Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 14

Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 FRIOURINN OG FJOL- SKYLDURNAR ÞRJÁR Fundarstaðurinn í þessu húsi í Sarpsborg sunnan vió Ósló fóru fram viðræóur fulltrúa Palestínumanna og Israela auk þess sem óformlegir fund- ir fóru fram ó heimilum utanríkisróóherrahjónanna norsku. Við öllu búinn í Sarajevo Thorvald Stoltenberg með hjólm ó höfði og í skotheldu vesti heilsar konu einni í Sarajevo höfuðborg Bosníu. Stoltenberg tók við sem sóttasemjari Sameinuðu þjóðanna í Bosníudeilunni í apríl- mónuði og kom það þó í hlut svila hans að halda gangandi leyni- viðræðum ísraela og Palestínumanna. eftir Ásgeir Sverrisson TRÚLEGA njóta fáir menn jafn óskiptrar aðdáunar landa sinna nú um stundir og þeir svilarnir Johan Jorgen Holst, utanríkisráð- herra Noregs, og forveri hans í starfi Thorvald Stoltenberg. Eiginkonur þeirra, systurnar Karin og Marianne, hafa einnig get- að baðað sig í loforða- flaumi norskra fjölmiðla nú þegar ljóst er að þau fjögur gegndu lykilhlutverkum við milligöngu Norðmanna í leynilegum viðræðum Pal- estínumanna og Israela sem nú hafa leitt til þeirrar sögulegu niðurstöðu að af- ráðið hefur verið að veita þeim fyrrnefndu takmark- aða sjálfsljórn á hernáms- svæðum ísraels, á Gaza og í Jeríkóborg. Norðmenn eru vitanlega ákaflega stoltir af milligöngu sinna manna í þessum þýðingar- miklu viðræðum enda er þessi niðurstaða í senn mik- ill diplómatískur sigur og skrautfjöður í hatt norskr- ar utanríkisstefnu sem löngum hefur haft Samein- uðu þjóðirnar sem ákveðna þungamiðju. Milligöngu Norðmanna má í raun rekja íjögur til fimm ár aftur í tímann þó svo beinar viðræður Palest- ínumanna og ísraela hafi farið fram á undanfömum 18 mánuðum. Á árunum 1988-1989 var ákveðið innan FAFO, norskrar stofnunar á vegum launþegahreyfingarinnar sem sérhæfir sig í félagsfræðileg- um rannsóknum, að hefja könnun á aðbúnaði og félagslegum skilyrð- um Palestínumanna sem halda til á hemámssvæðum ísraela. Við þessa stofnun starfar sem rann- sóknarmaður Marianne Heiberg, eiginkona Johans Jorgens Holst, sem þá var varnarmálaráðherra Noregs og einkum þekktur fyrir yfirgripsmikla þekkingu og skiln- ing á samskiptum austurs og vest- urs. Yfirmaður Marianne Heiberg hjá FAFO er hins vegar Terje Red- Larsen en hann er aftur á móti kvæntur Monu Juul, sem er hátt- sett innan norsku utanríkisþjón- ustunnar. Þau tvö áttu síðar eftir að eiga þátt í viðræðum fulltrúa Frelsissamtaka Palestínu, PLO og ísraela. Könnunin sem gerð var á hemá- mssvæðunum varð smám saman til þess að tengsl sköpuðust milli norsku rannsóknarmannanna og fulltrúa stjórnvalda annars vegar og Palestínumanna og ísraela hins vegar. Segja norskir embættis- menn að með tímanum hafí skap- ast traust í garð Norðmanna og hafi þreifingum lyktað með því að fulltrúar beggja deiiuaðila leituðu eftir norskri milligöngu í þessari lífseigu deilu sem kostað hefur endalausar hörmungar í þessum heimshluta. Intifada og Flóastríð Á undanfömum árum er það einkum tvennt sem orðið hefur til' þess að ýta undir alþjóðlega við- leitni til að binda enda á það spennuástand sem einkennt hefur Mið-Austurlönd allt frá því stofnað var sjálfstætt ríki gyðinga. Annars vegar ræðir hér um intifada, upp- reisn Palestínumanna á hernumdu svæðunum, sem hófst árið 1987 og hins vegar Persaflóastríð Sam- einuðu þjóðanna sem háð var til að hrekja innrásarsveitir Saddams Husseins, einræðisherra i írak, frá Kúveit. Viðbrögð ísraela við upp- reisninni urðu til þess að vekja víða mikla samúð með málstað Palest- ínumanna en á vettvangi alþjóða- samskipta var það trúlega Persa- flóastríðið sem sköpum skipti. Saddam Hussein kvaðst á sínum tíma vera reiðubúinn til að_ kalla herlið sitt heim frá Kúveit ef ísrael- ar gæfu eftir yfírráð yfir hernáms- svæðunum. Þessa kröfu setti Sadd- am fram í ýmsum myndum og hún varð eðlilega til þess að málflutn- ingur hans hlaut mikinn stuðning í röðum Palestínumanna enda lýsti Yasser Arafat, leiðtogi PLO, yfír því að hann væri reiðubúinn að berjast við hlið forseta íraks til þess að ná fram þessu helga mark- miði. Persaflóadeilan varð próf- steinn á hið nýja samband sem skapast hafði með Sovétmönnum Norðmenn eru stoltir a! milligðngu svil- anna Johans Jorgens Holst og Thorvalds Stoltenbergs í leyni- yiðræðum PLO og ísraela í Ósló og Bandaríkjamönnum er kalda stríðinu var að ljúka og það vakti því litla hrifningu í Washington er talsmenn Sovétstjórnarinnar lýstu yfir því að þeir væru hallir undir sjónarmið Saddams og að tengja bæri lausn Kúveit-deilunnar við önnur svæðisbundin ágreiningsefni í Mið-Austurlöndum. Þessi tengsl gátu Bandaríkjamenn ekki fallist á og reyndi það mjög á emættismenn er þess var freistað að fínna orða- lag sem ekki fæli í sér slíka teng- ingu í þeim sameiginlegu yfirlýs- ingum sem einkum utanríkisráð- herrar Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna létu frá sér fara er Kúveit- deilan stóð sem hæst. Hins vegar var samþykkt sú málamiðlun að Bandaríkin og Sovétríkin myndu í sameiningu beita sér fyrir viðræð- um um frið í Mið-Austurlöndum þegar Persaflóadeilan hefði verið leidd til lykta. Persaflóastríðinu Með foreldrum til Arafats Johan Jergen Holst utanríkis- ráðherra Noregs ásamt hinum fjögurra ára gamla syni sínum, Edvard, sem var með í för er faðir hans og móóir gengu á fund Arafats, leiðtoga PLO. lauk um mánaðamótin febrúar- mars árið 1991 með algjörum ósigri íraka en nú eru tæp tvö ár liðin frá því fulltrúar ísraela og araba settust fyrst að samningaborðinu. Söguleg Norðurlandaför Almennt var því spáð að viðræð- ur þessar ættu eftir að reynast árangurslitlar og það átti eftir að koma á daginn. Aðeins örfáum var hins vegar kunnugt um að á ba- kvið tjöldin voru Norðmenn teknir að freista þess að miðla málum. Þeirri málamiðlun lyktaði með því að Shimon Peres, utanrikisráðherra Israels, setti stafi sína undir plagg sem náðst hafði samstaða um er hann var staddur í Ósló þann 20. fyrra mánaðar. Frá Noregi kom ísraelski utanríkisráðherrann í heimsókn til íslands og greindi Davíð Oddssyni forsætisráðherra frá gangi mála en í þeirri sömu viku hafði annar lykilmaður í við- ræðunum, Johan Jorgen Holst, átt viðræður við ráðamenn hér á landi í því skyni að leiða Barentshafsdeil- una til lykta með pólitískum hætti. Þegar ljóst varð að náðst hafði sátt um söguleg samkomulagsdrög í deilu Palestínumanna og Israela skýrði Johan .Jorgen Holst frá því að í fyrra hefðu bæði fulltrúar PLO og ísraels lýst yfir áhuga á því að fram færu leynilegar samningavið- ræður með milligöngu Norðmanna. „Mér var afhent boðkeflið," sagði Holst og vísaði þannig til þess er hann tók við embætti utanríkisráð- herra af Thorvald Stoltenberg sem gerðist sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna í málefnum fyrrum Júgó- slavíu í aprílmánuði. Holst lét þess og getið að hann hefði átt fund með Yasser Arafat, leiðtoga PLO, í júlímánuði í Túnis. Þá tók norski utanríkisráðherrann þátt í fundi þeirra Peres og Warrens Christop- her, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, í Kaliforníu um síðustu helgi en þar lýstu Bandaríkjamenn yfir fullum stuðningi við þær tillögur sem fram höfðu komið. 14 fundir á þessu ári Að sögn Johans Jorgens Holst fóru á þessu ári fram 14 leynilegir fundir fulltrúa Palestínumanna og ísraela í Noregi. Fundirnir fóru m.a. fram á gömlu sveitasetri í Sarpsborg á að giska 100 kíló- metra suður af Ósló en einnig munu heimili þeirra Holst og Thor- valds Stoltenbergs, forvera hans í starfí, hafa verið notuð í þessum tilgangi. Norðmennirnir lögðu ríka áherslu á að fundirnir færu fram í mikilli ró og næði og er sagt að eiginkonur þeirra piltanna þær Marianne Heiberg og Karin Stolt- enberg, hafi átt dtjúgan þátt í því að skapa sem ákjósanlegastar að- stæður. Átti það við um viðurgjörn- ing allan auk þess sem þess var jafnan gætt að viðræðurnar væru sem óformlegastar. Marianne sagði í Ósló á miðvikudag að fjögurra ára gamall sonur þeirra , Edvard, hefði verið með í för er þau sóttu Arafat heim í Túnis og hefðu þau haft af því áhyggjur að honum leiddist í þessu dulbúna sumarfríi þeirra. „Við báðum hann að hafa hægt um sig og þetta tókst allt saman mjög vel. Með okkur öllum sem þátt tóku í þessu hefur tekist mikil og djúp vinátta sem endast mun alla ævi,“ sagði hún. í Noregi segja menn að norska öryggislögreglan og sú ísraelska hafi í sameiningu séð til þess að engin truflun yrði en oftlega héldu samningamennirnir til í sama húsi. Engu að síður þykir það með ólík- indum að takast skyldi að halda viðræðum þessum leyndum svo lengi. Norskir ráðamenn hafa ekki viljað láta uppi hveijir tóku þátt í viðræðunum fyrir hönd PLO og ísraels. Norska dagblaðið Verdens Gang kvaðst hins vegar hafa fyrir því heimildir að Shimon Peres hefði átt nokkra fundi í Noregi með Abu nokkrum Ala, háttsettum fulltrúa frelsissamtakanna. Ættarveldi fámennisþjóðfélagsins Ekki liggur fyrir hvort eitthvað hafði miðað í viðræðunum þegar Stoltenberg tók við starfi sátta- semjara Sameinuðu þjóðanna í aprílmánuði og Holst fluttist yfir í utanríkisráðuneytið. Auk þeirra hjóna, Stoltenberg-hjónanna og þeirra Teije Rod-Larsen og Monu Juul, tók Jan Egeland, ráðuneytis- stjóri í norska utanríkisráðuneyt- inu, þátt í samningafundunum. Ekki er vitað til þess að eiginkona hans hafi komið þar nærri og var hann því utangátta í þessum „hjónaklúbbi" hvað það varðar. í Noregi er í fjölmiðlum stundum fjallað með gagnrýnum hætti um slík fjölskyldutengsl og „ættar- veldi“ en talsmenn norskra stjón- valda lögðu á það áherslu í sam- tölum við norska sem erlenda fjöl- miðla að tengsl þátttakenda í við- ræðunum væru í raun tilviljun ein. Þátttakendur hefðu valist til þessa starfs vegna hæfileika sinna og þekkingar á málefnum Mið-Austur- landa. Þá var og á það minnt að norski Verkamannaflokkurinn og sá ísraelski hefðu átt gott samstarf í gegnum tíðina. í einu frétta- skeyti Eeuters-fréttastofunnar er vitnað til þeirra orða ónefndra embættismanna að óhjákvæmilegt kunni í raun að vera að slík fjöl- skyldutengsl verði áberandi þar sem aðeins 4,3 milljónir manna búi í Noregi. Fréttaritari lætur þess getið að við þessar aðstæður virðist svo sem fámenn forréttindastétt gáfumenna hafí náð til sín völdum sem séu í engu samræmi við stærð þessa hóps. € € c. o c I í « í I I N

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.