Morgunblaðið - 05.09.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993
| Minning
í
t
Eiginmaður minn, faðir, tengafaði og afi,
GUÐJÓN ÁSGEIR HÁLFDÁNARSON,
Rjúpufelli 21,
lést i Borgarspítalanum 2. september.
Lára Hjartardóttir,
Erna Guðjónsdóttir,
Þórdís Guðjónsdóttir, Margeir Elentínusson,
Bjarnfriður Guðjónsdóttir,
Lára Samira Benjnouh
og barnabörn.
t
Amma mín,
LÚLLÝ M. MATTHÍASSON,
Seljahlíð,
andaðist í Borgarspítalanum 2. september.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 10. september
frá Fossvogskapellu kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl R. Sverrisson.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
ANNA JÓNSDÓTTIR,
andaðist föstudaginn 3. september í Sjúkrahúsi Akraness.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Hörður Bjarnason,
Geir Valdimarsson,
Jón Valdimarsson,
tengabörn og barnabörn.
Bergsveinn Skúla-
son frá Skáleyjum
Fæddur 3. apríl 1899
Dáinn 21. ágúst 1993
Bergsveinn Skúlason var fæddur
í Hvallátrum á Breiðafirði 3. apríl
1899. Foreldrar, Skúli Bergsveins-
son bóndi, lengst í Skáleyjum og
kona hans Kristín Einarsdóttir hús-
freyja. Búfræðingur frá Hvanneyri
1921. Nám við Askov lýðháskóla
einn vetur, störf á dösnkum bú-
garði eitt sumar. Bóndi í Skáleyjum
1928-31, Skálmarnes-Múla
1931-40, Ögri 1940-47. Verka-
maður Garðahreppi 1947-50. Bú-
stjóri Breiðuvík 1953-55. Verka-
maður í Reykjavík frá 1955.
Giftur 9. júní 1928 Ingveldi Jó-
hannesdóttur frá Skáleyjum. Kjör-
dóttir þeirra er Hrafnhildur Berg-
sveinsdóttir. Fóstursonur þeirra var
Kristján Valdimarsson sem lést fyr-
ir mörgum árum.
Bergsveinn lést í hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi eftir
nokkurra mánaða dvöl þar.
Nú er Bergsveinn fluttur blessað-
ur karlinn og blessuð sé minning
hans. Kannski er hann að lesa þetta
yfír öxlina á mér.
Eftir þessa þurru upptalningu
verð ég að geta þess að hann
skammaði mig fyrir mælgi í minn-
ingargreinum, en hvatti mig jafn-
framt til meiri ritstarfa. Þar var
hann sjálfur.
Bergsveinn Skúlason var vænn
meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og
búlduleitur. Sópaði að honum þar
sem hann fór. Virkur í félagsmál-
um.
Hann var í forystu um stofnun
Búnaðarfélags Flateyrarhrepps á
3. áratug aldarinnar og fyrsti for-
maður þess. Tímamir breytast í
byggðum og félagsmálum bænd-
anna. Það er að vísu tilviljun, eða
hvað? En þó tímanna tákn að núna
á sama ári og forsprakkinn deyr,
lýstu hinir fjórir félagar, sem eftir
stóðu á aðalfundi, yfir að félagið
væri í raun dautt, yfirsöng lokið
og moldunin ein eftir.
Bergsveinn var hreppsnefndar-
maður og sýslunefndarfulltrúi fyrir
Múlasveit svo að eitthvað sé nefnt
félagslegra starfa hans.
Snemma hóf hann grúsk sitt og
sparðatíning um menn, málefni og
landshagi. Flutti erindi á manna-
mótum og safnaðist hirð viðmæl-
enda og lærisveina að fræðabrunn-
inum, þess utan. Þegar út voru
komnar nokkrar bækur hans var
hann opinberlega sæmdur fýrir rit-
störf sín. Viðurkenningin var hon-
um veitt fyrir fagurlega ritað og
flutt íslenskt mál um þjóðlegan
t
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma,
SIGRÍÐUR ÞÓRDÍS VIGGÓSDÓTTIR,
Krummahólum 8,
sem andaðist 28. ágúst, verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu mánudag-
inn 6. september kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélagið.
Guðrún H. Ágústsdóttir, Jón G. Ragnarsson,
Ágúst ívar Vilhjálmsson.
t
Elskuleg móðir okkar,
SIGURBJÖRG S. PÉTURSDÓTTIR,
sem andaðist á Droplaugarstöðum 26.
ágúst, verður jarðsungin frá Fíladelfíu-
kirkju þriðjudaginn 7. september
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónatan Jóhannesson,
Garðar Jóhannesson.
t
Móður- og föðursystir okkar,
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
frá Blöndugerði f Hróárstungu,
N-Múlasýslu,
fyrrverandi forstöðukona elliheimilisins á Akranesi,
andaðist í sjúkrahúsinu á Akranesi 2. september sl.
Hún verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 10. septem-
ber kl. 11.00 og jarðsett frá Hvalsneskirkjugarði sama dag
kl. 16.00.
Stella Benediktsdóttir,
Svanlaug Jóhannsdóttir,
Sigurbjörn Jóhannsson,
Árni Jóhannsson,
Vilborg Málfríður Jóhannsdóttir
og fjölskyldur.
t
Útför systur minnar,
GUÐBORGAR JÓRUNNAR BRYNJÓLFDÓTTUR,
fer fram frá Garðakirkju, Garðabæ, þriðjudaginn 7. september
kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á líknarstofnanir.
Guðríður Brynjólfsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KR. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
tryggingastærðfræðingur,
Bjarmalandi 24,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. september
kl. 13.30.
Arndis Bjarnadóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson,
Hólmgeir Guðmundsson.
t
Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við fráfall og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,
VILBORGAR BJÖRNSDÓTTUR
hússtjórnarkennara,
Bólstaðarhlíð 45.
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir, Gunnar Þór Þórhallsson,
Margrét Gunnarsdóttir,
Vilborg Gunnarsdóttir, Lárus Björnsson,
Þórhallur Gunnarsson, Vigdfs Gunnarsdóttir.
fróðleik.
Bækur hans geyma mynd af
störfum og hag genginna kynslóða
í Breiðafjarðareyjum og umhverfí
Breiðaijarðar.
Það var blessað bjargræði
Breiðafjarðareyja,
að Skarfakletts í skorinni
skyldir þú ekki deyja.
Svo kvað Jón frá Skáleyjum
æskufélagi hans eftir útvarpserind-
ið um strandið í Skarfakletti.
Bækumar eru sá bautasteinn
sem Bergsveinn reisti sér sjálfúr
og óbrotgjarn mun standa meðan
nokkur hræða þessarar þjóðar
nennir að fræðast um slíkt efni og
það náttúrufar sem áar okkar
byggðu afkomu sína á.
Pennasnilld hans geymist á þess-
um blöðum og þá ekki síður penna-
gleðin. Þessi sama hvöt og magnaði
Snorra Sturluson og Ara fróða Þor-
gilsson.
Það var ómaksins vert að fara
til hans og eiga með honum rabb-
stund. Hann lét ekki alltaf líklega
og var enginn já og amen maður
við öllu sem uppá borðið kom. Sama
hvort viðmælandinn vildi fjalla um
íslenskan landbúnað eða alþjóða
pólitík. Jafnan var hann málsvari
þeirra sem minna máttu sín og fús
til vamar ef honum þótti hallað á.
Ritstörfín munu geyma hans
nafn. Önnur störf hans báru vott
ráðdeildar og samviskusemi þeirrar
kynslóðar sem ekki aðeins þurfti á
öllu sínu að halda, heldur vildi einn-
ig sækja fram og skapa betri tíma.
Búskaparsaga hans er ekki saga
festu og umsvifa með mannvirkjum
sem mölur og ryð fá grandað, en í
túninu heima má enn sjá handaverk
búfræðingsins unga sem ætlaði að
bæta ábýlið.
Hann sagðist vera kommi, sem
er nú kannski teygjanlegt hugtak.
Gagnrýninn var hann, oft hvassyrt-
ur og lítt beygður inn í kirkjulega
auðmýkt. Þessi ergi magnaðist er
líkamsburðir tóku að þverra og varð
erfíð hans nánustu, sem honum
sjálfum. Sólargeislinn sem þítt gat
geðið voru dótturdætur hans. Dæt-
ur Hrafnhildar og Björns Guð-
mundssonar.
Svo fór að gamli harðjaxlinn fann
helst fró frá erfiðleikum sínum í
að rifja upp bænir bernsku sinnar.
Síðustu orðin sem konan hans skildi
af hans vörum voru ósk um prests-
fund og kirkjulega útför.
Ingu frænku minni bið ég Guðs
blessunar og votta henni virðingu
mína. Sömuleiðis hjúkrunarfólkinu
í Sunnuhlíð.
Fjölskylda hans öll þiggi mína
lokakveðju.
Lifið heil!
Jóhannes Geir Gíslason.