Morgunblaðið - 05.09.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.09.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 A reiðnámskeiði fyrir fatlaða að Botni í Eyjafirði Knáir knapar Helgi talar við hestana á meðan hann bíður þess að röðin komi að sér að fara á bak. FÖTLUÐ börn og unglingar hafa í sumar átt þess kost að sækja reiðnámskeið í sumarbúðum fyrir þroskahefta að Botni í Eyjafirði. Leiðbeinendur á námskeiðinu hafa verið Áslaug Kristjánsdóttir og Jónsteinn Aðalsteinsson. Þau eru bæði reyndir hestamenn og hafa auk þess langa reynslu af því að vinna með þroskaheftum. Sumarbúðimar að Botni eru reknar af Svæðisstjóm málefna fatlaðra á Norður- landi eystra. Þetta er í fyrsta sinn sem þarna er boðið upp á reiðnámskeið en Áslaug og Jón- steinn hafa áður verið með slík námskeið, þá á vegum Hvamms- hlíðarskóla á Akureyri. Áður en námskeiðshaldið í sumar hófst dvöldu þau í nokkra daga á Reykja- lundi og kynntu sér hvernig hesta- mennska er notuð þar við endur- hæfíngu vistmanna. Áslaug segir að þau hafí haft gagn af þeirri heimsókn þó að starfsemin á Rey- kjalundi sé nokkuð ólík því sem þau eru að fást við á Botni. Stofnað var til námskeiðanna í sumar að tilhlutan Svanfríðar Lars- en starfsmanns Svæðisstjórnar. Töluvert fjármagn var lagt í að byggja upp aðstöðu að Botni, sett var upp rétt fyrir hestana, smíðaður pallur til þess að auðvelda þeim sem era líkamlega fatlaðir að komast á bak hestunum, girt beitarhólf og lagður vegur að réttinni. Svæðis- stjórn greiðir laun þeirra Jónsteins og Áslaugar og skipta þau með sér einni stöðu. Þátttaka í námskeiðunum hefur verið mjög góð að sögn teiðbeinend- anna. Þau segja að í upphafí hafí þau gert ráð fyrir því að þurfa fjóra til fímm hesta á námskeiðinu en þeir séu nú tíu talsins. Námskeiðið hefur verið sniðið að þörfum hvers og eins. Sumir þurfa mjög mikla hjálp við að sitja hestana en aðrir ríða nær hjálparlaust. Enn er þó teymt undir öllum þó að þeir haldi sjálfir í beislistauminn og læri þann- ig að stjóma hestinum. Jónsteinn segir að þau séu með alls konar hesta á reiðnámskeiðinu. Hestamir þurfí vitaskuld að vera traustir og öraggir og þeir þjálfíst smám saman í þeirri list að bera fatlaða knapa. Hann segir að nám- skeiðið hafi gengið slysalaust fyrir sig. Að vísu hafí einn knapanna dottið af baki en«em betur fer hafi hann ekki meiðst. Nokkuð hef- ur borið á því að menn hafi verið smeykir við hestana í upphafi en með þolinmæði og nærgætni hafa flestir yfírannið þá tilfinningu. Guðmundur Árni fær aðstoð við að setja á sig hjálminn. Smári nýtur hjálpar Jónsteins og fleiri aðstoðarmanna við hesta- mennskuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.