Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 41

Morgunblaðið - 05.09.1993, Síða 41
r MÓRGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA sunnuóMr 5.' SEFfRMBER 1993 41 Styrkirtil þátttöku í námskeiðum á ýmsum þjónustusviðum í Bandaríkjunum: Menntastofnun íslands og Bandaríkjanna (Fulbright-stofnunin) býður upp á styrki til þátttöku í allt að fjögurra mánaða námskeið- um sem CIP (Council of International Pro- grams) hefur skipulagt 1994 á ýmsum svið- um opinberrar þjónustu, fjölmiðlunar, félags- legrarþjónustu, stjórnunarstarfa, heilbrigðis- þjónustu, dómsmála, samgöngumála o.fl. Námskeiðin eru aetluð aðilum með nokkra starfsreynslu á viðkomandi sviði. Umsóknareyðuþlöð og frekari upplýsingar liggja frammi hjá Fulbrightstofnuninni, Laugavegi 59, sími 10860 (Laugavegi 26 eft- ir 14. sept.). Umsóknarfrestur er til 1. október 1993. WTJÓNASKOÐUNARSTÖÐ Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur Sími 683400 - Telefax 670477 Tilboð óskast í bifreiðir, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Bifreiðirnar verða til sýn- is á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn 6. september 1993, kl. 8-16. Tilboðum sé skilað samdægurs. Vátryggingafélag íslands hf. - Tjónaskoðunarstöð - <H/S/ÆT Útboð Olafsvíkurvegur, Reiðhamar - Staðará Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn- ingu 8,4 km kafla á Ólafsvíkurvegi frá Reið- hamri að Staðará. Helstu magntölur: Fyllingar og burðarlög 90.000 rm, skeringar 8000 rm og klæðing 51.000 fm. Verki skal lokið 20. september 1994. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis- ins í Borgarnesi og Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 8. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00, þann 27. september 1993. Vegamálastjóri. Menntamálaráðuneytið Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningar- tengsl Finnlands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veitt- ir einstaklingum, stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstak- lega stendur á. Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styrkja verkefni er stuðla að aukinni kynningu á finnskum og íslenskum bókmenntum. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir fyrri hluta ársins 1994 skulu sendar stjórn Menn- ingarsjóðs íslands og Finnlands fyrir 30. september nk. en umsóknir er miðast við síðari hluta árs 1994 og fyrri hluta árs 1995 skulu berast sjóðstjórninni fyrir 31. mars 1994. Áritun á íslandi: Menntamálaráðuneytið, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu rítaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Sérstök umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Stjórn Menningarsjóðs Islands og Finnlands. 3. september 1993. AUGLYSINGAR rpÚJBOÐ1 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. þyggingadeildar borgarverkfræðings, óskar" eftir tilboðum í byggingu bíla- geymslu við Aflagranda 40 í Reykjavík. Flatarmál bílageymslunnar er 1.170 m2 og bílastæði 43, en á þaki bílastæði fyrir 34 bíla. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 7. september 1993, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 5. október 1993 kl. 11.00. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Reykjavíkurhafnar, óskar eftir tilboðum í dýpkun Gömlu hafnarinnar. Verkið er dýpkun sjö skilgreindra svæða innan marka Gömlu hafnarinnar og losun efnis á Klettasvæði í Sundahöfn. Heildarmagn efnis, sem fjarlægja skal er 200.000 m3. Heildarflatarmál dýpkunarsvæðis er 172.000 m2. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 28. september 1993, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVl'KURBORGAR & Mosfellsbær íbúöir aldraðra Lausar eru til umsóknar tvær íbúðir (einstakl- ings- og hjónaíbúð) í íbúðum aldraðra við Hlaðhamra. Um er að ræða hlutdeildarsölu (5090). íbúðirnar eru einkum ætlaðar þeim, sem hafa náð 67 ára aldri og eiga lögheimili í Mosfellsbæ. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu- blöðum á skrifstofu félagsmálastjóra í Þver- holti 3 fyrir 13. september nk. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsmálastjóra í síma 668666 kl. 10.00 til 11.00 virka daga. Félagsmálastjóri. Greiðsluáskorun Akraneskaupstaður skorar hér með á gjald- endur sem ekki hafa staðið skil á álögðum og áföllnum en vangoldnum útsvörum, að- stöðugjöldum, fasteignagjöldum, gatnagerð- argjöldum A og B, leyfis- og eftirlitsgjöldum vegna heilbrigðismála, byggingarleyfisgjöld- um og hundaleyfisgjöldum til bæjarsjóðs Akraness, hafnar-, afla-, vöru-, skipa- og lest- argjöldum til hafnarsjóðs Akraness auk sér- staks vörugjalds til ríkissjóðs, að greiða þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum. Rétt er að benda á að verulegur aukakostn- aður fellur á skuldir þurfi að koma til fjárnámsaðgerðar. Akranesi, 31. ágúst 1993. f.h. Akraneskaupstaðar, innheimtustjóri. OSKAST KEYPT Fyrirtæki óskast keypt Þarftu að selja fyrirtæki af sérstökum ástæð- um? Viltu skipta á 3ja herbergja íbúð á góð- um stað í bænum? Áhugasamir leggi inn upplýsingar á auglýs- ingadeild Mbl. fyrir 10. september nk. merkt- ar: „Fyrirtæki - íbúð - 12820“. Fullum trúnaði heitið. HUSNÆÐIOSKAST Stórt íbúðarhúsnæði óskast á leigu í Reykjavík, helst í Miðbæ eða Vesturbæ, frá 1. október nk. Vinsamlegast hafið samband í síma 621797 eða 613950.____________________ Einbýlishús eða stór sérhæð óskast á leigu á svæði 101 í Reykjavík. Traustur leigutaki. Vinsamlega hringið í heimasíma 679167 eða á vinnutíma í síma 628803. Vélstjórafélag íslands Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 9. september í Borgartúni 18,3. hæð, kl. 17.00. Fundarefni: Uppstilling til stjórnarkjörs. Uppstillingarnefnd. Skíðadeild Haustæfingar skíðadeildarinnar hefjast laug- ardaginn 11. september kl. 10.30 á félags- svæði ÍR við Skógarsel í Mjódd. Nýir félagar velkomnir. Upplýsingar í símum 72206 og 666794. Stjórnin. Kór Laugarneskirkju er að hefja starfsár sitt. Fyrirhuguð er utan- landsferð á næsta ári. Kór Laugarneskirkju gétur bætt við nokkrum söngvurum, aðallega í karlaraddir. Nánari upplýsingar veita Guðmundur í síma 813809 og Ron í símum 679422 og 623276. Fulbright-námsstyrkir Fulbrightstofnunin býður nokkra styrki til handa náms- og listamönnum, sem hafa lok- ið háskólaprófi eða samsvarandi prófi í list- greinum eftir námsárið 1993-94 og hyggja á frekara nám í Bandaríkjnum 1994-95. Tekið er við umsóknum um nám á flestum sviðum. Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 1993. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar liggja frammi hjá Fulbrightstofnuninni, Lauga- vegi 59 (Laugavegi 26 eftir 14. september). Aðalfundur Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i Vestfjarðakjördæmi verður haldinn í félagsheimilinu á Hólmavík 11. og 12. september nk. Fundurinn verður settur kl.16.00 laugardaginn 11. september. Dagskrá: 1. Fundarsetning. 5. Ræða Halldórs Blöndal, 2. Kos'ning nefnda. samgönguráðherra. 3. Skýrsla stjórnar. 6. Ræöuralþingismanna-alþingismennirnir 4. Reikningar. Matthías Bjarnason og Einar K. Guðfinnsson. Fundarhlé. Kl. 19 sameiginlegur kvöldverður - almennur dansleikur eftir kl. 22. Fundi veröur framhaldið sunnudaginn 12. september kl. 10.00. Dagskrá: 1. Skýrsla blaðnefndar. 2. Kynntar tillögur um sameiningu sveitarfélaga, Gunnar Jóhannsson, Hólmavik. Upplýsingar um gistingu veita Gunnar Jóhannsson, Hólmavík, simi 95-13180 og Daði Guðjónsson, Hólmavík, sími 95-13151. Stjórnin. 3. Almennar umræður. 4. Kosningar. 5. Afgreiðsla mála.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.