Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 10

Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER T993 Kyrralíf á ljósmynd Myndlist Bragi Asgeirsson Á vettvangi myndlistarinnar, er ekki nauðsynlegt að mála æsilegan viðburð til að.umbylta gefnum for- sendum á myndfleti, því að eitt epli getur allt eins komið byltingu af stað. Það er vegna þess, að myndlistin er í flestum tilvikum síður list frá- sagnarinnar en sjálfs vinnuferl- isins. Þannig umbylti kúbisminn myndlistinni á sínum tíma og var þó mest stuðst við myndefni næsta umhverfis og þagnarinnar. Bæði í bókstaflegum skilningi, og eins er annað myndefni notað, t.d. lands- lag og fígúrur, en þau voru með- höndluð líkt og tíminn hafi stöðv- ast. Þessar staðreyndir eru Leifi Þor- steinssyni ljósar við val myndefnis, því að hann tekur myndir sínar á vinnustofunni, sjálfum sér til ánægju og tilbreytingar frá öðrum verkefnum, sem eru mjög margvís- leg og vafalítið ekki alltaf að sama skapi skemmtileg. Viðfangsefnin eru eins og segir í einblöðungi er þjónar sem sýningarskrá: „Hljóðl- átir, hversdagslegir hlutir og blóm úr garðinum, sem höfðu viðdvöl á vinnustofunni í lengri eða skemmri tíma.“ Sýningin er til staðar í Stöðla- koti við Bókhlöðustíg og fellur mjög vel inn í hið litla en hlýlega rými. Á neðri hæðinni eru kyrralífsmynd- ir í möttum og djúpum tónum, en á efri hæðinni eru blómamyndir og er þá áferðin skörp, glansandi og stássleg, en án þess að fara út yfir mörkin. Alla þessa sýningu einkennir óvenjulegt látleysi og kyrrlát fegurð og svo vel tekst Leifi að fanga einkenni hvers myndefnis, að hvergi er um veikan punkt að ræða á allri sýningunni. í myndunum á neðri hæðinni vinnur hann næstum í anda málar- ans J.-B.S. Chardins nema að hér er um að ræða ljósmyndir en ekki málverk, en verkin eru skyld að yndisþokka og látleysi. Á efri hæðinni eru formin meitl- aðri og það er sama hvert Leifur beinir ljósopinu, því allar myndirnar búa yfír innri töfrum hvort heldur um er að ræða fífil, rós, puntustrá, bifukollu eða valmúa. Myndirnar eru unnar með tveim- ur mismunandi aðferðum annars vegar með Polaroid-filmu, yfir- færðri á vatnslitapappír, þannig að aðeins er til eitt eintak af hverri mynd og hins vegar á Ilford Color de Luxe-stækkunarpappír fyrir negatívfilmu. A tímum, er Ijósmyndin er í mik- illi sókn í heiminum og himinhátt verð fæst fyrir verk nafnkenndra ljósmyndara er ákaflega mikilvægt að við séum meðvitaðir um þróun- ina og fylgjumst vel með athöfnum ljósmyndasmiða okkar. Og sem betur fer hafa þeir sjálfir ekki sofn- að á verðinum, því að margt er framúrskarandi vel gert á sviðinu um þessar mundir, og telst sýning Leifs Þorsteinssonar gilt og verð- mætt innlegg. Þetta er sýning sem margur mun hafa drjúga ánægju af að skoða. Málað á silki Myndlistarkonan Erna Guðm- arsdóttir er engin óþekkt stærð á íslenzkum listavettvangi þó að einkasýning hennar í listhúsinu Sneglu að Grettisgötu 7 sé jafn- framt frumraun hennar á þeim vettvangi. Erna hefur til að mynda unnið við leikbrúðugerð frá árinu 1967 og farið víða um lönd með leik- hópi Leikbrúðulands. Þá er hún ágætlega menntuð á íslenzkan mælikvarða, en hún hefur bæði numið við Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskóla Islands, en hún Erna Guðmarsdóttir við eitt verka sinna. lauk þar prófi í kennaradeild árið 1985. Þá er hún gift einum Leifur Þorsteinsson. fremsta leikmyndasmiði þjóðar- innar og jafnframt vel þekktum málara, og hefur þannig alla tíð mikið umgengist leikara og myndlistarmenn sem er í sjálfu sér dijúgur skóli. En þrátt fyrir það átti maður naumast von á jafn heillegri sýn- ingu frá hennar hendi og raun er á og sannast sagna vinnur hún umtalsverðan listasigur. Um er að ræða 40 myndir, sem allar eru málaðar á kínverskt silki og myndefnið sótt í blæbrigði landslags, Ijóss og lita í náttúru landsins eins og það heitir í sýn- ingarskrá. Tilvísunin fer satt að segja að verða dálítið lúin, því nú vilja flestir tengja sköpunar- ferli mynda sinna þessum atrið- um. Stundum er þó erfitt að koma auga á samhengið, því maður verður ekki alltaf var við bein tengsl við móður náttúru í myndverkum viðkomandi. En hvað verk Ernu snertir, kemur það einmitt mest á óvart hve ferskar þær eru og hve sterk- ur svipur er í þeim með litbrigð- um landsins og ýmsum tilbrigð- um í íslenzkri náttúru, sem mað- ur þekkir og kannast við. Allar eru myndirnar málaðar á þessu ári og yfirbragð þeirra er mjög í ætt við þá miklu feg- urð og ferskleika sem náttúran hefur skartað hér á suðvestur- horninu. Í upphafi sumars var t.d. mikill kuldi í lofti og sumarið virtist aldrei ætla að koma, en dýpt og skýrleiki litrófsins allt um kring var með ólíkindum. Þetta finnst mér koma greinilega fram í litrófi myndanna og má það vera ljóst að listakonan hefur ekki snúið bakinu að glugganum er hún málaði, eins og það er stundum orðað, heldur rýnt út um hann og þar með uppgötvað og upplifað. Og það eru hinar tæru myndir sem maður staðnæmist helst við eins og t.d. „Jöklásýn" (4), „Frá Þingvöllum" (8), sem hefur sur- realistískt yfirbragð, „Jökullón II“, „Hekla" og „Snæfellsjökull“ (18, 19 og 20) svo og „Haust á Þingvöllum“ (28). Allt eru þetta vel málaðar myndir jafnframt því sem að í þeim felst innri neisti sköpunar. Orgeltón- leikar Nemendur Páls Isólfssonar leika í Dómkirkjunni og Fríkirkjunni VEGNA aldarafmælis dr. Páls ísólfssonar hafa nemendur hans í samvinnu við Félag íslenskra organleikara ákveðið að efna til þrennra orgeltónleika í Dóm- kirkjunni og Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir verða með nokkru öðru sniði en tíðkast á slíkum tón- leikum þar sem menn munu jafn- framt í töluðu orði segja frá kenn- ara sínum og kynnum sínum af honum. Dr. Páll ísólfsson var organleik- ari við báðar þessar kirkjur og þótti því rétt að vera á báðum stöðunum. Fyrstu tónleikamir verða föstu- daginn 8. október kl. 18 í Dómkirkj- unni og leikur þá Árni Arinbjarnar- son á orgelið en Daníel Jónasson og Kristján Sigtryggson munu ræða um Pál og kynni sín af homim. Aðrir tónleikarnir í þessari röð verða sunnudaginn 10. október kl. 18 í Fríkirkjunni í Reykjavík og mun Ragnar Bjömsson leika á org- elið og jafnframt ræða um Pál ásamt Njáli Sigurðssyni. Þriðju og síðustu tónleikamir verða svo mánudaginn 11. október kl. 18 í Dómkirkjunni. Þar mun Kjartan Sigutjónsson leika á orgelið og ræða um Pál ásamt Njáli Sig- urðssyni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Höfóar til .fólksí öllum starfsgreinum! íslenska leikhúsið frumsýnir í Tjarnabíói í kvöld Islendingnr í fangabúðum nasista Pétur Einarsson leikur Leif Muller í sýningunni Býr íslendingur hér? BÝR ÍSLENDINGUR HÉR? heitir leikrit sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í kvöld klukkan átta. Það byggist á minningum Leifs Muller sem Garðar Sverrisson skráði á samnefnda bók er út kom fyrir jólin 1988 og náði metsölu. Leifur fór ungur maður til náms í Noregi og varð þar inn- lyksa í stríðinu. Hann var svikinn í hendur Gestapó og sendur í Sachsenhausen þrælkunarbúðirnar í Þýskalandi 22 ára gamall. Þar var hann næstu tvö árin. Hann komst aftur til Islands eftir að stríðinu lauk en megnaði ekki að segja sögu sína fyrr en und- ir lokin. Þórarinn Eyfjörð setti hana á svið og Pétur Einarsson leikur Leif Mull- er. Hann rifjar í leikritinu upp atburði stríðsáranna á stofu læknis, sem Halldór Björnsson leikur. Þórarinn segir að umgjörð leikritsins sé látlaus og einföld eins og frásögn Leifs í bókinni. „Seinni heimsstyrjöldin er fyrir- ferðarmikil í menningu okkar ef svo má segja og mér fannst ég hafa heyrt hér um bil nóg. En bók Garðars sló mig algerlega út af laginu. Saga þessa íslenska manns sem varð fangi númer 68138 hvarf ekki úr huganum og mér fannst ég skilja margt betur eftir lestur hennar. Þarna kristallast örlög eins manns í bijálæði stríðsins og kalla á af- stöðu til styijaldarreksturs. Vekja líka spurningar um hvern- ig menn fáist til voðaverka eins og þeirra sem framin voru á stríðsárunum og framin eru til dæmis í Júgóslavíu samtímans þótt umfangið sé minna. Við höldum hér á íslandi að styijaldir snerti okkur ekki, ónæm og fjarlæg. En þó ekki fjarlægari en svo að í Persaflóa- stríðinu mættu 200 ungir menn í franska sendiráðið og vildu fá að vera með. Stríð er aldrei hægt að réttlæta og glæpir sem þar eru framdir eru engum manni óviðkomandi. í fangabúðum nas- ista sem enn standa til minja um hörmungamar stendur: Aldrei aftur. Þessu má ekki gleyma. Múgsefjun og ógn virðist hvort um sig eða saman geta fengið venjulegt fólk til að slaka á kröf- unni um grundvallarmannrétt- indi öllum til handa. Skortur á umburðarlyndi getur breyst í hatur og óeðli og þegar mannúð fer aðeins að beinast að útvöldum er voðinn vís.“ Hörmungar Leifur Muller fæddist í Reykja- vík 1920. Hann lauk prófi frá gagnfræðadeild Menntaskólans og hélt síðan til Noregs í verslun- arskóla. Árið eftir skall heims- styijöldin á og þótt Þjóðveijar hafi hertekið Noreg og Dan- mörku 1940 ákvað Leifur að fara ekki með löndum sínum, frá Pets- amo heim til íslands. Hann var svikinn í hendur Þjóðveija 1942 þótt hann hefði engin pólitísk tengsl. Sekt hans var sú ein að hafa ætlað heim, um óvinaríkið Bretland og til íslands. í júlí næsta ár var hann fluttur í Sac- hsenhausen þrælkunarbúðirnar skammt norðan við Berlín, þar sem miðað var við níu mánaða líftíma fanga. En Leifur lifði af. Rauði krossinn sendi mat til Norðurlandabúa í búðunum og ef til vill hefur það bjargað hon- um. Vorið 1945 fluttu samtökin þessa fanga úr búðunum og síðan til Svíþjóðar. Ósigur Þýskalands var innsiglaður 8. maí. I júlí flaug Leifur til íslands. Hann leitaði lækninga í Noregi ári seinna og kynntist þar konu sinni Bimu Sveinsdóttur. Þau eignuðust fimm börn. Leifur tók við verslunarrekstri föður síns í Reykjavík og sneri sér síðar að fataframleiðslu. Hann hóf 1974 bréfaskipti við fyrrverandi sam- fanga og fór einu sinni að hitta þá. Hann hætti störfum 1984 og lést í ágúst 1988. Skömmu áður sagði hann Garðari Sverrissyni sögu sína. Það megnaði hann ekki fyrr en þá. Frumsýning leikritsins um Leif verður í Tjamarbíói í kvöld klukkan 20 og næstu sýningar á sama tíma á laugardag og næst- komandi þriðjudag. Þegar er get- ið leikara og leikstjóra en leik- mynd gerði Gunnar Borgarsson, lýsingu annast Elfar Bjamason og hljóðmynd hefur Hilmar Örn Hilmarsson gert. Þ.Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.