Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 22

Morgunblaðið - 05.09.1993, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 Framkvæmdastjóri GATT sendir frá sér harðorða skýrslu Neytendur í hafti en þekkja ekki skaðann „ÞAÐ er löngu tímabært að stjórnvöld um allan heim geri neytend- um grein fyrir því hversu dýru verði vernd innlendra framleið- enda gegn erlendri samkeppni er keypt,“ segir Peter Sutherland framkvæmdastjóri GATT (Almenna samkomulagsins um afnám tolla og viðskiptahindrana) í skýrslu sem birt var í Genf í ágústmán- uði. Sutherland telur að neytendur séu vísvitandi beittir blekking- um um að innflutningshöft séu til verndar atvinnu og vörugæðum meðan upplýsingum um hið gagnstæða sé stungið undir stól. Skýrslan er óvenju skorinorð, ef mið er tekið af því efni sem alþjóðastofnanir birta að jafnaði. Undirtitill er „Svikamyll- an - eða hvernig ríkisstjórnir kaupa atkvæði með fé skattborg- aranna.“ Sutherland segir brýnt að vekja almenning til umhugsun- ar um viðskiptahöft og hag þeirra af því að þeim verði aflétt. Stjórn- völd reyni að telja kjósendum trú um að innflutningshömlur og styrkir til innlendra fyrirtækja skapi atvinnu, en láti hjá líða að lýsa þeim skaða sem auknir skatt- ar og hærra vöruverð veldur. Þau rök eru gjarnan notuð til þess að styðja bann við innflutn- ingi landbúnaðarvara að það auki gæði og vöruvöndun. Ein af at- hygliverðari niðurstöðum skýrsl- unnar er hinsvegar að fijáls versl- un með landbúnaðarvörur og nið- urfeiling styrkja muni auka fram- boð á afurðum sem framleiddar eru á lífrænan hátt. Iðnríkin stuðli með niðurgreiðslum að hömlulítilii framleiðslu afurða sem krefst mikils áburðar, skordýraeiturs, sýklalyíja og hormóna. Ef niður- greiðslur féllu niður myndi land- búnaður sem er síður háður til- búnum áburði og eiturefnum eiga auðveldara uppdráttar. Vita ekki um kjaraskerðinguna Skýrsluhöfundar segja að hag- ur neytenda sé oftast fyrir borð borinn þegar stefna í utanríkisvið- skiptum er til umræðu. Þrátt fyr- ir að neytendur séu fjölmennasti þjóðfélagshópurinn, séu áhrif framleiðenda og skipulagðra þrýstihópa ávallt þyngri á metun- um. Ástæðan sé ekki síst sú hversu neytendur eru illa upplýst- ir um áhrif viðskiptahafta á verð, framboð og gæði. Almenningur geri sér litla grein fyrir þeirri miklu kjaraskerðingu sem hann verði fyrir af þessum sökum. Það eru eink- um sex þættir í viðskiptaháttum þjóða sem skaða neytendur, að sögn höfunda skýrslunnar. Tollar, innflutningshöft, einhliða tak- markanir á útflutningi, niður- greiðslur, tæknihindranir og ráð- stafanir gegn undirboðum. Ef samkomulag næst í Urugu- ay-lotu GATT viðræðnanna myndu tollar lækka um þriðjung að jafnaði en yrðu felldir niður í mörgum tilvikum. Lyf, verkfæri til byggingariðnaðar, lækninga- tæki, stál, áfengi og húsgögn eru meðal þeirra vörutegunda sem nytu tollfrelsis. Innflutningshömlur yrðu afn- umdar í áföngum. Nýjar reglur um einhliða takmarkanir á út- flutningi og ráðstafanir gegn und- irboðum myndu binda henduryfir- valda til muna. Niðurgreiðslur yrðu takmarkaðar og afnumdar í landbúnaði á nokkrum árum. Felldir yrðu úr gildi samningar- um vernd fataiðnaðar og hann látinn njóta sömu kjara og aðrar atvinnugreinar. Ríkuleg verndlandbúnaðar Líklega er innflutningsvernd hvergi beitt í ríkari mæli og víðar en í landbúnaði. Flestar þjóðir sem eiga aðild að GATT vemda bænd- ur og framleiðendur landbúnaðar- vara með einum eða öðrum hætti. Sem dæmi nefna höfundar sykur- iðnað í Bandaríkjunum, en heild- söluverð sykurs er helmingi hærra þar í landi en á heimsmarkaði. Skaði bandarískra neytenda er áætlaður um 210 milljarðar króna á ári. Verð á hrísgijónum í Japan er einnig dæmi um áhrif innflutnings- banns. Kíló- verð er fimm- falt í Tókíó á við það sem gerist í verslunum í Bandaríkjun- um. Evrópubandalagið hefur reynt að takmarka innflutning á bílum, með þeim afleiðingum að verð á japönskum bílum er um þriðjungi hærra í Frakklandi en ella og allt að 70% hærra í Bretlandi en í Japan. Þar sem höftin beinast aðal- lega að smábflum, hafa afleiðing- arnar orðið þær að bílaverksmiðjur í Japan þróa stærri, dýrari og full- komnari bíla. Kostnaður við vöru- þróun hefur að hluta verið greidd- ur af þeim hagnaði sem japönsku bílaverksmiðjumar urðu fyrir vegna hærra verðs á erlendum mörkuðum. Afleiðingin er síversn- andi samkeppnisstaða evrópskra og bandarískra framleiðenda. Peter Sutherland fram- kvæmdastjóri GATT segir iöngu tímabært að stjórnvöld um allan heim geri neytendum grein fyrir því hversu dýru verði vernd innlendra framleið- enda gegn erlendri samkeppni er keypt. Iðnríkin hafa að mati höfunda skýrslunnar lokað mikilvægum mörkuðum fyrir útflutning með því að hefta innflutning. Þar sem útflutningstekjur í þróunarríkjun- um era skertar, séu fjárráð al- mennings minni til þess að kaupa vestrænan varning. Dæmi um þetta sé Bangaladesh sem hafi orðið fyrir miklum búsiíjum vegna ráðstafana vestrænna ríkja til þess að vernda fataiðnað. Tugþús- undir verkamanna hafi misst vinnuna og innflutningur á vest- rænum varningi dregist saman. Tölur um kostnað vegna inn- flutningshafta á fatnaði og vefn- aðarvöru eru ískyggilegar: Um 15 þúsund krónur á fjölskyldu í Kanada, 8 þúsund krónur á fjöl- skyldu í Bretlandi og 14-29 þús- und krónur á fjölskyldu í Banda- ríkjunum. Talið er að takmarkan- ir á innflutningi myndbandstækja, sjónvarpstækja, geislaspilara og annarra rafmagnstækja valdi íbú- um Evrópubandalagsins ekki minni skaða en 80 milljörðum króna á ári. Skaðar þá fátækari mest Viðskiptahöft koma verst við pyngju þeirra sem lökust hafa kjörin, þar sem nauðsynjavörur eiga oftast í hlut. Dæmi um það eru takmarkanir á innflutningi fatnaðar. Framleiðendur hneigj- ast til þess að flytja heldur út munaðarvöru, þar sem hagnaður er meiri af takmörkuðu magni. Framboð á ódýrum fatnaði og fötum á börn er því minna en ella. Byrði láglaunafólks vegna hafta- stefnu er hlutfallslega mun meiri en skaði þeirra hæst launuðu. Takmarkanir á innflutningi era oftast réttlætar með því að þær verndi störf í iðnaði eða landbún- aði. Sérfræðingar GATT eru hins- vegar á því máli að kostnaður almennings af því að vernda hvert starf sé yfirleitt hærri en laun viðkomandi starfsmanns. í Ástral- íu er áætlað að kostnaður af inn- flutningshöftum á fatnaði nemi 1,4 milljónum króna á hvert starf í fataiðnaði en 1,2 milljónum króna fyrir hvert starf í bílaiðnaði. I Bandaríkjunum nemur kostn- aður við að vernda eitt starf í fataiðnaði allt að 6 milljónum króna, í appelsínurækt 17 milljón- ir króna, í framleiðslu keramik- flísa 10 milljónir króna, í sjón- varpstækjaframleiðslu 28 milljón- ir króna og 72- milljónir króna í stáliðnaði. Árslaun þeirra starfs- manna sem þannig er haldið í vinnu eru að sjálfsögðu aðeins brot af þessari upphæð. Sá kostnaður sem almenningur ber í hærri opinberum gjöldum og vöruverði fellur til á hveiju ári meðan innflutningsverndin varir. Neytendur gjalda einnig fyrir minna úrval og innlendur iðnaður sem reiðir sig á innflutt aðföng á í vök að veijast vegna hærra hrá- efnisverðs. „Uruguay lotan er ekki svarið við öllum vanda neyt- enda. En eins og þessi skýrsla sýnir, ætti hún að bæta ástandið. Þessi staðreynd ætti að vera ofar- lega í huga samningamanna í lo- kakafla GATT viðræðnanna. Að öðram kosti ættu neytendur að krefjast svara við alvarlegum spurningum.um það háa verð sem þeir hafa goldið fyrir viðskipta- hömlur sem gegna litlum eða eng- um tilgangi,“ segir Peter Suther- land framkvæmdastjóri GATT. BAKSVIÐ eftir Benedikt Stefánsson SKÚLAGÖTU 32-34 w í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI nri Á oÁnui'icjoRGI Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCING, RUSSIAN METHOD. Félag íslenskra listdansara. Námskeið fyrir byrjendur (yngst 4ra ára) og framhaldsnemendur. Skírteini verða afhent laugardaginn 11. september á eftirtöldum tímum: Forskóli 4-6 árakl. 12-14. • 7 ára og eldri kl. 14-16. BALLET KLASSÍSKUR BALLET Innritun i síma 72154 frákl. 11-19. Kennsla hefst 14. september. BHLLETSKÓU SIGRÍOflR flRmflnfl HAFNFIRÐINGAR OG NÁGRANNAR! Full búð af nýjum vörum: NIKE skólatöskur, gallar, sokkar, skórog margtfleira. Einnig nýju JORDAN og BARKLEY skórnir. Seljum einnig vinsælu gallabuxurnar frá LEE COOPER. Fjölsport, Lækjargötu 34c, Hafnarfirði, sími 65 25 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.