undirbúningi ►Wolfgang Wagner heimsóttur í Bayreuth./16 Ríki risanna ►Lengi hefur verið deilt um hvemig risaeðlumar dóu út. Sagan á bak við það er óljós. En stein- gervingafræðingar hafa verið að endurrita aðra og kannski áhuga- verðari sögu síðustu áratugi. Það er sagan um lífshætti þeirra./18 í falli Ólafs var sigur- inn fólginn ►Fjallað um Ólaf helga og orr- ustuna á Stiklastöðum, ástir og örlög í ferð Pálnatókavina á sögu- slóðir í Noregi./ 20 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavikurbréf 26 Minningar 30 Utvarp/sjónvarp 48 Gárur 51 Mannlífsstr. 6b ídag 8b Kvikmyndir 14b Dægurtónlist 15b Fólk (fréttum 26b Myndasögur 28b Brids 28b Stjömuspá 28b Skák 28b Bíó/dans 29b Bréftil blaðsins ' 32b Velvakandi 32b Samsafnið 34b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.