Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 1
72 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
227. tbl. 81. árg.
FIMMTUDAGUR 7. OKTOBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Clinton leitar
undankomu
frá Sómalíu
Washington. Daily Teiegraph.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti varði deginum í gær á fundum
með ráðherrum sínum og ráðgjðfum í varnar- og utanríkismálum
og var tilgangurinn að finna leið til þess að kalla um 5.000 banda-
ríska hermenn heim frá Sómalíu.
Tólf bandarískir hermenn a.m.k.
féllu í átökum við sómalska byssu-
menn um síðustu helgi og voru
nokkrir teknir til fanga. Uppistand
er á Bandaríkjaþingi vegna þessa,
reiðir kjósendur hringja í þingmenn
og krefjast þess að herliðið verði
kallað heim. Hefur ástandinu verið
líkt við það sem einkenndi hernað-
arafskipti Bandaríkjamanna í Víet-
nam. Þá hefur stjórn herliðs Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) í Sómalíu
sætt harðri gagnrýni.
Mannfallið varð er herflokkur var
sendur til aðgerða í Mogadishu en
hann lokaðist inni og liðsauki barst
loks níu stundum seinna. Upplýst
hefur verið að Les Aspin varnar-
málaráðherra hafi synjað beiðni um
að senda sérstaka brynvagna til
Sómalíu en öruggt þykir að hægt
hefði verið að koma herflokknum
strax til hjálpar hefðu sveitirnar
haft yfir þessum búnaði að ráða.
Niðurstöður skoðanakönnunar
sem birtar voru í gær sýna að mik-
ill meirihluti bandarísku þjóðarinnar
er því fylgjandi að bandarískir her-
menn verði kvaddir heim þegar í
stað.
Clinton veittist að yfirstjórn her-
liðs SÞ í gær og sagði að áður en
SÞ tók við stjórn herliðsins hefði
28.000 manna bandarískt lið haft
tök á ástandinu í landinu. Hann
sagði að sjónvarpsmyndir af með-
ferð Sómala á líkum fallinna her-
manna hefðu fyllt sig viðbjóði.
„Manni gremst sérstaklega í ljósi
þess að sveitirnar voru sendar til
Sómalíu til þess að bjarga börnum
frá hungurdauða, opna sjúkrahús
og skóla á ný og tryggja fólki ör-
uggan náttstað," sagði Clinton.
Georgíumenn flýja Abkhazíu
GEORGÍSKIR flóttamenn streyma nú til íjalla frá
Abkhazíu-héraði í Georgíu. Talið er að um 100.000
manns hafi leitað skjóls í fjallaþorpum en Abkhazar
og Georgíumenn heyja nú grimmilega styijöld. í gær
hittust þrír fulltrúar abkhazískra uppreisnarmanna
og svissneskur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Genf.
Ræddu þeir hvernig koma megi á friði í Georgíu
en fulltrúar Georgiu sóttu ekki fundinn. Reynt var
að koma á friðarviðræðum milli stríðandi aðila um
miðjan september en þeim var frestað er uppreisnar-
menn í Abkhazíu réðust á Sukhumi. Á myndinni
teygir flóttafólk sig eftir pakka af megrunardufti.
Reuter
í haldi Sómala
MIKE Duran þyrluflugmaður er
nú í haldi stuðningsmanna Mo-
hamed Aideeds. Mynd af upp-
töku á yfirheyrslum yfir Duran.
Jeltsín einsetur sér að
kosið verði í desember
Rússar hóta að segja upp samningum um takmörkun hefðbundins herafla
í Evrópu, verði þeim ekki leyft að auka viðbúnað hersins í Kákasusfjöllum
Jordan hættur
Chicago. Rcutcr.
MICHAEL Jordan, körfubolta-
stjarnan bandaríska, lýsti yfir
í gær, að hann hefði lagt skóna
sína á hilluna. Kvaðst hann
hafa náð svo langt, sem komist
yrði, og ekki hafa áhuga á að
halda áfram á toppnum. Hann
vildi þó ekki sverja fyrir, að
hann klæddist einhvern tíma
aftur búningi Chicago Bulls.
„Ég er nú á hátindi ferils míns,"
sagði Jordan á blaðamannafundi,
„og mér finnst ég ekki hafa leng-
ur að neinu að keppa.“ Kvaðst
hann aldrei mundu keppa fyrir
annað lið en það, sem hann vann
með þijá heimsmeistaratitla, og
Moskvu. Reuter. The Daily Telegraph.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í sjónvarpsávarpi sínu til
rússnesku þjóðarinnar í gær, að þingkosningar yrðu haldnar í
landinu þann 12. desember eins og áætlað hefði verið. Sagði
hann það ósk sína að kosningar til héraðsstjórna yrðu haldnar
um leið og hvatti til þess að héraðsráðin yrðu leyst upp. Jeltsín
aflétti í gær ritskoðun og viðurkenndi að hún hefði verið mistök.
í gær var ennfremur sagt frá því að rússnesk stjórnvöld hefðu
hótað að segja upp CFE-samningnum um takmörkun hefðbundins
herafla í Evrópu verði þeim ekki leyft að auka viðbúnað rússn-
eska hersins á óróasvæðum í Kákasusfjöllum.
Ávarpið í gær var hið fýrsta sem
Jeltsín flytur þjóðinni eftir að herinn
braut á bak aftur uppreisn harðlinu-
afla í Moskvu. Fullvissaði forsetinn
Rússa um að hann myndi ekki sýna
þeim sem vildu koma á kommún-
isma að nýju neina linkind. Viður-
kenndi Jeltsín að harin hefði van-
metið staðfestu andstæðinga sinna
og sagði að niðurstaða atburða síð-
ustu daga væri sú að lýðræðið yrði
að veija. Forsprökkum uppreisnar-
innar, þeim Alexander Rútskoj og
Rúslan Khasbúlatov, yrði ekki sýnd
nein miskunn.
í ræðunni viðurkenndi Jeltsín að
sá tími sem uppreisnin hefði staðið,
hefði reynst erfiður: „I hreinskilni
sagt höfðu ekki allir stjórn á sjálfum
sér, nægan styrk og taugar til að
standast þá gríðarlegu spennu sem
ríkti á örlagastundu." Blaðamaður,
sem var í Kreml á meðan uppreisn
stóð, hefur sagt Jeltsín hafa verið
sem lamaðan nær allan tímann.
Keuter
Michael Jordan
kveður.
að ég
vel verið
Jordan.
Sjá ennfremur á bls,
neitaði raunar
að aftaka með
öllu, að hann
léki aftur með
Bulls.
„Mér dettur
ekki i hug að
segja „aldrei,
aldrei". Ef
mig langar til
að leika með
þeim eftir
fimm ár og
þeir vilja taka
við mér getur
slái til,“ sagði
50.
Hvíta húsið verði aðsetur
stjórnarinnar
Á fundi Öryggisráðs Rússlands
í gærmorgun sagði Jeltsín nauðsyn-
legt að gera ráðstafanir til að
tryggja framtíðarstöðu rússneska
hersins. Bjóst hann að við að áætl-
un um framtíðarhlutverk hans yrði
undirrituð að viku liðinni. Þá lýsti
Jeltsín því yfir að aðsetur stjórnar-
innar yrði flutt í Hvíta húsið en
stofnaður hefur verið sjóður til að
greiða viðgerðir á þeim byggingum
sem tjón varð á í bardögum á
sunnudag og mánudag.
Valeríj Zorkín sagði í gær af sér
sem forseti Stjórnlagadómstólsins
vegna mikils þrýstings frá Jeltsín.
Hóta að segja
CFE-samningnum upp
Haft eftir heimildum í höfuð-
stöðvum Atlantshafsbandalagsins,
NATO, í Brussel í gær að Rússar
hótuðu að segja upp CFE-samn-
ingnum, fengju þeir ekki undan-
þágu til að auka viðbúnað hersins
í Kákasusfjöllum. Aðildarríki
bandalagsins og Austur-Evrópurík-
in hafa neitað að fallast á nokkrar
undanþágur frá samningnum. Haft
var eftir ónefnduin embættismanni
hjá NATO að samningurinn væri
ónýtur, segðu Rússar honum upp.
Sjá nánar á bls. 24.
Enginn gæt-
ir Leníns
Moskvu. Reuter.
HEIÐURSVÖRÐUR við graf-
hýsi Leníns við Rauða torgið
í Moskvu var aflagður í gær.
Sérstakar öryggissveitir í
Kreml hafa gætt grafhýsisins.
í frétt Itar-Tass fréttastofunn-
ar var haft eftir yfirmanni
sveitarinnar að um „breytt
fyrirkomulag" væri að ræða.
Engin frekari skýring var gef-
in. Grafhýsið var opið í gær
en óvíst er um framhaldið.
Heiðursvörður hefur verið við
grafhýsið frá því að Lenín var
lagður þar til hinstu hvílu árið
1924. Hefur gæsagangur varð-
manna við vaktaskipti jafnan
verið vinsæll meðal ferðamanna
og borgarbúa.
Eftir fall Sovétríkjanna 1991
var gerð tilraun til að loka graf-
hýsinu og greftra Lenín annars
staðar en hún mistókst. Þótti
mörgum Rússum það merki um
að þjóðin hafi ekki getað gert
upp við eigin fortíð. Það að leggja
af heiðursvörð við grafhýsið þyk-
ir bera vott um algera afneitun
hinnar kommúnísku fortíðar
landsins.