Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 16

Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 sinnió skmnió eftir Kristján Jóhann Jónsson Júlíveðrið á Héraði dundi á gluggunum, hitastigið var komið niður undir frostmark og öldurnar á Lagarfljótinu með hvítt fax en ormurinn lét ekki sjá sig enda lítur hann ekki við öðru en blíðskaparveðri. í húsi á fljótsbakkanum situr fyrrver- andi bóndi á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal. Hann hefur á síðari árum byggt upp eins konar fyrirtæki eða samtök til þess að nýta skinn af hreindýrunum sem ganga villt um öræfi Austur- lands. Fólk er aó rétta ffram skálina sina til þess að Davíó eða Steingrímur láti eitthvað i hana, segir Aóal- steinn Aóal- steinsson, en ég kann betur við að gera eitthvað sjálfur. að er nokkuð langt síð- an ég fór að hugsa um hvort ekki væri hægt að gera eitthvað úr þessum skinnum, seg- ir hann. Ætli það hafi ekki verið 1986 eða ’87. Þá var svo komið að öllum skinnunum var hent. Það hafði verið reynt á árum áður að búa til úr þeim skrautskinn. Þau voru þá sútuð með hárinu á en hrein- dýrshárið er þannig gert að það brotnar og losnar og það varð af þessu mesti sóðaskapur í húsum. Ég fór að hugsa um hvort ekki væri hægt að búa til leður úr hrein- dýrsskinni því að einhvem veginn fannst mér að þetta hlyti að vera dálítið gott efni í leður. Ég fór í verksmiðjumar á Akureyri og ræddi mikið við þá en þeim leist ekkert á mínar hugmyndir. Ég hitti líka menn af Sauðárkróki sem komu hingað til þess að kaupa af mér gærar, ég var sláturhússtjóri hér þá. Þar súta þeir skinn og ég hef enn upp sama sönginn. Endir- inn á okkar samtölum varð sá að þeir ákváðu að reyna. Þeir tóku af mér nokkur skinn og reyndu að gera úr þeim leður. Það gekk nú alla vega. Þeir bjuggu að vísu til dálítið leður en þeir höfðu ekki næga tækni. Þeir höfðu ekkert tii þess að jafnþynna leðrið. Það varð svo úr að lokum að Skinnaiðnaður á Akureyri prófaði líka. Þeir vora með næga tækni og bjuggu til dálítið af leðri fyrir mig sem leit alveg ljómandi vel út. Hins vegar sá enginn sér hag í því að súta fáein skinn. Það var svo alltof Iítið upp úr því að hafa. Þetta var svo lítil eining og litlar einingar eiga ekki upp á pailborð- ið í dag. Árið 1989 var síðan hald- in iðnsýning hér á Egilsstöðum og þá átti ég svolítið af leðri sem Skinnaiðnaður á Akureyri hafði gert, og reyndar svolítið frá Sauð- árkróki líka, og það voru saumað- ar úr þessu flíkur og sýndar á iðn- sýningunni og þeim var mjög vel tekið. Þar með var fyrsta skrefið stigiðr- Um þessar mundir var líka mjög Ólafía Sigmarsdóttir, húsfreyja í Klausturseli á Jökuldal, saumar húfur, kven- veski og töskur úr hreindýrsskinni. Hún hefur fengist við þessa framleiðslu í tvö, þijú ár og segir að regin- munur sé á því sem hún saumar núna og því sem hún bjó til fyrst. Hún fær snið frá Signýju Órm- arsdóttur, leðurhönnuði í Dan- mörku, og saumar eftir þeim en hún leikur sér að þeim líka. Ólaf- ía framleiðir einnig pijónavörur af ýmsu tagi sem hún litar með jurtalitum. Þaó er hanna Danmörku, sútao á Noróurlandi og saumaó á Jökul- dal og Egilsstöó- um. Áóur var hreindýrsskinn- um hent á íslandi en nú er ffram- leidd úr þeim gæóavara eins og hver vill. Bergþóra Arnórsdóttir frá Hvanná á Jökuldal er handavinnukenn- ari og býr á Egilsstöðum. Hún lærði í Danmörku og er sérmenntuð í leðurvinnu. Bergþóra saumar aðallega föt. Hún hefur lengi verið að hugsa um að leggja það eingöngu fyrir sig en segist alltaf lenda í kennslu. Á yngra fólk hefur Bergþóra aðallega saumað vesti og skokka en það er miklu algengara að hún saumi yfirhafnir á eldra fólk. Hún segir að það taki sig þijá til fimm daga að sauma jakka ef allt sé talið. Það er þó misjafnt eftir teikningunni. Sniðin býr hún oftast til sjálf í samráði við þá sem hún er að sauma á en hefur líka fengið snið frá Signýju Ormarsdóttur, fatahönnuði í Danmörku. farið að bera á samdrætti í sauð- fjárbúmennskunni og þess vegna datt mér í hug hvort ekki væri hægt að skapa einhveija atvinnu við leður og skinn til þess að bæta fólki upp missi á sinni framleiðslu. Ég keypti nokkrar saumavélar og dreifði þeim á bæi; fékk þær kon- um sem vildu prófa þetta. Til þess að koma þeim af stað fékk ég konu sem hafði lært saumaskap og kunni að fara með leður. Það var Bergþóra Arnórsdóttir, handa- vinnukennari. Upp úr þessu var farið að herða róðurinn og það varð til þess að ég fór að kaupa öll hreindýraskinn sem ég fékk og láta súta þau í leður. Konurnar fóra síðan að vinna í þessu. Það kom strax í ljós að ef eingöngu yrðu saumuð föt myndi mikið ganga af og það varð að fínna einhveija leið til þess að fullnýta skinnin. Konurnar fóru þess vegna að sauma úr þeim húfur, töskur og púða og alls kon- ar smærri hluti og þannig þróaðist starfsemin í það fyrirkomulag sem á henni er í dag. Það eru nokkrar konur sem vinna við þetta og þær hafa komið sér upp verkaskiptingu í framleiðslunni. Éin saumar tösk- ur og veski, önnur poka og ýmiss konar smátöskur, síðan eru aðal- lega tvær í fatasaumnum. Þegar skriður komst á framleiðsluna fengum við til okkar útlærðan leð- urhönnuð sem starfar í Danmörku og rekur þar lítið fyrirtæki. Hún tók að sér að hanna fyrir okkur flíkur og töskur. Hún heitir Signý Ormarsdóttir og er reyndar ættuð héðan af svæðinu. Þannig virkar þetta í dag. Signý hannar úti í Danmörku, konur á Egilsstöðum og Jökuldal sauma og fólk sýnir þessum varningi vaxandi áhuga. Fatnaðurinn er að langmestu leyti saumaður eftir pöntunum. Við bjóðum fólki flíkur eins og það vill hafa þær. Þetta er sérhannað fyrir hvern mann og það er aldrei saumað eins. En við seljum líka mikið af smávarningi. Úr minnstu skinnpjötlunum búum við til nælur þannig að við notum allt upp. Það er varla hægt að hugsa sér um- hverfisvænni iðnað en þennan. Til þessa fyrirtækis okkar er stofnað á þann hátt að það ber sig sjálft

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.