Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 7. OKTÓBER 1993
7
Lýðveldisgarður bú-
inn til við Hverfisgötu
KYNNT hefur verið í borgarráði
Reykjavíkur skipulag um lysti-
garð og torg, Lýðveldisgarð, á
horni Smiðjustígs og Hverfisgötu
í tilefni af 50 ára afmæli lýðveld-
isins næsta sumar. Einnig er ráð-
gert að þarna verði komið fyrir
bautasteinum sem minntu á þessi
tímamót íslensku þjóðarinnar.
Óskað var eftir því af hálfu
Reykjavíkurborgar að lýðveldisaf-
mælisnefnd Reykjavíkurborgar,
garðyrkjustjóri, Borgarskipulag og
Skógræktarfélag Reykjavíkur hug-
uðu að því fyrir lýðveldisafmælið
að komið yrði upp lystigarði þarna
og litlu torgi. Lóðin sem garðinum
hefur verið valinn staður er tæplega
700 fermetrar að stærð. Samkvæmt
skipulagi um þennan garð á að
flytja þangað 4-5 metra há tré og
á garðurinn að vera tilbúinn fyrir
17. júní á næsta ári. Kostnaðar-
áætlun hljóðar upp á 5-6 milljónir
kr. Skógræktarfélag mun gefa trjá-
gróðurinn og Reykjavíkurborg fjár-
magnar verkið að öðru leyti.
Berg úr fjórðungunum
Gert er ráð fyrir að lítið báru-
járnshús sem reist var árið 1903
og stendur á þessum stað verði flutt
á brott. A þessum stað er um sjö
metra hár silfurreynir og fær hann
að stnda og verður uppistaðan í
tijágróðrinum á svæðinu. Vestan
við lóðina er tvílyft steinhús frá
1912 sem Jón Magnússon, fyrsti
forsætisráðherra landsins, lét reisa,
en að austanverðu er steinhús sem
reist var 1913 og er þar danska
sendiráðið. í skipulagshugmyndum
á að koma fyrir einkennisbergi frá
þingstöðum fjórðunganna til forna.
Drög að Lýðveldisgarði
LOÐIN þar sem Lýðveldisgarðurinn á að verða. Á uppdrættinum
sést hvernig garðurinn kemur til með að líta út, samkvæmt skipu-
laginu sem kynnt hefur verið.
Guðmundur J. Guðmundsson, Dagsbrún
Atvinnutrygginga-
gjald samningsbrot
Fleiri forsendur kunna að vera brostnar
GUÐMUNDUR J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar
tekur undir orð Benedikts
Davíðssonar forseta ASÍ um
að áform um 0,5% atvinnu-
tryggingagjald séu brot á for-
sendum kjarasamninga og
álítur hann að fleiri forsend-
ur samninganna kunni að
vera brostnar.
Guðmundur vísar til yfirlýsing-
ar ríkisstjórnarinnar, sem fylgdi
kjarasamningunum. Þar er stefnt
að vaxtalækkun en Guðmundur
segir vexti hafa fremur hækkað
en lækkað. „Ég vil ekki kenna rík-
isstjórninni um vaxtahækkanirn-
ar,“ sagði Guðmundur, en sagði
að bankarnir virtust vera sjálf-
stæðar höfuðskepnur sem enginn
næði tökum á.
Nefnd skipuð sex fulltrúum
verkafólks og vinnuveitenda á að
endurskoða forsendur kjarasamn-
inganna og skila áliti fyrir 10.
nóvember. Hvor aðili getur óskað
endurskoðunar og ef slík ósk kem-
ur frárn renna samningarnir út
um áramót. Guðmundur treysti sér
ekki til að segja til um á þessu
stigi hvort fulltrúar launþega
myndu óska eftir endurskoðun, en
þótti það líklegra. Hann sagðist
finna fyrir miklum þrýstingi innan
Dagsbrúnar á uppsögn samning-
anna.
Alþingi
Stök þing-
skjöl seld
SKRIFSTOFA Alþingis hefur
ákveðið að taka framvegis
gjald fyrir einstök þingskjöl,
sem send eru í áskrift viku-
lega, en til þessa hefur þeim
verið dreift ókeypis.
Þingskjöium er safnað saman
og þau gefin út í A-hluta Alþing-
istíðinda, í B-hluta tíðindanna eru
skráðar umræður á þingi. Árs-
áskrift að Alþingistíðindum kostar
nú 5.000 krónur. Nokkrir aðilar
hafa óskað eftir að fá þingskjölin
send óinnbundin og hafa þeir not-
ið þeirrar þjónustu' án þess að
gjalda fyrir en verður nú gert að
greiða 3.500 krónur á ári.
Helgi Bernódusson deildarstjóri
á skrifstofu Alþingis segir að með
gjaldtökunni sé verið að samræma
innheimtu fyrir þingskjöl. Einnig
segir hann að með gjaldtöku fyrir
þingskjöl sé verið að stemma stigu
við ókeypis dreifingu sem starfs-
mönnum þingsins hafi þótt keyra
úr hófi á stundum. Þess hafi verið
dæmi að kennarar sendu nemend-
ur svo tugum skipti til að sækja
þingskjöl, án þess að gjalda neitt
fyrir.
- með öllu tilheyrandi!
Ferðamálaráð Dublinar og Samvinnuferðir - Landsýn efiia til írskra daga
í Naustinu, Naustkjallaranum og Borgarkringlunni í dag, á morgun og á laugardag.
ÓSVIKIN ÍRSK
írsk tónlist, írskur matur, írskur
drykkur og kynning á Dublin og
öllu því sem hún hefur upp á að
bjóða.
Comhaltas Ceoltoiri Eireann,
ein vinsælasta þjóðlagahljómsveit
íra flytur írsk þjóðlög.
Afkomendur Ira í Ríó taka lagið
af einskærri gleði.
GIÆSIIEGIR FERÐAVINNI
Öllum býðst að taka þátt
í laufléttri ferðagetraun.
Verðlaunin eru ekki af
verri endanum - ferð til
Dublinar, hvert annað?
♦
NAUSTIÐ OG NAUS
Hin írska glaðværð mun ríkja í Naustinu og Naustkjallaranum í
kvöld, annað kvöld og laugardagskvöld. Frá kl. 18 er sérstakur
þríréttaður írskur matseðill með „Irish stew“ og öllu tilheyrandi
fyi'ir aðeins 2.500 kr. Félagarnir í Comhaltas Ceoltoiri Eireann
leika af fimum fingrum fram og Ríó gefur söngvagleði sinni lausan
tauminn. Allir taka undir! íésaí*L
60RGARKR1N' *
Kynning á Dublin og öllu því sem hún hefur upp á að bjóða
á fóstudag kl. 16-18 og laugardag kl. 14-16. Snillingarnir í
Comhaltas Ceoltoiri Eireann krydda kynninguna með
hinni einstöku tónlist sinni.
Nú geta þúsundir íslendinga
rifjaö upp stemmninguna í
Dublin og enn fleifi fengiÖ
nasasjón afþví sem koma
skal!
Reyfcjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 •
Simbréf 91 • 2 77 96 / 69 10 95 • Teiex 2241 • Hótel Sógu við HagatorQ •
S. 91 - 62 22 77 • Simbrét 91 - 62 24 60 Hafnartjörður Reykjavikurvegur 72
• S. 91 - 511 55 Ketlavik: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Simbréf 92 -13 490
Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93.-1 33 86« Símbrét 93 -1 11 95
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. % - 27200
• Slmbréf 96-1 10 35 Vestmannaeyjar QAIXAS/ff
m
Vestmannabraut 38 •
• Simbréf 98 -1 27 92
-112 71
EUROCAFID.
Samvininiferllir
lanúsýn