Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 12

Morgunblaðið - 05.09.1993, Side 12
MÓRGÚNBLAÐIÖ SUNNÚDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 12 Hafir þú ekki tíma fyrir heilsuna í dag þá hefur þú ekki heilsu fyrir tímann þinn á morgun. o Boðið er upp á almenna leikfimi, þolfimi, yoga, 1 kennslu í sjálfsnuddi (Doing) og fræðslu um holla lifnaðarhætti. Heilsuræktin Seltjarnarnesi sími 611952 (í húsi sundlaugar Seltjarnarness). | NÝ BURDASNIÐ Hallgrímur Þ. Magnússon læknir Nýju haustefnin komin. Hoffman jólaefnin komin. Faxafeni 12, sími 687477 Klapparstíg 25, sími 24747 ú Opið laugardaga frá 10-14. VIRKA * SONGSMIÐJAN auglýsir: NÚ GETA ALLIR LÆRT AÐ SYNGJA ungir sem aldnir, laglausir sem lagvisir HOPNAMSKEIÐ • Byrjendanámskeið __ • Framhaldsnámskeið i* • Söngleikjanámskeið I Söngleikjanámskeið II Söngsmiðja fyrir krakka EINSÖNGVARADEILD Skemmtileg og lifandi söngkennsla. Þar sem brotið er upp hið hefðbundna og haldið inn á ferskari brautir. Meðal kennara: Esther Helga Guðmundsdóttir, Ágústa Ágústsdóttir, Björn Björnsson, Gunnar Björnsson, Guðbjörg Sigurjónsdóttir. Upplýsingar og innritun í s: 68 24 55 frá kl. 10-13 og 17-19 SÖNGSMIÐJAN Listhúsi í Laugardal FRELSI EÐA um um afnám framleiðslutengingar beingreiðslna að hann hefði óskað eftir lagaheimild til að taka upp viðræður við Stéttarsamband bænda um breytingar á búvöru- samningi sem gengju út á það að semja við aldraða bændur og heilsu- litla eða bændur sem byggju á við- kvæmum gróðursvæðum að hætta eða draga úr framleiðslu gegn því að þeir héldu beingreiðslum ríkisins og ynnu við iandgræðslustörf. Frumvarp þessa efnis hefði ekki fengið afgreiðslu í vor og því væri málið í biðstöðu. Þá vitnaði hann til þess að búvörusamningurinn gerði ráð fyrir endurskoðun eftir tvö fyrstu ár hans. Aðspurður hvort hann væri tilbú- inn til að ganga lengra og afnema alveg tengsl framleiðslu og beinna greiðslna sagði Halldór að vel gæti verið að meira kæmi út úr fyrirhug- uðum viðræðum við forystumenn bænda. Hins vegar taldi hann ekki rétta tímann nú til að lýsa nýjum hugmyndum í landbúnaðarmálum, miðað við þær grunnu umræður sem færu fram um þau í fjölmiðlum um þessar mundir. Með þessum orðum var Halldór að vísa til rangra upplýsinga í skýrslu Hagfræði- stofnunar Háskólans og að Alþýðu- flokkurinn væri að spila þessi mál upp. Sagðist hann ekki vilja taka þátt í þeim leik. Útgjöldin lækkað Útgjöld ríkisins vegna beinna greiðslna til bænda og annarra ákvæða búvörusamnings eru 5,7 milljarðar kr. á fjárlögum þessa árs, samkvæmt upplýsingum Jó- hanns Guðmundssonar, deildar- stjóra í landbúnaðarráðuneytinu. Undanfarin ár hafa þessi útgjöld numið frá 8,1 til 8,8 milljörðum kr., reiknað á sama verðlagi. Út- gjöldin í ár eru því þriðjungi minni en verið hefur síðustu ár. Á þetta benda bændur þegar rætt er um niðurskurð á stuðningi við þá með lækkun beingreiðslnanna. Önnur útgjöld hjá landbúnaðarráðuneytinu hafa lækkað meira, verða í ár 1,7 milljarðar kr., þannig að heildarút- gjöld ríkissjóðs vegna landbúnaðar- ins eru í ár rúmlega 7,4 milljarðar kr. en voru á bilinu 11 til 12 millj- arðar árin á undan. Um 2,3 milljarðar af útgjöldum ríkisins vegna búvörusamninga í ár eru vegna sauðijárframleiðslunn- ar. Ef ríkið hætti þeim stuðningi þyrfti kindakjötskílóið að hækka um 80% út úr búð, samkvæmt gróf- um útreikningi á núverandi verð- lagsgrundvelli, til að bóndinn héldi sínu. Menn geta verið sammála um að markaðurinn myndi ekki sætta sig við hækkun og umræðan hefur frekar snúist um leiðir til að lækka verðið. Að því gefnu að verðinu yrði haldið óbreyttu kemur í ljós með sama talnaleik að bóndi með 400 kinda bú yrði alveg launalaus og vantaði 400 þúsund kr. upp í annan kostnað ef framlögin féllu niður. Þetta dæmi bendir til að ekki sé hægt að stunda sauðfjárbúskap í núverandi mynd á íslandi nema með ríkisstyrkjum. Aukin samkeppni Erfitt er að átta sig nákvæmlega á hvað myndi gerast í atvinnugrein sem lifað hefur í vernduðu um- hverfi eins lengi og elstu menn muna ef ftjálsri samkeppni yrði skyndilega komið á. í upphafi kæmu sjálfsagt í ljós ýmsir van- kantar sem markaðurinn myndi smám saman sníða af. Framleiðslan myndi leita til þeirra bænda og landsvæða sem gætu framleitt kindakjöt á hagkvæmasta hátt og til þeirra sláturleyfishafa sem gengi best að selja kjötið og greiddu besta verðið. Aukin samkeppni sláturleyf- ishafa myndi hugsanlega leiða til verðlækkunar afurðanna, en eins og Ásbjörn Sigurgeirsson bendir á í viðtali sem birt er í tenglsum við þessa grein, er það í raun staðfest- ing á þróun sem nú þegar er að ganga yfir. Niðurstaðan yrði mun sveigjanlegra kerfi en nú er við lýði. Til þess að breyta kerfinu í þessa veru þarf breytingar á búvörusamn- ingi sem gildir til ársins 1998. Og það þarf að gerast með samningum. Bændaforystan hefur ekki tekið undir þessar hugmyndir, þó Haukur Halldórsson hafi ekkert útilokað í væntanlegum samningum við ríkið. Óljóst er með hugmyndir landbún- aðarráðherra og þó hann vildi breyt- inguna er ósennilegt að hann kæmi henni í gegn um ríkisstjórnina nema verða við kröfu Alþýðuflokksmanna um að skera útgjöld til landbúnað- armála meira niður en hann hefur gert. Niðurskurðurinn hlýtur að hafa tekið væna sneið af þreki sauðfjár- bænda og þori. Þeir eiga varla mikla varasjóði til að grípa tii eftir launa- lækkun síðustu ára. Hvaða bolmagn hafa bændur til að takast á við samkeppni ef aukið rými til fram- leiðslu skapast í fijálsri samkeppni? Varla hefur borgfirski bóndinn sem misst hefur 60% launa sinna á tveimur árum efni á því að vera alveg tekjiílaus í eitt til tvö ár til að byggja upp fjárstofn að nýju til að koma búi sínu í þá stærð sem hann telur hagkvæmasta. Upplýs- ingar benda til þess að staða afurða- stöðvanna sé engu betri. Ekki gefur það vonir um lækkun sláturkostn- aðar sem er miklu hærri en annars staðar. Hvaða svigrúm hafa þær til að starfa í breyttu umhverfi? Er kannski að verða of seint að breyta um stefnu? BEITARALAGIÐ MIMAD líll IIELHHAG Ofbeitin er staóbundió vandamál með hrossabeit VEGNA mikillar fækkunar búfjár á síðustu fimmtán árum hefur beitarálag á helstu hálendisafréttum landsins minnkað um að minnsta kosti helming og er beitarálagið á þessum svæðum að- eins um þriðjungur af því beitarþoli sem Rannsóknarstofnun land- búnaðarins gefur út. Ólafur R. Dýrmundsson, sauðfjárræktar- ráðunautur Búnaöarfélags Islands, segir að ofbeitarvandamálið sé nú staðbundið og tengist aðallega hrossabeit á einstökum jörð- um eða ofsetnum hólfum. Vegna þessara breyttu aðstæðna þurfi gróðureftirlit Landgræðslunnar að beina starfi sínu beint að við- komandi bændum og öðrum landeigendum sem ábyrgð bæru á því en ekki að bændastéttinni almennt. Olafur hefur kannað tölulegar upplýsingar um 20 helstu hálendisafréttina sem um 40 sveitarfélög eiga upprekstur í. í ljós kemur að reiknað beitarþol RALA, það er sá gróður sem beita má, dugar fyrir 155 þúsund ær með lömbum. Tekur Ólafur fram að þetta sé byggt á gróðurkortum og uppskerumælingum en ekki sé tekið tillit til uppblásturs eða ann- ars ástands jarðvegs. Segist hann lengi hafa farið fram á það við RALA að tekið yrði tillit til ástands jarðvegs við þessa út- reikninga og myndi það lækka reiknað beitarþol eitthvað. Ólafur líkir beitarþolinu við framboð beitar og beitarálaginu, sem miðast við hvað búfénaðurinn bítur, við eftirspurn eftir beit. Hann áætlar að beitarálagið í þessum afréttum hafi minnkað úr 112 þúsund ærgildum sumarið 1978 í 50 þúsund í sumar, eða um að minnsta kosti helming. Tekur hann þar tillit bæði til beit- ar sauðfjár og hrossa. Ólafur segir að á árunum 1972 til 1986 hafi verið gerð ítala, eða beitarkvóti sem miðast á við að land sé hóflega setið til beitar, á grundvelli gagna RALA, í afrétti þrettán sveitarfélaga og einnig í heimalöndum tveggja þeirra. Sumstaðar hafi verið tekið tillit til jarðvegs. Beitarálag hafi alls staðar verið vel innan ítölumarka og sé nú langt innan þeirra marka. Staðbundið vandamál Að mati Ólafs tengist ofbeitar- vandamálið nú helst hrossabeit á einstökum jörðum víða um land og í ofsetnum hólfum sumstaðar í þéttbýli. Þetta séu staðbundin Ólafur R. Dýrmundsson. vandamál og alls staðar á lág- lendi. Þá segir hann að dreifing beitarálags sé hagstæðari en áður, mest hafi dregið úr beit á viðkvæmustu svæðum landsins, einkum í hálendisafréttum. Þrátt fyrir fjölgun hrossa hafí heildar- beitarálagið í úthaga minnkað verulega. „Fyrir fimmtán árum var of- beit töluverð í landinu. Staðan er gjörbreytt nú, meðferð landbún- aðarins á landinu hefur aldrei verið betri en nú, þó til séu stað- bundin vandamál. Því er ekki ástæða tii að taia of almennt um þetta mál. Eðlilegt er að Land- græðsla ríkisins, sem annast gróðureftirlitið, geri sér grein fyr- ir því hvar vandamálin eru og leysi málin beint gagnvart viðkomandi bændum eða landeigendum. Til þess hefur stpfnunin ýmsar heim- ildir,“ segir Ólafur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.