Morgunblaðið - 05.09.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.09.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1993 33 Minning Séra Þórarinn Þór, fyrrv. prófastur Þegar samferðamennirnir kveðja sr. Þórarin Þór hinstu kveðju er við hæfi að einhver úr Flateyjarsókn láti til sín heyra. Um nokkurra ára skeið þjónaði hann fámennum söfn- uði þar, sem einmitt á þeim árum virtist bíða þeirra örlaga að líða undir lok. Við þann fámenna söfnuð og eyjarnar sjálfar tók hann þó tryggð og fór ekki dult með ánægju sína af messuferðum til Flateyjar. í þeim gamansama tón sem kunn- ingjarnir þekktu svo vel átti hann til að státa af kirkjusókn þar upp á hundruð prósenta á góðviðris- dögum að sumarlagi. Þá er oft margt aðkomufólk í Flatey. Sr. Þórarinn Þór vígðist til Reyk- hólaprestakalls 1948. Um þær mundir var prestakallið flutt frá Stað á Reykjanesi að Reykhólum, þar sem hinu fornfræga höfuðbóli var ætlað að gegna hlutverki byggðarkjarna í framtíðinni. Þar reis prestbústaður af grunni, þar sem presturinn ungi settist að með ijölskyldu sína. Áður höfðu prest- arnir setið á Stað öldum saman, svo hér var um tímamót að ræða. Á Reykhólaárum sínum, sem Minning Guðbjörg Rannveig Hermannsdóttir Fædd 19. janúar 1906 Dáin 22. ágúst 1993 Elsku amma. Ókkur langar bara til að kveðja þig með nokkrum orðum og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Við vitum að þú varst búin að bíða lengi eftir því að fá að fara og að þú ert núna ánægð að vera loksins komin til hans afa, en samt er eins og maður sé aldrei fyllilega viðbúinn og fyllist áköfum söknuði þegar dauðinn kveður dyra. Okkur finnst við vera svo ríkar að hafa fengið að eiga þig fyrir ömmu. Þú kenndir okkur svo margt og varst svo yndislega góð. Þú hafð- ir alltaf tíma til þess að hlusta á okkur þegar við þurftum á að halda og ráðlagðir okkur ýmislegt sem við förum eftir enn þann dag í dag. Þú kenndir okkur bæði í orði og verki að kærleikurinn og trúin á guð væri það besta sem nokkur maður gæti eignast. Þú áttir til svo mikla hlýju og varst svo jákvæð þrátt fyrir að þú hafir þurft að reyna svo mikið. Við munum í minningunni geyma myndina af þér þar sem þú greiðir síða hvíta hárið þitt og fléttar það í tvær fléttur áður en þú klæðir þig í peysufötin þín sem þú varst svo hreykin af að vera í. Þér fannst þú aldrei vera fín nema þú værir klædd í peysufötin. En nú ertu farin og eftir standa minningar um góða LEGSTEINAR faaiALFASTEINN? ömmu og þakklæti fyrir það sem þú varst og veittir með lífi þínu og breytni. Hjartans þakkir fyrir allt og allt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregátárin stríð. (V. Briem.) Helga, Sveinn, Sólveig, Þór- unn og Sigríður. urðu 21, þjónaði sr. Þórarinn öllum kirkjum Austur-Barðastrandar- sýslu, sumum allan tímann, öðrum skemur. Þar tilheyrðu áður sex kirkjur íjórum prestaköllum, en vegna fólksfækkunar, bættra sam- gangna og í einu tilfelli vegna færslu milli prófastdæma heyra þær núorðið allar undir Reykhólapresta- kall. Það mun ekki hafa átt illa við prestinn að hafa næg viðfangsefni. Hann var í eðli sínu enginn kyrr- setumaður að ég ætla, ör í lund og glaðsinna. Honum fylgdi hressandi gustur og glaðværð, en engin logn- molla. Þó var enginn lagnari að slá á viðkvæma sorgarstrengi á kveðju- stundum en hann. Það kom ekki hvað síst fram þegar í hlut áttu þeir sem á einhvern hátt höfðu orð- ið olnbogabörn hamingjunnar í líf- inu. Frá Reykhólum fluttist fjölskyld- an til Patreksfjarðar 1969, þar sem sr. Þórarinn var sóknarprestur til 1987, að hann lét af embætti. Þar gegndi hann ýmsum trúnaðarstörf- um öðrum, og í tæpa þrjá áratugi var hann prófastur í Barðastrand- arprófastdæmi. Á þessum árum þjónaði hann stundum nágranna- prestaköllum þegar þar var prest- laust og hafði áður en yfir lauk þjónað öllum kirkjum Vestur- Barðastrandarsýslu, eins og gerst hafði áður í austursýslunni. Ferill hans í embætti er athyglis- verður og líklega einstakur. Ungur vígðist hann til þjónustu í héraði fjarri átthögum og frændliði, en í því sama umdæmi eyðir hann síðan allri starfsævi sinni. Hann þjónar á þeim tíma hverri einustu kirkju í heilu prófastdæmi, og er sjálfur prófastur þess lengst af. Ókunnugt er mér um hvort hliðstæður emb- ættisferill sé þekktur í íslenskri kirkjusögu. Sr. Þórarinn Þór vafði sig engum dýrlingshjúpi í daglegri framgöngu. Hann forsmáði ekki gleðina og lífs- nautnina né samneyti við breyska t Elsku konan mín, móöir okkar, dóttir og systir, GUÐRÚN BIRNA FINNSDÓTTIR, verður jarðsett mánudaginn 6. septem- ber frá Bústaðakirkju kl. 15.00. Grétar Júníus Guðmundsson, Elvar Finnur Grétarsson, Heiðar Kristján Grétarsson, Hannar Sindri Grétarsson, Hanna Armann, Finnur Björnsson, Valdís Ella Finnsdóttir. 720 Borgarfiröi eystra, sími 97-29977, fax 97-29877 B*eMhús- iiinréttinM^ HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 t Þökkum af alhug hluttekningu við andlát RAGNARS ÓLAFSSONAR. Arna Rut Ragnarsdóttir, Ólafur Ragnar Karlsson, Hrefna Einarsdóttir, Einar Ólafsson, Stefania María Ólafsdóttir, Sigríður Jóna Ólafsdóttir. meðbræður. Kannski komst hann heldur ekki alltaf hjá aðkasti eða árekstrum, en starfsferill hans talar sínu máli. Að leiðarlokum efast ég um að nokkur óvildarmaður hans hafi fyrirfundist í Barðastrandar- prófastdæmi, en þeim mun fleiri sem áttu hlýjar minningar í þakk- látum hug um góðan og velviljaðan gleðimann, samviskusaman emb- ættismann, kreddulausan og auð- mjúkan þjón þess leiðtoga sem hann hafði ungur svarið hollustu. Sjálfur minnist ég samstarfs við hann á fleiri en einu sviði, skemmti- legs félagsskapar, ákafa hans og ósérplægni í baráttu fyrir áhuga- málum og áhrifamikilla embættis- verka þegar hann lagði sig fram. Sterkur þáttur í eðli hans og upp- lagi mun hafa verið listhneigð, sem hann hefði líklega viljað sinna meira en aðstæður hans leyfðu. Slíkum mönnum kunna stundum að vera mislagðar hendur, en þegar þeim tekst best upp gera þeir hluti sem verða okkur hinum minnisstæðir og hafnir yfir flatneskju hversdags- leikans. Þegar sr. Þórarinn hafði lokið sínu dagsverki, laus við embættis- skyldur og heilsan enn bærileg ráð- gerði hann oft að koma út í eyjar og rifja upp gömul kynni við fólk og fuglalíf á vordögum. Af því lét hann verða vorið 1992, kom þá í heimsókn með vandafólki og staldr- aði við, líklega tvo daga. Þá var veðurblíða sem ekki gafst oft á því vori. Heilsunni hafði hrakað og lík- lega var hann farið að gruna að hveiju stefndi. Samt held ég að hann hafi notið ferðarinnar og grunnt var á gamanmálum sem fyrr. Þakklátur er ég nú fyrir að hann skyldi fara þá för meðan dagur entist og veit að honum fylgja þakk- ir og kveðjur fjölmargra sem kynnt- ust honum þar um slóðir á sínum tíma, þegar hann hefur nú lagt upp í sma hinstu för. Ég hef ekki hirt um að greina hér frá fjölskyldu hans því að það hafa aðrir þegar gert. Ástvinum hans votta ég samúð mína vegna fráfalls sr. Þórarins Þór, en veit reyndar að minningin um hann verður þeim ekki sorgarefni heldur gleðigjafi á ókomnum árum. Eysteinn í Skáleyjum. I HARDVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hlýju og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR I. BRYNJÓLFSDÓTTUR. Ingibergur G. Helgason, Sigríður Óskarsdóttir, Sigríður Bryndís Helgadóttir, Ólafur Steinþórsson, Jósep H. Heigason, Hrönn Helgadóttir, Pétur Njarðvík, Einar Helgason, Anna I. Gunnarsdóttir, Helgi Gestsson, Guðmundur Vestmann, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar hjartans þakkir færum við þeim mörgu sem sýndu okk- ur samúð og vináttu við dauða og útför, KRISTINS SIGURJÓNSSONAR, Fögrubrekku 16, Kópavogi. Svanhvít Friðriksdóttir, Friðrik S. Kristinsson, Þóra Jakobsdóttir, Flóki Kristinsson, Ásdís Sigurþórsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við útför elskulegrar móður okkar, ömmu og langömmu, VIGDÍSAR HÓLMFRÍÐAR INGIMARSDÓTTUR, Arahólum 2. Þór Ingimar Þorbjörnsson, Einína Einarsdóttir, Guðrún Ólöf Þorbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ELÍSABETAR HJÁLMARSDÓTTUR, Háaleitisbraut 50. Elísa J. Jónsdóttir, Guðmundur G. Jónsson, Maria Huld Jónsdóttir, Guðmundur H. Jónsson, Bára M. Eiríksdóttir og barnabörn. Þórir Davíðsson, Þóra Jónsdóttir, Díana L. Franksdóttir, Kristin Kristensen, * Stílabœkur frá Kassagerbinni • Stíiabcekur frá Kassagerbinni Stílabœkur frá Kassagerbinni • Stílabcekur frá Kassagerbinni • Stíiabcekur frá Kassagerbinni • Stílabœkur frá Kassagerbinni Stíiabœkur frá Kassagerb /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.